Þjóðviljinn - 09.01.1981, Page 2
2 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 9. janúar 1981
Kærleiksheimilid
Burt með mjólkina þína, Lilli. Þetta er kaffi-
borð.
Hækkunin hvorki of mikil né of
litil, sagði Magnús H.
Magnússon um þingfararkaupiö
i viðtali við blað i gær. Ekki
vissi ég, að hann *æii oröinn
Framsóknarmaður.
Augnablik...
Reyfarahöfundurinn George
Simenon er þekktur fyrir mikil
afköst og flýti og hefur enda
sent frá sér um 300 skáldsögur.
Sagan segir, aö dag nokkurn er
hann vann að hundraðfimm-
tugustuogáttundu bókinni i
byrjun sjötta áratugsins hafi
leikstjórinn fraegi Alfred Hitc-
hcock hringt og viljað tala við
hann.
„Þvi miður”, svaraði eigin-
konan,, maðurinn minn var rétt
að byrja á nýrri skáldsögu, svo
það má ekki trufla hann”.
„Auðvitað ekki’, sagði Hitch-
cock. „Við skulum endilega
leyfa honum að klára hana. Ég
biö i simanum á meðan”.
Þessi börn.
vidtalid
Eða eins og Hörður Einarsson stjórnarformaður Reykjaprents
sagði: Ég rak hann af væntumþykju einni saman.
Mamma hafði skammað
Gunna, svo hann leitaði hugg-
unar hjá ömmu. Amma reynir
að útskýra:
— Móðir á rétt á að skamma
barnið sitt.
O, já gerðu það, amma!
Siggi er nýbyrjaður i skóla.
Eftir fyrstu vikuna tilkynnist:
— Ég er búinn að læra alla
stafina, pabbi.
— Er það satt?
— Já, já. Bara að kennarinn
komi nú ekki með fleiri.
Sendiö ykkar sögur
Hvað segja lesendur? Hafa
krakkarnir ykkar eða kunn-
ingjar ykkar ekki sagt eöa gert
eitthvað fyndið og/eða ihug-
unarvert nýlega. Leyfið fleirum
að heyra og sendiö söguna til
Þjóðviljans, 2. siða. Það má lika
hringja til lesendadálksins.
mmámm
Rætt við Ingibjörgu
Pálsdóttur
ballettdansara, sem
tekur við
af Sveinbjörgu
Alexanders í
Blindisleik
Bjartsýn
á að
sýningin
gangi
Blindisleikur, — „leikur fyrir
dansara” eftir Jón Asgeirsson
hefur hlotiö einróma lof gagn-
rýnenda, en þetta er fyrsti
isienski heils-kvölds ballettinn
sem færður hefur verið upp.
Dansar eru eftir Jochen Ulrich,
tjöld og biíningar eftir Sigurjón
Jóhannsson og Sinfóniuhljóm^
sveit tslands flytur tónlistina.
Sveinbjörg Alexanders sem
einnig aðstoðaði viö gerö
dansanna, kom heim til aö taka
þáttl sýningunnvog frá þvi ann-
an I jólum hefur hún dansaö
hlutverk Freyju, eitt þriggja
sólóhlutverka I leiknum Hinir
sólódansa rarnir eru Conrad
Bukes og Michael Miúnar, en
félagar I tslenska dansflokknum
skipa önnur danshlutverk.
Blindisleikur fjallar um
baráttu góös og ills, — efni-
Ingibjörg I hópi félaga sinna I
tslenska dansflokknum. Ljósm.
— gel.
viðurinn er sóttur i þjóðsöguna
um Gilitrutt, — tröllið sem ginn-
ir til sín mannfólkið I dalnum,en
eins og í öllum góðum ævintýr-
um fer allt vel að lokum. Sýn-
ingar hafa verið vel sóttar og
vonandi verður svo áfram þvi
hér er um mikilsvert nýmæli aö
ræöa I menningarlifi bæjarins.
En á sunnudaginn kemur, 11.
janúar, tekur ný ballerina viö
hlutverki Freyju, sem
Sveinbjörg Alexanders hefur
dansaö frá frumsýningunni.
Hún heitir Ingibjörg Pálsdóttir,
og verður 24ra ára nú i janúar.
Ingibjörg hefur veriö I Islenska
dansflokknum frá þvi hann var
stofnaður 1973, en einnig læröi
hún einn vetur i Bandaríkjun-
um. Hún hefur tekið þátt I sýn-
ingum Dansflokksins undanfar-
in ár, en hlutverk Freyju er hið
langstærsta sem hún hefur
fengist viö. Þjóöviljinn spjallaöi
viö Ingibjörgu af þessu tilefni og
spuröi hana hvemig hlutverkiö
legöist I hana.
„Bara vel,” sagöi Ingibjörg.
„Þaö er mjög gaman aö fást viö
þetta, tónlistin er stórkostleg og
verkiö i heild er mjög skemmti-
legt. Hins vegar er þetta lika
erfitt, vegna þess að I dönsum
Ulrichs er annar still en viö höf-
um vanist. Bdöir herrarnir sem
dansa með mér eru hins vegar
mjög góöir dansarar og það
hjálparmér mikiö.”
— Hvernig er þaö þegar æfa
þarf tvo dansara i sama hlut-
verkiö, — er æfingatimanum
jafnt skipt niöur?
„Nei, Við höfðum ákaflega
litinn tima fyrir frumsýning-
una. Dansahöfundurinn var
I ekki hér nema I þrjár vikur og
haföi eölilega litinn tima fyrir
mig. Ég fylgdist þó auövitaö
meö öllum æfingum og strax
eftir frumsýninguna fór
Sveinbjörg aö æfa mig og það
hefur gengið ágætlega. Þetta
hefur veriö geysilega mikil
vinna, — æft myrkranna á milli
allan desembermánutv en hún
hefur lika veriö skemmtileg.”
— Helduröu að sýningin komi
til með að ná út fyrir hóp
ballettunnendaog „ganga” eins
ogsagter?
„Viöerum öll mjög bjartsýn á
að þetta gangi vel. Sýningin er
ákaflega skemmtileg og falleg,
þaö er i henni einföld en mikil
saga sem allir ættu að skilja og
hafa gaman af. Þó fyrstu sýn-
ingarnar séu eölilega mest sótt-
ar af ballettunnendum, þá hafa
góöir dómar vonandi þau áhrif
aö aörir þori aö kom^ og þaö er
staöreynd aö þeir sem ekki hafa
sóst eftir aö horfa á ballett hafa
haft mjög gaman af þessari
sýningu,” sagöi Ingibjörg.
— AI
1 svartasta skammdeginu er
rétt aö minna á aö viöa eru
mildari veðurguöir en i Isa
köldu landi. Og ef menn rámar i
hvernig lifið er i miklum hitum,
þá muna menn lika hvað það
getur veriö svalandi að fá sér
bita af melónu i sliku veðurlagi.
Þetta vita þeir lika i sveitum
Búlgariu og draga þvi ávaxta-
kerrur sinar i veg fyrir ferða-
menn að freista þeirra á án-
ingarstaö. Myndin var tekin á
þeim fagra og fjölsótta höfða
Kaliakra i sumar sem leið.
— eos
(Ljósm. ARJ)
<
Q
O
IX.
Skyldi Guð hafa einkaleyfi
fyrir þessum hnöttótta
vitlausraspitala?