Þjóðviljinn - 27.08.1980, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 27. ágúst 1980
Fer í Vatnsveituhúsið
Vegna mikillar aösóknar
hefur veriö ákveöiö aö fram-
lengja listsýningu Ninu
Gautadóttur aö Kjarvalsstöö-
um fram á sunnudagskvöldiö
n.k., 31. ágdst. Sýningin er op-
in daglega kl. 14-22.
Myndin sem Nina stendur
þarna viö hefur nii veriö keypt
af Reykjavfkurborg og mun
eiga aö skreyta hina umdeildu
nýbyggingu Vatnsveitunnar.
Flest verkanna á sýningunni
eru þegar seld.
r
Teikningar Arna
Finnbogasonar
Arni Finnbogason opnar á
morgun teiknimyndasýningu
aö Hallveigarstööum viö Tún-
götu 14.
Þetta er sjötta sýning Arna
hér I Reykjavik, hefur hann
sýnt þrisvar áöur á Hall-
veigarstööum. Myndirnar eru
flestar frá Vestmannaeyjum
og segja sina sögu frá gamla
timanum. Einnig eru nokkrar
myndir frá Færeyjum og
Grænlandi og frá nokkrum
kaupstööum á landinu, nokkuö
er af mannamyndum og and-
litsmyndum.
Sýningin veröur opin dag-
lega frá kl. 2-10 og stendur til
3. sept.
Isiensku frimerkin meö skáphurö og sessuboröi
„Nytjalist fyrri alda”
„Nytjalist fyrri alda” er
sameiginlegt myndefni svo-
kallaöra Noröurlandafri-
merkja sem póststjórnir land-
anna gefa Ut9. september n.k.
Myndefni islensku frímerkj-
anna eru fengin úr Þjóöminja-
safni íslands. Annaö þeirra er
aö verögildi 150 krónur og
sýnir útskorna og málaöa
skáphurö frá 18. öld, en hitt er
aö verögildi 180 krónur, og
sýnir blómstursaumaö sessu-
borö merkt ártalinu 1856 og
upphafsstöfunum S.B.D.
Frimerki hinna Noröurland-
anna eru aö verögildi 1,30 og
1,80 danskar krónur, 1,10 og
1,30 finnsk mörk, 1,25 og 1,80
norskar krónur og 1,50 og 2
sænskar krónur.
Pantanir á islensku fri-
merkjunum og fyrstadagsum-
slögum er hægt aö gera hjá
Frlmerkjasölunni á Klappar-
stíg 26 i Reykjavik, en frá hin-
um löndunum er hægt aö
panta frá söluskrifstofum viö-
komandi póstyfirvalda. Til aö
auövelda pantanir og af-
greiöslu á fyrstadagsumslög-
um og frimerkjum allra fimm
landanna hefur auk þess veriö
ákveöiö aö afgreiöa frá Kaup-
mannahöfn tvenns konar
pantanir, annars vegar 5
fyrstadagsumslög og hins
vegar 10 óstimpluö frimerki
og fer afgreiösla fram hjá:
„Postens Filatelis Særkontor,
Rádhuspladsen 59, 1550
K/tbenhavn V. Póstgirónúmer
316 19 19.
Verö fyrir 5 fyrstadagsum-
slög er dkr. 21 og fyrir 10
óstimpluö merki dkr. 19.25, en
pantanir þurfa aö berast sem
fyrst, minnir Póst- og sima-
málastofnunin á i fréttatil-
kynningu.
Stuðmenn endurútgefnir
Tvær plötur hljómsveitar-
innar Stuömenn, „Sumar á
Sýrlandi’’ og „Tivoli”, sem
hafa veriö ófáanlegar i nokkur
ár, hafa nú veriö endurútgefn-
ar saman i albúmi, 5 árum
eftir útkomu þeirrar fyrri, en
báöar vöktu mikla athygli og
uröu vinsælar á sinum tlma.
Stuömenn þóttu um margt
timamótahljómsveit i islensk-
um dægurlagaheimi, ekki sist
fyrir léttleik og húmor auk
þess sem þeir áttu sinn þátt i
að hefja islenska textagerö til
vegs á ný eftir aö enskan haföi
veriö nær alls ráöandi i is-
lenskum popplögum um langt
skeiö.
Skuröur og endurpressun
platnanna fór fram hjá CBS i
Hollandi, Ernst Backmann sá
um hönnun umslags, Korpus
um filmuvinnu, Oddi hf.
prentaöi og Steinar hf. er út-
gefandinn. Plöturnar tvær
seljast saman i albúmi á veröi
einnar plötu.
Afleiðingar öskufallsins:
Saudtjárslátrun
strax á Króknum?
Svo kann aö fara aö sauðfjár-
slátrun hefjist hjá Kaupfélagi
Skagfiröinga á Sauðárkróki nú
fyrir eöa um næstu mánaðamót.
Veldur þvl öskufalliö frá Heklu.
Veruleg aska féll á sumar af-
réttir Skagfiröinga: Eyvindar-
staöaheiöi austanveröa, Hofsaf-
rétt og Silfrastaðaafrétt. Hafa
þær nú veriö smalaöar og fé rekiö
I heimahaga. Þaö leysir þó ekki
vanda allra þvi talsvert öskufall
varö og á heimalönd jaröa i
Vesturdal, Svartárdal, Austurdal
og á Kjálka. Fari svo, aö rann-
sókn á fluormagni i nýjustu sýn-
um af þessum slóöum reynist yfir
hættumörkum og ekki veröi unnt
að fá beitiland fýrir féð annars
staöar er allt eins liklegt aö slátr-
un á dilkum af þessum svæöum
hefjist nú ööru hvoru megin við
helgina, sagöi Þorkell Guö-
brandsson, fulltrúi hjá Kaupfé-
lagi Skagfirðinga. Bændur á
öskujöröunum höfðu fund meö sér
i gærkvöldi og var ætlunin aötaka
þar ákvöröun um hvaö gert
skyldi.
Vel má svo vera, aö Blöndhliö-
ingar, sem nú hafa fengið allt sitt
féheim en búa sumir hverjir viö
landþrengsli, vilji byrja slátrun
fyrr en venja hefur verið, sagöi
Þorkell Guöbrandsson.
Arni Jóhannsson, kaupfélags-
stjóri á Blönduósi, bjóst ekki viö
aösauöfjárslátrun þar hæfist fyrr
en um miðjan sept. Hann sagöi aö
ekki mundi búiö aö smala Ey-
vindarstaöaheiöi vestan til en
mikið af fénu væri komiö niður.
Niöurstööur rannsókna á ösku-
sýnum framan úr Dölunum heföu
enn ekki borist. En viö byrjum aö
slátra stórgripum nú eftir helgina
og veröum þá tilbúnir I sauöfjár-
slátrun ef á þarf aö halda, sagöi
Árni Jóhannsson.
Viö höföum einnig samband viö
Kaupfélag Eyfiröinga á Akureyri
og Kaupfélag Þingeyinga á Húsa-
vik. Hjá hvorugu þeirra byrjar
slátrun fyrr en venjulega.
—mhg
Engar óskir um að
hraða slátrun
segir Vigfús Tómasson hjá Sláturfélagi
Suðurlands
— Engar óskir hafa komiö frá
bændum til okkar um aö hefja
sauðfjárslátrun fyrr en venja er
og áttum viö þó hálfvegis von á
þvi, sagði Vigfús Tómasson hjá
Sláturfélagi Suðurlands okkur I
gær.
Þrátt fyrir öskufall sýnast
sunnlenskir bændur þaö vel settir
meö féö i heimahögum aö þeir
telji ekki ástæöu til aö byrja slátr-
un strax. Tíö er líka góö og dilkar
eiga eftir aö bæta viö sig. „En viö
gerum ráö fyrir aö geta byrjað
svona 12.-15. sept.” sagöi Vigfús
Tómasson.
Vigfús sagöi aö þeir Siáturfé-
lagsmenn væru nú „aö pira út siö-
asta kjötinu en ég er hræddur um
aö það veröi þrotiö um næstu
mánaöamót”.
—mhg
EIGIN MYND A BOLINN?
Básinn meö myndheilanum er
meöal þeirra vinsælustu á sýn-
ingunni Heimilið ’80 i Laugar-
dalshöll, en þar geta sýningar-
gestir fengiö sína eigin mynd
tekna og þrykkta á dagatal, bóm-
ullarbol, tösku, plakat eöa hvað
sem vera skal. Hér sjást þau
hjón, Tómas Arnason viöskipta-
ráöherra og Þóra Kristin Eiriks-
dóttir, nota tækifæriö. Ljósm.
Ella.
Fyrirlestrarfundur á HótelEsju
Tækniþróun og nýsköpun
í iðnaði á Norðurlöndum
A morgun veröur haldinn á
Hótel Esju fyrirlestrarfundur um
tækniþróun og nýsköpun i iðnaöi á
Noröurlöndum. A dagskrá
fundarins sem hefstkl. 14. er m.a.
ávarp iönaðarráöherra og eftir-
talin erindi: Tækniþekking og
samkeppnishæfni Sviþjóöar,
Reynslan af aöstoö viö iönþróun á
landsbyggöinni, Nordisk industri-
fund —samnorræn stofnun til iðn-
þróunar og Hlutverk Nordforsk I
aöstoö viö nýsköpun og framfarir
i efnahagslffi.
Fundurinn er haldinn á vegum
Rannsóknarráös, Norræna iön-
þróunarog tækniþróunarsjóösins,
og Nordforsk (samstarfsstofnun
norrænna rannsóknarráöa), en
siöastnefndu stofnanirnar halda
ársfundi sina hér á landi þessa aö tilkynnt veröi um þátttöku I
dagana. Ollum er heimil þátttaka sima 21320.
á fundinum, en óskaö er,eftir þvi —ekh
Leiðtogar grísk-ortódoxu
kirkjunnar þinga hérlendis
Um tuttugu leiötogar grlsk-
ortódoxu kirkjunnar koma til ís-
lands i byrjun september tii
fundahalda og mun hópurinn
þinga I Skálholti.
Hér er um aö ræöa nefnd sem
undirbýr guöfræöilegar viöræöur
viö lútersku kiikjuna og er hún
skipuð leiötogum kirkjunnar i
Moskvu, Jerúsalem, Búlgariu,
Kýpur, Finnlandi, Grikklandi,
Rúmenlu, Tékköslóvakiu og Ser-
biu auk fulltrúa frá aöalstöövum
kirkjunnar i Genf.
Nefndin heldur fundi I Skálholti
aöra vikuna i september, en
sunnudaginn 7. sept. verður
messa sungin I Reykjavik og er
Islendingum boöiö aö veröa viö
þá athöfn, en nánar verbur skýrt
frá staö og stundu siöar.