Þjóðviljinn - 12.12.1980, Page 7
Föstudagur 12. desember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Enner
sagt
frá
Jónum
tveim
Guðrún Helgadóttir;
Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna.
Sigrún Eldjárn myndskreytti.
Iðunn 1980.
Barnabækur sem verða vin-
sælar eru þeirrar náttúru, að
aftan við þær prjónast íramhald
um sömu persónur. Þetta hefur
nú komið fyrir þá elskulegu
tvibura Jón Odd og Jón Bjarna og
bókmenntír
Tveir samsærismenn; Sigrún Eldjárn
myndir við söguna.
hefur gert ágætar
gæti vel sest að manni ótti um að
nú væri höfundur komin út á
Indriði Olfsson:
Sveitaprakkararnir.
Skjaldborg 1980.
Það er algeng aðferð sem
Indriði Úlfsson beitir i þessari
bók: nokkrir hér um bil sjálf-
stæðir þættir eru látnir segja
vissa sögu um ákveðið skeið i lifi
barna: leikir, kynni af heimi full-
orðinna, skyldug prakkarastrik
og gamanmál.
Þessi saga lýsir nokkrum
mánuðum i lifi fjölskyldu i út-
nesjakoti einu. Tveir strákar,
sögumaður og Oli bróðir hans
reyna að stytta sér stundir með
smáskæruhernaði gegn Guddu
móðursystur sinni meðan þeir
biða eftir þvi að Sigga systir komi
heim utan úr hinum stóra heimi;
nánar tiltekið úr farskólanum. Og
svo er komið vor með rauðmaga-
veiðum, rigningum, pollum,
stiflugerð, silungsveiði, húsbygg-
ingum og kökuhnupli. Leikir og
skærur fléttast saman við alvöru-
mál fullorðinna: þaö er verið að
leggja veg i nágrenninu og það
kemur á daginn að Gudda frænka
er ekki „tvitug kerling” heldur
ung stúlka og ástfangin af ágæt-
um bilstjóra eins og vera ber. Og
þótt að strákunum þyki Bárðar-
kot besti staður i heimi, þá er bú-
skapur þar mesta basl — undir
sögulok er verið að flytja niður i
kaupstað og æskustöðvar
kvaddar með söknuði.
höfundur en svo, að hún láti sér
verða fótaskortur á þvi að bæta
einu sumri við lif tveggja
skemmtilegra stráka og fjöl-
skyldu þeirra.
Það er að visu svo, að fjöl-
skylda Jónanna með ömmu og
Soffiu húshjálp og kettlingi hefur
sýnt öll helstu einkenni sin i
fyrstu bókunum tveim og varla að
búast við meiriháttar tiðindum á
þeim vettvangi. Og eftir þvi sem
mánuðum fjölgar i lifi þeirra
fækkar tækifærum til að hafa
mikla skemmtun af þeim mun
sem er á tungutaki, skilningi og
hreinskilni barna og fullorðinna.
Það eru færri kitlur i þessari nýju
bók en i fyrri bókunum tveim, en
það væri synd að segja aö hún
væri daufleg. Jón Bjarni fer á
spitala og er ekki lengur rang-
eygur þegar þaðan kemur. Jón
Sófus er sviptur náttúrunni. En
þetta eru smámunir: heimur
þeirra bræðra er stækkaður með
stórtiðindum á tvennum vig-
stöðvum: Fjölskyldan er prófuð
með þvi að senda inn i har.a
Kormák afa, sem hafði ekki verið
til. Og strákarnir lenda i þeirri si-
gildu og þó alltaf nýju raun að
fara að heiman — nánar tiltekiö i
sumarbúðir.
Þessi bók hefur sömö eðliskosti
og hinar fyrri Jónabækur — i
henni rikir skemmtilegt jafnvægi
milli raunsæismyndar, gaman-
semi og alvöru lifsins. Það er
forðast að gripa til reyfaralegra
bragða, eins og vel sést á þvi hve
rækilega er púkkað undir söguna
af þvi þegar strákarnir strjúka úr
sumarbúðum. Gamanmálin eru
ekki forskrúfuð heldur eðlileg af-
leiðing þess að börn sjá heiminn
sinum augum. Sá heimur sem tvi-
burabræðurnir eru að kanna er
tiltölulega vinsamlegur þeim, en
ekki fegraður. Allt er vanda
bundið: þér verður stritt áfram
eins þótt þú sért ekki rangeygur
lengur. Það er ekki sjálfsagt mál
að láta sér þykja vænt um pabba
sinn: eða hvað á veslings
mamma til bragðs að taka þegar
allt i einu er dottinn inn i lif
hennar raupsamur karl sem hafði
komiö henni i heiminn fyrir hálf-
um fjórða áratug og horfið siðan?
Og sumarbúðadvölin verður
þrem strákum óbærileg, vegna
þess að þeir komast i kast viö
meiri hörku og dólgshátt en þeir
vilja þekkja.
Jón Oddur og Jón Bjarni, Meira
af Jóni Oddi og Jóni Bjarna, Enn
af Jóni Oddi... og þá rifjast allt i
einu upp hvaða nöfn Kjarval gaf
sinum bókum: Grjót, Meira grjót
og Enn grjót.... AB.
hálan is. En sem betur fer er
Guðrún Helgadóttir úrræðabetri
Áður en bærinn fór í eyði
Þessi saga er gerð i minningu
liðinnar tiðar og hugblær hennar
ræðst af vinsamlegri angurværð
sem sigur á, þótt farið sé af stað
með nokkrum ærslum. Þau
gamanmál eru stundum nokkuð
þvinguð, en yfirleitt er þetta
smekklega skrifuð frásögn og
röskleg. Strákalýsingarnar eru
vel gerðar ogeins er vel farið með
þau vandræði miðjubarnsins, að
eiga von á samsæri „óvitans” og
eldri fjölskyldulima gegn sér.
Eins tekst að koma á eðlilegan og
sjálfsagðan hátt að þeirri sann-
færingu föður drengjanna, sem
sögumaður gerir að sinni: að við
erum aldrei fátæk meðan við fá-
um að lifa saman... AB.
KULDS ÆVINTYRI
Af þeim bókum sem nú hafa verið gefnar út eru þrjár nýjar:
K
Stillist úfinn sær
JÓHANX.IE.KÚLD
Bók þessi er lokabindi Kúlds
ævintýra. Hún spannar yfir
tfmabilið frá byrjun siðari
heimsstyrjaldar fram á siöustu
ár.
Þar er sagt frá kynnum höf-
undar við fjölmarga nafnkennda
menn, innlenda og útlenda.
Svo sem á fyrri árum voru störf
Jóhanns æði fjölbreytt.
úmfa ngsmikil skipaverslun á
vegum Kron — þrjú ár í björg-
unarliði breska sjóhersins við
island — birgðavarsla og
birgðastjórn á Reykjavíkur-
flugvelli — matsmaður var
Jóhanni 12 ár. Fræðslustörf um
fiskvinnslu og fiskmat á vegum
Fiskimálas jóðs — ótölulegur
fjöldi blaðagreina um fiskimál
og fjölmargt flcira inætti nefna
sem ber á góma i þessari bök.
Hún er sjór af fróðleik um flest
þaðer snertir meðferð á fiski og
raunar allt er að sjávarútveg
lýtur.
Fullyrða má að þarna er að finna margvíslegan f róðleik um f jöl-
mörg fyrirbæri i þjóðlifinu fyrr og siðar.
Jóhanni er sú list lagin að segja skemmtilega frá og allt efni
verður lifandi i meðferð hans. Þetta safn er eigulegt i hvers
manns bókaskáp.
í stillu og stormi
í þessari bók rifjar
Jóhann J.E. Kúld
upp minningar frá
uppvaxtarárunum, |
við ýmis störf til;
sjós og lands.
I lífsins ólgusjó
Aðalef ni
Akur-
eyrarárin, i öllum
sinum sviptingum,
skini og skúrum,
veikindum og verk-
lýðsbaráttu.
Endurprentað hefur verið í tveim bindum:
Svífðu seglum þöndum
íshafsævintýri
A hættusvæðinu
Um sollinn sæ
Samtals 5 bindi 956 bls. sem eru nú öll
fáanleg. Verð á öllu safninu kr. 30.000,
án söluskatts.
M Ægisútgáfan Sólvallagötu 74 • Símar 14219 og