Þjóðviljinn - 16.09.1980, Page 2

Þjóðviljinn - 16.09.1980, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 16. september 1980. Myndir: —eik— Þátttakendur fyrir utan Hótel''Húsavik I mótslok. Helgarmótiö á Húsavik: Helgi tryggði sér millj ónina Sigurður Gizurarson, sýslumaður, leikur fyrsta leiknum f mótinu.fyrir Hjálmar Teðdórsson, Húsviking. Hjáimar hélt upp á 65 ára afmæli sitt með þátttöku I mótinu og stóð sig með mikilli prýöi. Fjórða helgarskákmót tímaritsins Skákar og Skáksambands Islands var haldið nú um helgina á Húsavík. Þar tryggði Helgi ólafsson sér aukaverð- launin, eina milljón króna# sem veitt eru fyrir bestan árangur á fyrstu fimm mótunum. Þetta er frábær árangur hjá Helga, en hann hefur ekki tapað neinni skák á þessum mót- um og sýnt mikið öryggi. Röð efstu manna varð þessi, þegar reiknuö hafa verið stig þeirra sem jafnir urðu að vinn- ingum: vinn. 1. Helgi Ólafsson 5,5 2. Guðm. Sigurjónss. 5 3. Elvar Guðmundss. 5 4. Jóhann Hjartarson 5 5. Sævar Bjarnason 4,5 6. Gylfi Þórhallsson 4.5 7. Dan Iiansson Svfþjóð 4 8. Stefán Þormar 4 9. Askell ö. Kárason 4 10. Jóhannes G. Jónss. 4 11. Guðm. Agústsson 4 Allar aðstæöur á keppnisstað, Hótel Húsavik, voru hinar gælsi- legustu og er óhætt að taka undir þau orð Jóhanns Þóris Jónssonar, ritstjóra timaritsins Skákar, er hann mælti i lokahófi, aö hvaða skákviðburður sem er i veröldinni gæti átt sér staö með sóma á Húsavik! —eik— Stórbruni í Varmahlíð Ólöf Þráinsdóttir varð efst i kvennaflokki og tekur hér við verðlaunum sinum. Sigurvegarinn, Helgi ólafsson, vann Sævar Bjarnason i slöustu um- ferö. tsiðustu umferð var Guðmundur Sigurjónsson hætt kominn iskák sinni við Sviann Dan Hansson, en sigraöi þó á endanum. Tjónið nemur hundruðum milljóna Stórbruni varð í Varma- hlíð i Skagafirði á laugar- dagsmorguninn. Eldur Gott atvinnuástand á Ólafsvík: Engmn atvinnulaus frá 1978! Verkfallsheimild samþykkt hjá Jökli á sunnudag Almennur félagsfundur, haldinn i Verkalýðs- og sjó- mannafélaginu Jökli á ólafsvik, sunnudaginn 14. september 1980 samþykkti að veita stjórn og trúnaöarráði félagsins heimild til aö boða til vinnustöðvunar til að ýta á eftir gerð nýrra kjara- samninga, enda verði haft sam- ráð viö aðalsamninganefnd Alþýöusambands Islands og sam- vinna við verkalýðsfélög á Snæ- fellsnesi um það hvenær vinnu- stöövun veröi látin koma til fram- kvæmda og til hvaða vinnu- stöðvunar verði boðað. Enn- femur fól fundurinn stjórn og trúnaðarráö félagsins að beita verkfallsheimild ef á þarf aö halda vegna sérsamninga félags- ins viö Vinnuveitendasamband Breiðafjarðar og Útvegsmanna- félag Breiðafjaröar. Bárður Jensson, formaður Jökuls, sagöi i samtali við Þjóð- viljann i gær að fundurinn hefði veriö vel sóttur. Atvinnuástand á Ólafsvik er mjög gott og sagði Báröur að vertið hefði i raun staðiö stanslaust frá nóvember i fyrra fram til 21. júli i sumar þegar lokað var vegna sumar- leyfa. Siðan var hafist handa aftur 15. ágúst. „Lárus Sveinsson”, gamli togarinn þeirra Ólsara.kom inn á laugar- dag með 140 tonn af góöum fiski og nýi portúgalski togarinn, „Már”, er væntanlegur næstu daga. Til marks um hve gott at- vinnuástandiö er og hefur verið á Ólafsvik, sagði Báröur, að ekki heföi einn einasti maður verið skráður atvinnulaus þar siðan I marsmánuði 1978. Hlýtur það aö vera nánast einsdæmi i jafnfjöl- mennu útvegsplássi. -Ai kom upp í verslunarhúsi Kaupfélags Skagfirðinga og brann allt innanstokks i versluninni til kaldra kola, sem og starfsmannabú- staður og innbú útibús- stjóra og starfsfólks, að mestu leyti a.m.k.. Af þessari myndarlegu bygg- ingu standa nú nánast út- veggir einir eftir. Slys urðu engin á fólki og mun þó hurð hafa skollið nærri hælum. Um hálfáttaleytið á laugar- dagsmorgun vaknaði fólk við há- vaða i innanhússkallkerfi. Mikið reykhaf var þá þegar i verslun- inni og hiti gifurlegur en eldur virtist ekki enn hafa náð sér veru- lega á strik. Leið þó ekki á löngu þar til svo varð og breiddist hann þá mjög ört út. Slökkviliðiö i Varmahliö kom þegar á vettvang en einnig kom slökkviliðið frá Sauöárkróki og Hofsósi. En þrátt fyrir vasklega framgöngu slökkviliðsmannanna tókst ekki aö ráða niðurlögum eldsins fyrr en afleiðingarnar voru orönar slikar, sem að framan er greint. Ekki verður I einum svip metið það tjón sem þarna hefur orðiö en vist er að þaö hleypur á hundr- uðum milljóna. Óvist er um elds- upptök. — Undirbúningur að endurbyggingu er þegar hafinn. -mhg Nei takk ég er á bíl FERÐAR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.