Þjóðviljinn - 12.08.1980, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriftjudagur 12. agúst 1980
Þegar Benóný
gerði jafntefli
við Rússana
Þegar stjarna Frið-
riks Ólafssonar var á
hvað mestri uppleið
seinni part 6ta áratugs--
ins áttu sér stað hér á
landi skákviðburðir sem
enn eru mönnum i
fersku minni. Það voru
einkum einvígi Friðriks
við þá Pilnik og Larsen
sem áttu hugi manna, en
aðrir atburðir vöktu
einnig óskipta athygli.
Svo var altént um Guð-
jónsmótið, sem haldið
var til minningar um
Guðjón M. Sigurðsson,
einn fremsta skákmann
íslendinga fyrr og síðar.
í Guðjónsmótinu voru
þátttakendur 10 talsins,
þar af 2 erlendir skák-
meistarar, Sovétmenn-
irnir Taimanov og
Ilvitski.
Úrslit urðu þau að Frið-
rik vann sigur, hlaut 8
vinninga af 9 mögu-
legum en Sovétmenn-
irnir komu steinsnar á
eftir honum með 7 1/2,
vinning. Langt á eftir
þeim kom svo Gunnar
Gunnarsson með 4 vinn-
inga og Guðmundur
Ágústsson og Benóný
Benediktsson deildu 5.
sætinu með 3 1/2 vinn-
ing.
Þrir þeir efstu geröu jafntefli i
innbyröis skákum, en það sem
geröi gæfumuninn var óvænt
frammistaöa Benónvs Benedikts-
sonar sem geröi jafntefli við báöa
Rússana. Reyndar átti Benóný
gjörunnið tafl á Ilvitskten missti
þaö niöur i jafntefli. Gegn Tai-
manov átti hann hinsvegar i vök
aö verjast en með frækilegri vörn
bjargaöi hann hálfum vinningi i
land. Enn i dag er þessarar skák-
ar minnst meö lotningu, og menn
sem ekki voru svo mikiö sem
fæddir á þessum tima, tala um
hversu gamanhafi veriö aö horfa
á Benóný kljást við Rússana! Þó
aö skákir þessar hafi sjálfsagt
margoft birst i blööum áöur, er
góð visaaldrei of oft kveöin.
Hvitt: Benóný Benediktsson
Svart: Ilvitskf
Grilnfeldsvörn
1. d4-Rf6 4. Bg5-Re4
2. c4-g6 5. cxd5!?-Rxg5
3. Rc3-d5 6. h4-
(Þó aö Benóný sé ekki vanur aö
þræöa troönar slóöir þá er þetta
þó þekkt hugmynd. Nú er taliö
best að leika 6. -Re4 7. Rxe4-Dxd5
8. Rc3-Daö og svartur má vel viö
una.)
6. ..-e6
7. hxg5-exd5 9. Db3-c6
8. Rf3-Bg7 10. Hh4-
(En hér ekta „Benóný — leikur”
á feröinni. Hugmyndin er aö
styöja viö framrásina e2-e4.)
10. ..- DbS 13. cxd5-cxd5
11. Dxb6-axb6 14. Bb5 + -Ke7
12. e4-Be6 15. Kd2-
(Lúmskur leikur sem hótar 16.
Hahl.)
15. ,.-h5
16. Hael-Kd6
(Og nú varö svartur aö svara
hótuninni 17. Rxd5+.)
17. Bd3-Rc6
18. a3-Hhc8
19. Rb5 + -Kd7
20. b4!-
(Guömundur Arnlaugsson sem
skýrir þessa skák I Tfmaritinu
,,Skák” mars-april hefti 1956
telur þennan leik eilítiö vafa-
saman, en seinni tima maður
getur ekki fallist á það. Leikurinn
þrengirmjögaðkostum svarts og
kemur i veg fyrir Ra5-c4)
20. ..-Bf8
21. Hf4-Be7
(Guömundur stingur uppá 21. -
Rxb4! ? og má vera aö sá leikur sé
betri.)
22. He3-Kd8
(Ilvitski var oröinn svo ráöþrota
gagnvart í senn frumlegri og
hnitmiöaöri taflmennsku Benó-
nýs aö nú gerir hann herfilega
skyssu. Eöa samkvæmt gömlu
spakmæli: I vondum stööum
liggja leikirnir i leyni.)
23. Bxg6!-
(Nú eru góö ráö dýr.)
23. ..-Rxb4!?
(Þaö er ekki laust við að þessi
leikur beri nokkurn keim af ör-
væntingu.)
24. Bxf7-Hc2 +
25. Kdl-Bd7
26. g6-Bf8
27. Bxd5!-Bh6
28. ..-Bxb5
(Aörir leikir koma ekki til
greina.)
29. Rf7+-Kd7 31. Bb3-Hb2
30. Rxh6-Kd6 32. Hf7?-
(Nærtækur leikur en ekki sá
besti. Eftir 32. Kcl!- er svartur
endanlega glataður t.d. 32.
Hxb3 33. Hxb3-Rd3- 34. Hxd3-
Bxd3 35. g7-Bc4 36. Hf8- o.s.frv.
Þrátt fyrir þessi mistök er
Benóný ekki búinn að missa af
vagninum.)
32. .. Hxb3! 35. axb4-Bxb3+
33. Rf5+-Kd5 36. Kd2-Ke4
34. Hxb?-Ba4 37. f3+?
(Onnur ónákvæmni og nií fer
vinningurinn aö veröa torsóttur.
Eftir 37. Rg3-Kxd4 38. Hd7- er
afar hæpiö aö svartur sleppi lif-
andi.)
37. ..-Kf4
38. Rg7 + -Kg5
(Benóný haföi búist viö 38. -Bxf7
39. gxf7- og för f-peösins upp i
borö veröur ekki hindruð nema á
kostnaö hróks.)
39. Hxb7-Kxg6
40. g+
(Það er óliklegt aö hvitur eigi
vinningsmöguleika meö þvi aö
gefa riddarann, 40. Rxh5 og 41.
Hxb6.)
40. ..-hxg4
41. fxg4-Ha4
42. Rf5-
(Eöa 42. Kc3-Bf7 o.s.frv.)
42. ..-Hxb4
43. Kc3-Hb5
44. Hg7-Kf6
45. Hh7-Bd5
46. Hd7-Be6
47. Hd6-Kf7
48. Re3-Ke7
49. Rc4-Bxg4
50. Hxb6-Hxb6
51. Rxb6-Bf3
— Jafntefli.
Framhald á bls. 13
Frá Blönduósi:
Hótelkaup og fleira
— Hér er nú náttúrlega ekki
um að ræða neinar sérstakar
stórframkvæmdir að þvi er
■ þeim mun sjálfsagt þykja, sem
vanir eru risaátökunum i höfuð-
borginni fyrr og siðar, sagði
[ Hilmar Kristjánsson oddviti á
I Blönduósi, er Landpóstur ,,sió á
þráðinn” til hans,nú laust fyrir
I siðustu helgi.
j Hótelkaup
— En þaö má kannski segja
| frá þvi, aö hreppurinn réðist i
■ það, ásamt fleirum, aö kaupa
I Hótel Blönduós I vor. Þeir, sem
I að þessum kaupum stóöu, auk
I hreppsins, eru Kaupfélagiö,
« sýslufélagiö, Pólarprjón og
I Arnarflug. Eftir aö gengiö haföi
I veriöfrákaupunum var fariöaö
I huga aö endurbótum á húsinu og
■ er þeim nú lokið. Var húsið allt
I tekiö i gegn, málaö hátt og lágt
I utan og innan, skipt um hrein-
I lætistæki, teppi, dúka og hús-
■ gögn aö verulegu leyti, svo
I þarna hafa átt sér staö gagnger-
I ar endurbætur. Kostnaöurinn
I viö þessar endurbætur er liö-
■ lega 30 miljónir en kaupverö
I hússins var 70 milj. svo i þetta
] eru komnar um 100 milj. kr.
I Hlutafé er 60 milj. Reiknað er
* meö að fleiri aöilar komi inn i
* reksturinn, bæöi einstaklingar
| og fyrirtæki. Viö leggjum
I áherslu á aö fá fyrirtækin með
* enda hafa þau hagsmuna að
| gæta i sambandi við svona
I rekstur.
I Viö leigöum Feröaskrifstofu
* rikisins hóteliö til áramótanna
' 1982-1983 og veröur þarna rekið
I Eddu-hótel áriö um kring.
I Rekstur hótelsins hefur gengiö
* mjög vel i sumar, nýting verið
J ágæt. Hótelstjórinn er heima-
I máöur, Sigurgeir Sveinbergs-
I son.
t framhaldi af þessu má svo
J kannski nefna, aö viö höfum út-
I búiö hér tjaldsvæöi. Aö visu er
I snyrtiaöstaöa ekki orðin nógu
■ góö ennþá en stendur vonandi
“ fljótlega til bóta. Eru tjaldstæö-
I in á Sýslumannstúninu fyrir
I neöan Esso-skálann. Þarna
' hugsum viö okkur að koma upp
| framtiöar tjaldaöstööu.
I Gatnagerð og gang-
! stéttagerð
I Þá er nokkuö unniö aö gatna-
I gerö. Aö visu er ekki varanlegt
I slitlag lagt á götur hér nú en
’ fyrst og fremst unniö aö jarö-
I vegsskiptum og þviumllku, sem
I er auövitaö undanfari varan-
I legrar gatnageröar. Aætlaö er
J aö vinna fyrir um 34 miljónir kr.
I viö götur og holræsi.
Talsvert er og aö þvi gert aö
I steypa gangstéttir og ef aö þaö
| er taliö meö hinu, sem áöur er
I nefnt, þá eru þaö um 50 miljónir
I kr. sem fara til þessara fram-
* kvæmda.
I íbúðabyggingar
Viö erum aö byggja 6 ibúðir i
i verkamannabústööum. Byrjuö-
Ium á þeim I nóvember i fyrra og
á aö afhenda þær nú fyrir ára-
| mót. Húsnæöisskortur hamlar
> hér mjög fólksfjölgun þvi vinnu
| vantar ekki.
Leikskóli er og I byggingu.
Aformaö hefur verið aö ljúka
viö aö byggja hann á þessu ári
en hvort sú á ætlu n stenst er ekki
alveg séö, fjármagniö temprar
hraðann, en viö hann veröur þó
a.m.k. lokiö næsta vor.
Ofurlitiöhefur veriö unniö hér
I höfninni. Grettir var aö grafa
en kannski tekur nú varla að
tala hér um hafnarframkvæmd-
ir.
Töluverö áhersla hefur veriö
á þaö lögö nú aö fegra bæinn og
snyrta og meira fé lagt i þaö en
áöur.
Vatns- og hitaveita
Vatnsveitan er afbragös fyr-
irtæki. Hún var auövitað dýr i
upphafi, fór i einar 100 miljónir
og hitaveitan er i góöu lagi en
rekstur hennar er mjög erfiöur.
Búiö er aö taka út reksturinn og
viöeigum á hverri stundu von á
Umsjón: Magnús H. Gislason
greinargerö frá þeim, sem það
geröu og á grundvelli hennar
veröurreyntað rétta reksturinn
viö.
1 raun og veru er þaö alveg
fáránlegt aö þau lán, sem hita-
veitan hefur oröið aö taka, skuli
eiga aö greiöast upp á 10 árum.
Viö stöndum auövitaö verr aö
vigi meö þennan rekstur vegna
þess aö viö þurftum.aö leggja I
150 milj. kr. aukafjárfestingu
þegar vatniö tók allt I einu aö
þverra. En viö viljum lika gera
(okkur vonir um aö i staö þess aö
'fara aö veita einhverja styrki þá
verði fremur liðkaö til meö
lánstima og lánakjör. Lán meö
fullri gengistryggingu á svona
timum og 8% vöxtum er hreint
ekkert gamanmál.
Erfiður rekstur hjá ós-
plasti
Rekstur Ósplasts gengur eng-
an veginn nógu vel. Segja má
raunar aö þarna sé um aö ræða
óhagkvæma fjárfestingu miöaö
viö þann mannafla, sem þarf til
þess aö halda fyrirtækinu gang-
andi. Ég er hreint ekki frá þvi
að auka mætti framleiðsluna
um 50%, e.t.v. talsvert meira,
án þess aö bæta við nema svona
einum manni svo þetta er nátt-
úrlega ekki góö nýting á vinnu-
aflinu.
Sambandiö er aðili að þessu
fyrirtæki. Viö áttum sannast aö
segja von á þvi, aö aöild þess
mundi hafa meiri áhrif og betri
en hingað til hafa oröiö.
hk/mhg.
Hærra, hærra
Frá fréttaritara okkar
i Vestmannaeyjum
Magnúsi Jóhannssyni
frá Hafnarnesi:
Hækkunargleði
A bæjarstjórnarfundi sem
haldinn var fyrir nokkru virðist
hafa veriö rikjandi mikil hækk-
unargleöi á ýmsum þjónustuliö-
um. Kalda vatniö hækkað, raf-
magnið hækkaö. Einnig lá fyrir
tillaga um beiöni til stjórnvalda
um hækkun á gjaldskrá hita-
veitunnar
Tillagan gerir ráö fyrir 12,6%
hækkun til samræmis slðustu
hækkun á visitölu byggingar-
kostnaðar. Samkvæmt þvi verð-
ur notkunargjaldiö pr. rúmm.
vatns 605 kr., leiga fyrir vatns-
mæli 3/4 kr. 3990 pr. mánuð,
lágmarksupphæö heimæða-
gjalds kr. 672 þús. og hver
rúmm. umfram 400, (aö 2000
rúmm.) verður 535kr. Aörir liö-
ir gjaldskrárinnar hækka sam-
svarandi.
Tillaga þessi var samþ. með 6
atkv. Tveir af bæjarfulltrúum
Sjálfstæöisfl. greiddu atkv.
gegn henni. Einn sat hjá.
Rétt er aö benda á aö nýverið
var gjaldskrá hitaveitunnar
hækkuö um 41,5 %. Hún hefur
þvi tekiö stórt stökk upp á við á
siðustu vikum.
Lautin
Lautin við Vesturveg, sem á
árum áður var æfingavöllur
knattspyrnunnar hér i Eyjum,
hefur nú fengiö andlitslyftingu
og verið gerð aö þokkalegum
barnaleikvelii, búinn margs-
konar leiktækjum, sem börnin i
nágrenninu kunna vel aö meta.
Hellulagning gatna.
Nú er veriö aö helluleggja
flestar götur i Vestmannaeyj-
um. Eins og menn vita fór
gatnakerfið, eins og flest annaö,
úr skoröum i eldsumbrotunum.
Verkið gengur vel.
Gaf 50 þúsund
Bæjarráði hefur borist bréf
frá Páli H. Arnasyni i Þórlaug-
argerði hér i bæ þar sem hann
gefur 50 þús. kr., til endurbygg-
ingar gamla vatnspóstins i
Herjólfsdal, en um vatnspóst-
inn skrifaöi Magnús Guöjóns-
son, bilstjóri, i Fréttir og skor-
aði þar á- fólk að varöveita
vatnspóstinn.
Framkvæmdir eru þegar
hafnar viö vatnspóstinn og búið
að grafa upp úr honum. Eftir aö
hafa skoöaö vatnspóstinn kemst
maöur aö raun um hvers viröi
þaö er aö varöveita slikar minj-
ar.
— mjóh/mhg.