Þjóðviljinn - 16.01.1981, Síða 16
DWÐVHMN
Föstudagur 16. janúar 1981
Umsjónarmannsstarf
á Heilsuverndarstöð:
71 umsókn
barst
Erilsamt starf og
engin fríðindi
Á dögunum var auglýst eftir
umsóknum um starf umsjónar-
manns viö Heilsuverndarstöðina i
Hcykjavik og heilsugæslustöðvar
borgarinnar.-Barst hvorki meira
né minna en 71 umsókn um starfið
og varð heilbrigðisráð borgar-
innar að gcra upp á milli alls þess
fjölda. Guðmundur Daviðsson
heitir sá sem hneppti hnossið.
Af þessu tilefni sneri Þjóðvilj-
inn sér til Skúla Johnsen borgar-
læknis, og spurði hann um hvers
konar starf væri að ræða og hvort
hann hefði einhverjar skýringar á
þvihversueftirsóttþaðer. „Þetta
er húsvarðarstarf hér i Heilsu-
verndarstöðinni”, sagði Skúli,
,,en auk þess þarf umsjónar-
maður að lita til með heilsugæslu-
stöðvum, sem eru viða um borg-
ina. Starfinu fylgja engin friðindi,
ibóð eða annað, svo sem oft er
með húsvarðarstöður. Það er
erilsamtog launin eru samkvæmt
11. launaflokki. Vinnudagurinn er
langur. Húsvörður sér um að
opna húsið á morgnana, loka þvi
á kvöldin, hafa eftirlit með ræst-
ingum og öllu sem úr lagi fer, i
stuttu máli þarf hann að vera „alt
muglig mand” bæði hér á Heilsu-
verndarstöðinni og á heilsugæslu-
stöðvunum”.
Skúli sagði að umsækjendur
hefðu verið á öllum aldri, en þó
flestir fullorðnir og i hópi þeirra
hefði verið mjög mikið af
iðnaðarmönnum. — AI
Sovéskur
dansflokkur
hingað
Þrjátiu manna dansflokkur frá
Sovétrikjunum er væntanlegur
hingað til lands 11. mars n.k. og
mun hann sýna I Þjóðleikhúsinu
dagana 12., l'.l„ 14. og 15. mars. 1
hópnum eru dansarar frá
Bolsjoi-bailettinum og frá öðrum
þekktum sovéskum leikhúsum.
Að sögn Sveins Einarssonar
þjóðleikhússtjóra verður þessi
hópur á íerðalagi um Sviþjóð,
Danmörku og Noreg og kemur
hingað i lok þeirrar ferðar. Menn-
ingartengsl Islands og Háð-
stjórnarrikjanna hafa haft milli-
göngu um komu hópsins hingað.
lvar Jónsson, formaöur MÍR og
skrifstofustjóri Þjóðleikhússins,
sagði að ekki væru komnar ailar
upplýsingar um hópinn eöa dag-
skrá sýninganna, og endanlegt
miðaverð væri ekki ákveðið, en
sennilega yrði miðinn seldur á 100
krónur.
— ih
Fundur í
sjómanna-
deilunni
Rikissáttasemjari hefur boðað
samninganefndir sjómanna og
útgerðarmanna til samninga-
fundar i dag kl. 14. Enginn fundur
hefur farið fram siöan útgerðar-
menn slitu samningaviðræðum sl.
mánudagskvöld.
1 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: hltstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöidsími Helgarsími afgreiðslu 81663
8x285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- 1 greiðslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og I eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Aðstaða samkeppnisiönaöar stórbœtt
Aðflutningsgjöld
verða afnumin
Eins og skýrt hefur verið frá i
fréttum, hefur verið unnið að þvi
á vegum iðnaðarráðuneytisins og
fjármálaráðuneytisins að endur-
skoða auglýsingu nr. 284/1978 um
niðurfellingu og endurgreiðslu
tolls og/eða sölugjalds af ýmsum
aðföngum til samkeppnisiðnaðar.
Endurskoðun þessari er nú lokið
og hefur verið ákveðið að fella
niður aðflutningsgjöld og/eða
sölugjald af þessum vörum og
gildir sú ákvörðun frá 2. janúar
sl.
Þessi endurskoðun hefur verið
framkvæmd i samráði við Félag
isl. iðnrekenda og Landssamband
iðnaðarmanna. Var haíður tii
hliðsjónar þessari ákvarðanatöku
listi frá þessum samtökum yfir
vöruflokka sem íorsvarsmenn
samtakanna töldu nauðsynlegt að
gjöldin væru felld af.
Áætlað er að útgjöld íyrirtækja
i samkeppnisiðnaði lækki um 15
miljónir nýkróna á árinu 1981
vegna þessara ráðstafana, en
gert var ráð íyrir tekjurýrnun
rikissjóðs sem þessu nemur á
fjárlögum ársins 1981.
Helstu atriði hinnar nýju aug-
lýsingar um niðurfellingu þess-
ara gjalda eru:
a) Tekin eru upp tollskrárnúmer
yfir fjölmarga nýja vöru-
flokka,auk þess sem gildissvið
auglýsingarinnar hefur verið
rýmkað að ýmsu leyti.
b) 1 stað þess að gera eingöngu
ráð fyrir niöurfellingu gjalda
afýmsum varahlutum viö toll-
afgreiðsluer nú jaíníramt gert
ráð fyrir þvi, aö iðnfyrirtæki
geti sótt um endurgreiðslu
gjalda af varahlutum, sem þau
hafa keypt af innlendum
birgðum.
c) Felld eru niður aðflutnings-
gjöld vegna viðgerða erlendis
sem fram fara á ábyrgöartima
véla og tækja, sem ivilnana
geta notið samkvæmt
ákvæðum auglýsingarinnar.
Rikisverk-
smiðjudeilan:
Ftinda-
höld
í gærdag
Nú er hver síðastur að ná sér I vísitölubrauð. — ljósm. Eik
Baráttan um brauðin
enn í fullum gangi
Enn situr allt fast i deilunni um
visitölubrauðin. Eins og kunnugt
er heimiluðu verðlagsyfirvöld
nokkra hækkun á brauðunum i
nóvember, cn bakarar undu ekki
þeim úrskurði og seldu brauðin
hærra. Verðlagsstjóri kærði og
rannsóknarlögreglan sendi rikis-
saksóknara málið. i fyrradag var
málinu aftur visað til lögregl-
unnar til frekari rannsóknar.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
varðist allra frétta af málnu iyrr
en að afloknum fundi verölags-
ráðssem haldinn verður á mánu-
daginn kemur.
Við heimsóttum i gær Jón Jó-
hannesson, bakara i Kökuvali.
Hann sagði að i stað visitölu-
brauða myndu bakarar baka ma.
þriggjakornabrauð, soyabrauð,
skólabrauð, bóndabrauð og
heilsubrauð, svo eitthvað sé
nefnt. Hann sagði þessi brauð
dýrari i framleiðslu vegna meiri
vinnslukostnaðar, en korn i þessi
brauð er grófara og þarf að
liggja i bleyti. Einnig er efnis-
kostnaður meiri og brauðin
þyngri en visitölubrauðin.
Aðspurður um staðhæfingu for-
manns Verðlagsráðs, Björgvins
Guðmundssonar, að aíkoma
brauðgerða hefði verið góð á sl.
ári, sagði Jón það rétt vera. Hann
bætti við: '„Bakariin hafa komið
ágætlega út, en þetta eru lika
fyrirtæki sem opin eru alla sjö
daga vikunnar. Sjálfur hef ég
unnið botnlaust um allar helgar
til að halda niðri launakostnaði”.
— Til hvaða ráðs gripið þið ef
öll brauð verða háð verðlags-
ákvæðum?
„Eg held það verði útilokað
fyrir verðlagsyfirvöld að fylgjast
með verðinu og framfylgja slik-
um ákvæðum”.
— Hvernig eru þessi brauð sem
þú taldir upp áðan verölögð og er
sama verð á þeim hjá öllum bök-
urum?
„Verðið er áreiðanlega mis-
jafnt, enda brauðin misþung.
Sjálfur hef ég minar eigin for-
múlur við að reikna út verðið”,
sagði Jón aðlokum. Bó
i gærmorgun kl. 10 hófst fundur
hjá sáttasemjara með aðilum i
rikisverksmiðjudeilunni og stóð
hann yfir fram á kvöld.
Að sögn Guðlaugs Þorvalds-
sonar rikissáttasemjara miðaði
heldur litið i samkomulagsátt i
gær, þó voru menn að ræða sin i
milli óíormlegar tillögur sem
fram höfðu komiö. Þaö sem eink-
um strandar á i þessari deilu er
niðurröðun starfsfólks i launa-
flokka eftir að ákveöiö hefur verið
að samræma samningana hjá
rikisverksmiðjunum, samningi
þeim, sem gerður var við starfs-
fólk Grundartangaverksmiöi-
unnar. — S. dór
/
Utvarps-
stjóri fór
ad vilja
fréttastjóra
Erna Indriðadóttir, Asdis
Rafnar og Einar örn
Stefánsson hafa verið ráðin i
störf fréttamanna við hljóð-
varpið.
t gær ákvað Andrés
Björnsson útvarpsstjóri
hverjir fengju starfið, og er
niðurstaða hans i samræmi
við meðmæli fréttastjóra
hljóðvarpsins, en gengur
þvert á vilja Útvarpsráðs.
— ká
Búið að flytja
mótmælendur burt
Að sögn lngólfs Margeirssonar
blaðamanns iOsló hafa aUir mót-
mælendurnir gegn Alta-virkjun-
inni i N-Noregi nú verið fluttir af
virkjunarsvæðinu þar sem þeir
höfðust við og neituðu að hrcyfa
sig. lliðf jölmenna lögreglulið, 600
manns, er eins vel búið tækjum og
tólum sem frekast má vera og tók
það lögregluna mun styttri tima
að fjarlægja mótmælendur en bú-
ist hafði verið við. Enda kom það
fram í fréttum i gær, að lögreglu-
lið það, sem sent var til Aita hafði
æft sig undir þessar aðgerðir i 4
mánuðiá laun, og sagði iögreglan
að hún hefði átt von á mun
harðari andspyrnu frá mót-
mælendum.
1 gær gerðist það svo.að beiðni
dómsmálaráðuneytisins norska
um einnar miljón norskra króna
framlag til að kosta lögregluað-
gerðirnar við Alta var samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta i
Stórþinginu. Fær dómsmálaráðu-
neytið þessa upphæð meðan þörf
er talin á að hafa lögregluvörð á
virkjunarstaðnum.
Þá lýstu þeir Samar, sem tekið
hafa þátt i mótmælaaðgerðunum
við Alta yfir þvi i gær að hin fjöl-
mennu Landssamtök Sama ættu
að segja algerlega skilið við
norska rikið, á hvaða sviði sem
er. Kalla Norðmenn þetta hótun
um „býrókratiska” borgara-
styrjöld.
Mótmælendurnir 1200 sem fjar-
lægðir voru af virkjunarsvæðinu
söfnuðust saman i aðsetursstað
þeim er samtökin hafa fyrir utan
Altabæinn. Aðeins 175 þeirra voru
sektaðir um 3 þús. N.kr. hver.
Samtökin lýstu þvi yfir i gær, eftir
að lögreglan hafði sagt þeim að
hún myndi eyðileggja aðseturs-
stað þeirra, að þau myndu ílytja
bækistöð sina inni Altabæinn
sjálfan, inná einkalöð, þar sem
lögreglan gæti ekki hróflað við
þeim. Samtökin lýstu þvi einnig
yfir að þau myndu láta til skarar
skriða að nýju eftir fáeina daga,
enupplýstu ekki hvaö þau ætluðu
að gera. Sagði formaöur sam-
takanna, Alfred Nilsen, á blaða-
mannafundi i gær að aðgerðir
lögreglunnar væru ekki ósigur
fyrir samtökin, heldur væri málið
nú komið á nýtt stig.
Þá má að lokum geta þess að
bæði i Sviþjóðog Danmörku hefur
mikið verið skrifað um málið og
vekur það athygli að öll stærstu
blöð þessara landa, þar á meðal
blöð sósialdemókrata, hafa tekið
afstöðu gegn norsku kratastjórn-
inni og kallar stærsta blað
Sviþjóðar, Aftenposten, aðgerðir
stjórnarinnar stjórnmálalegan
harmleik. Aðeins hægri blöðin i
þessum löndum styðja norsku
stjórnina i málinu.
— S.dór.