Þjóðviljinn - 16.01.1981, Side 5
Föstudagur 16. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — StDA 5
Suður-Afrika er enn í
fréttum i sambandi við
það/ að eftir margra ára
skæruhernað gegn yfir-
ráðum þess illræmda
rikis yfir Namibiu (áður
Suðvestur-Afríku)/ hefur
loks tekist að byrja í
Genf umræður um sjálf-
stæði þessarar fyrrver-
andi nýlendu Þjóðverja í
Afríku. Umræður þar
sem við eigast fulltrúar
Suður-Afrik'ustjórnar og
handbendi þeirra í Nami-
biu annarsvegar og full-
trúar sjálfstæðishreyf-
ingarínnar SWAPO hins-
vegar.
Of snemmt er samt að láta
uppi bjartsýni á gang þeirra
viðræðna. Minnihlutastjórn
hvitra manna i Suður-Afriku
hefur reynst öllum seinni til
viðbragða við nýjum aðstæðum
i Afriku og reynir sem allra
lengst að skáka i skjóli vopna-
valds og auðs til að fylgja eftir
hugmyndum sinum um drottn-
unarrétt hvitra manna i Afriku
sunnanverðri. Þetta kemur
m.a. fram i svonefndri
Bantústanstefnu stjórnarinnar,
sem enn er reynt að fylgja eftir.
Bantústan no. 3
Nú siðast i desember var
stofnað enn eitt Bantústan i
Suður-Afriku, en svo nefnast
svæði þau sem stjórnvöld út-
hluta einstökum blökkum þjóð-
um og kalla sjálfstæð. Það
,,riki” sem nú varð til heitir
Ciskei og á að vera heimkynni
Xhosaþjóðarinnar. Ciskei er
hluti stefnu sem byrjað var á
fyrir 30 árum eða svo. Hún mið-
ar að þvi, að koma sem flestum
af 23 miljónum blökkumanna i
Suður-Afriku fyrir innan tiu
sjálfstjórnarhéraða.En þetta er
gert með þeim hætti sem kyn-
þáttanefnd Sameinuðu þjóð-
anna kallar svivirðilegan og
eru það orð að sönnu. Svartir
menn eru meira en 80% af ibú-
um Suður-Afriku, en þeir eiga
aðeins að fá 15% landsins i sinn
hlut með þessum hætti. Landa-
mörk eru dregin einmitt á þann
hátt, að besta ræktarlandið,
demantanámur og gullnámur
og öll iðnaðarhéruð lenda i
höndum hvitra manna, sem eru
4,5 miljónir. Þau þrjú svæði,
sem þegar hafa hlotið „sjálf-
stæði”, Transkei, BophutfaTw-
sana og Venda, eru svo snauð.
að meira en 2/3 hlutar af tekjum
þeirra koma frá Suður-Afriku.
Ciskei er enn óliklegra land til
að geta brauðfætt landsmenn —
ófrjótt land, uppblásið og þétt-
býlt.
Spilaðá
höfðingja
Suður-Afrikustjórn felur
höfðingjum formleg völd i þess-
Ciskei og önnur „heimalönd”:
80% fbúa frá 15% landsins.
FRÉTTA-
SKÝRING
um „lýðveldum”. Klókindin á
bak við stofnun þeirra eru ekki
sist fólgin i þvi, að gera t.d.
Xhosamenn að „rikisborgur-
um” Ciskei. Með það fyrir aug-
um að geta nýtt vinnuafl þeirra
á hvitum svæðum þegar þess er
óskað, en losað sig svo við fólkið
þegar það er orðið gamalt eða
óvinnufært. Höfðingjavaldið
gamla hefur dansað með i þess-
um leik — eins og sést af dæmi
Lennox Sebe i Ciskei, sem gerist
handbendi Pretoriustjórnar til
þess að halda völdum yfir sinu
fólki. Ekki eru þó allir jafnfúsir
til að dansa með. Zúlúmenn og
höfðingi þeirra, Buthelezi, hafa
neitaö að láta loka sig inni i
Bantustan — en Zúlumenn eru
þjóða fjölmennastir i Suður-
Afriku, fimm og hálf miljón
talsins.
Höfuð við stein
Nú er það svo, að meira að
segja ýmsir áhrifamenn i hópi
hinna ihaldssömu Búa, sem
mestu ráða i Suður-Afriku, hafa
enga trú á Bantústanþróuninni
lengur: þeim finnst blátt áfram
að dæmin gangi ekki upp frá
efnahagslegu sjónarmiði. En
stjórnvöld halda ótrauð áfram i
þeirri einkennilegu von, að þau
geti ýtt frá sér hættunni á upp-
reisn blökkumanna með þvi að
gera sem flesta þeirra að borg-
urum i gervirikjum, sem eigi
allt sitt undir atvinnu og
styrkjum sem hvitir vald-
hafar Suður-Afriku ráða yfir.
— áb.
Geimskutlan
bandaríska og
vígbúnaöur í
geimnum
Sama-
kynning í
Norræna
húsinu
A morgunn laugardaginn 17.
jan. kl. 15:30 verður kynning á
tungu, þjóðháttum, bókmenntum
og þjóðlögum Sama.
Þessi kynningi Norræna húsinu
er sú siðasta i röð sjö funda sem
málaársnefnd Norræna félagsins
efnir til á Norrænu málaári.
Haraldur ólafsson flytur inn-
gangsorð.
Aðalsteinn Daviðsson spjallar
um tungu Sama. Einar Bragi,
Anna Einarsdóttir og Hlin Torfa-
dóttir flytja samfellda dagskrá
ljóöa, þjóðsagna, og ævintýra úr
Samabyggðum.
Þá verða bækur um Sama og á
máli þeirra til sýnis i húsinu.
Allir eru velkomnir meöan hús-
rúm leyfir.
Bandarfska geimferj-
an Columbia er nú
fullgerð eftir að smiði
hennar tafðist i þrjú ár.
Ef allt fer sem áætlað er
verður henni skotið upp
frá Kennedy-
geimstöðinni á Florida i
mars. Ferjan eða
geimskutlan er að þvi
leyti ólik öðrum geim-
förum, að það er hægt
að lenda henni eins og
svifflugu einskonar og
nota hvað eftir annað.
Og hún er einnig likleg
til að hraða þróun ýmis-
konar vigbúnaði úti i
geimnum.
Geimskutlan tafðist af ýmsum
ástæðum. Meðal annars vegna
þess hve erfitt reyndist að klæða
hana i þá „húð” sem þolir gifur-
legan hita sem hún mætir þegar
hún snýr aftur i þéttari lög gufu-
hvolfsins. Ennfremur reynist
bæði stjórnbúnaður og lendingar-
búnaður gifurlega flókinn og
meira að segja erfiðari meðferð-
ar en búnaður Apollotunglfar-
anna. Tunglfarinn John W.
Young, er einmitt annar tveggja
manna i fyrstu áhöfn Columbiu.
Flugherinn áhugasam-
ur
Tom Karas hjá Center for De-
fence Information i Washington
hefur sérstakar áhyggjur af þvi i
nýlegri grein um geimferjuna, að
bandariski flugherinn hafi sýnt
henni vaxandi áhuga og hafi i
raun hlaupið undir bagga með
ferjusmiðum þegar starl þeirra
tafðist úr hófi fram. Hann segir á
þá leið, að geimskutlan veröi ekki
beinlinis að nýju vopni, en það
meginota hana til hernaðarþarfa
á margan hátt.
Til dæmis, segir Karas, er lik-
legt að slik geimferja, sem hefur
mikið burðarþol, verði látin ílytja
njósnahnetti fyrir herinn út i
geiminn. Ennfremur getur áhöfn
geimferju fylgst grannt með
tækjabúnaði slikra njósnahnatta.
Það er einnig mögulegt að
geimferja „hirði” upp af götu
sinni ýmiskonar könnunarhnetti,
sem eru hættir að virka, og flytji
hinn dyrmæta tækjabúnað til
jarðar þar sem hægt er að nýta
hann aftur með ýmsum hætti.
Það er lika fræðilegur mögu-
leiki að áhöfn geimferju geti
krækt I sovéska gervihnetti,
Geimskutlan Columbia er ef til vill það appirat sem færir nær hroll
vekjur staöleysuhöfunda um geimstrið.
rannsakaðþá og ef til vill tekið úr
umferð.
Laserstríð?
Flugherinn getur og notað
geimferju til að kanna nýtingu
infrarauðrageisla og lasergeisla i
geimnum i hernaðarlegum
tilgangi. Að minnsta kosti mun
hún gera það mögulegt að
fylgjast úr geimnum með öllu þvi
sem fram fer i lofti yfir jörðunni
með miklu stórtækari og
nákvæmari hætti en nú þekkist.
Ef til vill er geimferjan eitt af þvi
sem gerir úrelt eftirlitskerfi i
flugvélum eins og AWACS það
sem verið hefur um borð i flug-
vélum sem gerðar eru út frá
Keflavik.
I grein þeirri sem hér er vitnað
til er sérstaklega fjallað um las-
ergeislahernað. Geimferja gæti
ef til vill haft með sér nokkra
gervihnetti, búna laserbyssum,
sem gætu eyðilagt njósnahnetti
andstæðingsins eða þá eldflaugar
hans.
Alltént er ljóst, segir Tom
Karas, að flugherinn bandariski
tengir þróun eftirlitskerfa sinna
og eldflaugabúnaðar nú mjög við
geimferjusmiði NASA.
endursagt —áb.