Þjóðviljinn - 25.11.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 25.11.1980, Blaðsíða 16
MQÐVIlllNN 1 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins Iþessum slmum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Þriöjudagur 25. nóvember 1980. 8iz85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Tugmiljarða skuldir útgerðarinnar: Breytt í skuldabréf tíl 5 ára Oliuskuldir útgerOarinnar nema nú 12—13 miljöröum króna, aö sögn Steingrims Hermanns- sonar sjávarútvegsráðherra. Eru skuldir þessar lægri en reiknað hafði verið með. Skuldir sjávarútvegsins hjá Fiskveiðasjóöi eru 7—8 miljarðar, en auk þess skulda út- geröarmenn Byggingasjóði rikis- ins, bönkum og fleiri aðilum. Tillögur um aögerðir i vanda- málum sjávarútvegsins eiga aö liggja fyrir um miöjan desember. Sagði sjávarútvegsráöherra að gert væri ráð fyrir þvi að skuldum útgeröarinnar yröi breytt i 5 ára skuldabréfalán. —eös Skák - OL: Margeir tapaði Margeir Pétursson tapaði biö- skák sinni úr 4. umferð gegn Spassof á olympiuskákmótinu á Möltu. Sigruðu Búlgarar tslendinga með 3 1/2 vinningi gegn hálfum. Sigur Búlgara I þessari umferð vakti mikla athygli svo og sigur Bandarikjamanna yfir Kúbu, 3:1. Ungverjar sigruðu fsrael með 2 1/2:1 1/2, Sovétmenn Júgóslava með 2 1/2:1 1/2 og Englendingar, Pólverja meö 3:1. Efstir eftir 4. umferð i karla- flokki eru Ungverjar meö 13 vinn- inga, 2.-3. Búlgarar og Banda- rikjamenn með 12 1/2, 4.-5. Englendingar og Sovétmenn meö 11. fslendingar eru með 9 1/2 vinning. Einróma áskorun landsfundar: Veitið Gervasoni hæli Eftirfarandi ályktunar- tillaga var einróma sam- þykkt á Landsfundi Alþýöu- bandalagsins um helgina: „Landsfundur Alþýðu- bandalagsins beinir þeirri eindregnu áskorun til stjórn- valda aö veita Patrick Gervasoni hæli sem póli- tiskum flóttamanni á fs- landi. Fundurinn telur það hneisu ef visa á úr landi manni sem ekki hefur annaö til saka unniö en aö neita þátttöku i vopnaskaki stór- veldis. Sérstök athygli er vakin á afstöðu Amnesty International i þessu máli og þeirri staðreynd að islensk stjórnvöld hafa hingað til ekki skapað þeim samtökum verkefni.” Steingrfmur: „Alvarlegast ef við missum tiltrú sildarkaup- enda”. — Mynd: — gel' „Ég beindi þeim tilmælum til L.t.O. og viðskiptaráðuneytis- ins á föstudaginn, er ég frétti um hótanirnar frá Sviþjóð, að hætt yrði við siglingar sildar- báta til Danmerkur”, sagði Steingrimur Herman nsson sjávarútvegsráöherra i samtali við Þjóðviljann I gær. Eins og sagt var frá i sunnudagsblaöinu, er saltsildarmarkaður íslend- inga i stórhættu vegna fersk- sildarsölu Islenskra skipa i Dan- mörku. Steingrimur sagði að siðan hefðu borist tilmæli frá Sildar- útvegsnefnd um að málið yrði Sjávarútvegs- ráðherra: óvist er um markaðinn fyrir frysta sild á næstunni.— Þessar tver unnu við frystingu á Seyðisfirði. — Ljósm. — gel — S La/Í aEf n 1 b \ L 1 i iæm.. ii&Á' wSS ■ * - \Ww \ Jm Siglingar síldar- bátanna stöðvaðar Ákvarðanir umaðstoð við flotann vegna frystingar síldar teknar á næstu dögum athugaö nánar og hætt viö að banna siglingar á meöan. „Ég varð ákaflega undrandi á þeim tilmælum”, sagði hann. Stein- grfmur sagðist ætla að endur- taka tilmælin um bann við sildarsölunni i dag. I gær hélt viðskiptaráðherra fund með hagsmunaaðilum i sjávarútvegi um þetta mál. Sjávarútvegsráöherra sagöi að þaö hefði verið forsenda fyrir leyfi til sölu fersksildar i Danmörku að verðið yrði ekki lægra en 5 kr. danskar. Sú for- senda hefði brugöist og þvi væri ekki annaö fyrirsjáanlegt en að stöðva siglingar með sild. Þótt ekki hefði verið gert ráð fyrir að siglt yrði með meira en 3—400 lestir, sem væri aðeins dropi i hafið, sagöi Steingrímur að þetta yröi að stööva engu aö sið- ur. Ef siglingarnar verða stöðvaðar nú, nemur heildar- magn þeirrar sildar sem siglt hefur verið með 1500 til 2000 lestum. Sjávarútvegsráðherra sagðist nú vera að láta athuga hvort toðnunefnd geti aðstoöað flotann viö löndun á sild til frystingar, en helsti vandinn við frystingu væri að afköstin væru ekki nægilega mikil. Verða ákvaröanir i þessu efni teknar á allra næstu dögum. Óvist er hvort markaður fyrir írysta sild eykst á næstunni. Mikið framboö er nú af frystri sild frá Kanada, sem aö vlsu er lélegri en okkar sild. „Þaö er al- varlegast við þessa sölu i Dan- mörku nú, ef viö missum með henni tiltrú kaupenda okkar á næsta ári,” sagði Steingrimur. Eitt bátur, Þórshamar seldi sild i Danmörku i gær, og fékk aðeins 4,22 kr. danskar fyrir kilóið. Tveir bátar munu selja sild i dag. —eös Farmannadeilan: Samkomulag um sérkröfur í nánd Farmenn voru á fundi meö ríkissáttasemjara i gær, en þeir eru nú í yfir- vinnubanni. „Það hafa verið geysimikil fundahöld síðan í sumar með far- mönnum," sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari i gær. Mest hefði verið f jallað um sérkröfur farmanna og væri nú komið langleiðina með þær i átt til samkomu- lags. Sagðist sáttasemjari reikna meðað farið yrði að ræða um kaupiö sjálft alveg á næstunni. Formannaráðstefna Far- manna- og fiskimannasam- bands tslands, sem haldin var um helgina, lýsti yfir fullum stuön- ingi við kröfur farmanna og hét á samninganefnd félaganna að fylgja þeim eftir af fullum þunga. Jafnframt átaldi ráðstefnan harðlega seinagang og þver- girðing viösemjenda gegn þvi aö ganga til raunverulegra samningaviöræðna við félögin. Formannaráöstefnan beindi þvi til samninganefndar Farmanna- og fiskimannasam- bandsins aö yfirvinnubanni þvi sem nú stendur yfir verði ekki aflétt fyrr en gengið hefur verið til móts við kröfur sambandsins um öryggismál, lifeyrismál og félagslegar umbætur. Þá segir I áiyktun ráöstefn- unnar: „Ráðstefnan fordæmir þá einstæöu og smekklausu árás forustu Landssambands útvegsmanna á hendur sjó- mönnum og samtökum þeirra, sem felst I þeim kröfum sem samtökum sjómanna hafa veriö afhentar og fela i sér stórfellda skerðingu á kjörum sjómanna, ef þær ná fram aö ganga til viöbótar þeirri skerðingu á hlut sjómanna, sem stjórnvöld hafa ákveöið og fært útvegsmönnum meö hækkun oliugjaldsins. Má vera, að forustumenn L.l.O. telji sig nú eiga tryggan stuðning stjórn- valda viö þessi einstæðu kjara- skerðingaráform sin.” —eös Mjólkur- fræðingar boða verkfall Atkvœðagreiðsla um sáttatillögu hjá bankamönnum og flugmönnum Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall frá og með 1. desember nk.. Þeir hafa verið boðaðir til fundar hjá rikissáttasemjara á laugardag og er búist við ströng- um fundahöldum i deilunni um helgina. Framundan er allsherjar at- kvæðagreiðsla meðal banka- manna um sáttatillögu og fer hún fram á fimmtudag og föstudag i þessari viku. Bankamenn hafa frestað boðuöu verkfalli fram til 8. desember, en það haföi verið boöaö 3. des. 1 gærdag var eins dags verkfall múrara, pipulagningamanna, málara og veggfóörara. Sagði i fréttatilkynningu frá þessum iðnaðarmannafélögum, sem öll standa utan Sambands bygginga- manna nema Málarafélag Reykjavikur, að félögin hafi séð sig knúin til jiessara aðgerða þar sem meginkrafa þeirra i kjara- deilunni, um leiðréttingu á reikni- tölu ákvæðisvinnu, hafi engar undirtektir fengið hjá vinnuveit- endum. „Það er aöeins ágreiningur um reiknitöluna, sérstaklega úr- réttinguna aftur i timann”, sagði Guðlaugur Þorvaldsson rikis- sáttasemjari I gær. „Þetta stendur járn I járn, svo það var ákveðið að ekki skyldi boöaö til fundar nema annar hvor eða báöir aöilar óskuðu þess. Málið er þvi I biðstöðu.” Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir meðal flugmanna um sátta- tillögu I deilu þeirra. —eös Rafiðnaðar- menn sömdu Samningar tókust milli Raf- iðnaðarsambands tslands og viö- semjenda þcss kl. 3 i fyrrinótt. „Það varð ofan á, að útvarps- virkjar, rafvirkjar og skriftvéla- virkjar geröust allir aðilar aö kjarnasamningi ASl,” sagði Guð laugur Þorvaldsson sáttasemjari rikisins i gær. Rafiðnaðarmenn samþykktu að ganga inn i flokka- röðun samkvæmt fyrrnefnd- um kjarnasamningi. Samningar rafiðnaðarmanna munu vera mjög svipaðir öðrum kjarasamningum sem gerðir hafa verið að undanförnu. Siðasti sáttafundur i kjaradeilu raf- iðnaðarmanna stóð i 13 klukku- stundir. —eös Bakarar kærðlr Eins og skýrt var frá I Þjóö- viljanum fyrir helgi hafa bakara- meistarar tekiö sér sjálfdæmi I verölagningu visitölubrauöanna svonefndu og hækkuöu brauðin I samræmi viö kauphækkanir, sem nýlega samdist um. Könnun Verðlagsstofnunar i gær leiddi i ljós að viða voru brauðin hærri i veröi en leyfilegt er og hefur Rannsóknalögreglan nú kæru vegna málsins til athug- unar. Verður málið að lokinni rannsókn sent til saksóknara. Bakarar sóttu eins og ýmsir aðrir um hækkun vegna kaup- hækkananna en engar slikar beiönir hafa enn verið afgreiddar I verölagsráði. —AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.