Þjóðviljinn - 07.01.1981, Síða 2

Þjóðviljinn - 07.01.1981, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. janúar 1981 Kærleiksheimilid Má ég keyra núna mamma? Þú lofar þvi, Gunnar Eiisson, aö láta ekki Sigmar B. Hauksson sjá þessa mynd. Molar Ef ég þyrfti aö refsa ein- hverju héraöi mundi ég láta heimspekinga stjórna þvi. Menn segja að kóngar séu skapaöir i guös mynd. Mér þykir þaö leiðinlegt drottins vegna, ef satt reynist. Friörik mikli Mjög fátt er þaö sem gerist á réttum tima og afgangurinn gerist alls ekki — samvisku- samur sagnfræöingur mun leiö- rétta þessa galla. Herodotos, griskursagn- fræöingur — Nú hættum við þessu streði maður, og komum okkur á þing. — Já, þar er lýðræðið best; menn skammta sér sjálfir laun eftir þörfum og óskum. vidtalid Rætt við Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðing sem hélt út til loðnustofns- mælinga í fyrrakvöld Höfum þegar Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur of nærri hrygningarstofninum — Nú þegar er búið að veiða um 520 þúsund lestir af þeirri loðnu, sem hrygna á næsta vor, og samkvæmt þeim niðurstöö- um, sem fengust við bergmáls- mælingarnar i október sl., höf- um viö þegar gengiö of nærri þessum hrygningarstofni. Þegar ég segi aö búiö sé aö veiöa 520 þús. lestir á ég viö veiöar okkar tslendinga, Norö- manna og Dana úr þessum stofni, sagöi Hjálmar Vil- hjálmsson fiskifrasðingur, þegar Þjóöviljinn ræddi viö hann sama dag og hann hélt út til frekari bergmálsmælinga á hrygningarstofninum. Hjálmar sagöi, aö sá ár- gangur sem hrygna á í vor sé loöna sem gotin var 1978, og samkvæmt mælingum á seiöum frá þvi vori heföi hrygning tek- ist illa og þvi væri stofninn veikur. Aftur á móti heföu mæl- ingar á seiöum frá vorinu 1979 sýnt, aö sá stofn væri allt að 50% stærri en sá sem hrygna á i vor, en 1979 árgangurinn mun bera uppi veiðamar næsta haust og vetur. Væri því útlitið heldur skárra en nú. Hjálmar tók skýrt fram, að ekki mætti blanda samanseiðamælingum og berg- málsmælingum á hrygningar- stofninum, þar væri um sitt hvorar mælingarnar aö ræöa. Varöandi bergmálsmæling- amar i októbermánuði sl. sagði Hjálmar, aöallmikill hafis heföi þá verið á mælingasvæðinu og væri rétt hugsanlegt að þess vegna hefði ekki tekist aö finna allan hrygningarstofninn. Þessi leiöangur, sem nú væri farið i, ætti að leiða i ljós hvort svo heföi veriö eöa ekki. Ég vona auövitaö aö við finnum meira magn en i haust, en hinsvegar er ég allt annaö en bjartsýnn á að svo veröi, sagði Hjálmar. Aö ööru leyti sagöist Hjálmar vilja segja sem allra minnst um þessi mál fyrr en aö loknum þeim leiöangri sem hann væri að leggja uppi; aö honum lokn- um ættu linurnar aö skýrast nokkuö. — S.dór Margurerknár. frá Kúbu Kúbanska iþróttakonan Maria de la Caridad Colón vakti mikla athygli á Ólympíuleik- unum f Moskvu s.I. sumar, enda vann hún þar gullverðlaun I spjótkasti. Þær konur sem lengst hafa náö I þessari iþróttagrein hafa yfirleitt dcki verið nein smá- menni. Maria hin kúbanska er áreiðanlega ein sú nettasta sem komist hefur i gulKlokkinn, þvi hún er aðeins 1,70 á hæö og vegur 65 kg. Til þess aö mann- eskja af þessari stærö geti þeytt spjótinu yfir 60 metra þarf hún áreiöanlega aö hafa til aö bera styrk og vilja sem meðalmenn- um eru ekki gefnir. Maria er örvhent, en það háir henni ekki. Hún fæddist i smá- bænum Baracoa á Kúbu fyrir tæpum 23 árum og tók fyrst þátt i Iþróttakeppni meðan hún var i barnaskóla, 11 ára. 1974 höf hún nám við iþróttaskóla i Santiago de Cuba, og 1976 vann hún sinn fyrsta stórsigur með þvi aö varpa spjótinu 49 metra á iþróttamóti f Mexico. Þar meö var hafinn glæsilegur ferill sem enn er ekki séö fyrir endann á. Maria de la Caridad Colón er fyrsta og eina konan frá Róm- önsku Ameriku sem hlotiö hefur gullverölaun á Ólympiuleikum. Maria de la Caridad Colón, eina konan sem hlotið hefur gull á Ólympfuleikum. Rómönsku Amerlku íslenskur pennavinaklúbbur Nýlega hefur vrið stofnaöur Pennavinaklúbbur Islands með heimislisfang i Vestmannaeyj- um. Þaö eru þær Guðriöur Steinsdóttir og Bryndis Baldursdóttir sem fyrir honum standa og sagðist Guöriður i viötali viö Þjóöviljann vonast til, að hann bætti úr brýnni þörf. — Þetta vantar alveg hér og löngu kominn timi til að stofna svona klúbb, þvi þaö eru margir sem hafa áhuga á að skrifast á við aðra. Vægt gjald er tekiö fyrir útvegun pennavina og er heimilisfang klúbbsins: Penna- vinaklúbbur Islands, Vestur- vegi 5, Vestmannaeyjum. I>ekkirdu þau? Sjá nyrri mynd I Lesendadálki á siðu 15. < Q O Þh ‘Z Árekstur? Pabbi þinn? Hvernig Þá? Pabbi kom fyrir hornið, hinn billinn kom og BANG! rs. Beyglaði efnahaginn, taugarnar, bilgleöina, trúna á annað fólk og aurbrettiö!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.