Þjóðviljinn - 07.01.1981, Qupperneq 7
Miðvikudagur 7. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Módel kirkjubyggingar Fella- og Hólahverfa einsog Ingimundur og Gylfi hugsa sér hana.
r
Urslít í samkeppni um
kirkju í Breiðholti
Laugardaginn 3. janúar var
lýst úrslitum i samkeppni um
uppdrátt að kirk jubyggingu
Fella- og Hólasóknar I Reykjavík.
Þremur aðilum var boðin
þátttaka i samkeppninni eða
þeim arkitektunum Hiimari
Ólafssyni og Hrafnkatli Thor-
lacius, Ingimundi Sveinssyni og
Gylfa Guðjónssyni og Þorvaldi S.
Þorvaldssyni og Manfred Vil-
hjálmssyni.
Dómnefnd var sammála um að
árangur keppninnar hafi verið
mjög góður og erfitt að gera upp á
milli áhugaverðra en ólikra
tillagna. Dómnefnd varð sam-
mála um að veita tillögu arki-
tektanna Ingimundar
Sveinssonar og Gylfa
Guðjónssonar meðmæli sin til
frekari Utfærslu. Þykir dómnefnd
þeim hafa tekist mjög vel að
tengja saman kirkjuskip,
safnaðarheimili og annað
húsnæði sem tilheyrir safnaðar
starfi. Byggingin fellur vel að
landslagi og aðliggjandi byggð og
tengsl við útisvæði mjög góð.
Lóðiner i svokallaðri Austurdeild
og veit móti Elliðaárdalnum.
Dómnefnd skipuðu frá hendi
safnaðarnefndar: sr. Hreinn
Hjartarson, sem var formaður
nefndarinnar, Jón Hannesson,
byggingameistari og Óli Jóhann
Asmundsson, arkitekt. Af hálfu
Arkitektafélags Islands: Albina
Thordarson, arkitekt, og Þór-
arinn Þórarinsson, arkitekt.
Trúnaðarmaður dómnefndar var
Dagný Helgadóttir, arkitekt.mhg
Jafnréttisráð:
„Starfsmaður”
getur verið
karl eða kona
Jafnréttisráð hefur sent frá sér
orðsendingu þar sem bent er á að
það virðist vera orðinn útbreidd-
ur misskilningur að orðið „starfs-
maður” sé ekki lengur leyfilegt,
þegar starf er auglýst til umsókn-
ar heldur verði að nota orðið
„starfskraftur”.
I bréfi Jafnréttisráðs er vitnað
til klausu sem birtist i Morgun-
blaðinu þar sem vikið var að
orðanotkun Guðriðarv Þor-
steinsdóttir formanns Jafnréttis-
ráðs, en hún talaði alltaf um
starfsmenn.
Samkvæmt orðabók
Menningarsjóðs merkir orðið
maður „tvifætt og tvi'hent
spendýr, hið eina sem hefur lært
að tala og notfæra sér orkulindir
utan eigin likama (homo
sapiens) Jafnréttisráð getur
ekki betur séð en að þetta eigi
bæði við um karla og konur.
Siðan segir i bréfinu að i lögum
um jafnrétti sé óheimilt að
auglýsa fremur eftir starfsmanni
af öðru kyninu en hinu. „Orðið
„starfskraftur” er ekki frá Jafn-
réttisráði komið, né hefur það
mælt með notkun þess i þeirri
merkingu sem hér um ræðir,
enda er hún bæði röng og hvim-
leið. Þaðer von Jafnréttisráðs að
sem flestir sjái sér fært að hætta
notkun á orðinu „starfskraftur” i
umræddri merkingu og noti orðið
„starfsmaður” þegar auglýst er
starf laust til umsóknar.”
[sinfónían j
j í steríó !
ITónleikum Sinfóniuhljóm- I
sveitar Islands verður út- I
varpað i stereó I fyrsta sinn J
• n.k. finuntudagskvöld.
ITónleikar þessir verða I
helgaðir höfuðborg tónlistar- I
innar, Vin. Að venju veröur J
• fyrri hlutanum útvarpaö á .
Ifimmtudaginn, en siðari I
hlutanum seinna. Á fimmtu- j
dagskvöldið fáum við að J
heyra atriði úr óperettum ,
* eftir Strauss, Lehár og Stolz. ■
IÞekkt austurrisk söngkona, |
Birgit Pitsch-Sarata, syngur |
einsöng með hljómsveitinni. ,
Urskurður Kjaradóms:
Um launakjör
alþingismanna
Arið 1981, föstudaginn 2.
janúarkom Kjaradðmur saman
að Rauðarárstig 31 i Reykjavik
og var haidinn af Benedikt
Blöndal, Jóni Finnssyni, Ólafi
Nilssyni, Jóni Rögnvaldssyni og
Jóni G. Tómassyni.
Fyrir var tekið:
Ákvörðun um þingfararkaup
og kostnað alþingismanna sam-
kvæmt lögum nr. 75/1980.
Hinn 17. desember 1980 tóku
gildi ný lög um þingfararkaup
alþingismanna. Lög þessi voru
staðfest 2. desember 1980 og
gefinútsem lögnr. 75/1980. Með
lögum þessum er Kjaradómi
falið að ákveða þingfararkaup,
svo og húsnæðis- og dvalar-
kostnað alþingismanna og
ferðakostnað i kjördæmum.
Aður höfðu i þessu efni gilt lög
nr. 4, 6. mars 1964, sbr. lög nr.
57/1971 og 72/1965. Samkvæmt
þessum lögum átti alþingis-
maður að njóta launa sam-
kvæmt launaflokki B 3 i kjara-
samningi um laun starfsmanna
rikisins. Þó var þingfarar-
kaupsnefnd heimilað að gera á
þvi breytingar i samræmi við
almennar breytingar á launum
starfsmanna rikisins og átti hún
einnig úrskurð um önnur kjara-
atriði alþingismanna, er skjóta
mátti til forseta Alþingis til
endanlegrar ákvörðunar.
Undanfarið hafa alþingismenn
fengið laun samkvæmt launa-
flokki 120 i kjarasamningi rikis-
ins og Bandalags háskóla-
manna, enda launaflokkur B 3
ekki lengur til.
Samkvæmt 12. grein laga nr.
75/1980 skal Kjaradómur
ákveða eftirfarandi:
1. Þingfararkaup. Um það segir
i 1. grein laganna, að alþingis-
maður njóti þingfararkaups úr
rikissjóði. Þingfararkaup greið-
ist frá fyrsta degi næsta
mánaðar eftir kjördag eöa eftir
að þingseta hefst og til siðasta
dags þessa mánaðar, er kjör-
timabil eða þingsetu lýkur.
Kaupið skal greiða fyrsta dag
hvers mánaðar fyrirfram, að
1/12 hvert sinn.
2. Húsnæðis- og dvalarkostnað.
Þar er visað til 2. gr. laganna,
þar sem segir i 1. málsgrein, að
alþingismaður, sem á lög-
heimili utan Reykjavikur en
verður að hafa dvalarstað i
Reykjavik eða grennd vegna
fjarlægðar frá heimili sinu, eigi
rétt á að fá greiddan húsnæðis-
kostnað vegna þingstarfa og
ennfremur dvalarkostnað um
þingtimann.
1 2. málsgrein segir siðan, að
alþingismaður, sem gegnir
þingmennsku i kjördæmi utan
Reykjavikur og Reykjaness og
nýtur ekki greiðslu samkvæmt
1. málsgrein 2. greinar, eigi rétt
á að fá greiddan kostnað vegna
dvalar i kjördæmi sinu. Lands-
kjörinn þingmaður á að fá sama
dvalarkostnað og þingmaður i
þvi kjördæmi, þar sem hann var
i framboði.
3. Ferðakostnað. Um hann eru
ákvæði i 4. gr. þess efnis, að al-
þingismaður skuli á ári hverju
fá fjárhæð til greiðslu kostnaðar
við ferðalög i kjördæmi sinu.
Heimilt er að hafa upphæðina
misháa eftir kjördæmum.
Landskjörinn þingmaðurskal fá
sama ferðakostnað og þing-
maður i þvi kjördæmi, þar sem
hann var i framboði. Akvæði
þetta tekur ekki til ráðherra.
Ákvörðun Kjaradóms skal
gilda frá 1. október ár hvert til
30. september næsta ár.
Verði verulegar og almennar
breytingar á launum, húsaleigu
eða dvalarkostnaði opinberra
starfsmanna á gildistima
ákvörðunar Kjaradóms skal
Kjaradómurtaka ákvörðun sina
til endurskoðunar.
1 ákvæði til bráðabirgða með
lögum þessum segir, að þegar
eftir gildistöku laganna skuli
Kjaradómur taka til ákvörð-
unarþauatriði,sem honum beri
að úrskurða um samkvæmt
þeim, og skuli þær ákvarðanir
gilda frá 1. mai 1980 til 30.
september 1981.
Við ákvörðun þessa um þing-
fararkaup og kostnað alþingis-
manna hefur Kjaradómur aflað
sér þeirra gagna, sem tiltæk
þafa verið, og meðal annars
leitað upplýsinga hjá þingfor-
setum og skrifstofustjóra Al-
þingis. Æskilegt hefði verið, að
Kjaradómur hefði betri vit-
neskju um ýmis atriði er snerta
kostnað alþingismanna vegna
þingstarfa en legið hefur fyrir.
Mun áfram unnið að öflun upp-
lýsinga á vegum dómsins um
þetta efni.
Tekið skal fram, að réttur til
greiðslu húsnæðis- og dvalar-
kostnaðar er skv. 1. mgr. 2. gr.
bundinn þvi skilyrði, að þing-
maður verði vegna fjarlægðar
lögheimilis að taka upp dvalar-
stað i Reykjavik eða grennd. Af
þessu leiðir, að niður falla
greiðslur til þingmanna bú-
settra i nágrenni Reykjavikur,
sem áður hafa fengið dvalar-
kostnað greiddan að hluta.
Ákvörðun Kjaradóms um
þingfararkaup varðar heildar-
laun alþingismanna. Þó skal
tekið fram, að Kjaradómur ætl-
ast ekki til að greiðsla þóknunar
til undirnefndar fjárveitinga-
nefndar verði felld niður, enda
hefur undirnefndin sérstöðu
meðan nefnda Alþingis.
Akvörðun:
Þingfararkaup og kostnaður
alþingismanna 1. mai 1980 til 30.
september 1981 ákveðst þannig:
1. Þingfararkaup skv. 1. gr.:
Mánaðarkaup
i.maii98U 850.000 g.Kr.
1. júní 1980 950.000 g.kr.
1. septl980 1.050.000 g.kr.
1. des. 1980 1.200.0GG g.kr.
1. jan.1981 12.000 nýkr.
Þingfararkaup 1. janúar 1981
er miðað við verðbótavisitölu
191.25 stig. Kaup þetta tekur
sömu verðbótum og laun opin-
berra starfsmanna, sbr. lög. nr.
13/1979 og bráðabirgðalög nr.
87/1980.
Mánaðargreiðslur
2. Húsnæðiskostnaður vegna
þingstarfa, skv. 1. mgr. 2. gr.:
1. mai til 30. júni 1980 150.000
g.kr.
1. júli til 30. sept. 1980 155.000
g.kr.
1. okt. til 31. des. 1980 160.000
g.kr.
Frá 1. jan. 1981 1.700nýkr.
3. Dvalarkostnaður um þing-
timann skv. 1. mgr. 2. gr.:
Frá 1. mai
1980 3.600 g.kr. á dag
Frá 1. okt.
1980 5.000 g.kr. á dag
Frá 1. jan.
1981 50 nýkr. á dag
4. Dvalarkostnaður i kjördæmi
skv. 2. mgr. 2. gr.:
Ákveða verður kostnað
þennan i tvennu lagi, annars
vegar fyrir timabilið 1. október
1980 til 30. september 1981/ en
hins vegar timabiliö til 30.
september 1980 og hafa þá i
huga, að i reynd ákveðst kostn-
aður þessi fyrir eitt ár i senn.
Þykir hæfilegt að ákveða
kostnaðinn fyrir timabilið er
lauk 30. september 1980 805.000
gamlar krónur en fyrir tima-
bilið 1. október 1980 til 30.
september 1981 9.600 nýjar
krónur.
5. Kostnaður við ferðalög i kjör-
dæmi skv. 4. gr.:
I. 1. mai til 31. desember 1980:
Þingmenn Reykjavikurkjör-
dæmis
435.000 g.kr.
Þingmenn Reykjaneskjör-
dæmis
825.000 g.kr.
Þingmenn annarra kjördæma
1.440.000 g.kr.
Mánaðargreiðslur
II. 1. janúar til 30. september
1981:
Þingmenn Reykjavikurkjör-
dæmis
655 nýkr.
Þingmenn Reykjaneskjör-
dæmis
1.230nýkr.
Þingmenn annarra kjördæma
2.165nýkr.
Benedikt Blöndal,
Jón Finnsson,
Ólafur Nilsson,
Jón G. Tómasson,
Jón Rögnvaidsson.