Þjóðviljinn - 11.09.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 11.09.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 11. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Guömundur J. um tillögu elleýu menninganna: Leikrit Kjartans Ragnarssonar: Þad saxaöist á flutnings- mennina Brigsl um óheilindi eru harmsefni „Það er fyrst og fremst harms- efni þegar menn hlaupa i fjölmiöla á örlagastundum i erfiöum samningaviBræöum og brigsla félögum sinum um aB þeir gangi erinda pólitisks flokks en ekki umbjdBenda sinna”, sagBi GuBmundur J. GuBmundsson formaBur Verkamanna- sambandsins i samtali vib ÞjóBviljann i gærkvöldi. TilefniB eru umræBur innan 43 manna nefndar AlþýBusambands Islands um tillögu sem 11 forystumenn i verkalýBshreyf- ingunni lögBu fram. I þessari til- lögu var meBal annars fjallaB um skattalækkanir hjá láglaunafólki, lifeyrissjóBamál, aB krefjast beri sömu launahækkana og BSRB ná&i fram. Haft hefur veriB eftir Karli Steinari GuBnasyni aB þaB hafi ekki veriB deilt efnislega um tillöguna heldur hafi pólitiskir flokkshagsmunir ráöiB ferö þeirra sem vildu visa henni til 14- manna nefndarinnar. tillagan fráleitlega fram sett að minu mati. Flutningsfnenn fengu svo fimmtán minútna hlé á fund- inum til aB breyta tillögunni og i siBari mynd hennar var heldur meiri áhersla lögB á jafnlauna- stefnu en fyrr. Lifeyrissjóösmálin eru ákaflega flókin mál og erfiö og afgreidd i tillögunni heldur billega þykir mér. ÞaB er ákaflega hættulegt og slæmt þegar staBiö er i haröri deilu aö kljúfa upp hópinn og sinu verra er þó aö hlaupa meö máliö I fjölmiöla. Reyndar fór þaö svo i atkvæöagreiöslunni, aö nokkrir af flutningsmönnum týndust á leiBinni. Upphaflega voru þeir 11 en aöeins sjö þeirra skiluBu sér þegar á hólminn kom. ÞaB var mat þeirra 22 sem vildu visa henni til 14-manna nefndarinnar aö þar væri hennar rétti vettvangur, ekki i fjölmiölum. Enda þótt forystumenn verka- lýöshreyfingarinnar kunni aB greina sitthvaö á eiga þeir ekki aö hefja upp árásir hvor á annan i fjölmiölum.” frumsýndur í Þjódleikhúsinu Læknishjónin ræ&ast viö. Erlingur Gislason og Briet Héöinsdóttir I hlutverkum sinum i „Snjó” sem frumsýnt ver&ur annaö kvöld I Þjóö- leikhúsinu. Dýrara nautakjöt Nýtt bráöabirgöaverö á nauta- kjöti gekk i gildi i gær og nemur hækkun á þvi um 13%. Kiló af holdanautakjöti i 1. veröflokki kostar nú kr. 3090 i heilum og hálfum skrokkum. Kjöt af fram- hluta kostar kr. 2322 kflóiö, en af hryggi kr. 6551 kilóiö. „KarliSteinari hefBi veriö I lófa lagiö aö leggja þessa tillögu fram i 14-manna nefndinni þar sem hanná sæti, hann hefur tekiö þátt i viöræBum viö rikisstjórnina án þess aö bera þar fram þetta mál. Svona á ekki aö vinna, sagöi Guðmundur. Orðalag tillögunnar geröi skattalækkanir aö meginatriöi, i þeim væru fólgnar hinar einu raunhæfu kjarabætur, siBan kæmu samningar viö vinnuveit- endur i ööru sæti. Upphaflega var Jólafargjöld Flugleiða: Um 70% af fer- gjaldí aðra leið FlugleiBir hafa gefið út sérstök Jólafargjöld, sem gilda milli Islands og nágrannalandanna. Þau ganga i gildi 1. desember og gilda allan þann mánuö. Jólafargjöld Flugleiöa gilda til og frá öllum viBkomustööum félags- ins i Evrópu skv. vetraráætlun. Þau eru hagstæð um 70% af ann- arar leiöar fargjaldi. Skilyröi fyrirfargjaldinu er aö keyptur og notaöur sé farmiöi báBar leiöir. Þar sem öll fargjöld milli landa eru háð gengi geta þau breyst viö gengisbreytingar isl. krónu. 1 dag eru þau sem hér segir frá Kefla- vik til eftirtalinna borga fram og aftur: TilKaupmannah. kr. 129.400 TilGlasgow kr. 96.400 TilLondon KR 111.500 TilLuxemborgar kr. 137.400 TilOslo kr. 117.900 TilStokkhólms kr. 147.600 Eins og öBrum sérfargjöldum fylgja jólafargjöldunum vissar reglur og eru þessar helstar: Keyptur og notaöur sé miöi báöar leiðir. Viödvöl sé minnst 10 dagar og mest 45 dagar og miBast eirigöngu viö endastöö. Útgáfa farmiöa og greiBsla fari fram aö minnsta kosti 14 dögum áður en ferB hefst. EndurgreiBsla farmiöa, sem ekki veröur notaöur er aöeins leyfileg 14 dögum fyrir brottför og má þá endurgreiöa 50% miöans. Hækki fargjaldiö eftir aö miöi hefir veriö greiddur en 14dögum áöur en ferö hefst, og sé viöbótargreiöslu krafist, má endurgreiBa allt fargjaldiö aö fullu sé þess óskaö. Jólafargjöldin veröa til sölu hjá skrifstofum félagsins og feröa- skrifstofum. Þess skal sérstak- lega getiö aö auðvelt er aB greiöa jólafargjald i söluskrifstofum félagsins hér fyrir t.d. námsfólk sem dvelst erlendis. Stórbruní á Árskógsströnd Stórbruni varö á Arskógs- strönd um hádegiö i gær. Þar brann Verkstæöi Þorsteins Marinóssonar til kaldra kola. Aö sögn Siguröar Jónssonar slökkviliösstjóra á Dalvik geröist allt meö skjótum hætti. Gaskútur sprakk meö miklum krafti svo aö þök fóru af tveimur húsum og allar rúöur brotnuöu. Tveir menn sem unnu þarna á bifreiðaverk- stasðinu sluppu naumlega, annar var rétt nýgenginn út, en hinn stóö I dyrunum. SigurBur sagöi aö þarna væri um mikiö tjón aö ræöa. Inni á verkstæöinu voru bilar til viö- gerBar þar á meðal Broncojeppi og Saab bill sem báöir eru gjör- ónýtirog einnig eyöilagöist mikiö af verkfærum. Enn sem komiB er erógjörlegt aö meta tjóniö, en allt slökkviliB Dalvíkur mætti ásamt liösauka frá Akureyri. Litiö var um vatn og gekk þvi seint aB ráöa niöurlögum eldsins. — ká | A ðstoö S S við ! | fatlaða | [inn á | | rokkið S Enginn sem ólmur vill g I komast á hljómleika her- ■ ■ stöövaandstæöinga á laugar- _ | daginn kemur, þarf aö sitja I ■ heima. Ætlun afistandenda ■ ■ er aö reyna eftir megni aö § J greiða götu þeirra inná ■ Irokkiösem eiga viB fötlun af I einhverju tagi aö striða. 1 þvi ” J skyni hefur veriB leitaB til ■ I Hjálpartækjabankans og I ■ sjúkraliöa um aöstoö og út- ! 1 búnaö og siBan veröa vörpu-1 " legir herstöBvaandstæBingar ■ Iá staönum til aö létta undir. | Þaö á þvi enginn aö þurfa aö ■ n iáta fötlun aftra sér frá þvi ■ 1 aö mæta I Höllina klukkan ■ ■ niu á laugardagskvöldiö. Nýtt islenskt leikrit, SNJÓR eftir Kjartan Ragnarsson veröur frumsýnt á sviöi Þjóöleikhússins annaökvöld kl. 20.1 vor voru tvær forsýningar á ieiknum i tengslum viö Listahátiö, en nú hefur Þjóö- leikhúsiö vetrarstarf sitt meö þessu nýja verki. Aöur hefur eitt leikrit Kjartans veriö sýnt I Þjóöleikhúsinu,Týnda teskeiöin, en fyrsta verk hans sem vakti verulega athygli var Saumastofan, sem sýnd var I IBnó viö miklar vinsældir. Snjór er leikur alvarlegs eölis. Þar segir frá fólki sem býr úti á landi, héraöslækninum Einari og læknishjónunum Haraldiog Láru sem koma til aö leysa hann af og annast hann eftir aö hann fær hjartaáfall. Einnig koma viö sögu Disa sem hjálpar til á heimilinu, ung ekkja og þriggja barna móðir og bilstjórinn Magnús. SviBiB er heimili læknisins, þar fara allar umræöur fram, snjór- inn rikir utan dyra, þaö er vetur og i þessu umhverfi veröa spumingar um lif og dauBa, mannleg samskipti, fortiö og ástina eilifu áleitnar. 1 hlutverkum eru Rúrik Haraldsson sem leikur lækninn Einar, Erlingur Gislason sem leikur Harald, Brlet Héöinsdóttir er I hlutverki Láru, Lilja Guörún Þorvaldsdóttir leikur DIsu (RagnheiBur Elfa Arnardóttir leysir hana af hólmi fyrstu 8 sýn- ingarnar meöan Stundarfriöur veröur sýndur I Júgóslavlu), og Pétur Einarsson sem leikur i fyrsta sinná fjölum Þjóöleikhúss- inser i hlutverki Magnúsar. Leik- stjóri er Sveinn Einarsson, leik- mynd er eftir Magnús Tómasson og Páll Ragnarsson sér um lýs- ingu. Eins og áöur segir er frumsýn- ing föstudagskvöld kl. 20, en önnur sýning veröur laugardag- inn 13. sept. — ká Snjórinn rikir fyrir utan, en innan dyra ráöast örlög manna. Rúrik Haraldsson, Brfet Héöinsdóttir, Lilja Gu&rún Þorvaidsdóttir og Er- iingur Gfslason i hlutverkum sinum. Duttlungar eða alvara: Boðuð er sameining Líbíu og Sýrlands Þær óvæntu frcgnir bárust í gær, aö forystumenn Sýrlands og Libýu heföu komiö sér saman um aö sameina rikin. Samkvæmt fréttunum er hér um algjöra sameiningu aö ræöa en ekki myndun rikjabandalags. Hiö nýja riki mun hafa einn her# utanrfkis- mál og efnahagsmál veröa á einni hendi. Ekki fylgdi þaö fregninni hvaöan þjóöhöföingi i sliku riki myndi koma né heldur hvar höfuöborgin yrBi. Sýrland og Libýa eiga þaö öBru fremur sameiginlegt aö vera mjög herská I afstööu sinni til Israels, enda lita ísraelará sam- eininguna sem sérstakt tilræöi viö sig. Einkum ef aö hinu sameinaBa riki tækist aö skapa samstöBu um aögeröirgegn Israel meö fulltingi Iraks. Þaö er aB ýmsu leyti freistandi Gaddafi: hefur ekki þótt þægi- legur bandamaöur fyrir Sýrlendinga aö ganga i bandalag viö Libýumenn og njóta góös af oliuau&i þeirra. En á hitt er aö lita, aB Gaddafi Libýuforseti hefur til þessa ekki þótt sérlega þægilegur pólitiskur banda- maöur, hvaö þá rekkjunautur. Hann hefur áöur smiöaö I skyndi nýjar samsteypur bæöi meö nágrönnum sfnum aö vestan og austan. Egyptum og Túnis, en sá vinskapur hefur staöiö stutt. MeBan Nasser réði fyrir Egyptalandi stóö hann einnig I aö smi'öa „SameinaB Arabalýð- veldi” meö Sýrlandi og svo Jemen um tima. Þaö pólitiska tafl mistókst — en mikið má vera ef Egyptaland heitir ekki Sam- einaöa ArabalýöveldiB enn þann dag i dag.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.