Þjóðviljinn - 27.08.1980, Side 7
Miðvikudagur 27. ágiist 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Cr mótmælagöngu kvenna niður Hennipen Avenue.
Konur í Minneapolis vilja fá nóttina aftur:
Ofbeldi mótmælt
Gerður óskarsdóttir
skólastjóri og Þórdís Þór-
arinsdóttir bókasafns-
fræðingur, sem að undan-
förnu hafa dvalist á undir-
búningsnámskeiði Ful-
bright-styrkþega í Minne-
apolis í Bandaríkjunum,
hafa sent Þjóðviljanum
eftirfarandi frásögn af
ógleymanlegu baráttu-
kvöldi kvenna þar i borg
gegn ofbeldi gagnvart kon-
um.
Eitt af 365 kvöldum ársins geta
konur i Minneapolis gengið
öruggar um götur borgarinnar
án þess að vera i fylgd með karl-
manni.
10 þúsund konur yfirtóku mið-
torg Minneapolis, laugardags-
kvöldiö hinn 9. ágúst s.l., héldu
fund um ofbeldi gegn konum og
gengu fylktu liði um aöal . Jcarla-
götu” borgarinnar undir kjörorð-
inu „Women unite, take back the
night”(Konui;sameinumstum að
fá aftur nóttina)
Fyrir ári gengu 5 þús. konur
þessa sömu leið og hér eftir verð-
ur þetta árlegur viðburður þar til
ofbeldinu linnir, segja konurnar i
„WAVAW” eða Women against
violence against women” (Konur
gegn ofbeldi gegn konum)
Það var sérkennileg tilfinning
að ganga inn i Loringgaröinn um
sjöleytið á laugardagskvöldið.
Siðustu geislar kvöldsólarinnar
gylltu trjátoppana, rökkrið var að
siga á. Allt var fullt af konum og
úr öllum áttum streymdu fleiri
að. I afliöandi brekku fyrir fram-
an stórt svið, þar sem kvenna-
hljómsveit spilaði, sátu konur svo
langt sem augað eygði. Þær
spjölluðu saman, hlógu og borð-
uðu nestið sitt, hvitar og svartar,
ungar og gamlar. Margar voru
með börnin sin. Lesbiur gátu óá-
reittar látið vel hvor að annarri.
Ég liföi af...
Svæðinuvarskipti tvennt: öðru
megin voru eingöngu konur (svo
þær sem vildu, gætu notiö þess til
fulls að vera úti að kvöldi til án
þessaö þurfa að vera undir vernd
karlmanns!), hinu megin voru
konur og karlar — þeir voru nú
ekki mjög margir. Hjálparsveit
var með rauöa krossa á bakinu,
skipuleggjendur meö gul ennis-
bönd. Allt i einu sáum viö að
margar kvennanna — ótrúlega
margar — báru borða sem á var
letrað: ,,Ég lifði af nauðgun”,
,,Ég lifði af barsmiöar” eða „Ég
lifði af sifjaspell”. Sumar báru
tvo borða, jafnvel alla þrjá.
Fundurinn fjallaði um nauðg-
anir, barsmiðar á konum og kyn-
ferðislegt ofbeldi sem konur
verða fyrir á götum úti, á vinnu-
stað og á heimilum. Þarna voru
haldnarræður, fluttljóð, ogkonur
komu upp og sögðu frá reynslu
sinni. Þetta voru ekki fallegar
sögur. Oft var dauðaþögn i garð-
inum, en ööru hverju leið andvarp
frá hópnum. Hvatningarræðum
var fagnað innilega.
Ung blökkustúlka sagði: „Ég er
hér, ég er kona, fyrir sjö árum
lifðiégaf sifjaspellaf hendi föður
mins”. Einni sem vinnur við
heilsugæslustofnun og ætlaöi að
tala var bannað það af vinnuveit-
enda sinum á þeim forsendum að
stofnunin vildi ekki blanda sér i
þessa hluti. Onnur sem sagði frá
nauðgun er hún haföi orðið fyrir,
fékk skeyti frá nauðgaranum
daginn áður þar sem hann hafði i
hótunum. Hún talaði samt.
Heimilislæknirinn hafði nauögað
einni, umsjónarkennarinn i há-
skólanum annarri. Lesbia sagöi
frá reynslu sinni og lifi. Starfs-
maður I kvennaathvarfi (hús þar
sem konur sem hafa orðið fyrir
barsmiðum af hendi eiginmanna
eða sambýlismanna geta leitað
skjóls) sagði frá slikum athvörf-
um sem nú eru dreifð um allt
Minnesotafylki. „Haldiö dagbók
yfirallt það ofbeldi sem þiö verð-
ið fyrir, bæði andlegt og likam-
legt” sagði verkakona og stjórn-
málamaöur.
Einni af
hvefjum tólf
Einni af hverjum 12 konum i
Minnesota hefur verið nauðgað.
Arlega er áætlað að um 27 þúsund
sinnum verði konur i fylkinu fyrir
árás eiginmanns eða sambýlis-
manns (Ibúar eru 3 1/2 miljón).
Fjórða hver kona á að baki bitra
kynlifsreynslu i æsku. Konurnar
krefjast nýrra lagasetninga, sér
til varnar.
Við þekkjum öll goðsöguna um
nauðgunina. „Konurnar bjóða
upp á þetta sjálfar, eru aö flækj-
ast úti og vekja kynhvöt bláó-
kunnugra karla sem ganga fram
hjá: það er ekki hægt að hafa
samfarir við konu gegn vilja
hennar: þetta eru bara svert-
ingjar sem nauðga hvftum kon-
um.”
Sannleikurinn er allt annar.
Rannsóknir sýna að nauðgun er
undirbúin fyrirfram og er ofbeldi
þar sem „sex” er notað sem
vopn. Þriðjungur til helmingur
nauðgana fer fram á heimilum
kvennanna sjálfra og eru i 65%
tilfella framkvæmdar af körlum
sem þær þekkja. 1 87% tilfella er
konunni ógnað með vopni eða hót-
un um morð. Aðeins i 3% tilfella
nauöga svartir menn hvitri konu
en í 4% tilfella er það hvitur maö-
ur sem nauðgar svartri konu. Oft-
ast eru fórnarlambið og ofbeldis-
seggurinn úr sama þjóðféiags-
hópi. Flestir nauðgarar eru giftir
menn eða eru i sambúö meö konu.
Komungar stúlkur, drengir og
gamlar konur eru i hópi fórnar-
lamba nauðgaranna.
Hópur kvenna sem æfir sjálfs-
vörn sýndi æfingar sinar og aug-
lýsti námskeið fyrir karla og kon-
ur i sjálfsvörn, þar sem bæði kyn
fá sömu þjálfun. Námsflokkar á
vegum borgarinnar eru lika meö
slika þjálfun.
Þarna var dreift bæklingi með
ráðleggingum fyrir konur. Þeim
var sagt að ganga hnarreistar,
horfast I augu við árásarmann-
inn, veita strax viðnám, sparka,
berja, öskra, svara háösglósum á
götum úti fuílum hálsi o.s.frv. Nú
safna þær efni i bók með frásögn-
um kvenna sem tókst aö sleppa
undan nauðgurum. Þær hafa lika
neyöarsíma sem konur geta
hringt i til að fá hjálp i gegnum
lögreglu- og sjúkrahúsakerfi eftir
nauðgun og andlegan stuðning
sem er ekki sist mikils virði.
Skipulögð aðstoð
1 gangi eru starfshópar, sem
eru á verði gagnvart kynferðis-
legri niðurlægingu á konum i
sjónvarpi, kvikmyndum og aug-
lýsingum. Þeir skipuleggja mót-
mælahringingar, mótmælastöö-
ur, fjölmenna i dómssali þegar
nauðgunarmál eru tekin fýrir,
skrifa i blöðin og siðast en ekki
sist styðja þeir konur sem verða
fyrir nauðgun. Um þetta aDt og
miklu fleira fræddumst viö i Lor-
inggarðinum þetta ágæta laugar-
dagskvöld, bæði af þeim sem töl-
uðu og af dreifiritum.
Gangan sjálf hófst um kl. 10.
Allt skipulag var aðdáunarvert.
Það er ekki litið verk að fá 10.000
manns til að ganga af stað i
skipulagðri göngu, en þaö tókst
þeim svo sannarlega. Stór
númeraspjöld voru á viö og dreif
og báru þau tölur frá 1 upp i' 38.
Númerin voru kölluð upp eitt i
einu og allir sem sátu umhverfis
viðkomandi númer stóðu upp og
skipuðu sér i sexfalda röð. 1 hóp-
um 1 til 31 voru bara konur (svo
þær gætu notið þess að ganga göt-
urnar einar!), en i hópum 32 til 38
voru bæði karlar og konur.
Barnagæsla var i garðinum á
meðan.
Fáum nóttina
aftur!
Hægt og rólega liðaðist gangan
niður Hennipen Avenue þar sem
klámbúðirnar, hóruhúsin, og
sexbióin eru. Stjórnendur gættu
hvers hóps, bægðu frá æstum
körlum i rólegheitunum (um-
Framhald á bls. 13
1 Blaðbera vantar í I eftirtalin hverfí: Austurborg: ■ Borgartún-Skúlagata (1. sept) Njörvasund-Sigluvog (1. sept.) Barðavog-Efri Langholtsveg (1. sept.) Bergstaðastræti-Skólav.stigur (1. sept.-l. okt.) Miðborg: Svæðið umhverfis Austurvöll. Sérstök kjör i boði fyrir góðan starfskraft! Laust 1. september n.k. Ath. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar! V etrarálag 1 Þjóöviljinn mun i vetur greiða 10% vetrarálag á I föst laun blaðbera fyrir mánuðina október—mars. 1 Er þetta hugsað sem ofurlítil umbun til þeirra, 1 sem bera blaðið út reglulega og timanlega i 1 misjöfnum veðrum. 1 Þeir sem hafa byrjað blaðburð 1. september eða 1 fyrr fá álag þetta greitt á októberlaun. I DIQÐVIUINN 1
Auðvitad fer Þjódviljinn að landslögum og greiðir 8.33% orlof á ÖLL LAUN blaðbera