Þjóðviljinn - 27.08.1980, Page 1

Þjóðviljinn - 27.08.1980, Page 1
Miðvikudagur 27. ágúst —193. tbl. 45. árg Flugleiðauppsagnirnar: PJODVUMN Skýrist á morgun 30 flugfreyjur hætta 1. október Á morgun mun for- ystumönnum hinna ýmsu starfshópa Flug- leiða væntanlega verða tilkynnt hvernig að boð- uðum uppsögnum verður staðið og vilja menn eðlilega litið tjá sig um stöðuna fyrr en svo verður. Flugfreyjur Forstjórinn erlendis Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða fór út til Bandaríkjanna s.l. sunnudag í viðskiptaer- indum og er hann ekki væntanlegur aftur fyrr en 5. september n.k. en fyrir þann tima verða 400 starfsmenn fyrir- tækisins búnir að fá upp- Erni 0. Johnson, stjórnarfor- manni i gær til aö fá frekari upp- lýsingar um viöræður félagsins viðLuxemborgarmenn i tilefni af frétt Dagblaösins um þær í gær. Þar segir Ólafur Jóhannesson, utanrikisráðherra að hann telji koma til greina að ræða við Luxemborgarmenn án þátttöku Framhald á bls. 13 funduðu i gærkvöldi og voru uppsagnirnar aðal- umræðuefnið. Jófriöur Björnsdóttir formaður Flugfreyjufélagsins sagöi að fundurinn hefði verið ákveðinn áður en fréttist af fyrirhuguðum uppsögnum og þó ekkert væri vitað um hvernig þær myndu koma niður yrðu þær áreiðanlega aðalefni fundarins. Um 150 flugfreyjur starfa nU hjá Flugleiðum en 30þeirra hefur þegar verið sagt upp og hætta þær störfum 1. október n.k. Flug- freyjur eru meö sameiginlegan starfsaldurslista og er búist viö að uppsagnir hjá þeim fari eftir honum, þannig að þær sem styst hafa unniö hjá fyrirtækinu vlki fyrir þeim sem lengri starfsaldur hafa. — AI Flugleiðamenn bíða nú eftir þvi aö linur skýrist og ljóst veröi hvernig boöaöar uppsagnir koma niöur á einstökum starfsmannahópum og ein- staklingum. Sjá viðtai við einn stjórnarmanna Loftleiðaflugmanna á bakslðu. Ljósm.—gel. Skammtímasjónarmið ráða í skipainnflutningi sagnarbréf i hendur ef að likum lætur. Þykir mörgum þetta furöulega valinn tlmi til ferðalaga og funda- halda þvi I þessari viku verður gengið frá vetraráætlun félagsins og þvi hverjir það eru sem fá reisupassann. Sveinn Sæmunds- son, blaðafulltrúi fyrirtækisins sagði I gær að viðskiptaferðir væru venjulega ákveðnar löngu fyrirfram, þetta væri hluti af vinnu forstjórans ekki siöur en annað, og hefði timasetningin ekkert með fyrirhugaðar upp- sagnirað gera. Blaðainaður Þjóðviljans reyndi einnig árangurslaust að ná tali af Engin yaxta- hækkun 1. sept. Hefði orðið 5% að óbreyttu Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sinum í gær að hefja viðræður við Seðla- bankann um framkvæmd þeirrar lánskjarastefnu sem í gildi hefur verið. Var jafnframt ákveðið að vaxtakjör haldist óbreytt frá því sem nú er þar til annað verður ákveðið, en ef fylgt hefði verið þeim reglum sem í gildi eru, hefðu vextir átt að hækka um 5% 1. september n.k. Rikisstjórnin mun byggja ákvörðun sina á áformum um endurskoöun laganna um stjórn efnahagsmála. Hefur Þjóðviljinn fregnað að m.a. komi þar til álita að breyta kjörum afuröalána at- vinnuveganna, einkum gengis- bundinna lána útflutningsat- vinnugreina með það fyrir augum að létta gengistryggðri lánabyrði af frystiiðnaöinum. — ekh Samvinna um smíði 10 skutskipa innanlands Eðlileg stefnumið að endurnýjun fiskiskipastólsins fari fram að mestu innanlands I síðasta mánuði lagði iðnaðarráðherra til i ríkis- stjórn að gerð yrði áætlun um smíði allt að 10 skut- skipa, 200-300 lestir að stærð, innanlands á næstu 5 árum. Gert var ráð fyrir að þáttur í þessari áætlun yrði úttekt á þörf fyrir hráefnisöflun á einstökum stöðum á landinu, efling sjóða til kaupa á gömlum og úreltum fiskiskipum, og úttekt á endurnýjun og þörf f iskiskipaf lotans. Rikisstjórnin hefur falið iðnaðar- og sjávarútvegs- ráðuneyti að undirbúa um- rædda áætlun á næstu vik- um þannig að taka megi ákvörðun um aðgerðir, þar á meðal fjármögnunar- þáttinn. Miklar umræöur hafa oröið aö undanförnu um innflutn- ing á skipum og verkefnaskort innlendra skipasmiöastööva. Hjörleifur Guttormsson iönaöar- ráðherra sagði I samtali við blað- iö I tilefni af þessum umræðum að verulega hefði skort á það að mótuð væri stefna til lengri tima um viðhald og endurnýjun fiski- skipastóls okkar. Ekki lægi heldur fyrir að hve miklu leyti ls- lendingar ætluðu sér að leysa þau verkefni hér innanlands. „Ég tel það raunar eðlilegt stefnumið að leysa þessi verkefni að mestu leyti I landinu sjálfu og gera um leiö átak til að ná niður kostnaði og bæta aðstöðu skipasmiðaiðn- aöar okkar. Hann á I samkeppni við niðurgreiddan skipasmiðaiðn- að viða erlendis, og sá innflutn- ingur togara sem orðið hefur á undanförnum árum skapast öðru fremur af þvi að skammtimaviö- horf hafa ráðið og skipasmiöa- stöðvar okkar hafa ekki haft tæki- færi til þess aö undirbúa verkefni til lengri tima og sýna raunveru- lega getu sina.” Hjörleifur sagði að með þetta i huga hefði hann taliö nauðsynlegt að stjórnvöld mörkuðu langtima- stefnu i málefnum skipasmiöa- iðnaðarins og haft yrði samráð við samtök útgeröarmanna i þvi sambandi. Sér virtist einkum brýnt að sjá fyrir eðlilegri endur- Loðnuveiðar Norðmanna við Jan Mayen: Tóku 118 þús lestir „Við höfum fengið loka- tölur frá Norðmönnum vegna loðnuveiðanna við Jan Mayen fyrr í þessum mánuði og samkvæmt þeim hafa þeir tekið sam- tais um 118 þús. tonn, og hafa þvi farið nokkuð nærri heimiluðum há- marksafla sem var 112,500 tonn", sagði Þórður As- geirsson skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu i samtali við Þjóðviljann i gær. A fyrsta fundi Islensk-norsk fiskveiðinefndarinnar s.l. vor var ákveðin hámarksloðnuafli á Jan- Mayensvæöinu en eins og kunn- ugt er fá Norömenn samkvæmt Jan-Mayensamkomulaginu að veiða 15% heildarloðnuaflans. -lg- nýjun bátaflotans og smiði skipa er hentað gætu litlum útgeröar- stööum þar sem vinnsluaðstaða er til staöar en venjulegir togarar I venjulegum skilningi væru of stórtækir til hráefnisöflunar. Jafnframt þyrfti aö gera út- geröaraðilum kleift að losna við gömul og úrelt fiskiskip þannig að ekki yrði um óeölilega stækkun flotans aö ræöa, eða hann yröi úreltur. Iðnaðarráðherra kvað aldurs- lagasjóð fiskiskipa vera alltof veikan og honum þyrfti að tryggja örugga tekjustofna til þess aö hann gæti sinnt hlutverki sinu. I tillögu sinni væri gert ráð fyrir samvinnu skipasmiðastöðva um smiði 10 skutskipa á næstu fimm árum, og hann væri sann- færöur um að ná mætti niður kostnaði I slikri samvinnu, hag- ræðingu, byggingu viðlegukanta viö stöðvarnar, og bættu vinnu- skipulagi. Væri unnið eftir svip- aðri teikningu mætti og lækka til- kostnað miðaö við „skraddara- saumuð’ skip. Samkvæmt áætlunartillögunni er gert ráð fyrir að viö hönnun skipanna verði viö þaö miöað, að þau henti til fjölþættra veiða með sem minnstum tilkostnaöi m.a. i orkunotkun, og geti hagnýtt fiski- stofna sem næst heimahöfn. Ættu þau að geta hentað 300-400 manna byggöarlögum sem liggja vel viö miðum. Þá er og tekið miö af samstarfsverkefni sem nú er i gangi undir forystu Sambands dráttarbrauta og skipasmiðja um hönnun fiskiskipa, en i þvi eru m.a. þátttakendur 12 skipasmiða- stöövar. Ekki nein breyting Segir blaðafulltrúi ASÍ Mikil óánægja rikti i gær innan samninganefndar ASI með þær tillögur sem vinnuveitendur lögðu fram um nýja skipan launa- flokka. Fulltrúar VSI kölluðu þessar tillögur sinar umræðu- grundvöll, en fulltrúar Alþýöu- sambandsins voru sammála um að tillögurnar væru þess eðlis að alls ekki væri hægt aö lita á þær sem neinn umræöugrundvöll i við- ræöum þessara aðila. Vegna þeirrar erfiðu stöðu sem nú er komin upp I samningaviðræðun- um hyggst sáttanefnd ræða við fulltrúa ASI og VSl i sitt hvoru lagi i dag, en engar beinar við- ræöur verða milli þessara aöila. „Það er ljóst að tillögur VSI eru þess eölis að þær fela ekki I sér neina breytingu i grundvallar- atriðum frá fyrri tillögum þeirra”, sagði Haukur Már Haraldsson blaðafulltrúi ASI I samtali við Þjóðviljann i gær. „Viö urðum fyrir verulegum von- brigöum i dag þvl viö álitum að tillögur þeirra myndu taka eitt- hvert mið af þeirri umræðu sem farið hefur fram milli þessara aðila siðustu daga. Reyndin er hins vegar sú að þrátt fyrir við- ræðurnar þá hafa vinnuveitendur ekki breytt afstöðu sinni að neinu leyti i grundvallaratriðum.” Sáttanefnd heldur I dag fund með hverju landssambandi fyrir sig innan ASI og I kvöld mun sáttanefnd svo halda fund með vinnuveitendum. 1 dag verða þvi engar viðræður milli ASI og VSI. Búist er við þvi að sáttanefnd leggi nú hart aö VSI að koma með nýjar tillögur svo samningaviö- ræðurnar fari ekki alveg út um þúfur. —þm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.