Þjóðviljinn - 13.08.1980, Blaðsíða 1
MÐVIUINN
Miðvikudagur 13. ágúst 1980 —182. tbl. 45. árg.
1
jSkilar áliti í dag j
Efnahagsnefnd rikisstjórnar- sem er forma&ur nefndarinnar þá I
1“ innar sem verið hefur aö störfum er i tillögum nefndarinnar gert1
siðustu vikur skilar lokaáliti sinu ráö fyrir ákv. skammtimaaö-1
til rikisstjórnarinnar i dag. Að gerðum auk þess sem bent er á|
sögn Jóns Orms Halldórssonar leiðir I efnahagsmálum til lengril
! aðstoðarmanns forsætisráðherra tima. — þm. ■
íEfnahagsnefnd rikisstjórnarinnar:
Áfangaskýrsla öryggismálanefndar vegna umrœöu og skrifa um kjarnorkuvopn
Öryggisgæslan er skýr vísbending
Margt likt með Patterson-svœðinu og kjarnorkuvopnageymslum erlendis
t áfangaskýrslu öryggismála-
nefndar vegna umræðu og skrifa
um kjarnorkuvopn á tslandi kem-
ur m.a. fram að þeir Frank
Barnaby og Milton Leitenberg
hjá Friðarrannsóknarstofnuninni
i Stokkhólmi telji auðvelt að kom-
ast að raun um hvort kjarnorku-
vopn séu staðsett á tslandi.
Kanna þurfi hvernig varðgæslu
vopna sé háttað hér á landi i þvi
sambandi. Margt i lýsingu
Barnabys og Leitenbergs á
öryggisgæslu við kjarnavopna-
geymslur minnir á svokallað
Patterson-svæði i herstöðinni á
Miðnesheiöi.
Meðal þess sem einkennir
vopnabúr þar sem kjarnorkuvopn
eru geymd eru tvöfaldar girðing-
ar, upplýsing allan sólarhringinn,
vopnaðir verðir við gæslu, varalið
á vakt, varðturnar, rafeindabún-
aður tengdur viðvörunarkerfi,
byrgi með stálhurðum, lásar sem
fleiri en einn þarf til að opna, tvö-
faltrafaflskerfi og stór opin svæöi
utan girðinga við geymsluna til
þess að mannaferöa verði fljót-
lega vart.
Pattersonsvæðisins er vand-
lega gætt og búnaður umhverfis
vopnageymslurnar þar minnir
um margt á lýsinguna i skýrslu
öryggismálanefndar. Þá hafa ís-
Hendingar sem lagt hafa leið slna
um veginn til Hafna eða verið á
ferð um Móana við Patterson-
svæðið margoft lent i útistöðum
við vopnaða herlögreglu.
Þjóöviljinn myndaði Patterson-
svæðið I bak og fyrir i gær, og
verður myndaserian birt i blaðinu
á morgun.
— ekh
Sjá opnu
Þessi mynd var tekin f gær af Pattersonsvæðinu á Miönesheiöi. Myndin
er tekin yfir ytri varnargirðinguna og yst til hægri sér I rammgerða
gaddavirsgirðingu. Þar fyrir innan eru gaddavirsflækjur og virtist sem
rafmagnsvirar væru tengdir við flækjurnar. Þar næst sér i fótósellur
sem eru með jöfnu millibili fyrir innan alla innri girðinguna. Yst til
hægri sjást nokkrar af fjölmörgum vopnageymslum bandariska hers-
ins, en fyrir framan byrgin eru ljósastaurar sem lýsa upp svæðið I
myrkri. Fyrir miðri myndinni má svo sjá eitt af varöskýlunum á svæö-
inu þar sem vopnaöir hermenn standa stöðugan vörð. ÖII umgerð Patt-
ersonsvæðisins er þvi I beinu samræmi við lýsingu þeirra Barnabys og
Leitenbergs á öryggisgæslu viö kjarnorkuvopnageymslur.
— lg/Mynd — gel.
j Viðrœður BSRB og rikisins:
Samningaþófiði
senn á enda?
Samkomulag um 14 þús. kr. grunnkaups-
hœkkun i 1.-15. launaflokki og óbreyttar
visitölubœtur
Samninganefnd rikisins og 8
• manna viöræðunefnd BSRB hafa
Ináð samkomulagi um drög að
nýjum kjarasamningi milli þess-
ara aöila. Drögin voru kynnt 60
■ manna aöalsa mnin ganefnd
IBSRB í gær og á næstu dögum
munu fulltrúar i aðalsamninga-
nefndinni kynna samninginn i
■sinum félögum. Aðalsamninga-
Inefndin mun siðan liklega koma
aftur saman i lok vikunnar og þá
taka afstöðu tii þess hvort mæla
■eigi með samþykkt hans, en
Iendanleg samþykkt fer fram i
allsherjaratkvæðagreiðslu
félagsmanna.
• í samkomulaginu mun vera
Ikveðið á um 14. þús. króna grunn-
kaupshækkun i 1-15. launaflokki,
en hækkunin fjarar siðan út i
'næstu 3 launaflokkum og verður
jengin á laun þar fyrir ofan. Gert
er ráð fyrir að visitölubætur komi
óbreyttar á laun, þannig að ekki \
verði um svokallað gólf eða þak
að ræða i visitölu, heldur reiknist
hún hlutfallslega á allan launa-
stigann.
Þó að i samkomulaeinu sé gert
ráð fyrir visitölubótum þá
'fylgir þvi bókun frá fjármálaráð-
herra þess efnis að gólfið veriðj
tekið upp gagnvart rikisstarfs-
mönnum ef ákvæði verða um slíkt
gólf i væntanlegum samningi ASÍ
og VSI.
Samkomulagsdrögin kveða
einnig á um að menn geti farið á
eftirlaun þegar samanlagður
starfsaldur og lifaldur er orðinn
95 ár. Þá mun einnig gert ráð
fyrir setningu brá&abirgöalaga
vegna ýmissa atriða svo sem er»
varða samningsrétt. -þm I
1 tilefni þess að 6 mánuðir eru liðnir frá rnyndun rikisstjórnarinnar boðaði forsætisráðherra blaðamenn
á sinn fund i gær og gerði grein fyrir þvi sem rikisstjórnin hefði verið a& vinna að. Asamt forsætisráö-
herra sátu fundinn Jón Ormur Halldórsson aðstoðarmaður forsætisráðherra og Guðmundur Benedikts-
son ráðuneytisstjóri. Lljósm. — Ella.
Forsœtisráðherra á blaðamannafundi:
Veröbólgan undir 50% í ár
Var 61 % frá upphafi til loka árs i fyrra
,,Ef visitala framfærslukostn-
aðar hækkar ekki um meir en 9%
i nóvember n.k. þá er ljóst að
veröbólgan frá upphafi tii loka
þessa árs veröur 47% en til sam-
anburðar má nefna að hún var
61% I fyrra” sagði Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra á fundi
með blaðamönnum i gær i tiiefni
þess að 6 mánuðir eru nú liönir
frá þvi að rikisstjórnin var mynd-
uð.
Forsætisráðherra sagði aö
hugsanlegt væri aö visitalan
hækkaði eitthvað meira en 9% i
nóvember en þó ætti hækkunin
ekki að verða meiri en svo að
hraði veröbólgunnar yrði undir
50% miðað við breytingar frá
upphafi til loka árs. Þó að verö-
bólgan væri vissulega enn þá of
mikil þá væri ljóst aö allt stefndi i
rétta átt. Staöhæfingar I fjölmiðl-
um um að veröbólgan æddi nú
stjórnlaust áfram væru þvi út I
hött.
A blaðamannafundinum gerði
forsætisráöherra almenna grein
fyrir stöðu efnahagsmála og f jall-
aöi þá m.a. um verölagsmál og
fleiri atriði. Skýrt er frá þessum
þáttum á baksiðu og á bls. 3 i
blaöinu I dag. — þm