Þjóðviljinn - 27.08.1980, Qupperneq 3
Miðvikudagur 27. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Fyrir hreyfihamlaða:
48. þús.
króna upp-
bót vegna
bifreiöar
Um mánaðamótin siðustu gekk
i gildi ný reglugerð um uppbót á
elli- og örorkulifeyri og örorku-
styrk vegna rekstrar bifreiða
hreyfihamlaðra. Nemur uppbótin
48 þús. kr. eingreiðslu fyrir yfir-
standandi ár og skal vera hin
sama handa öllum þeim sem
hennar njóta.
Lifeyristryggingadeild
Tryggingastofnunar rikisins sér
um framkvæmd reglugerðar-
innar og þarf aö senda umsókn til
skrifstofunnar i Reykjavik eða
umboðsmanns úti á landi.
í fréttatilkynningu bendir
Tryggingastofnunin á, að með
„hreyfihömlun” er átt við líkam-
lega hreyfihömlun, þ.á.m. blindu
og til að geta notiö uppbótarinnar
þarf viðkomandi eða maki að
vera skráður eigandi ökutækis.
Umsókninni skulu fylgja: Vott-
orð lögreglustjóra um eignarhald
bifreiðar, Upplýsingar um öku-
mann, aki umsækjandi ekki
sjálfur. Númer á ökuskirteini
umsækjanda eða annars öku-
manns. Ljósrit af skattframtali
1980. Læknisvottorð um hreyfi-
hömlun umsækjanda, ef hann á
ekki gilt örorkumat.
Það verður sjónarsviptir að þessu fallega húsiog starfseminni sem þar hefur þrifist en flestir munu þó
sammála um aðbetra séað flytja húsiðen brjóta það.
Ljósm.—eik.
Suðurgata 7 flutt
Borgarráð ákvað i gær að taka
tilboði frá eigendum Suðurgötu 7
og flytja húsið i Árbæjarsafn og
má búast við að það verði gert
með haustinu. S.l. vetur óskuðu
eigendurnir eftir leyfi til þess að
rifa húsið sem er mjög illa farið,
þar sem ekki borgaði sig að gera
það upp á þessari dýru bygg-
Safnið ríkara
meö þessu húsi
segir borgar-
minjavörður sem
gjarnan vill fá
galleríið með
„Suðurgata 7 er eitt af þeim fáu
húsum sem fengur er að fyrir Ar-
bæjarsafn og safnið verður rikara
með þessu húsi”, sagði Nanna
Hermanson, borgarminjavörður.
„Ég á erfitt með aö gera grein
fyrir því I stuttu máli hvers vegna
maður telur eitt hús vera safna-
mat en annað ekki. Suðurgata 7 er
að stofni til yfir 140 ára gamalt
hús en siðan var byggt við það
tvisvar eins og algengt var. Frá
1884 hefur þvi litið sem ekki verið
breytt og virðist t.d. vera
óskemmt eldstæði I elsta hlut-
anum sem er frá 1833. í Arbæjar-
safni er ekkert hús af þessu tagi
og það mun falla vel inn i um-
hverfið hér.”
„Sjálfsagt munu menn sakna
hússins úr miðbænum,” sagði
Nanna ennfremur, „og best væri
að fá galleriið með. Ég vildi óska
að fólki fyndist Arbæjarsafn ekki
það langt útúr að það kæmi meira
hingað og kannski galleri myndi
ýta á eftir þvi. Til þess að hægt sé
að búa þægilega i húsinu þarf að
gera á þvi ansi miklar breytingar
Hér má sjá hvernig gangstéttin
var lögð upp á útveggi hússins en
góifhæð þess er mun neðar. Áður
fyrr var gengið tvær tröppur upp I
húsið en siðan Suðurgötunni var
lyft seytlar allt vatn inn i undir-
stööurnar og grunninn.
Ljósm.-eik.
og lyfta þvi og endurbæta. Mér
finnst illa að þvi búið þar sem það
stendur enda búið að byggja
mikið og hátt i kringum það og
hækkun Suðurgötunnar skemmdi
það á sinum tima. Ég get ekki
hugsað mér annan stað fyrir það i
miðbænum, fyrst það þarf að
vikja og endurtek að ég vil
gjarnan sjá það hér i Arbæjar-
safni,” sagði Nanna að lokum.
—AI
Hvaö verður
um galleríið?
Flestir forsvarsmennirnir í sumarfríi
t nokkur ár hefur i Suðurgötu 7
verið rekiðsamnefnt gallerf og þó
starfsemin hafi látið litiö yfir sér
er hún mikilvægur hlekkur i lista-
lifi borgarinnar. Um 1S manna
hópur rekur galleri Suðurgötu 7,
ensem stendur eru margir þeirra
erlendis og vildu aörir sem
minnst tjá sig um ákvörðun
borgarráðs þess vegna þegar
Þjóðviljinn leitaði til þeirra i gær.
Hópurinn kemur væntanlega
saman um mánaðamótin og
verður þá haldinn fundur um
máliö.
Galleri Suðurgata 7 hefur verið
einn helsti tengiliður Islands við
nýjar stefnur i myndlist hinum
megin við pollinn og nú sýnir þar
t.d. pólskur listamaður. Sýningar
innlendra og erlendra listamanna
undanfarin ár skipta tugum en
auk þess heldur hópurinn út tima-
ritinu „Svart á hvitu”, hefur
haldið tónleika og leiklistarnám-
skeið. Hefur starfsemin þrifist vel
i gamla húsinu en aðstöðuna fékk
á sinum tima hópurinn vegna
fjölskyldutengsla við eigendur.
— AI
ingarlóð sem þeir hyggjast nýta.
Niðurrif þótti hins vegar ekki
koma til greina, enda er hér um
140 ára gamla byggingu að ræða,
„hreinan safnamat” eins og sagt
er. Flestir hafa i umsögnum til
borgarráðs tekið Undir að húsið
ætti að vera áfram á sfnum stað
en allir umsagnaraöilar eru sam-
mála um að ef það þurfi að vikja
eigi það heima f Arbæjarsafni en
ekki á nýrri lóð i borginni.
í umsögn Nönnu Hermannson,
borgarminjavarðar er saga húss-
ins rakin, en það er byggt i
þrennu lagi. Fyrsta hlutann ein-
lyft bindishús reisti Teitur járn-
smiöur Finnbogason 1833 og var
þetta fyrsta húsið við Suðurgötu.
Lóðin náði niður að Tjörninni.
Björn Hjaltested, nemandi Teits i
járnsmiðinni, keypti af Teiti um
1860 og byggði áfast við húsið tvi-
lyft hús og 1884 byggði hann hæö
ofan á eldra húsið. Fékk húsið þá
það útlit sem það enn hefur.
Allir eru byggingahlutarnir
gerðir úr bindingi, múruðum meö
múrsteini, klætt borðum, fyrst
borðaþaki en slðar járnþaki. Sið-
an 1884 hafa mjög litlar breyt-
ingar veriö gerðar á húsinu,
gluggum hefur ekki verið breytt
og hurðir og annað tréverk er
sumt mjög gamalt. Margt i hús-
inu er ákaflega fornlegt og má
m.a. nefna upprunalegt eldstæði
óskemmt.
Húsið er mjög illa farið og
mikill fúi i grind og undirstöðum.
tltveggir hafa sigið og gólf hallast
viða. Eru þetta afleiðingar þess
að Suðurgatan var hækkuð en
gangstétt er nú ofan við gólfhæð
hússins. A sjöunda áratugnum
var áhugi fyrir þvi aö flytja húsið
i Arbæjarsafn og i húsakönnun
Harðar Ágústssonar og Þorsteins
Gunnarssonar 1967-1970 var lagt
til að svo yrði gert. Er húsinu ætl-
aður staöur i skipulagi safn-
svæðisins sem Þorsteinn
Gunnarsson gerði 1972 en ekki
þótti gerlegt að flytja það á þeim
tima.
Fyrir nokkrum árum var sem
kunnugt er grafið eftir fornleifum
i næsta nágrenni hússins, á lóð-
unum við Suðurgötu 3 og 5 og
bendir Þór Magnússon þjóð-
minjavörður á i umsögn sinni til
umhverfismálaráðs að fara verði
með mikilli gát viö bygginga-
framkvæmdir á þessum stað.
Komi i ljós að hinar fornu mann-
virkjaleifar nái þangað telur
hann einsýnt að rannsaka verði
þær á hinn nákvæmasta hátt áður
en grafið er fyrir grunni nýs húss.
—A1
Nýtt Suðurnesjablað:
Víkurfréttir
Nýtt blað hefur hafið
göngu sina á Suðumesj-
um, „Víkurfréttir” og
kemur einsog nafnið
bendir til út í Keflavík,
en mun ætlað að taka að
einhverju leyti við af
Suðurnesjatíðindum,
sem lögð voru niður
snemma sumars.
Útgefandi blaðsins er Vasaút-
gáfan, ritstjóri og ábyrgðar-
maður Sigurjón Vikarsson og
blaðamenn Steingrlmur Lillien-
dahl og Elias Jóhannsson, en þeir
Sigurjón og Steingrimur störfuðu
áður við Suðurnesjatiöindi.
Tilganginn með útgáfu blaðsins
segja þeir félagar vera tilraun til
að gefa Ut frétta- og þjónustublað
og stendur blaðið apið öllum, sem
eitthvaö liggur á hjarta. Það mun
koma út hálfsmánaðarlega fyrst
um sinn, en stefnt er að útgáfu
vikublaðs, efni verður að mestu
frá Keflavik og Njarðvik, en sam-
eiginleg hagsmunamál Suöur-
nesjamanna fá sitt rými.
Fyrsta tölublaðið er 12 siður að
stærö, I hálfs dagblaðsbroti, upp-
lag er 2000 eintök og blaðinu
verður fyrst um sinn dreift
ókeypis og liggur frammi i sölu-
búðum.
A Iþýðuleikhúsið:
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri
Nú mun afráðiö að Ingunn As-
disardóttir taki við stöðu fram-
kvæmdastjóra Alþýðuleikhússins
i haust. Jón Júliusson hefur gegnt
þessari stöðu að undanförnu en
sagði henni upp. Ingunn er frá
Egilsstöðum og hefur lagt stund á
bókmenntir við Háskóla tslands.
Leikhússtjórar Alþýðuleikhússins
eru þeir Lárus Ýmir Óskarsson
og Ólafur Haukur Simonarson.
Fyrir ritvélar, reiknivélar, fjarrita,
rafreikna og bókhaidsvélar
ARMOR
LETURBORÐAR
tJr silki — nyloni __ bómull — einnig
isofilm með fullum lit, endist þvi miklu
lengur.
Þess vegna mjög hagstæðir
Til dæmis fyrir IBM-vélar, Ricimac,
Omic, Canon, Facit, Addo X, Olivetti,
Precisa.
Látið okkur gera yður tilboð
Athugið að við höfum „Lift-off” ieturborða fyrir 8mm ritvélar og
filmuborða fyrir din 13mm ritvélar.
AGNAR K. HREINSSON HF.
umboðs og heildverslun
_________________________Hafnarhúsið, slmi 16382. Pósthólf 654, 121 R.