Þjóðviljinn - 13.02.1981, Síða 15
Föstudagur 13. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
M Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
frá & lesendum
Léleg læknaþjónusta
Ari Guðmundsson
hringdi:
— Ég hef veriö að hugsa um
það, hve léleg sú þjónusta er,
sem islenskir heimilislæknar
veita. Yfirleitt eru þeir til við-
Lífeyris-
sjóðir
ríði á
vaðið
Rannveig Sveinsdóttir
hringdi:
— Ég er satt að segja orðin
hundleið á öllu þessu kjaftæði
um vandamál gamla fólksins,
og finnst timi til kominn að farið
verði að gera eitthvað i málinu i
staðinn fyrir að velta þvi fram
og til baka i blaðagreinum.
Ég legg til að lifeyrissjóðirnir
riði á vaðiö og opni banka-
reikning og komi af stað lands-
söfnun i þvi skyni að koma upp
B-álmu Borgarspitalans með
hraði.
Það er gamalt fólk útum allan
bæ sem á peninga og mundi
vilja leggja þessu máli lið. Og
við hin eigum lika eftir aö verða
gömul og ættum að hugsa um
það sem biður okkar.
tals i sima einn klukkutima á
dag, og er ekkert tillit tekið til
þess að sjúklingar eiga ekki
alltaf auðvelt með að komast i
sima, og þvi siður að liggja i
simanum allan þennan klukku-
tima, þvi oftast er á tali allan
timann hjá þeim læknum sem
hafa eitthvað að gera.
Ég var um tima staddur i
Cabella, sem er smábær i Hol-
landi, rétt hjá Rotterdam. Svo
vildi til að litil stúlka i húsinu
þar sem ég bjó fékk blóðnasir.
Ég þóttist fullfær um að hjálpa
henni, þar sem ég hafði lært
hjálp i viðlögum og fleira þess-
legt, en það dugði ekki, og náði
ég þá i lækni i sima. Hann kom
eftir tæpt korter, stöðvaöi blóð-
nasirnar, og kenndi mér
hvernig ég ætti að meðhöndla
telpuna. Eftir örstutta stund
kom bill frá lyfjabúö með lyfin
sem læknirinn hafði fyrirskipað,
þvi telpan hafði misst talsvert
Guöjón Sigurf innsson
hringdi:
— Mig langar til að koma
þeirri spurningu á framfæri,
hvort lögð veröi útsvör i vor á þá
sem aðeins hafa lifeyri og tekju-
tryggingu sér til framfærslu.
Ég veit um dæmi þess að út-
svar hefur verið lagt á fyrir-
fram og siðan endurgreitt siöar
af blóði. Reikninginn fengum
við svo sendan mánuði siðar.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér
um daginn þegar ég fékk slæma
inflúensu og reyndi að ná sam-
bandi við helgidagalækni. Ekki
var hægt að fá að tala við hann i
sima og fólkið sem svaraði gat
engar ráðleggingar gefið. Ég
varð þvi að biðja um að fá lækn-
inn heim og hann kom —- eftir
hálfan annan klukkutlma. Siðan
hringdi hann i lyfjabúð, og hefur
sennilega ætlast til þess að ég
klæddi mig upp úr rúminu og
færi sjálfur að ná i lyfin.
Mér finnst oft að læknar hugsi
fyrst og fremst um að græöa.
Margt af þvi sem flokkast undir
lélega þjónustu má áreiðanlega
bæta án peningaútláta, aðeins
með svolitilli hugsun. Þetta er
engum einstökum lækni að
kenna, heldur er hér um þjóð-
félagslegan sjúkdóm að ræða,
sem þarf að lækna.
á árinu. Þetta getur komið sér
illa fyrir menn sem eru nýhættir
að vinna. Það er oft mikið
skattafarganiö á þá menn, ég
þekki það af eigin raun. 011
hækkun á tryggingunum fer
beina leiö til baka. Mér finnst að
réttara væri að hækka trygging-
arnar minna, en láta okkur hafa
þær friar.
Verða útsvör lögð á líf-
eyri og tekjutryggingu?
Gátur
1. Hvað er það sem getur
ekki gengið en getur þó
hlaupið?
2. Hvaða jarðarhluti inni-
heldur annan jarðar-
hluta?
3. Hvaða dýr er það sterk-
asta?
4. Hvernig er hægt að
hafa kjötið ferskt allt
árið?
5. Hvað þarf úlfurinn að
ganga langt inn í skóginn
til að eiga jafn langt út úr
honum aftur?
6. Hvað er það sem kuld-
inn fær til að svitna?
7. Hvað er það er fylgir
öllum?
8. Hvaða skeið er aldrei
borðað með?
9. Hvað er það sem alltaf
er hægt að skjóta?
10. Hvernig er hægt að
skrifa rautt með svörtu
bleki?
Svör við gátum
1. Kona að mjólka kú.
2. Regnboginn
Brandari
Faðirinn: Hvað hefur þú
nú lært í skólanum i dag?
Einar: Pabbi, ég hef
gleymt þvi öllu.
Faðirinn: Gleymt því
öllu. Það er leiðinlegt.
Hann Siggi litli, félagi
þinn, man allt þegar hann
kemur heim.
Einar: Já, hanná líka svo
miklu styttra heim.
Barnahornid
Finndu fimm villur
í f Ijótu bragði virðast þessar tvær myndir eins en vii
nánari athugun kemur í I jós að það vantar f imm atrið
á neðri myndina. Getur þú fundið þau?
Morðgátan
Biómyndin i kvöld nefnist
Morðgátan (The Detective).
Leikstjóri er Gordon Douglas,
aðalhlutverk leika Frank Si-
natra og Lee Remick.
Lik af ungum pilti, syni
auðugs borgara, finnst illa
leikið. Lögreglumaðurinn Joe
Leland fer á stúfana og með
þvi að rekja atburðina fyrir
morðið fer sterkur grunur að
beinast að fyrrverandi her-
bergisfélaga piltsins. Við
nánari eftirgrennslan kemst
Joe að þvi að sá grunaði er
kynvilltur. Löggan tekur hann
fastan en hann er ekki aldeilis
á þvi að játa. Þá þjarma þeir
mjög að honum til að fá fram
játningu. Inn i þetta blandast
svo að sjálfsögðu ástamál lög-
reglumannsins. Hann giftist
ungri konu sem lifað hafði
skrautlegu lifi og hjónabandið
varð eitthvað rósótt.
Þokkaleg leynilögreglu-
mynd, segir Kristmann
Eiðsson þýðandi
myndarinnar. — S.K.
Frank Sinatra leikur aöalhlut-
verkið i föstudagsmyndinni.
>. Sjónvarp
TT kl. 22.00
Fasteignamarkaöurinn verður á dagskrá i þættinum i dag.
Innan stokks og utan
í þættinum „Innan stokks og
utan". i kvöld verður ma.
fjallað um fasteignamarkað
eins og hann er i dag. Þeir
Ragnar Tómasson frá
Fasteignaþjónustunni og Jón
Guðmundsson frá Eigna-
miðluninni fræöa okkur um
það.
Þá verður og rætt viö félaga
i S.A.A., sagt frá fjölskyldu-
námskeiðum sem þar eru
haldin, og rætt við þátt-
takanda námskeiðsins.
• Útvarp
kl. 15 .00
Myndlistaskólinn verður
sóttur heim og talaö við
Katrinu Briem skólastjóra.
Litið verður inn i kennslustund
hjá yngstu nemendum
skólans, en þeir eru 5—10 ára.
Sigurveig Jónsdóttir og
Kjartan Stefánsson stjóran
þættinum. _
Efnameng
un á vinnu-
stöðum
i kvöid er á dagskrá útvarps
seinni þátturinn um vinnu-
vernd, sem er i umsjá Gylfa
Páls Hersis, Sigurlaugar
Gunnlaugsdóttur og Þrastar
Haraldssonar. Fjallað verður
um cfnamengun á vinnu-
stöðum.
Lýst er vexti efnaiðnaðar og
eftirliti með efnamengun i
andrúmslofti vinnustaða,
greint frá afleiðingum
hennar: krabbameini,
heilaskemmdum ofL.Tekin
eru dæmi af einstökum at-
vinnustéttum og einkum
dvalið við áhrif leysiefna
(þynnis) sem málarar nota.
• Útvarp
kl. 21-45
Þá eru plastefninu epoxy gerð
sérstök skil, greint frá nota-
gildi þess og rakin atburðarás
i deilubyggingarverkafólksog
yfirvalda i Kaupmannahöfn
1978—1979, sem snerust um
hversu hættuleg epoxy væri og
hvort yfirvöld gætu skikkað
verkafólk til að vinna með
ákveöin efni.
Að lokum eru tiundaöar
helstu kröfur verkafólks i
baráttunni gegn efnamengun
á vinnustööum.
Þess má að lokum geta, að
Gylfi Páll Hersir vinnur nú
ásamt öðrum að umfangsmik-
illi vinnuverndarkönnun i
járn- og byggingariðnaði á
Akureyri og á höfuðborgar-
svæðinu.