Þjóðviljinn - 12.12.1980, Side 3
Föstudagur 12. desember 1980. ÞJöÐVILJlNN — SÍÐA 3
j Jólatrén
! tendruð í
| Reykjavík
Á morgun, laugardag, og á
* sunnudaginn veröa tendruð
J stærstu jólatrén i Reykjavik, á
I Austurvelli og við Reykjavikur-
I höfn.
Tréð við Reykjavikurhöfn
J hefur að venju verið reist við
I Hafnarbúðir og er gjöf frá
I klúbbnum Wikingerrunde i
> Hamborg, sem er félagsskapur
J fv. sjómanna, blaða- og versl-
I unarmanna þar i borg. Koma
I nokkrir félaganna hingað til að
* vera við afhendinguna, þ.á.m.
J hafnarstjóri Hamborgarhafnar,
I dr. Mönkemeier, O. Dreyer
I Eimbcke ræðismaður fslands
■ og frumkvöðlar jólatrésgjafar-
1 innar, sem nú er send i fimm-
I tánda sinn, þeir Werner Hoenig
I fulltr. Loftleiða i Hamborg og
I Hans Hermann Schluhz hjá
1 norðurþýska útvarpinu.
Ljósin verða tendruð kl. 16 á
I laugardag og mun dr. Mönke-
I meier afhenda tréð Gunnari B.
* Guðmundssyni hafnarstjóra að
I viðstöddum R. Hert sendi-
I herra V-Þýskalands og öðrum
I gestum. Lúðrasveit leikur við
■ Hafnarbúðir frá kl. 15.45.
A sunnudaginn kl. 15.30 verð-
I ur kveikt á jólatrénu á Austur-
I velli, gjöf Oslóbúa til Reykvik-
1 inga i rúman aldarfjórðung. Þar
I hefst athöfnin með leik Lúðra-
I sveitar Reykjavikur, sendi-
I herra Noregs, Annemarie Lor-
' entzen afhendir tréð og Sigurjón
IPétursson forseti borgarstjorn-
ar veitir þvi viðtöku fyrir hönd
borgarbúa. Að lokum syngur
J Dómkórinn jólasálma.
Eftir að kveikt hefur verið á
n
Jólatréð frá Hamborg. Kveikt verður á þvi á morgun kl. 2 sd. —
Ljósm. —-eik—
trénu verður barnaskemmtun
við Austurvöll með jólasveinum
og öllu tilheyrandi og koma þeir
fram á þaki Kökuhússins undir
stjórn leiðtoga sins, Askasleikis,
að þvi er sérlegur umboðs-
maður jólasveinanna, Ketill
Larsen hefur tilkynnt.
"J
25 miljarðar upp 1 lánsfjáráætlun:
Borgist eftir 25 ár!
4,7 miljarða króna viðbótarheimild í ár
Rikisstjórnin hefur ieitað eftir
heimild til að taka 4750 miljón
króna lán tii ráðstöfunar á þessu
ári og til viðbótar 25 miljarða
króna lán til ráðstöfunar á næsta
ári upp i lánsfjáráætlunina fyrir
árið 1981 og er það mjög sérstætt:
afborgunarlaust i 24 áriRagnar
Arnalds fjármálaráðherra mælti
i gær fyrir frumvarpi til laga um
heimildir fyrir rikisstjórnina til
lántöku á árunum 1980 og 1981 og
ábyrgðarheimildir. Leitað er eftir
heimiidtil að taka lán að upphæð
4750 miljónir króna til ráðstöfun-
ar i ár. Lánsfé þessu mun verða
ráðstafað m.a. til Rafmagns-
veitna rikisins til framkvæmda
við Kröflu, 1111 miljónum króna,
til Jarðvarma veitna rikisins og til
framkvæmda við Bjarnarflag 300
miljónum, til kaupa á þyrlu fyrir
Landheigisgæsluna, þá sem þeg-
ar er komin til landsins, 800
miljónum króna, til heitaveitu-
framkvæmda i Borgarfirði 620
miljónum króna og til að greiða
hlut rikissjóðs i dráttarbrautar-
framkvæmdum 520 iniljónum
króna, svo að nokkrir ráðstöfun-
arþættir séu nefndir.
Jafnframt þessu er leitað eftir
heimild fyrir rikisstjórnina til að
taka 25 miljarða króna lán á árinu
1981 til ráðstöfunar á þvi ári
þangað til lánsfjáráætlunin hefur
verið samþykkt, en það verður
ekki gert á Alþingi fyrir jól, að
sögn fjármálaráðherra, þótt hún
verði lögð fram tii kynningar i
næstu viku.
Hér er um mjög óvenjulegt lán
að ræða þar sera það er veitt til 25
ára og afborgunarlaust fyrstu 24
árin. .
—Þ»g
Verkakonur
á Eskifirði
atvinnulausar
Atvinnuástand á Eskifirði hefur
verið fremur slæmt siðan um
miðjan nóvember. Hraðfrysti-
húsið hefur verið lokað að undan-
förnu, aðeins þeir fáu sem þar eru
fastráðnir hafa vinnu, en þeir eru
aliir karlmcnn. Þær 20-30 konur
sem hafa unnið i frystihúsinu og
fóru ekki i sildarvinnuna hafa
verið atvinnulausar siðan 20.
nóvcmber.
Nýji togarinn, Hólmatindur,
sem keyptur var til Eskifjarðar i
ágústlok, fór beint i klössun á
Akureyri og er nú i sinni fyrstu
veiðiferð. Hinn togarinn, Hólma-
nes, er i slipp á Akureyri.
Ekki bætir úr skák, að bátar
hafa siglt með afla að undanförnu
og selt erlendis. Sæljón og
Kristján Guðmundsson hafa selt i
Englandi. ,,Á meðan þokkaleg
vinna var hér i sumar, neitaði
frystihúsið að taka við afla
þessara báta,” sagði Hrafnkell A.
Jónsson fréttaritari blaðsins á
Eskifirði i gær. „Útgerðarmenn
þeirra telja sig þvi ekki skylduga
að leggja hér upp fisk þegar
hentar hjá fyrirtækinu.”
Nokkur hópur fólks hefur haft
vinnu við sildarfrystingu eftir að
söltun lauk. Verið er að reisa 12
ibúða blokk á staðnum og er þar
nú einkum vinna fyrir iðnaðar-
menn.
Aðeins ein kona hefur látið skrá
sig atvinnulausa, þvi reglur at-
vinnuleysistrygginga eru þannig,
að ef eiginmennirnir hafa sæmi-
legar tekjur fá konurnar engar
atvinnuleysisbætur. Konurnar
eru varavinnuafl eins og oft hefur
verið bent á, atvinnulausar viða
um land jafnvel mánuðum
saman, en i uppgripum eins og
sildarævintýrinu vinna þær
ásamt unglingum og jafnvel
börnum myrkranna á milli.
—eös
SH um framlengingu aðlögunargjalds:
Miklir hagsmunir í
útflutningi gleymast
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur tekið afstöðu gegn fram-
lengingu aðlögunargjalds af iðn-
aðarvörum og varaði i gær við
hverskonar aðgerðum hér á landi
sem lciða til gagnráðstafana af
hálfu Efnahagsbandalagsins að
þvi er varðar innflutningsgjöld af
sjávarafurðum.
Um viðhorf SH segir að öðru
leyti svo i tilkynningu hennar:
„Félag isl. iðnrekenda hefur nú
i frammi mikinn áróður fyrir-
framlengingu aðlögunargjalds af
iðnaðarvörum. I röksemdum fyr-
ir þessu gjaldi eru settar fram
hæpnar fullyrðingar um lakari
samkeppnisaðstöðu iönaðar
gagnvart sjávarútvegi, og ekki er
minnst á þá f jarlægðarvernd sem
iðnaður nýtur i ýmsum greinum,
né heldur að sjávarútvegur aðal-
keppinauta okkar á fiskmörkuð-
um nýtur stórfelldra opinberra
styrkja.
I þessari umræðu gleymist að
hér er um að ræða mikla hags-
muni i útflutningi. Eftir að tollar
voru felldir niður i Efnahags-
bandalaginu sem afleiðing aðild-
ar okkar að EFTA, þá hefur út-
flutningur sjávarafurða til þess-
ara landa aukist ár frá ári. Þá er
einnig fyrirhuguð veruleg fjár-
festing i Englandi til að styrkja
markaðsaðstöðu okkar i framtið-
inni.
Þetta er að sjálfsögðu gert i
ljósi þess að við njötum áfram
þeirrar tollalegu aðstöðu sem
gildir i dag, þvi ef gera mætti ráð
fyrir lakari samkeppnisaðstöðu,
þá væru slikar áætlanir byggðar á
sandi.”
Þá segir ennfremur, aö við-
skiptahagræði islenskra útflutn-
ingsaðila vegna aðildar Isiands
að Efta og bókunar 6 við EBE
verði um 11 miljarðar króna árið
1980 vegna útflutnings til landa
innan þessara bandalaga.
HERERBOKIN!
HVERJU MÁ EG TRUA? cftir Harold Shcrman
Frá örófi alda hafa draumar og vökusýnir fylgt mannkyninu. Draumurinn er
margslungið ævintýri, sem menn ráða á ýmsa vegu, jafnvel hefur hver ráðandi sína
eigin lausn, sinn eigin lykil að leyndardóminum.
Hér segir fjöldi kunnra manna frá draumum sínum og vökusýnum. Hver segir frá
á sinn sérstæða hátt, en sem heild mynda frásagnir þeirra óvenjulega og forvitnilega
bók, sem stór hópur lesenda mun fagna.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OL/VBRS STE/NS SF \
Þetta er einstök bók um lífsspeki eftir hinn mikla frömuð rannsókna á yfirskil-
vitlegum fyrirbærum, höfund bókanna DULARMÖGN HUGANS,
LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN og AÐ SIGRA ÓTTANN, — Þeir sem glata trúnni lifa í
ótta og óvissu um framtíðina, þá skortir öryggi. En er mögulegt að endurheimta
það, sem glatazt hefur? Og hvernig vita menn hverju þeir mega trúa? Þessi bók er
hreinskilið, presónulegt svar Harold Sherman við þessum brennandi spurningum.
SÝNIR í SVEFNI OG VÖKU eftir Halldór Pjetursson