Þjóðviljinn - 13.02.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 13. febrúar 1981 ÞÍÓÐVILJINN — SIÐA 5
Afmæli írönsku byltingarinnar:
hvað
Enginn veit
tekur við
iranir voru aö halda upp á
afmæli byltingarinnar islömsku
og þeir voru sem fyrr ánægðir
með að vera lausir undan stjórn
keisarans — en höfðu kannski
ekki margt annað að fagna yfir.
Bani-Sadr forseti notaði tækifærið
til að ráðast á það klerkavald,
sem hefur gert honum erfitt fyrir
og minnti þjóðina á gifurlega
fjárhagserfiðleika, sem stafa
bæði af viðskiptabanni sem sett
var á landið vegna gislamálsins
og af styrjöld við lrak. Meira að
segja Khomeini erkiklerkur taldi
sig þurfa að vara klerka við að
skipta sér af málum sem þeir
ekki réðu við.
Danskur kaupmaður, Peter
Br<(ste að nafni hefur ákveðið að
stofna sjóð til styrktar islenskum
listamönnum. Verður árlega veitt
úr sjóðnum 25000 d.kr.
Tildrögin eru þau að Broste sá
viðtal við Forseta lslands Vigdisi
Finnbogadóttur i danska sjón-
varpinu og sagðist hafa heillast af
bjartsýni hennar. Hann ákvað að
tengja styrkina bjartsýninni og
heita þau „Brdstes optimistiske
pris” ( b jartsýnis verðlaun
Brdstes).
Peter Br/)ste rekur stórt og
mikið fyrirtæki og skiptir við
aðila út um allan heim, þar á
meðal kaupir hann vikur frá Is-
FRÉTTASKÝRING
Lausn gislamálsins getur bætt
nokkuð hið alvarlega efnahags-
ástand — með þvi er lett af iran
viðskiptahömlum sem vestræn
riki höfðu sett á landið og oliuút-
flutningurinn gæti farið upp i tvær
miljónir tunna á dag, en hann
nemur nú aðeins einni miljón
tunna. En á hinn bóginn getur
lausn gislamálsins magnað enn
átök milli þeirra afla sem togast
nú á um framvindu hinnar
islömsku byltingar. Gisladeilan,
sem kom lran i heljarglimu við
annað risaveldanna, var eitt af
landi og flytur til Danmerkur.
Hann er all-þekktur i Danmörku
fyrir stuðning við varðveislu
gamalla húsa- t.d. gömlu byggð-
ina i Christianshavn i Kaup-
mannahöfn.
Hinn 28. febrúar verður tilkynnt
formlega um stofnun sjóðsins, en
þann dag verður Vigdis Finn-
bogadóttir stödd i Danmörku i
opinberri heimsókn. Fyrsta út-
hlutun á að fara fram i júni n.k.
og verður dómnefndin islensk.
Það kemur i hlut sendiherra Is-
lands i Danmörku að afhenda
verðlaunin, en Broste segist hafa
góð orð fyrir þvi að Vigdis verði
verndari sjóðsins.
— GFr/—ká
þeim fáu málum sem batt saman
sundraða þjóð: sé ekki eining
innanlands er þaö gamalt ráö að
skapa hana með þvi aö benda á
andskotann utan landamæranna.
Og þurfti ekki lengi að mana
Irani, svo mjög sem þeir hötuðu
Bandarikin eftir stuðning þeirra
við keisaraveldið.
Forsetinn tryggir sig.
Þegar leið að lokum samninga
um gislamálið varð uppi mjög
greinilegur ágreiningur um gisla-
málið milli Bani Sadr íorseta og
hinna „hófsömu” alla sem hann
styðja og þeirra herskáu klerka
sem mestu ráða i þingi og i rikis-
stjórn. Bani Sadr bar það á samn-
ingamenn stjórnarinnar, að þeir
hefðu ekki látið sig fylgjast meö
samningum. Og þegar úrslit
þeirra urðu kunn, notaöi málgagn
forsetans, blaðið tslamska bylt-
ingin, tækifærið til að minna
Rajai forsætisráðherra og hans
liðsmenn, klerka og aöra, þá á, aö
ástæðulaust væri að telja úrslit
málsins „mikinn sigur" fyrir
Iran. Hefðu Iranir i raun ekki haft
annað af Bandarikjamönnum
fyrir gislana en þeir áttu.en hins-
vegar ekkert af auðæfum keisar-
ans erlendis.
Ófarir i stríði.
Bani Sadr hefur viljað tryggja
sig fyrir ámæli ef að mikill kurr
yrði út af þvi að gislunum var
sleppt úr haldi. En hann á erfið-
ara með að verjast ákærum sem
hann verður fyrir vegna þess aö
styrjöldin við Irak, sem hann ber
mikla ábyrgð á sem æðsti maður
hersins, hefur gengið mjög illa. I
siðasta mánuði greip forsetinn til
þess örþrifaráðs aö svara ásök-
unum um aðgerðarleysi meö þvi
aðefna til gagnsóknar gegn írök-
um i Kúzestan. Gagnárásín rann
út i sandinn og Iranir munu hafa
orðið fyrir miklu hergagnatjóni.
Þetta er verulegt áfall fyrir Bani
Sadr, sem má nú heyra áróðurs-
málaráðherra Irak hlakka yfir
þvi að Irakir séu reiðubúnir til að
sitja á hernumdu svæðunum
næstu tiu árin og talar um núver-
andi viglinur sem „ný landamæri
lrak”.
Þrátefli
Það á sér stað einskonar þrá-
tefli milli Rajai forsætisráðherra
og hinna herskáu klerka annars-
vegar og Bani Sadr íorseta, hers-
ins og kaupsýslumanna hins-
vegar. Aðrir aðilar togstreit-
unnar eru smærri — til dæmis eru
bandariskir fréttaskýrendur á
þvi, að sovétvinsamlegur
kommúnistaflokkur, Tudeh, eigi
ekki umtalsverða möguleika á
að ná undirtökum i landinu.
Övissan um framvindu islams-
byltingar er jafnmikil fyrir þvi.
En Vesturveldin reyna bersýni-
lega mjög að finna leiðir til að
styðja við bakið á þeim kosti, sem
þeim finnst skástur, en það er
Bani Sadr forseti. —áb.
Rajai forsætisráðherra og Khomeini: Meira að segja erkiklerkur
varaði klerkavaldið við því að ganga of langt.
Danskur kaupmaður stofnar sjóð
Til styrktar
íslenskum
listamönnum
LÍKAMLEG
EIGINGIRNI
Þjóðleikhúsið
sýnir
LÍKAMINN —
ANNAÐ EKKI
eftir James Saunders
Leikstjóri: Benedikt Árna-
son
Þýðing:
Örnólfur Árnason
Þetta snoturlega gerða stofu-
drama er alveg ljómandi vel
fallið til fram'reiðslu á litla sviði
Þjóðleikhússins með þeirri ná-
lægð sem þar skapast og þeim
möguleikum til eðlilegs og af-
slappaðs leikstils sem hún býður
upp á. Benedikt Árnason kann vel
að nota þessa möguleika og hefur
tekist að setja upp sýningu sem
einkennist af hlýju og tilfinn-
ingum, einlægni og innileik —en
þar eru einnig dregnar hreinar
linur og settar fram skarpar and-
stæður.
I þessu verki Saunders er telft
fram tvennum hjónum sem eru
fulltrúar tvenns konar lifsgilda og
lifssýna. Þau hittast aftur eftir
niu ára fjarvisitr, en áður höfðu
þau átt flókna framhjáhaldssögu,
sem rakin er itarlega i eintölum i
fyrra þætti verksins. Seinni
þátturinn er hins vegar venju-
bundinn natúralismi þar sem lýst
er átökum þegar fólkið hittist
aftur og tekst á um fortiðina og
lifsskoðanir sinar.
Og kemur þá upp úr dúrnum að
önnur hjónin hafa farið til Ame-
riku og frelsast þar inn i eina heil-
mikla sállækningaraðferð, sem
reyndar mun kennd við Arthur
nokkurn Janov og skrifaði hann
bók um aðferðina sem heitir
Frumöskrið (The Primal
Scream). Þessi aðferð mun
byggjast upp á þvi að menn öskra
frá sér vandamál sin og einkum
og sérilagi fortið sina. En heim-
spekin sem þessu fylgir, og nafn
verksins visar til, er fólgin i þvi
að lifa i likama sinum hér og nú,
það eitt skiptir máli. Þetta er eins
konar likamleg sjálfhverfing eða
eigingirni.
Gegn þessari lifsspeki ris
enskukennarinn og skólastjórinn
Margeir. haldinn allri þeirri
taugabilun og drykkjumennsku
sem lækningin hefur bjargað
hjónunum frá, og krefst þess að
Sverrir Hólmarsson
skrifar um WBT'
lortiðin fái sinn rétt, og hugsjón-
irnar og listin og tilfinningarnar.
Og drekkur sig sifellt fyllri á
meðan. Augljóslega eru frelsuðu
hjónin mun heilbrigðari og betur
á sig komin en Margeir og kona
hans, en samt eru það þau sem
vekja samúð áhorfandans.
Þetta liggur i textanum i taum-
lausri sjálfsánægju og eigingirni
Daviðs, sem gerir hann næstum
ómennskan og i mannlegum eig-
indum og breyskleikum Margeirs
og konu hans. Þessar andstæður
eru mjög vel dregnar fram i sýn-
ingunni i gerfi og túlkun leikar-
anna. Sigmundur örn er eins og
vélmenni i hlutverki Daviðs, si-
fellt bros hans er kuldalegt og á
honum sést hvorki blettur né
hrukka. Steinunn Jóhannesdóttir
leikur konu hans, sem er ekki eins
rækilega heilaþvegin og hann og
barf sifellt átak til að halda til-
finningum sinum i skefjum og
varna þvi að fortiðin ryðjist yfir
hana. Þessastöðugu spennu, þetta
hárfina jafnvægi, túlkaði Stein-
unn óaðfinnanlega. Kristbjörg
Kjeld fór létt með að sýna okkur
sveiflukennt og óöruggt tilfinn-
ingalif konu Margeirs, en það var
Gisli Alfreðsson i hlutverki Mar-
geirs sem bar hita og þunga
kvöldsins og kom frá þvi með
mestum glæsibrag. Túlkun hans
var hárnákvæm og einlæg, fram-
sögnin óaðfinnanleg og stig-
andinn i leik hans markviss.
Það er fyrst og fremst óvenju-
lega næmur og blæbrigðarikur
leikur sem gefur þessari sýningu
gildi. Leikritið er snoturlega gert,
en manni þykir á stundum nóg
um hina bresku mælgi sem stund-
um snýst upp i hreint málæði.
Svona mælgi er fjári erfitt að
þýða, en örnólfi Arnasyni hefur
tekist að sigla fram hjá flestum
skerjum og gera úr þessu furðu
lifandi islenskan texta.
HSI
Landsleikur i handknattleik HSÍ
ISLAND - A-ÞYSKALAND
í Laugardalshöll
Föstudaginn 13. febrúar kl. 20.00
Sunnudaginn 15. febrúar kl. 20.00
Forsaia hefst báða dagana k/. 17.30 i Laugarda/shö/l
Síðast sigraði ísland heimsmeistarana
Hvað gerist á móti Ó/ympiumeisturunum? Handknatt/eiksamband ís/ands
Olafur H. Jónsson,
fyrirlíði.