Þjóðviljinn - 17.09.1980, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJÍNN Miövikudagur 17. september 1980.
Öðruvisi” gjafavara i nýrri búð
Þurrkaðar ilmjurtir, oliur,
sápur og baðsölt, krydd i Ur-
vali og nýstárlegum umbdð-
um, te og sitthvað fleira frá
Culpepper i Englandi auk
handunninnar vefnaðarvöru
frá Italiu eru nýjungar i gjafa-
vöru sem nýja verslunin Jurt-
in, Lækjargötu 2 i Reykjavfk,
býður upp á. Eigendur Jurtar-
innar eru hjónin Einina
Einarsdóttir og Sverrir Olsen
og sjást þau á meðfylgjandi
mynd viö inngang verslunar-
Píanótónleikar i Norræna húsinu
Finnski pianóleikarinn
PEKKA VAPAAVUORI held-
ur tónleika i Norræna húsinu
fimmtudaginn 18. september
kl. 20:30og leikur þar verk eft-
ir Bach, Beethoven og De-
bussy og finnsku tón-
skáldin Einojuhani Rauta-
vaara og Kullervo Karja-
lainen.
PEKKA VAPAAVUORI (f.
1945) er fjölmenntaður maður,
hefur að baki próf i guðfræði
frá Helsingforsháskóla, próf i
organleik og kórstjórn frá
Sibeliusarakademi'unni i
Helsingfors ogpróf I pianóleik
frá sömu stofnun. Var um leið
kirkjuorganisti og söngstjóri i
Helsingfors en fluttist 1971 til
Rovaniemi, þar sem hann
stýrði æskulýðskór, var æsku-
lýðsprestur og ioks kennari
við Tónlistarstofnun Lapp-
lands. Núer hann yfirkennari
i pianóleik við tónlistarskól-
ann i UleSborg.
Eitt hugöarefna Vapaavuori
er flutningur norrænnar nú-
timatónlistar, og hann hefur
margoft frumflutt finnsk nú-
timatónverk. Hann kom fram
á Norrænum tónlistardögum i
Hasselbyhöll i ágúst sl..
Prestar Suðurlands þinga
Prestafélag Suöurlands
heldur aöalfund 21,—22. sept. i
Skálholti. Þar flytur séra
Arngrimur Jónsson erindi,
sem hann nefnir Textar fastra
liða messunnar og prófessor
Einar Sigurbjörnsson erindið
Embætti og prestsdómur.
Umræöur verða á eftir báðum
erindum auk aðalfundarstarfa
með lagabreytingum á dag-
skrá.
/ hverju liggur leyndarmálið?
Framkvæmdanefnd hug-
sjónahreyfingarinnar Val-
frelsi hefur ályktaö og mælst
til, að rikisstjórnin sjái svo
um, aö stjórnarskrárnefnd
kynni störf sin betur fyrir al-
menningi en hingað til hefur
tiðkast.
I greinargerð með ályktun
sinni segist Valfrelsi hafa
reynt að fá upplýsingar frá
stjórnarskrárnefnd um af-
stöðu hennar til almennrar
þjóðaratkvæðagreiðslulög -
gjafar og hvað unnið heföi
verið i' þvi máli, en svar
nefndarinnar verið, að það
væri trúnaðarmál. Valfrelsi
spyr þvi i fréttatilkynningu: I
hverju liggur leyndarmáliö?
og segist ekki vera að gagn-
rýna neitt né neinn meö
ályktun sinni, aðeins aö leggja
til ný vinnubrögð. Abyrgðar-
maður framkvæmdanefndar
Valfrelsis er Sverrir Runólfs-
son.
Húsið se kyrrt a sinutn stað
Stjórn LIFS OG LANDS
fagnar þeirri ákvörðun borg-
arstjórnar Reykjavíkur aö
fresta afgreiðslu á málefnum
hússins að Suðurgötu 7. Jafn-
framt skorar hún á borgar-
yfirvöld að stuðla að þvi að
húsið veröi gert upp á þeim
stað sem það er nú og hefur
staðið um einnar og hálfrar
aldar skeið i stað þess að flytja
það upp i Arbæ.
1 áiyktun sinni um þetta mál
hvetur stjðrnin borgaryfirvöld
til þess að hefja sem fyrst
heildarendurskoöun á lögum
um fasteignamat i þvi skyni
aö auðvelda friðun og viðhald
gamalla húsa um land allt.
Gömul hús eru einhver merk-
asti menningarfjársjóður
islensku þjóöarinnar og veröa
best varðveitt meö þvi að þau
haldi fullu notagildi i sinu upp-
runalegu umhverfi.
Heima er best” i hljóðútgáfu?
bendir á i kynningarbréfi til
lánþega Hljóðbókasafnsins.
Hljóðútgáfan er undir þvi
komin hve margir áskrifendur
fást, áskriftarverð er ekki
ákveöið, en fer þó varla yfir 10
þúsund krónur árgangurinn,
segir i kynnisbréfinu, en biað-
ið kemur út mánaðarlega.
ff
Timaritiö „Heima er best”
hefur ákveöið að kanna undir-
tektir undir þá hugmynd aö
gefa ritið út i hljóöútgáfu og
gefa kost á slikri áskrift. Það
yrði I fyrsta sinn sem blað eða
timarit er gefið út I þannig
búningi hér á landi, en ætla
má aö fleiri kæmu á eftir ef vel
tekst til, einsog timaritið
Kynning á
stöðu vist-
fræði-
rannsóknar
Til að kynna stöðu vist-
fræðirannsókna á islandi
innanlands og utan og efla
samskipti milli þeirra sem
við slikar rannsóknir fást
verður haldin sérstök ráð-
stefna um efnið i Norræna
húsinu á fimmtudaginn
kemur.
Sextán islenskir visindamenn
haida erindi um rannsóknir sinar,
en allmargir vistfræðingar frá
öðrum Noröurlöndum sækja ráð-
stefnuna og verða erindin flutt á
ensku eða einhverju skandi-
navisku máli. Ráðstefnan er
haldin á vegum Liffræðifélags Is-
lands og Nordiskt Kollegium för
Ekologi, norræns ráös sem vinnur
að framgangi vistfræöirannsókna
og framhaldsmenntunar i vist-
fræði á Noröurlöndum meö þvi aö
efla samvinnu milli landanna.
Mun ráðið gefa út á ensku ágrip
fyrirlestra ráðstefnunnar, sem
dreeift verður til vistfræðinga á
Norðurlöndum og viðar.
Ráðstefnan er öllum opin.
Ingvar Gislason menntamálaráð-
herra setur hana kl. 9 og hún
stendur til kl. 17.
Kristján
Andrésson
látinn
Kristján Andrésson lést á
heimili sinu I Hafnarfirði sl.
mánudagsmorgun eftir
nokkra legu, sextiu og sex ára
aðaldri. Kristján var um ára-
bil einn af helstu forvi'gis-
mönnum Sósialistaflokksinsog
sat i bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar á vegum hans og Alfc'ðu-
bandalagsins i tuttugu ár.
Kristján Andrésson fæddist
16. júni 1914 I Hafnarfirði. Að
loknu námi i' Flensborg stund-
aði Kristján verkamanna- og
verslunarstörf og tók virkan
þátt i félags- og verkalýösmál-
um. Hann var einn af stofn-
endum Félags flugvallar-
starfsmanna og formaður
þess árið 1946 og 1947. Hann
var heiðursfélagi þess félags.
Kristján var og formaður
Verslunarmannát'élags Hafn-
arfjarðar árin 1957 og 1958.
1 miðstjórn Sósialistaflokks-
insáttiKristjánsæti á árunum
1952 til 1962, og var bæjarfull-
trúi flokksins og siðar Alþýðu-
bandalagsins I Hafnarfirði á
árunum 1946 til 1966. Hann
gegndi fjölmörgum trúnaðar-
störfum á vegum bæjarins,
átti sæti I bæjarráði, var vara-
forseti bæjarstjórnar á árun-
um 1954 til 1962 og i útgerðar-
ráö-i frá 1954 til 1962. Hann var
framkvæmdastjóri hjá Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar á árun-
um 1958 til 1962.
Árið 1966 réðst Kristján til
Verðlagsskrifstofunnar og
starfaði þar siðan sem upplýs-
ingafulltrúi.
Eftirlifandi kona Kristjáns
er Salbjörg Magnúsdóttir.
Börn þeirra eru Logi, Maria,
Bergljót, Andrés og Katrin.
Þjóöviljinn vottar þeim og
öðrum aðstandendum samúð
við fráfall þessa baráttu-
manns sósialiskrar hreyfingar
á Islandi.
—ekh
Vetrardagskrá Fjalakattarins að hefjast
í Regnboganum
Cr myndinni ,,1900M, sem sýnd veröur I tveimur hlutum i þessari viku
og þeirri næstu.
Sýningar
Fjalakötturinn, kvikmynda-
kiúbbur framhaldsskólanna,
hefur starfsemi sina á morgun,
fimmtudag. Sýningarnar i vetur
verða i A-sal Regnbogans á
fimmtudögum, laugardögum og
sunnudögum, og verður hver
mynd sýnd þrisvar sinnum, en
ekki fimm sinnum eins og veriö
hefur undanfarna vetur.
Margt forvitnilegra mynda er á
dagskrá klúbbsins i vetur. Ber
þar fyrst aö nefna myndina sem
byrjað verður á, itölsku stór-
myndina 1900, eftir Bernando
Bertolucci. Hún er i tveimur
hlutum, og verða þeir sýndir til
skiptis i þessari viku og þeirri
næstu: fyrri hlutinn 18., 21. og 27.
sept., og seinni hlutinn 20., 25. og
28. sept.. 1900 er kvikmynd sem
margir hafa beðið eftir með ó-
þreyju. Hún var gerð árið 1977 og
fjallar um ttaliu á timabilinu
1900—1945, breiösöguleg mynd og
þjóöfélagsleg úttekt á þessu
stormasama timabili. Af
mörgum heimsþekktum leikur-
um sem leika i myndinni má
nefna Robert De Niro, Burt Lan-
caster, Donald Sutherland og
Dominique Sanda.
Af öðrum nýlegum og frægum
myndum sem sýndar verða i
vetur má nefna Spegilinn eftir
Andrei Tarkofskí hin sovéska
(þann er gerði Andrei Rúbljof,
Soiaris og Bernsku Ivans),
Mannsæmandi lif (Ett anstand-
igt liv) eftir Sviann Stefan Jarl,
Þessir yndislegu kvikmyndasér-
vitringar, nýleg mynd tékkneska
snillingsins Jiri Menzel, Cet ob-
scure object du desireftir meist-
ara Bunuel og Græna herbergið
eftir Francois Truffaut.
Þá verða sýndar margar eldri
myndir, ekki siður merkilegar:
Idjótinn eftir Kurosawa, Pétur
vitiausi og Alphaville efitr God-
ard, Drengur eftir Oshima, Hiro-
shima ástin min eftir Alain Res-
nais o.m.fl.
Sem fyrr segir verða
Banaslys í
Mývatnssveit
17 ára piltur, Stefán Stefánsson,
Ytri Neslöndum i Mývatnssveit
lést i umferöarslysi I fyrradag.
Stefán ók á bifhjóli á vörubíl sem
stóö við brún Austurlandsvegar á
móts viö efstu húsin i Reykjahlið.
Hann er talinn hafa blindast af sól
og ekki séö bilinn.
sýningarnarí Regnboganum, þar
sem aðstæður eru mun betri en i
Tjarnarbiói. Sýnt verður á
fimmtudögum kl. 18.50, laugar-
dögum kl. 13 og sunnudögum kl.
18.50. Skirteini verða seld i Regn-
boganum fyrir sýningar, I Bóksölu
stúdenta, Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og i öllum
menntaskólunum og kosta kr.
13.000. Fyrir þetta verð geta
menn semsé komist 34 sinnum I
bió, og verður að teljast vel slopp-
ið. —‘h
Forvitin Raud komin út ,
Konur og vímugjafar
Forvitin Rauð,blað Rauðsokka-
hreyfingarinnar, er komin út og
er að mestu helguð umræðum um
konur og vímugjafa bæði I fljót-
andi og föstu formi.
Hér á landi hefur fátt eitt verið
skrifað um slik efni, aðeins er til
könnun frá 1972-3 á lyfjanotkun.
Erlendis hafa verið gerðar
miklar kannanir á lyfjanotkun og
alkóhólisma, sem sýna að konur
hafa nokkra sérstöðu sem á rætur
að rekja til þess hlutverks sem
þær gegna i' samfélaginu.
Þeir Rauðsokkar hafa greini-
lega lagt töluvert á sig til að fá
lifandi myndaf vandamálinu, þvi
rætt er við fjórar konur sem
þekkja af eigin raun hvernig það
er að lifa fyrir flöskuna og pillu-
glösin. Þá er einnig viðtal við
áfengisráðgjafa og birtur er
spurningalisti um áfengisnotkun
sem hverjum og einum er holltað
svara.
Af öðru efni I blaðinu má nefna
grein um hjónaskilnaði og áhrif
þeirra á börn. Sagt er frá kvenna-
búðunum á eyjunni Femö við
Danmerkurstrendur, frásögn er
af þeim bráöfyndnu stelpum sem
kalla sig Clapperclaw, en þær
skemmta einmitt þessa dagana i
Félagsstofnun stúdenta. Sagt er
frá kvikmyndinni Kramer gegn
Kramer og fjaliað er um sjón-
varpsheiminn þar sem karl-
mennskan rikir. Kvennasögu-
safnið er heimsótt og er þar með
upp talið hvað helst er efnið i
þessu eintaki Forvitinnar
Rauðrar sem hægt er aö nálgast I
Sokkholti, Skólavörðustig 12, þar
sem einnig er hægt að gerast
áskrifandi.
—ká