Þjóðviljinn - 05.02.1981, Side 10

Þjóðviljinn - 05.02.1981, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. febrúar 1981 ERLENDAR FRÉTTIR Jóhann J.E. Kúld I fiskimá! Loðnuveiðar auknar í Barentshafi 1981 Franskir fiskimenn vilja fú sérstakt sjávarútvegsráðuneyti Franskar fiskveiðar heyra nú undir siglingaráðuneytið, en franskir fiskimenn eru óánægðir með þetta fyrirkomulag og telja að það sé meðal orsaka til þess að ekki sé tekið nægjanlegt tillit til franskrar fiskútgerðar og hags- muna fiskimanna. Þeir krefjast þess þvi að stofnað verði sérstakt ráðuneyti, sem fari með sjávar- útvegs- og hafréttarmál og að sérstakur ráðherra sinni ein- göngu þessum málaflokkum. Það er ekki talið ósennilegt að þessikrafa fiskimanna verði lögð undir þjóðarúrskurð við næstu forsetakosningar. Fiskajli Norðmanna 1980 Við auknar loðnurannsóknir i Barentshafi á s.l. hausti fram- kvæmdar sameiginlega af Norð- mönnum og Sovétmönnum kom- ust þeir að þeirri niðurstöðu að stofninn væri stærri heldur en þeir höfðu áður reiknað með að hann væri. Þá komust þeir lika að þeirri niðurstöðu að loðnuhrygn- ingin 1979 og 1980hefði gengið vel. 1 þessum loðnurannsóknum á s.l. ári fundust nýjar hrygningar- stöðvar mikið vestar i Barents- hafi og lengra frá landi en áður var vitað um. Norskir og sovéskir fiskifræðingar mæla nú með þvi, að heildar loðnuveiðin i Barents- Eins og fram kom i siðasta Fiskimálaþætti minum, þá hefur útlitið á saltfiskmörkuðunum sjaldan verið eins'gott og nú i byrjun þessa árs. Norðmenn gátu á s.l. ári ekki fullnægt sinum fisk- mörkuðum, hvað þorskafurðum viðkom. Þetta kom niður á salt- fiskmörkuðum þeirra, þar sem þeir urðu eins og i Brasiliu að bjóða fram saltaða þurrkaða keilu i staðinn fyrir þorsk. Ég veit að norskir saltfiskútflytjendur lita mjög björtum augum á salt- fiskútflutning á þessu ári, en ótt- ast það mest að geta ekki fullnægt eftirspurn. Sama máii gegnir með skreiðina, svo framarlega sem Nigeria verður opin áfram skreiðarinnflutningi á yfirstand- andi ári. Freðfiskmarkaðir eru allir i mikið meiri óvissu. Ýmsir spá þó hækkandi verði þar þegar kemur fram á árið. Hvort við Is- lendingar getum notfært okkur þá góðu aðstöðu sem nú er á saltfisk- mörkuðunum, um það vil ég engu spá. Saltfiskmarkaðir við Mið- jarðarhaf eru flókin fræðigrein. Þar hafa innflytjendur stundum. hafi á þessum vetri verði miðuð við 1.200.000 tonna hámarksafla, og að 700.000 tonna afli verði siðan tekinn á næstu vertið. Á vetrarvertið i Barentshafi 1980 var heildar loðnuaflinn 887.600 tonn. Af þeim afla fengu Norðmenn 556.000 tonn, Sovét- menn 327.000 tonn og Færeyingar 4.600 tonn. Sumarloðnuaflinn i fyrra var 700.000 tonn, og var hon- um skipt þannig, að Norðmenn fengu 420. 000 tonn og Sovétmenn 280.000 tonn. Samkvæmt þessum tölum, ætti loðnuafli úr Barents- hafi i ár að aukast um 312.400 tonn miðað við s.l. ár. þegar mikið hefur verið framboð, sett þau skilyrði fyrir kaupum, að við enga væri verslað nema þá eina. Náttúrlega hafa þá keppi- nautar slikra innflytjenda snúið sér annað með sina verslun. Ég tel engan vafa á þvi, að skilyrði séu fyrir hendi til þess, að við get- urn komist inn á þá saltfisk- markaði sem Norðmenn geta ekki annað nú. Gerum við það ekki, þá hlaupa Kanadamenn þarna i skarðið. En þó nokkuð sé áfátt ennþá i okkar saltfisk- verkun, aðallega vegna gallaðs hráefnis, þá stöndum við talsvert framar en Kandamenn i allri fiskverkun ennþá. En hvað það verður lengi það er spurningin. Kanadamenri hafa nú fengið bæði islenska og norska sérfræðinga á sviði allrar fiskverkunar i sina þjónustu, og ætla séf að taka þarna forystu. Okkur íslending- um ber þvi að vera vel á verði, bæði hvað við kemur meðferð á öllu fiskhráefni og verkun aflans, svo þvi einnig hvað við kemur mörkuðunum á hverjum tima. Hér má engin stöðvun verða, heldur þarf að haga seglum eftir vindi. Sovétmenn vilja auka afla sinn Fiskets Gang hefur þau um- mæli eftir aðstoðarsjávar- útvegsmálaráðherra Sovétrikj- anna Kudrjatsev, að áætlunin um fiskveiðar Sovétmanna hafi staðist fyrir helming ársins 1980 þrátt fyrir óhagstætt veöurlag á ýmsum miðum. Þá' segir ráð- herrann, en viðtalið virðist hafa átt sér stað siöari hluta ársins, að til þess aö fiskveiðiáætlunin standist fyrir árið 1980 þá þurfi verðmætisaukning aflans að hækka um 7,3% á siðari hluta ársins, miðað við sama timabil 1979. Fiskvöruneysla i Sovét- rikjunum er nú komin upp i 17,5 kg. á mann á ári. Á árinu 1980 lagði rikið fram til veiða og vinnslu 1,3 milljarð rúblna. Þá er það haft eftir ráðherranum að Sovétmenn hyggist ennþá auka fiskveiðar sinar, sérstak- lega á úthöfunum. Þá eru nú miklar ráðagerðir um að auka fiskefldi i stórum stil i Kyrra- hafinu i hlýjum sjó. Telja Sovét- menn að ef tekið sé undir slikt liskeldi 20 ferkilómetra svæöi þá sé hægt að framleiöa þar álika mikinn fisk eins og fæst úr öllum Noröur- sjónum. Eftir útfærslu fisk- veiðilögsögu fjölda þjoöa i 200 milur, hefur óneitanlega þrengt mikið að hinum geysi- stóra fiskveiðiflota Sovétrikj- anna. Þetta hafa þau reynt að bæta sér upp á tvennan hátt: Með auknum úthafsveiðum, svo og með auknu fiskeldi i sjó, ám og vötnum. Með framtiðar þörf i huga hyggjast þau nú leggja megin-áherslu á aukið fiskeldi. Samkvæmt þvi sem nú liggur fyrirum áramótin 1980 og 1981, þá varð heildarafli Norðmanna á s.l. ári 2.5 milljón tonn. Þetta er afla- minnkun sem nemur 235 þúsund tonnum á milli ára og er 190 þús- und tonnum minna en veitt var 1978. Aflatölur þessar eru mið- aðar við óslægðan fisk upp úr sjó. Verðmæti þessa afla upp úr sjó er talið vera 3.3 milljarðar n.kr. En það er talin verðmætisaukning frá árinu 1979, sem nemur 200 milljónum n.kr. og 400 milljónum n.kr. frá 1978. Samkvæmt þessum bráðabirgðatölum er þorskaflinn á árinu 1980 talinn að hafa farið niður i 280 þús, tonn, var 334.552 tonn 1979. Ýsustofninn virðist standa sig betur, þvi þar er aflinn talinn 72 þús. tonn en var 1979, 73.816 tonn. Ufsaaflinn hefur vax- ið úr 156.634 tonnum 1979 i 163 þús. tonn 1980. Lönguaflinn sem var 30.197 tonn 1979 er talinn 28.300 tonn 1980. Keiluaflinn er talinn vera 37 þús. tonn 1980, en var 31.403 tonn 1979. Þegar það er tek- ið með i þessa upptalningu að þorskafli Norðmanna var árið 1977, 435.846 tonn, þá má öllum ljóst vera að botnfiskveiöar Norð- manna, svo og vinnslustöðvar sem vinna úr þeim afla, eiga nú i miklum erfiðleikum. Staðreyndin er lika sú, að þeir geta nú ekki fullnægt mörkuðum sinum með þorskafurðir. En þrátt fyrir þessa mjög svo slæmu afkomu i fiskveiðum Norð- manna, þá eru það einstök byggðalög sem þarna skera sig úr. 1 desember hélt Sunmmöre og Romsdals Fiskelag aðalfund sinn i Alasundi, en að þessum samtök- um standa útgerðarmenn i Raumsdal og á Sunnmæri. Reikn- ingsár þessa félagsskapar miðast ekki við almanaksárið heldur frá hausti til hausts. A aðalfundinum kom það fram að heildarafli þessa félagsskapar, en útgerðar- menn hans stunda alhliða útgerð, varð á reikningsárinu 109 þúsund tonn og að verðmæti miðað við hráefnissölu rúmlega 546 milljón- ir n.k.r. Þetta er magnaukning sem nemur 32.7% og verðmætis- aukning er 36% miðað við árið á undan. Á fundinum kom það fram að afkoma þess félagsskapar var sú besta á 35 ára starfsferli þess. Og þetta gerist á einu allra léleg- asta fiskveiðiári Norðmanna þeg- ar á heildina er litið. Sunnmæringar eiga einn allra best búna og stærsta fiskveiði- flota, miðað við önnur héruð i Noregi. Þeir hafa um langan ald- ur verið mestu úthafsveiðimenn Noregs. Þeir eiga nokkra verk- smiðjutogara sem hafa ýmist veitt i salt eða frystingu. Þá eiga þeir einnig úthafslinuveiðara. Arsafla sinn sækja þeir að stærsta hluta á fjarlæg mið. Togarar þeirra veiddu á s.l. ári á nýjum miðum vestur af Noregi og fengu þar fisk á meira dýpi en togað hafði verið á áður. Þá sóttu þeir norður i Barentshaf og á Norður- sjó. Útlitið á fiskmörkuðum á yfirstandandi ári Kanadisk-dönsk veðurathugun Danir hafa unnið að þvi að undanförnu að byggja fullkomna veðurathugunarstöð i félagi við Kanadamenn i Syðri-Straum- firði á Grænlandi. Kanadamenn munu leggja fram tvo þriðju hluta alls kostnaðar, en danska veðurrannsóknarstofnunin (Det danske meteorologiske institutt) einn þriðja hluta. Kanadamenn leggja til mest af tækjum stöðvarinnar og lána Dönum fyrir þeirra hlut i byggingarkostnaði. Ef allt gengur samkvæmt áætlun, þá á stöðin að taka til starfa nú i janúar 1981. Kanadamenn reikna meðþvi að veðurathugun á þessum stað hafi mikla þýðingu fyrir Norður-Kanada. Laxveiðar við Fœreyjar 1980 Laxveiðar við Færeyjar á s.l ári voru stundaðar af 23 bátum færeyskum og dönskum. Samanlagður heildarafli þessa lax- veiðiflota varð 700 tonn, og söluverð 21 milljón d.kr. Veiðin var stunduö með flotlinu og beitan, sem notuð var, makrill veiddur i Eystrasalti. Laxveiðarnar við Alaska 1979 Árið 1979 var metár i laxveiöi við Alaska. Þá voru þar veiddir 87 milljón laxar. Þetta er mesta aflaár við laxveiðar siðan árið 1941, en þá veiddust þar 104 milljónir laxa. - Annars er búin að vera mikil laxagengd á miðunum við strend- ur Alaska allt frá 1974. Talið er að allur fiskafli Alaskamanna á árinu 1979 hafi verið að verðmæti upp úr sjó 720 milljónir dollara. Auk laxveiðanna eru þarna veiddar ýmsar botnfisktegundir svo sem lúða, risa- krabbi, og rækja, svo og sild. Alaskamenn hafa nær eingöngu lagt sig eftir að veiða dýrar fisktegundir hingað til. Á s.l. hausti var þess getið i erlendum fagblöðum að vesturþýski verksmiðju- togarinn Friedrich Busse væri kominn til Alaska og farinn að veiða þar á vegum heimamanna. I desember-hefti Fiskets Gang, fagriti norsku fiskimálastjórnarinnar, er svo sagt frá öðrum verksmiöjutogara, „Artic Trawler”, sem að undanförnu hefur stundað þorskveiðar undan vesturströnd Bandarikjanna, sér- staklega á miðunum við Alaska. Þessi verksmiðjutogari hafði þá nýverið lagt á land i Seattle-héraði milljón pund af frosnum fisk- flökum, og verðið sem skipið fékk fyrir fiskinn er sagt að hafi verið i kringum 1.25 dollari fyrir pundið. Sérliæðfar veiðar. Ekkert raskar svefnrónni — laxinn veiöist í sjónum. Norsku stórsildveiðarnar s.L haust Svo sem mönnum er áður kunnugt af fréttum, þá leyfðu norsk stjórnvöld veiðar á 10 þús. tonnum af stórsild á s.l. hausti. Þetta veiðileyfi var veitt i algjörri óþökk norskra fiskifræðinga, svo og Alþjóða hafrannsóknarráðsins. Það er siður en svo, að deilur þær sem uppi hafa verið um stærðstórsildarstofnsinsá milli sildveiöimanna og fiskifræðinga hafi minnkað við þetta veiðileyfi. Að undanförnu hafa komið fram háværar gagnrýnisraddir á fundum fiskideilda út af þvi, að stórum fjörðum fullum af sild hafi verið lokað fyrir allri veiði á meðan hin takmarkaða veiði á sild var leyfð. Þá hefur það komið fram i norskum blöðum að sú stórsild sem veidd var hafi verið óvenju mögur. Norskir fiskifræðingar segja að stórsildarveiðin á s.l. hausti muni tefja uppbyggingu stofnsins. Sunnmœringar samþykkja aukna friðun A aðalfundi Fiskifélagsins á Sunnmæri i Noregi höldnum i desember s.l., voru samþykktar nýjar reglur sem gilda fyrir veiðar með þorskanetum frá 1. janúar til 30. april i ár. A þessu timabili er óleyfilegt að hafa net eða önnur föst veiðarfæri i sjó, frá þvi kl. 15 á laugardegi til kl. 12 á mánudegi. Þá er öll þorsk- veiði á miðum Sunnmæringa bönnuð i páskavikunni frá 12 á hádegi miðvikudaginn fyrir skirdag, þar til á mánudegi kl. 13. Þorskveiði á miðum Sunnmæringa á vetrarvertið 1980 var með ailra mesta móti. A siðustu árum hefur hrygning þorsks aukist með hverju ári á þessum miðum, en minnkað á hinum gömlu hrygningarslóðum við Lófót. Tuttugu sardínuniðursuðu verksmiðjur mynda eitt fyrirtæki Þann 18. desember s.l. héldu eigendur 20 sildarniðursuðu- verksmiðja i Noregi sameiginlegan fund þar sem öllum verk- smiðjunum var steypt saman i eitt fyrirtæki, sem ber heitið Norway Foods Ltd. A/S. Þetta nýja fyrirtæki hefur rúmlega 1500 starfsmenn og er gert ráð fyrir að árleg sala þess muni nema 300—400 milljónum n.kr. Starfsskrifstofa fyrirtækisins verður i Stafangri, en söluskrifstofan i Björgvin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.