Þjóðviljinn - 17.09.1980, Page 11
Miövikudagur 17. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Á myndinni hér aö olan sést hvar Bjarna mistekst að verja skot Kroth og fyrsta mark Kölnar er staðreynd. Á stóru myndinni er Bjarni búinn að koma höndum á knöttinn, en missir
hann yfir sig í markiö. Myndir: —eik
Köln sigraði ÍA 4:0 á Laugardalsvellinum í gærkvöld
IrSR íþróttir (§ íþróttirí
l J | Umsjén: Ingólfur Hannesson. ^ 1 ^ EÉ3 V
A
/
Baráttuglaðir Skagamenn
máttu þola stóran ósigur
Heldur klaufaiegt mark á 49.
min leiks iA og 1. FC Köln i gær-
kvöld varö sannkallaður banabiti
Skagamanna. Þeir höfðu staðið
vel i hinum frægu þýsku atvinnu-
mönnum allan fyrri hálfleikinn,
Stórstjörnur 1. FC Köln
ekki svipur hjá sjón
t gærkvöld lék Jón Gunnlaugs-
son sinn 16. leik I Evrópukeppni
og stóð hann sig með mikilli
prýöi. Jón fékk viðurnefnið Jón
„Kranklbani" i fyrrasumar eftir
að hafa leikiö hinn fræga mið-
herja Hans Kranki grátt i leik ÍA
og Barcelona. Hann var spuröur
hvort ekki hefði veriö erfitt að
leika gegn stórstjörnum Kölnar-
liðsins, þeim Dieter Miiller, Tony
Woodcock og Reiner Bonhof.
,,Mér finnst þetta lið, 1. FC Köln,
ekkert sérstakt, Barcelona er
mun betra. Þessar stórstjörnur
þeirra voru ekki svipur hjá sjón i
kvöld. Það er kannski erfitt fyrir
þá að leika á móti óþekktum
áhugamönnum.”
— Hvernig fannst þér leikur
Skagaliðsins vera?
„Það er nú ekki ýkja langt á
milli 1 marks ósigurs og 3-4
marka ósigurs. Baráttan var góð
i liðinu og menn algjörlega út-
keyrðir i lokin. Það léku allir á
fullu. Það var siðan vendipunktur
leiksins þegar Bjarni missti bolt-
ann yfir sig og þeir skoruðu sitt
fyrsta mark. Þetta mark kom
einmitt á versta tima.
— Hvernig leggst leikurinn úti i
þig?
„Það eina sem ég get sagt um
þann leik er aö hann veröur erf-
iður,” sagði Jón Gunnlaugsson að
lokum.
—IngH
„Akranes er mjög gott lið”
„tslenska liöiö var mjög gott i
fyrri hálfleiknum og markvörður
inn varði þá nokkrum sinnum frá-
bærlega vel. Þá varð hann fyrir
óhappi þegar Köln skoraði sitt
fyrsta mark, en eftir það voru
minir menn mun betri,” sagði
þjálfari Kölnarliösins, Karl Hcinz
Heddergott,að leikslokum i gær-
kvöld .
Þjálfi sagöi ennfremur að ekki
en við markið var eins og liðið
brotnaði niður og eftirleikur
Þjóðverjanna varð auöveldur.
Þegar upp var staðið að leikslok-
um haföi Köln gert fjögur mörk
en ÍA ekkert, 4:0.
Strax á fyrstu mín. leiksins i
gærkvöldi þurfti Bjarni að taka á
honum stóra sinum þegar hann
varði kollspyrnu frá Engels.
Bjarni kom mikiö við sögu eftir
þetta og var sá Þrándur i Götu,
sem þýskir gátu trauðla yfirstig-
ið. A 10. min varði Bjarni hörku-
skot Botteron frá vitateig.
Skömmu seinna sýndi Bjarni aft-
ur snilldartilþrif þegar hann
fleygði sér niður og varði skot frá
Engels ert hann haföi leikiö sig
„dauðafrian” eins og sagt er á
Loforðið
stóðst”
hefði verið hægt að kenna slæm-
um vallaraðstæðum og leiöinlegu
veðri um að Kölnarliöið lék ekki
betur en raun bar vitni. Slikar
aðstæöur ynnu auðvitað með
islenska liðinu og þvi yröi að taka.
„í liöi Akraness eru margir góð-
ir leikmenn en bestir i kvöld
fannst mér Sveinsson, nr. 7
(Kristján Olgeirsson) og mark-
vöröurinn (Bjarni Sigurösson)”.
—IngH
„Viö lofuöum ykkur góðum leik
og góðri baráttu hjá Skagaliöinu
og það stóðst,” sagði Hörður
Helgason þjálfari 1A eftir leikinn
i gærkvöld .
Höröur sagði að lið sitt heföi
fengið á sig 2 ódýr mörk og það
hefði gert það aö verkum að
endanleg úrslit hefðu orðið ósann-
gjörn. „En við vorum óheppnir að
skora ekki,” bætti hann við.
„Þegar stórliö eins og Köln,
sem hefur gengiö illa undanfarið,
leikur gegn liöi sem er
lakara þá reynir það að ná fram
sem bestum úrslitum. Það sýnir
að þeir léku á fullu i kvöld,” sagði
Höröur ennfremur.
—IngH
knattspyrnumáli. Enn var Bjarni
á ferðinni á 24. min, en þá komst
MUller framhjá vörn 1A en Bjarni
varði að sjálfsögðu. Réttri min.
siðar fengu Skagamenn sitt fyrsta
tækifæri i leiknum. Guðjón tók
langt innkast og boltinn barst til
Sigþórs á markteignum, en Schu-
macher komst fyrir knöttinn. A
lokamin. fyrri hálfleiks fengu
Skagamenn aftur gott marktæki-
Hillaire í 4
leikja hann
Vince Hillaire, Crystal Palace,
var dæmdur I 4-Ieikja
keppnisbann af aganefnd enska
knattspyrnusambandsins i gær-
kvöld og er þetta einn af þyngri
dómum sem nefndin hefur fellt i
nokkur ár. Hann var einnig
sektaður um 500 pund.
Hillaire hrinti dómara i leik
Crystal Palace og Tottenham
fyrir skömmu og fékk ofangreind
málagjöld makleg.
—IngH
færi. Sigþór sneri á vörn Kölnar
og úr þröngri stöðu tókst JUliusi
að pota i knöttinn, sem fór rétt
framhjá.
Fyrst marktækifæri seinni hálf-
leiks féll f skaut Sigurðar
Halldórssonar. Honum tókst að
skalla knöttinn eftir hornspyrnu,
en Schumacher varöi. Á 49. min
kom siðan markið sem útslagiö
gerði. Bakvöröurinn Kroth geyst-
ist upp völlinn og 30 m frá marki
skauthann. Bjarnikom höndum á
knöttinn, en hélt honum ekki....
Þar með var eins og allur vindur
hlypi úr Akurnesingunum og
baráttukraftur þeirra þvarr
mjög. Á 57. min skoraði Litt-
Framhald á bls. 13
Úrslit
Crslit i Evrópuleikjum i gær-
kvöld' urðu þessi:
Newport—Crusaders 4:0
Sparta Prag—Spora(Lux) 6:0
Nantes — Linfield 1:0
UjpestD—R. Sociedad 1:1
Barcel. — Sliema (Malta) 1:0
Reykjavikurmótið i hand-
bolta hefst i kvöld
Reykjavikurmótið í hand-
knattleik hefst I Laugardals-
höliinni i kvöld. Ármann og
Vfkingur leika kl. 19, þá KR og
ÍR og loks Fylkir og Valur.
Leikið er i 2 riðlum á mót-
inu. I A-riðli eru Vikingur, KR,
IR og Armann og i B-riðli eru
Valur, Fram, Þróttur og Fylk-
ir. Riðlakeppnin heldur siðan
áfram á morgun, fimmtudag,
föstudag og lýkur á laugar-
dag. Tvö efstu lið úr hvorum
riðli halda áfram i úrslita-
keppni, sem háð veröur á
sunnudag, þriðjudag og miö-
vikudag.
— IngH