Þjóðviljinn - 07.01.1981, Qupperneq 13
Miðvikudagur 7. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Neysla á mjólkiir-
fitu breytist lítið
Trúlega verður enn um sinn um
það deilt hvort neysla á mettaðri
fitu auki tiðni hjarta- og æðasjúk-
dóma eða ekki og ekki ætlar
undirritaður sér þá dul að leggja
dóm á það. Hins ætti þo að vera
óhætt að geta, að samkvæmt
niöurstöðum rannsókna, sem
gerðar voru i Nashville I Banda-
rikjunum og Cambridge í Eng-
landi, lækkaði m jólkurneysla
kolcstcrol-innihald blóðsins. Til-
raunin leiddi i ljós, að hjá þeim,
sem drukku 2 ltr. af mjolk á dag i
2 vikur, lækkaði kólesterói inni-
hald blóðsins um 5%.
Mjög litil breyting hefur orðið á
neyslu dýrafitu hérlendis sl. 10 ár.
Kindakjötsneyslan breytist til-
tölulega litið. Sveiflur i neyslunni
má að mestu rekja til breytinga á
niðurgreiðslum. Hinsvegar er
neysla á mjólkurfitu, reiknuð sem
meðalneysla á ibúa, svo til
óbreytt frá 1971—1980. Árið 1974
sker sig þó nokkuð úr. Þá var
meðalneysla á mjólkurfitu 19,4
kg á mann. 1977 var neyslan
minnst, 16,1 kg á ibúa. Arin
1971—1973 var meðalneyslan 17,6
kg og á sl. ári 17,3 kg.
Egg er sú fæðutegund, sem
inniheldur hvað mest af
kólesteróli. Þvi hafa ýmsir sér-
fræðingar varað við neyslu á
eggjum, egg leggjast þannig á
sveif með fóðurbætisskattinum —
eða hvað? Telja þeir hámark að
borða 3 egg á viku. En svo fundu
,þeir við St. Louis-háskólann i
Missouri i Bandarikjunum upp á
þvi að gera tilraun með þetta á
nemendum. Hún leiddi i ljós, að
þótt þeir neyttu 21 eggs á viku,
eða 7 sinnum meira en ráðlagt
var, þá hafði það engin áhrif á
kólesteról innihald bóðsins.
, —mhg
Fyrri ákvæðum um
netafjölda breytt
Sjávarútvegsráðuneytið gaf út
27. desember s.l. reglugerð, sem
breytir litillega fyrri ákvæðum
um leyfilegan netafjöida báta.
Leiðréttíng
Orðið ekkislæddist inn i frétt á
forsiðu blaðsins i gær og sneri við
merkingu heillar setningar. Þessi
meinlega villa var i fréttinni um
breytingu lausaskulda i föst lán,
þar sem vitnað er i orð Tómasar
Árnasonar viðskiptaráðherra.
Re'tt er setningin svona: „Ég
geri ráð fyrir þvi að á næstu
dögum verði settur á laggirnar
starfshópur til þess að athuga
þetta mál”. Er þetta hér með
leiðrétt og ráðherra og lesendur
beðnir afsökunar.
—ih
Eftir breytingu þessa hljóðar
gildandi ákvæði nú þannig:
Skipum, sem hafa 12 menn eða
fleiri i áhöfn, skal óheimilt að
hafa fleiri en 150 net i sjó.
Sé áhöfn 11 menn skulu ekki
fleiri en 138 net i sjó, 10 ekki fleiri
en 126, 9 ekki fleiri en 114, 8 ekki
fleiri en 102, 7 ekki fleiri en 90, 6
ekki fleiri en 78, 5 ekki fleiri en 66,
4 ekki fleiri en 54, 3 ekki fleiri en
42, og sé áhöfn 2 menn skulu ekki
fleiri en 30 net i sjó.
Miðað er við, að 60 faðma löng
slanga sé i hverju neti.
Sjávarútvegsráðuneytinu er
heimilt i veiðileyfum til þorsk-
fisknetaveiða að takmarka enn
frekar leyfilegan netafjölda báta,
telji það ástæðu til, t.d. ef bátar
landa ekki afla daglega.
(Fréttatilkynning frá sjávarút-
vegsráðuneyti)
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Selfoss og ná-
grennis
Garðar Sigurðsson verður með viðtalstima að
Kirkjuvegi 7 Selfossi laugardaginn lO.jan. kl. 2. ’
e.h.
Garöar
Sænskur
styrkur
tíl mjólkur-
manna
Alfa-Laval fyrirtækið I Sviþjóð
hefur ákveðið að gefa starfs-
mönnum i islenskum mjólkuriðn-
aði kost á árlegum styrk næstu
fimm ár til að afla sér aukinnar
menntunar og fræðsiu á þvi sviði.
Nemur styrkupphæöin 10 þús.
sænskum krónum á ári.
Með umboð fyrir Alfa-Laval
hér á landi fara Véladeild Sam-
bandsins og Dráttarvélar hf.
Selur Véladeildin mjaltakerfi og
þann tækjabúnað, sem bændur
nota en Dráttarvélar annast sölu
á m jólkurvinnslubúnaði i
mjólkurbú. Ber að snúa sér til
þessara aðila um umsóknir. Við
úthlutun koma til greina búfræði-
kandidatar, mjólkurfræðingar,
bændur, sem náð hafa athyglis-
verðum árangri i mjólkurfram-
leiðslu og aðrir aðilar, sem vinna
að verkefnum á sviði mjólkur-
framleiðslu og mjólkuriðnaðar,
eða hyggjast afla sér menntunar
á þvi sviði.
—mhg
Vegleg gjöf
frá
Austurríki
Aöalræöismaöur Austurrikis
hér á landi, Ludvig Siemsen, af-
henti nýlega f orstöðum anni
Þýska bókasafnsins, Coletta
BOrling, veglega bókagjöf frá
Austurriki.
Hér er um að ræða gott úrval
austurriskra fagurbókmennta, en
austurriskar bókmenntir eru með
þvi veigamesta sem skrifað hefur
veriö á þýska tungu, ekki sist á
siðastliðnum áratugum. Meðal
höfunda þaðan má nefna Hugo
von Hofmannstal, Arthur
Schnitzler, Stefan Zweig, Robert
Musil, Rainer Maria Rilke, Paul
Celan og Peter Handke.
Bækur þessar verða varð-
veittar i safninu og hægt að fá þær
lánaðar þar. í þakkarræðu gat
forstöðumaður safnsins þess, að I
Þýska bókasafninu ættu að finn-
ast bækur eftir sem flesta rithöf-
unda sem skrifa á þýska tungu,
burtséð frá öllum landamærum.
Með þessari gjöf væri þvi stigið
mikilvægt spor i rétta átt.
&
SKU'AUH.tHB RIKISINS
M/S Baldur
fer frá Reykjavik mánudaginn
12. þ.m. til Breiðafjarðarhafna.
Vörumóttaka til 9. þ.m.
ANDARTAK!
Happdrætti Þjóðviljans:
Vinningsnúmerin
. 1. des. s.l. voru dregnir út vinningar I happdrættinu. Upp komu
þessi númer:
I
L
1. Bifreið, Daihatsu Charade
2. Sólariaiidaferö með Ctsýn
3. Sólarlandaférð meö úrvali
4. lrlandsferð með Samv.f./Landsýn
nr. 5030
nr. 5999
nr.16832
nr. 34635
135 j
Laus staða
Staða útibússtjóra Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins á Akureyri er laus til
umsóknar.
Háskólapróf i gerlafræði, matvælafræði
eða skyldum greinum er nauðsynlegt.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist sjávarút-
vegsráðuneytinu, Lindargötu 9, 101
Reykjavik, eigi siðar en 31. janúar 1981.
Sjávarútvegsráðuneytið,
2. janúar 1981.
Dregið var í hausthappdrætti
Blindrafélagsins 22. des. 1980.
Vinningar komu á eftirtalin
númer:
1. Myndsegulband, Nr. 12002.
2. -6. Vöruúttekt, gkr. 500.000.-Nr.:
11715, 18820, 18039, 13738, 28932.
7.—16. Reiðhjól, gkr. 300.000.- — Nr.:
12634, 7041, 7251, 5532, 24461, 8860, 9337,
13451, 23811, 5559.
Þökkum landsmönnum veittan stuðning
á liðnu ári.
Blindrafélagið,
Hamrahlíðl7.
Blikkiðjan k Asgaröi 7, GarÖabæ
" Onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi.
r A Gerum föst verötilboö
L k 1 ■ SÍMI 53468
Blaðbera vantar strax!
Tjarnargata — Háskólahverfi
Hverfisgata — Lindargata
MOÐVIUINN
Siðumúla 6 S* 81333.j
Þjóðviljinn óskar að ráða mann til að ann-
ast dreifingu og innheimtu fyrir blaðið i
Grindavik strax.
Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra i
sima 81333.
pjoovium
Siðumúla 6 S. 81333.