Þjóðviljinn - 12.12.1980, Page 15
Föstudagur 12. desember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 .
#rá
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Áskorun tekið
Hér um daginn skrifaði Valur
Valsson dagskrárgrein og skor-
aði á verkafólk að láta til sfn
heyra um málefni verkalýðs-
hreyfingarinnar. Mig langar til
að verða við þessari áskorun.
Nú hafa samningar tekist eða
eru að takast hjá flestum innan
ASt. Það fer ekki á milli mála
að þessir samningar standa
samningunum 1977 langt að
baki. Kauphækkunin er minni
nú, og það sem verra er að
verðbætur reiknast skv. Ólafs-
lögum og kaupmáttur skerðist
þvi um hér um bil 2% á hverju
þriggja mánaða timabili.
Augljóst er þvi, að þeir sem fá
minnsta kauphækkun nú, munu
standa miklu verr að vigi i lok
samningstimabilsins en þeir
gerðu fyrir samningana. Svo
má búast við þvi að samningar
dragist á langinn næst, eins og
nú, og eykur það enn skerðing-
una.
Það er ekki ný bóla að at-
vinnurekendur beri sig aum-
lega, sérstaklega fyrir samn-
inga. Þó yfirleitt fylgi litil al-
vara sliku tali, þá verður þvi
ekki móti mælt, að vitlausar
fjárfestingar, of margir togarar
og vanþróuð fyrirtæki, sem eru
ekki samkeppnisfær við
friverslunaraðstæður ofl, allt
þetta hefur gert auðvaldinu
erfitt fyrir. Reyndar væri
réttara að segja að þetta hafi
gert verkafólki erfitt fyrir, þvi
öllum þessum erfiðleikum hefur
verið velt yfir á axlir verka-
fólks.
Astæðan fyrir þvi, að tekist
hefur aö láta verkafólk axla
byrðarnar er m.a. sú að öll
barátta verkalýðshreyfingar-
innar hefur verið máttlaus á
sama tima og atvinnurekendur
hafa tekið upp nýja stefnu i
samningamálunum, harölinu-
stefnu. Hægt væri að hafa mörg
orð um þessa stefnu. Ég læt þó
nægja hér að vekja athygli á þvi
aðhún stafar ma. af upplausn-
inni i' Sjálfstæðisflokknum, sem
hefur knúið VSI til að yfirtaka
pólitiskt og hugmyndafræð-
ilegt hlutverk hans að nokkru
leyti. Þetta hefurenn alvarlegri
afleiðingar vegna þess að
stærsti verkalýðsflokkurinn,
Alþýðubandalagið, tekur þátt i
borgaralegri rikisstjóm, sem
hefur það höfuðverkefni að
bjarga auðvaldinu úr kreppu
þess, sbr. Flugleiðir og frysti-
húsin.
t dag eru ýmsar blikur á lofti.
Það er verið að tala um að
skerða þurfi visitölu ofl. i þeim
dúr, sem af pólitikusum er kall-
að efnahagsaögerðir. Hverjar
sem þessar aðgeröir svo verða
er vist, að full ástæða er fyrir
verkalýðshreyfinguna að vera á
varðbergi. Eitt er vist að þess-
ari stjórn er ekki treystandi
fremur en öðrum borgaralegum
rikisstjórnum.
Þá er komið að tilefni þessara
skrifa. Valur lýsir eftir hug-
myndum um nýjar baráttu-
leiðir. Ég vil skora á baráttufólk
að hugleiða eftirfarandi atriði i
þvi sambandi:
— Að Alþýðubandalagið fari
úr rikisstjórninni.
— Viðræður verkalýösleiðtoga
við rikisvaldið verði
framvegis opinberar, og eng-
inn kostur gefinn á
neinskonar leynimakki.
— Fræðslustarf i hreyfingunni
verði eflt, og eins MFA.
— Otgáfutiðni Vinnunnar,
málgagns ASt, verði
stóraukin, og blaöið opnað
öllum félagsmönnum.
Askrift verði innifalin i
félagsgjöldum.
— Notuð verði ákvæði kjara-
samninga um vinnustaða-
fundi.
— Upplýsingastreymi verði
stóraukið.er samningar
standa yfir.
— Kröfugerð liggi fyrir strax og
samningar eru lausir. Að-
gerðir hefjist straxog krafist
verði afturvirkra kauphækk-
ana til aðkoma i veg fyrir að
atvinnurekendur geti hagn-
ast á að draga samninga.
— Krafist verði fullra verbóta á
laun, i samræmi við ákvæði
sólstöðusamninganna. öllum
skerðingartilraunum verði
svarað af fyllstu hröku.
Ég held að þessi atriði væru
verðug byrjunarverkefni til að
draga verkalýðshreyfinguna
upp úr feninu sem hún brýst nú
i. Hvað finnst lesendum Þjóð-
viljans um það? Einsog Valur
vil ég hvetja menn til að láta i
sér heyra hér i blaðinu.
25. növember 1980
Rúnar Sveinb jörnsson
rafvirki.
Hver á heima
hvar?
Barnahornið
Getur þú giskað á hver á heima hvará þessum myndum?
HATURSFULLT
HJÓNABAND
t kvöld verður sýnd I
sjónvarpinu tiu ára gömul
frönsk mynd: „Kötturinn”
(Le chat).
Leikstjóri er Pierre
Granier-Deferre, en i aðal-
hlutverkum eru skærustu
stjörnur franskrar kvik-
myndagerðar um áratuga-
Skeið: Simone Signoret og
Jean Gabin. Það er áreiðan-
lega alveg óhætt að mæla með
þessari mynd. Jafnvel þótt
hún væri hundvond hljóta þau
.Qt. Sjónvarp
TTkl. 22.45
Gabin og Signoret að vera
einnar kvöldstundar virði.
Myndin fjallar um hjón sem
hafa verið gift i aldarfjórðung.
Astin er löngu kulnuð, og
hatrið hefur tekiö öll völd i
hjónabandinu.
Jólin og
trúin
#Útvarp
kl. 15.00
Heimilisþátturinn „Innan
stokks og utan” er á dagskrá I
dag, i umsjá Arna Bergs
Eirfkssonar.
— Þessir þættir eru um
fjölskylduna og heimilið, svo
það er ekki óeðlilegt að við sé-
um farin að huga að jólunum,
og jafnvel komin i jólaskap, —
sagði Arni Bergur.
— Þátturinn fjallar að
þessu sinni um jólin og um
kristna trú. Ég fór i einn gagn-
fræðaskóla höfuðborgarinnar,
Vogaskóla, og tók þar tali
nokkra nemendur. Ég spurði
þá um jólin og um afstöðu
þeirra tiltrúarinnar, t.d. hvort
þeir ætluðu að láta ferma sig.
Einnig ræddi ég við kennara
þeirra, Jón Ingvar Valdimars-
son.
Þá ræddi ég við Olfar Krist-
mundsson guðfræðing, Álf-
heiði Ingadóttur liffræðing og
blaðamann, Gústaf Nielsson
sagnfræðinema og Gunnar
Arni Bergur Eiriksson: Spurt
um jólin og kristna trú.
Eyjólfsson leikara um jólin og
trúna. Ég vissi ekki fyrrfram
hvaða skoðanir þetta fólk
hefði, og má þvi segja að þetta
sé einskonar könnun, þótt
ófullkomin sé. En þetta fólk
hefur ákveðnar skoðanir á
þessum málum og segir frá
þeim, — sagði Arni Bergur að
lokum.
— ih
i Fréttaspegli
Bftlarnir verða til umfjöll-
unar i Fréttaspegii i kvöld,
enda eru þeir mörgum ofar-
lega í huga nú eftir morðið á
John Lennon.
Annað efni af erlendum
vettvangi er Efnahagsbanda-
lagið, og verður athyglinni
einkum beint að landbúnaði,
fiskveiðum og hugsanlegri
stækkun bandalagsins.
Af innlendum vettvangi
verða einnig tvö mál tekin til
meðferðar. Fjallað verður um
stækkun togaraflotans sam-
timis þvi að banna þarf þorsk-
veiðar stóran hluta ársins, og
rætt um starfsaðferðir þeirr-
ar nefndar dómsmálaráðu-
neytisins sem fjaliar um þaö
hvernig fullnægja eigi fang-
elsisdómum. Formaður
nefndarinnar, Jónatan Þór-
mundsson prófessor, og Orn
Clausen hæstaréttarlög-
maður skiptast á skoðunum.
1
Biltarnir verða i spegii frétt-
anna i kvöld.
Sjónvarp
Ikl. 21.35
Umsjónarmenn Fréttaspeg-
ils að þessu sinni eru frétta-
mennirnir Bogi Ágústsson og
Guðjón Einarsson. ih