Þjóðviljinn - 25.02.1981, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 25.02.1981, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 25. febrúar 1981 KÆRLEIKSHEIMILIÐ viðtalið AAér finnst gott það sem er innaní appelsínunni, en ekki skorpan. Samferöa i Hvita húsiö (tir „Neuen Kronen Zeitung Glæpir Þjóðfélagiö undirbýr glæpinn, glæpamaöurinn fremur hann. Buckle. Sá sem græöir á glæpnum er sekur. Franskur málsháttur. Viö setjum fjöldann allan af lögum, sem framleiða glæpa- menn, og svo setjum við örfá lög sem refsa þeim. Tucker. Það er ekki þjófurinn sem er hengdur, heldur sá sem staðinn var að verki við að stela. Tékkneskur málsháttur. Skólinn í hnotskurn Guö elskar hina fátæku, en hjálpar þeim riku, svo aö þeir veröi ekki afbrýöisamir. Rætt við Lýð B. Skarphéðinsson, nemanda í Garðaskóla: Gef skít í stióm- mál! Ég hitti aö máli Lýö B. Skarp- héöinsson nemanda i Garöa- skóla og ræddi viö hann um heima og geima. Hans aöal- áhugamál eru Iþróttir og þá helst fótbolti, körfubolti og frjálsar. Hann er lika meö mót- orhjóladellu og á stórt og fiott mótorhjól. En þann 21. sept. s.l. varö hann fyrir slæmu óhappi þegar hann var á leið heim úr skólan- um. Þaö skeði þannig að sendi- ferðabill ók fyrir hann og klessti á hann. Þá flaug Lýöur upp i loftið, lenti á löppunum og hljóp yfir götuna. Þá fann hann að eitthvað var ekki eins og þaö átti að vera, hann datt á grasiö og gat ekki hreyft sig. Þá sagð- Lýöur á hjólinu: Ekki alveg jafn kaidur. ist hann hafa filaö grasiö þang- að til sjúkrabfllinn kom og flutti hann upp á spitala. Þar var öðr- um fætinum „pakkað inn” og svo var hann fluttur heim. Hann haföi miklar kvalir i fætinum og gat ekkert sofið. Var þá farið að athuga þetta betur og fóturinn sem læknirinn taldi að hefði brákast var mölbrotinn. Þetta kæruleysi læknisins hefði getað kostaö Lýð fótinn. — Ertu þá hættur að nota hjól- ið? Nei, ég gat varla beöið eftir aö komast aftur á það,' en ég er ekki alveg jafn kaldur. — Ertu alveg búinn að jafna þig? Ekki alveg nei, en nú fyrir skömmu gat ég aftur fariö aö stunda iþróttir. — Hvernig er félagslifið i Garöaskóla? Þaö er mjög blómlegt og alltaf eitthvað að ske. Ég tek þó fremur litinn þátt i þvi þar sem ég bý í Hafnarfiröi. — Ertu nokkuð farinn aö hugsa út i framtiðina? Já, ég hef það allt á hreinu. Næsta vetur ætla ég i iþrótta- brautina i Garðabæ og taka stúdentspróf úr henni þaðan i I.K.t. á Laugarvatni. — Hvar stendur þú i stjórn- málum? Ég gef skit i þau. —Só (Laugvetningur I starfskynningu) Ljóða- kverið varð til á fimm tímum Bækur veröa til meö ýmsum undariegum hætti. Sjón og Matthías Sig. Magnússon eru I Fjölbrauta- skólanum i Breiðholti. Þeir eru iika í hópi súrrealista, sem kallar sig Medúsa. Súrrealistar hafa veriö til i meira en fimmtiu ár. Þeir hafa áhuga á þvi að krækja i sitthvað upp úr undirvitundinpi og festa á mynd eða i texta. Nú. Súrrealistarnir tveir settu saman litið kver með myndum og kölluöu það „Hvernig elskar maöur hendur?”. Gáfu það út sjálfir I hundrað eintökum. Og af þvi aö þeir eru ekki neitt venjulegir, þá var aðferöin heldurengin venjuleg stritvinna i leit að hinu rétta oröi, hinni réttu mynd. Hún var svona, aö þeirra sögn: „Ljóðið „Hvernig elskar maður hendur?” var ort á 5 tim- um sunnudagskvöldiö 25. janúar s.l.. Við vélrituöum það upp átómatiskt og reyndum aö vera undir sem mestum áhrifum frá hvor öðrum. Ljóöið var þvi sem næst fullgert eftir fyrstu upp- skrift, stöku oröalagsbreytingar voru þó gerðar. Við vilju'm benda lesendum á að varasamt er að lesa ljóöið sem bók- menntaverk. Fyrir okkur vakti eingöngu að skrifa þvi sem næst hreinan súrrealiskan texta. Félagi okkar I Medúsu, Þór Eldon, vann myndirnar á svipaðan hátt og ljóðiö var unniö. Hann gerði þær um leið og erindin voru lesin upp. Hér eftir munu fiskarnir ganga á stultum. Þú gætir fundið klæðskera i hnakkagróf- inni.” Þegar Sjón sýndi okkur kverið játaöi hann, að þeir félagar væru ekki alveg heittrúaðir súrrealistar (allsstaðar er efinn að vesinast, þaö má nú segja). En, sagði Sjón, við reynum samt aö takast á við hann i sinni sterkustu mynd, en þvi þora fáir.... Það er munur að vera maður.... Djöfuls læti.... Siggi litli þvertók fyrir að borða kartöflurnar með kvöld- matnum. Þaö var sama hvaö móðir hans sagði.þessu varð ekki haggaö. Hún sagöi honum þá að ef hann borðaði ekki kart- öflurnar yrði guö reiöur. Siggi lét sig ekki þrátt fyrir þessa alvarlegu hótun. Um nóttin'a gerði þrumur og eldingar svo allt lék á reiöiskjálfi. Móðir Sigga vaknaði og hún fór að huga að syninum, hvort hann væri ekki hræddur i þessu mikla veöri. Hann var ekki i rúminu sinu og þegar móðir hans fór aö leita fann hún Sigga sitjandi fyrir framan Isskápinn borðandi kartöflur i griö og erg og taut- andi fyrir munni sér: Djöfuls læti eru þetta út af fáeinum kartöflum. 1. bekkur: Orð kennarans eru lög. 9. bekkur: Nemendur lesa upp lagagreinar yfir kennaranum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.