Þjóðviljinn - 16.09.1980, Page 16

Þjóðviljinn - 16.09.1980, Page 16
ÞJOWIUINN Þriöjudagur 16. september 1980. Aftalslr.i Þjóftviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga tll föstudaga. L'tan þess lima er hægt aft ná I blaftamenn og aftra starfsmenn blaftsins f þessum sfmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot Aðalsími Kvöldsími i ^ Afgreiðsla 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná í afgreiöslu blaðsins i sima 81663. iBlaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 '81663 Harka að fœrast í kjaradeilu Fóstrufélagsins: Nemum úthýst í gær Engir samningar um kennsluna í gildi 48 nemar á þriðja ári í Fóstru- skóla islands voru i gærdag sendir heim af dagvistunarheim- ilum á höfuðborgarsvæðinu þar sem þær áttu að hefja verklegt nám. Neituðu fóstrur á heimilum Fóstrulaus bœr 1. desember n.k.? að taka við nemunum en Fóstru- félag islands á nú i kjaradeilu við rikið, sem rekur Fóstruskólann, um laun fyrir kennslu nemanna. Það var i hitteðfyrra að gengið var frá samningum um þessa kennslu á dagvistunarheimilum og nam greiðsla fyrir hana þremur yfirvinnustundum á mánuði. Nemarnir eru hins vegar 40stundir á viku á heimilunum og sagði Fóstrufélagið þessum samningum upp 1. júni s.l..Samn- ingar hafa reynst árangurslausir og i gær kl. 13 hafnaði fjármála- ráðuneytið tilboði fóstranna um 6 yfirvinnutima fyrir áramót og 8 eftir áramót fyrir hvern mánuð, en upphaflegar kröfur fóstranna voru 25 timar sem er það sama og kennarar fá fyrir að taka nema. Fóstrunemar á þriðja ári, sem i gær áttu að hefja verklegt nám á dagvistunarstofnunum,hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu við kröfur Fóstrufélagsins og er hún svohljóðandi: „Viö lýsum yfir eindregnum stuðningi við kröfur og aðgerðir fóstra i baráttu þeirra fyrir bættum launum, fyrir að kenna og leiðbeina nemendum Fóstur- skólans i verklegu námi. Nem- endur telja það ómissandi lið i námi sinu.” —AI Bræla og lítil veiöi „Loðnuveiðarnar standa ákaf- lega illa núna. Mjög treg veiði eða nánast engin. Að visu komu 5 bát- ar inn í dag með um 2800 tonn samtals, en þeir voru ekki aiiir fullhlaðnir, heldur máttu sumir þeirra ekki vera öllu lengur á miðunum, aflans vegna,” sagði Andrés Finnbogason hjá Loðnu- nefnd i samtali við Þjóðviljann siðdegis i gær. Nú eru 32 skip komin á loðnu- miðin, en 52 skip hafa heimild til veiöanna. Flestskipin eru enn á miðunum úti af Scoresbysundi, þar sem nokkur loðna veiddist I upphafi vertiöar en þar hef ur engin loöna fengist siðustu daga, •en bræla er nú á þessum miöum. „Þaðeru um 20þUs. tonn komin á land sem er svipað og á sama tima I fyrra, en vertlðin er yfir- leitt léleg framanaf, en veiðin glæðist siöan þegar liður að mán- aöarlokum”, sagði Andrés. —Ig. Eldur i bilskúr i gærmorgun var slökkviliðið i Reykjavik kvatt að Brautarás 18 i Seljahverfi, en þar hafði eldur komist i nýbyggðan bilskúr og verkfærageymslu sem stóö nálægt skúrnum. Miklar skemmdir urðu á bil- skúrnum og verkfærageymslan var nærri brunnin til kaldra kola þegar slökkviliðið kom á vett- vang. Engin verðmæti voru i bil- skúrnum, en búið var að setja fyrir hann nýja hurð, glerja og klæða þakiö sem brann mikið. Övlst er um eldsupptök, en allar likur benda til aö fyrst hafi kviknaö I verkfærageymslunni og þaðan hafi eldurinn komist I ný- byggðan bllskúrinn. Engar skemmdir urðu á nýbyggingunni sem skúrinn er áfastur viö. —-Ig Þessar ungu garðyrkjukonur i Kópa voginum voru að taka upp grænmetiö og ganga frá garðinum undir veturinn. — Ljósm.: Ella. Góö grænmetisuppskera Landslýður vaknar til dæma- lausrar sólar og bliðu á hverjum degi sem drottinn gefur og muna menn vart aðra eins einmunatið. Glaðastir allra yfir góðvíðrinu eru þó bændur og annað búalið sem á allt sitt undir máttarvöld- unum. Við hringdum I Þorvald Þorsteinsson hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna og spuröum um horfur I grænmetismálum. Hann sagði að enn væri allt I fullum gangi og engar endanlegar tölur lægju fyrir. Ötlit væri fyrir mjög góða uppskeru enda hefði viðrað vel til útiræktunar I sumar. Nokkur innflutningur er á grænmeti en áhugi neytenda er alltaf meiri á innlendri fram- leiðslu, hún þykir kraftmeiri og bragðbetri. Þar á þaðsama við og um Hólsfjallahangikjötið af skepnum sem kroppa gras uppi undir jöklum, það er alltaf best sem sprettur á mörkum hins byggilega heims. Mikill hugur í íóstrum segir Kristín Kvaran formaður Fóstrufélags íslands „Það er mikill hugur I fóstrum og ef við fáum kjör okkar ekki bætt I sérkjarasamningunum er ekki um annað að ræða en finna sér önnur störf,” sagði Kristín Kvaran, formaður Fóstrufélags islands, i gær. Fóstrufélagið er nú að leggja slðustu hönd á sérkröfur sinar, en mikil óánægja er meðal félagsmanna með niðurstöðu heildarkjarasamninganna. M.a. hafa fóstrur sem starfa hjá Reykjavlkurborg (11. deild Starfsmannafélags Reykjavikur- borgar) samþykkt að segja störfum sinum upp 1. desember n.k. ef ekki veröur komið til móts við kröfur þeirra. Kristln sagði að fóstrur geröu kröfu til að hækka I launaflokk- um, en þær eru nú flestar i 10. launaflokki. Laun I þeim flokki losa 400 þúsund krónur á mánuði. „Það eina sem við fengum út úr heildarsamningunum var að fórstrur eftir fjögurra ára starf fara i 11. launaflokk”, sagði Kristin, en fóstrur eiga að baki þriggja ára sérnám og er stúdentsprófs eða hliðstæðrar menntunar krafist til inngöngu I Fóstruskólann. Auk launaflokkakröfunnar leggja fóstrur megináherslu á að fá viðverutlma sinn með börnun- um styttan þannig að þeim gefist timi til þess að sinna undirbún- ingsstörfum, llkt og kennurum. Kristín sagði að sifellt væru gerð- ar meiri kröfur til hins uppeldis- lega hlutverks sem dagvistar- stofnanir eiga lögum samkvæmt að gegna og gætu fóstrur engan veginn sinnt undirbúningi undir þá hlið starfsins á kvöldin og um helgar. Krafa samninganefndar væri þviaöfá 5tima á vikuhverri til undirbúnings m.a. fræðslu- stunda með börnunum, verkefna og föndurs, til skipulagningar starfsins og áætlanagerðar, til undirbúnings fyrir foreldrasam- starf og til viðtala,og getur nærri að þessum störfum er ekki hægt að sinna með hóp 10—20 barna I kringum sig. Kristin sagði að þessi krafa hefði ekki fengist inn i heildar- kjarasamninginn og yrði þvi að reyna á hana i sérkjarasamn- ingunum. Svo virtist hins vegar sem borgaryfirvöld kysu að lita á þetta sem vinnutilhögun en ekki samningamál, en eins og fram kemur i viðtali við Guðrúnu Helgadóttur, borgarfulltrúa,hér á siðunni hefur hún lagt fram til- lögu ,um að 2 vinnustunóir fóstra verði notaöar á viku til undir- búnings hins uppeldislega þáttar starfsins. Kristin sagði að ef þessi tillaga yrði samþykkt hjá borg- inni yrðu fóstrur að athuga stöð- una uppá nýtt. „Þó flestar fóstrur vinni hjá borginni, eru þó margar fóstrur á öörum vinnustöðum utan Reykjavikur”, sagði hún. —AI Tillaga Gudrúnar Helgadóttur um kröfur fóstranna: Tveir tímar á viku í undir- búning — vona að það verði samþykkt í nœstu viku, segir Guðrún „Fóstrur vinna ákaflega erfið störf og eru tiltölulega illa launaðar”, sagði Guðrún Helga- dóttir, borgarfulltrúi, en hún er formaður stjórnarnefndar dag- vistarheimila borgarinnar sem nálega 150 fóstrur starfa við. Guðrún hefur lagt fram tillögu um að komið verði til móts við kröfur fóstranna um undir- búningstima og verður sú tillaga væntanlega afgreidd I næstu viku. „Fóstrurhafa um árabil barist fyrir þvi að fá viðurkenndan undirbúningstlma fyrir vinnuna m.a. til að undirbúa handavinnu, leiki, kynna sér barnabækur og leikföng og annað sem varðar uppeldislega hlið starfsins”, sagði Guðrún. „Þær settu þetta m.a. á oddinn i nýgerðum kjara- samningum og vitna til kennara sem hafa undirbúning fyrir kennsluna inni I samningum sin- um. Þaö var hins vegar niður staðan hjá borginni að þetta væri ekki kjarasamningamál, þar sem þær vilja vinna þessi störf I vinnutimanum og láta leysa sig af á meöan. Sem formaöur dagvistar- nefndar hef ég haft verulegar á- hyggjur af þessu máli og ræddi það m.a. á fundi með meirihluta borgarráðs fyrir skömmu”, sagði Guðrún.enfóstrursem starfa hjá borginni hafa samþykkt að segja störfum sinum lausum 1. desem- ber ef ekki fæst lausn á þessu máli. ,,Ég varðekki vörvið annað en að hjá meirihluta borgarráðs rikti fullur vilji til að leysa málið ogþvi lagði ég fram tillögu I dag- vistarnefndinni 8. september sl.. Tillagan er um að fóstrum á dag- vistarstofnunum Reykjavikur- borgar verði heimilt að taka tvo tima á viku iundirbúningsstörf og ég hélt að það yrði auövelt að fá hana samþykkta þar sem allir voru sammála um nauðsyn þess aö leysa málið. Bessi Jóhanns- dóttir óskaði hins vegar eftir frestun á málinu og varð það úr. Mér þótti það afar miður og sá enga ástæðu til þess.heldur finnst mér þetta dæmigert nefndahangs ogóþarfi fyrst allir eru sammála. Ég vona þvi að tillagan verði samþykkt á næsta fundi nefndar- innar.” Guðrún sagði að með þessari tillögu væri komið til móts við óskir fóstranna, þessir tveir tlmar væru skref i rétta átt og viðurkenning á réttmætri kröfu þeirra til undirbúningstima —AI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.