Þjóðviljinn - 07.01.1981, Page 5
Miðvikudagur 7. janúar 1981 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
Þröngt í búi hjá bílasmiðum:
Chrysler enn
á hausnum
Aðalforstjóri Chrysler, Iacocca, útskýrir niðurskurðaráætlun fyrir-
tækisins.
Chrysler, ein af helstu
bílaverksmiðjum Banda-
ríkjanna, er aftur á hvin-
andi kúpunni. Crysler fékk
í sumar leið 1,5 miljarði
dollara ríkisábyrgðarlán
til að halda sér á floti, og
þarf í janúar 400 miljónir
dollara til viðbótar.
Björgunaráætlanir Crysler
hafa ekki getað staðist. Bilasalar
hafa birgðir til fjögurra mánaða
og háir vextir ásamt með van-
trausti kaupenda á fyrirtæki sem
stendur svo höllum fæti hafa leitt
til þess að miklu minna hefur
selst en vonast var til af hinum
sparneytna K-bil, sem var helsta
von fyrirtækisins. Þetta þýðir að
Chrysler tapaði um 200 miljónum
dollara siðustu þrjá mánuði árs-
ins og setur þar með bandariskt
met i taprekstri á árinu. Tapið
mun að likindum nema 1,7 mil-
jarði dollara. Fyrra metið setti
Chrysler einnig, það var i hitteð-
fyrra að bilasmiðjurnar töpuðu
1,1 miljarði dollara.
Forstjóri fyrirtækisins, Iacocca,
hefur lagt fram björgunaráætlun.
Hún gerir m.a. ráð fyrir þvi að
verkamenn hjá Chrysler afsali
sér kauphækkunum og friðindum
fyrir um 600 miljónir dollara á
næstu tveim árum. Viðskiptavinir
Chryslers eru beðnir um að biða
með reikninga eða breyta skuld-
um i lán — helst er þess óskað aö
þeir breyti skuldum i hlutafé hjá
fyrirtækinu. Um 2200 mönnum við
stjórnsýslu og skrifstofuvinnu
verður sagt upp.
Meö slikri niðurskurðaráætlun
vonast ráðamenn Chrysler til að
geta fengið umbeðna rikisábyrgð
til að fleyta sér áfram fram eftir
þvi ári sem nýbyrjað er.
Kvöldvísa
Ný lög við
ljóð Steins
Steinars
Nýlega kom út hljómplatan
„Kvöldvisa” með tiu lögum eftir
Torfa Ólafsson við ljóð Steins
Steinars, samin á undanförnum
tveim árum. Hljómsveitin Mezzo-
forte annast undirleik og útsetn-
ingar eru eftir Eyþór Gunnarsson
og Friörik Karlsson.
Fimm söngvarar flytja lögin,
þau Eirikur Hauksson, Ingibjörg
Ingadóttir, Jóhann Helgason, Jó-
hann G. Jóhannsson og Siguröur
K. Sigurðsson.
Torfi ólafsson er 25 ára Kópa-
vogsbúi og hefur nýlokið námi úr
Kennaraháskólanum. Hann er af
„bílskúrbanda-kynslóðinni” i
Kópavogi, en af henni eru einnig
menn eins og Tryggvi Hiibner,
Sigurður K. Sigurðsson o.fl..
Hann lék eitt sinn i hljómsveit i
Kópavoginum, sem bar nafnið
Akrópolis, en á honum hefur
annars ekki borið á tónlistar-
sviðinu.
Torfi segir, að hann hafi gengið
með mörg þessara laga i langan
tima og þar sem hljómplata sé
ekki hlutur, sem hrist sé fram úr
erminni, hafi hann gengið milli
útgefenda meö lögin. En alls
staðar fékk hann sömu svörin, —
menn væru ánægðir með lögin
sem slik, en hann væri óþekktur
maður og hljómplötuútgáfa háð
miklum sveiflum.
Að lokum komst hann að þeirri
niðurstöðu, að hann gæti þá allt-
eins gefið plötuna út sjálfur. Hann
náði samningum við Hljóörita um
upptöku á „dauðum timum” og
gekk siðan bónarveginn milli vina
og kunningja meö þeim árangri,
að nú er platan komin.
Jarðfræði-
greinar
Guðmundar
Kjartanssonar
gefnar út
F’old og vötn heitir bók eftir
Guðmund Kjartansson sem
komin er út hjá Menningarsjóði.
Bókin flytur 13 greinar um
jarðfræðileg efni, samdar á
fjórum áratugum, 1931-71, en
annað efni er minningargrein um
Guðmund Kjartansson úr
Náttúrufræðingnum 1972 og rit-
skrá hans.
Um bókina og höfund hennar
segir svo á kápu:
„Guðmundur Kjartansson
jarðfræðingur (1909-72) var i hópi
menntuðustu og fundvisustu
náttúrufræðinga okkar, en jafn-
framt ágætur rithöfundur og vin-
sæll fyrirlesari. Af nýmælum
hans i visindagrein sinni ber hæst
tilgátuna um myndunarhætti
móbergsfjallanna, stapakenn-
inguna, sem hann geröi fyrst
grein fyrir i Arnesinga sögu 1943,
en hún sannaðist i Surtseyjargos-
inu tuttugu árum siðar. Fold og
vötn hefur að geyma þrettán
greinar sem Solveig dóttir
Guðmundar og Þorleifur Einars-
son jarðfræðingur hafa búið til
prentunar. Er bókin merkilegur
skerfur til jarðsögu Islands og
islenskra náttúrufræða, og éin-
kennist af málfegurð, vandvirkni
og listfengi.”
Fold og vötn er 223 bls. að
stærð, prentuð og bundin i Eddu.
Kápumynd er af Heklugosinu
1947.
LAUNAKJÖR ÞINGMANNA O Samanburður kjaradóms
KJARADÓMUR Þinqfararkaup og kostnaóur alþinqismanna
Arsfjárhæóir í janúar í nýkrónum
Aö breyttum Breytingar í s
Aó óbreyttum launum og kostnaöi launum skv. ákvöróun Alþingis Samvkæmt ákvöröun Kjaradcms Frá óbrei'ttum launum Fra breiitum launum
(1) (2) (3) (3) : (1) % (3): (2) %
1. Þinqmenn Reykjavíkurkjörctetiis
Ferðakostnaóur I kjördæmi 18.320 18.320 7.860
Kostnaóur alls 18.320 18.320 7.860
Þinqfararkaup 123.651 148.382 144.000 16,5 "3,0
Kostnaóur og kaup alls 141.971 166.702 151.860 7,0 "8,9
2. Þinqnenn Reykjaneskjördamis
Hálfir dagpeningar (210 dagar) 9.135 9.135
Feróakostnaður £ kjördæmi 18.320 18.320 14.760
Kostnaóur alls 27.455 27.455 14.760
Þingfararkaup 123.651 148.382 144.000 16,5 -3,0
Kostnaöur og kaup alls 151.106 175.837 158.760 5,1 -9,7
3. Þinqmenn annarra kjördaana, lögheimili utan Rei’kjavíkur Húsaleiga 18.840 18.840 20.400
Dagpeningar (210 dagar) 18.270 18.270 10.500
Ferðakostnaður í kjördæmi 18.320 18.320 25.980
55.430 55.430 56.880
Þingfararkaup 123.651 148.382 144.000 16,5 -3,0
Kostriaóur og katp alls 179.081 203.812 200.880 12,2 -1,4
4. Þingmenn annarra kjördasna, lögiieimili 1 Reykjavík Dvalarkostnaóur í kjördani 8.625 8.625 9.600
Feróakostnaöur í kjördæni 18.320 18.320 25.980
Kostnaóur alls 26.945 26.945 35.580
Þingfararkaup 123.651 148.382 144.000 16,5 -3,0
Kostnaður og kaup alls 150.596 175.327 179.580 19,2 2,4
5. Þingmenn annarra kjördaana, lögheimili í náqrenni Rvk.
Hálfir dagpeningar (210 dagar) 9.135 9.135 -
Annar kostnaóur eins og í 4. 26.945 26.945 35.580
Kostnaóur alls 36.080 36.080 35.580
Þingfararkaup 123.651 148.382 144.000 16,5 -3,0
Kostnaóur og kaup alls 159.731 184.462 179.580 12,4 -2,6
Athugasemdir:
1. Þinyfararkaup í dálki (1) er skv. mióaóist áóur viö þann launaflokk lfl. 120 hjá BHM eftir hækkun frá 1/12/1980, en bingfararkaup
2. Þingfararkatp í dálki (2) er eins og í dálki (1) en aó auki er meótalin sú ákvaó á sl. surnri, en framkvæmd þeiriar ákvörðunar var síðcur frestað. 20% hækkun sem Alþingi
3. Kostnaóarliðii I dálkum (1) oy (2) eru til viómióunar framreiknaöir til janúarverólags veröbreytingar. m.v. liklegar
4. Sá kostnaóur sem hér er talinn tekur aóeins til þeirra lióa sem Kjaradánur áiiveóur nú samkvaant lögan nr.75/1980. Að auki fá þingiænn endurgreídd fargjöld eöa greitt km. gjald vegna feröalaga heim í kjördami, á fundi o.þ.h. aó hámarki 24 ferðir á ári. Þingmenn búsettir í Keflavík hafa jafnframt fengiö endurgreióslu feróakostnaóar vegna aksturs til Reykjavíkur.