Þjóðviljinn - 25.02.1981, Qupperneq 3
Miðvikudagur 25. febrúar 1981 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3
Juan Carlos konungur Spánar vakti aðdáun hjá soteio verðandi forsætisráðherra t.v. og Suarez .
þjóðinni með framkomu sinni i fyrrakvöld, fráfarandi forsætisráðherra á Spáni.
þegar valdaránstilraunin var gerð.
UPPREISNARTILRAUNIN A SPANI
Litlu munaði að
tilræðið tækist
s
Utvarpað
frá veislu
í Kristjáns-
borgarhöll
tslenskir útvarpshlustendur
eiga þess kost að fylgjast með
veisluhöldunum i Kristjáns-
borgarhöll i kvöld. þegar Margrét
Danadrottning heldur forseta ís-
lands, Vigdisi Finnbogadóttur,
veislu.
Útsendingin hefst kl. 21 og
stendur i þrjá stundarfjórðunga.
Flutt verða ávörp þjóðhöfðingj-
anna við þetta tækifæri, og talar
Margrét fyrst og siðan Vigdis. A
eftir verða ávörpin flutt i is-
lenskri þýðingu.
— ih
8. helgarskákmótið
í Vík í Mýrdal
um helgina
Fríar ferðlr
og gisting
Attunda helgarskákmót Tima-
ritsins Skákar og Skáksambands
tslands verður haldið i Vik i Mýr-
dal um næstu helgi. Búast má við
óvenjumikilli þátttöku og eru
horfur á að um fjölmennasta og
„sterkasta” helgarskákmótið til
þessa verði að ræða.
Meðal þátttakenda verða
Friðrik Ólafsson, Guðmundur
Sigurjónsson.Helgi Ólafsson, Jón
L. Arnason, Margeir Pétursson,
Jóhann Hjartarson, Ingvar
Asmundsson, Asgeir Þ. Asgeirs-
son og Elvar Guðmundsson.
Eins og áður eru þrenn
verölaun i boði, 3, 2 og 1 þúsund
krónur. Unglingar yngri en 14 ára
keppa um vikudvöl á skákskólan-
um að Kirkjubæjarklaustri.
Aukaverðlaun fyrir besta
árangur i hverjum fimm mótum
eru kr. 10. þúsund. Helgi Ólafsson
náöi þessum verðlaunum fyrir
bestan árangur úr fimm fyrstu
mótunum. Þetta er þriðja mótið i
annarri lotu og fást 20 stig til
aukaverölauna fyrir 1. sætið, 15.
stig fyrir annað sætið, 12 fyrir 3.
sætið og 10 fyrir 4. sætið o.s.frv.
Ef keppandi verður einn efstur
fær hann 5 aukastig og 10 auka-
stig fást fái hann alla 6 vinn-
ingana.
Teflt er á föstudag kl. 14 til 18 1.
umferð, 20 til 24 2. umferð. A
laugardag er teflt ki. 9. til 13 3.
umferð, og kl. 15 til 19 4. umferð.
A sunnudag er teflt frá kl. 8.30 til
12.30 5 umferð og siðasta umferð
frá 14 til 18. A sunnudagskvöld
verður siöan haldið heim að lok-
inni matarveislu og verðlauna-
afhendingu i boði heimamanna.
Fariö verður frá BSl föstudags-
morgun kl. 8 sundvislega.
Væntanlegir þátttakendur fá
friar ferðir og gistingu, en þurfa
að greiða mat og þátttökugjald.
Innritun er hjá Stefáni Þormar I
Vik, simi 99-7171 h. og 7112 v. og
Jóhanni Þóri i sima 31391 og 31975
v. og 15899 h.
— ekh
Þjóðviljinn ræddi i gær
við tvær islenskar konur
sem búsettar eru á Spáni/
önnur i Barcelona en hin i
Torremolinos og spurði
um atburðina í fyrradag
þegar Antonio Tejero# of-
ursti og gamall sam-
starfsmaður Franco
gerði tilraun til valda-
ráns.
Þórhildur ÞorsteinsdóUir
hefur búið i Barcelona á Spani i
mörg ár og þekkir vel til
spænskra þjóðmála. Hún sagði
aö kannski gerðu menn utan
Spánar sér ekki grein fyrir þvi
hve litlu munaöi að valdaránið
tækist. Greinilegt væri, að tveir
aðal forsprakkarnir, Tejero og
Bosch hershöfðingi I Valencia,
hefðu verið búnir að ræða við
kollega sina úr öllum deildum
hersins og hafi loforö þeirra um
stuðning legið fyrir, þvi hafi
valdaránstilraunin veriö fram-
kvæmd. En þegar til átti að taka
gugnuðu aðrir yfirmenn hers-
ins, utan þessir tveir og raunar
bakkaði Bosch fljótlega.
Þórhildur sagði að framkoma
Juan Carlos, konungs hefði
vakið mikla aðdáun spönsku
þjóðarinnar. Hann mun hafa
hringt i alla sina menn I hern-
um, en hamr hefur sem æðsti
maöur hersins lagt sig eftir að
kynnast og vingast við yfirmenn
hersins. Þvi næst hélt hann her-
ráðsfund i skyndi og var þar
með búinn að tryggja sér holl-
ustu hersins. Þvi næst kom hann
fram i útvarpi og sjónvarpi og
talaði til þjóðarinnar og skoraði
á hana að sýna lýðræðinu holl-
ustu, láta eins og ekkert hefði
gerst, mæta til vinnu daginn
eftir o.sv.frv. Það fer ekki á
milli mála aö konungur hefur
styrkt sig mjög i sessi með þess-
ari frábæru frammistöðu sinni
sagði Þórhildur.
Hún sagði að uppreisnarmenn
ættu ekki stuðning meirihluta
þjóöarinnar, en sjálfsagt væri
æði stór hópur sem hefði verið
tilbúinn að fylgja þeim. Sann-
leikurinn væri sá, að þjóðin væri
orðin mjög óánægð með rikis-
stjórn Miðflokkasambandsins
sem þætti alltof aðgerðarlitil við
lausn aðkallandi vandamála.
Atvinnuleysi færi vaxandi, væri
um 12% meðal þjóðarinnar og
fólk væri orðiö þreytt á þvi hve
illa gengi að ráða niðurlögum
Framkoma kon-
ungsins Juan
Carlos vakti
aödáun þjóðar-
innar, segja þær
Þórhildur
Þorsteinsdóttir
og Gréta Marin
Pálmadóttir,
sem búsettar
eru á Spáni
hryðjuverkahópa ETA i Baska- m
landi. Hún benti á að spænska ■
þjóðin væri ekki vön vestrænu •
lýðræði og margir segðu sem J
svo aö ef þetta væri lýðræöi, þá I
vildi það eitthvert annað ■
stjórnarform.
Grdta Marin Pálmadóttir býr u
i Torremolinos i Malaga á ■
Suður-Spani. Hún sagði, eins og I
raunar Þórhildur lika.að allt ■
hefði veriðmeðkyrrum kjörum, |
eins og ekkert hefði gerst, þar ■
suöur frá. Hún sagðist aðeins I
hafa skroppið út um kvöldið en J
allar götur hefðu verið mann- ■
lausar, fólk hefði allt setiö við I
útvarp og sjónvarp að fylgjast ■
með framgangi mála. Gréta |
sagði að talið væri að Jaime ■
Milans Del Bosch i Valencia I
væri talinn aðal maðurinn á bak ■
við valdaránstilraunina. Tejero ■
hefði sagt eftir aö hann haföi I
tekiö þinghúsiö og þingmennina J
i gislingu að Bosch myndi koma |
innan 15 minútna og ávarpa ■
þingið, en Bosch kom aldrei I
frekar en aðrir hershöfðingjar "
sem munu hafa verið búnir að ■
gefa loforð um stuðning, þeir ■
gugnuðu á siðustu stundu. Gréta í
sagði að þar syðra heföi fólk al- |
mennt dáðst mjög að framkomu ■
konungs þarna um kvöldið. I
Hann ætti án vafa mestan þátt I m
þvi að samsærið mistókst. Hún ■
sagðist ekki hafa hitt neinn ■
mann, sem mælti þessu sam- Z
særi bót eða lýsti yfir stuöningi I
við samsærismenn. ■
Sú frétt barst út á Spáni i gær, I
að AntonioTejeroyrði dæmdur i ■
20 ára fangelsi fyrir valdaráns- |
tilraunina. Það vakti athygli að ■
hann mætti með hinn þrihyrnda ■
hatt, hinna hötuðu „Borgar- J
varða” Guardian Civil, öryggis- ■
lögreglu frá timum Francos, ■
sem haföi álika völd og SS á "
timum Hitlers meðan Franco |
var og hét, en hefur nú að mestu ■
verið lögð niður.
— S.dór "
.........._.J
Líf og land:
Réttarhöld
um Reykja-
víkurflugvöll
„Ber að leggja Reykjavikur-
flugvöll niður?” Ýmsir telja að
svo sé. Aðrir segja það fásinnu.
Er annað hvort sjónarmiðið rétt-
ara? Ætla mætti að I Vatns-
mýrinni mætti reisa amk. tiu þús-
und manna byggð. Aðrir leggja
meira upp úr að halda þeirri að-
stöðu sem flugvöllur I hjarta
borgarinnar veitir.
Hinn 1. mars nk. mun Lif og
Land efna til almenns borgara-
fundar um flugvallarmálið. Tveir
lögmenn,þeir Jón E. Ragnarsson
og Ragnar Aðalsteinsson, hafa
verið kallaðir til að koma með rök
og gagnrök i máli þessu. Munu
þeir leiða fram ýmis vitni máli
sinu til stuðnings.
Stjórnandi fundarins verður dr.
Gunnar G. Schram, prófessor. Aö
vitnaleiðslum loknum mun hann
gera kviðdómi (tólf borgara sem
valdir hafa verið af handahófi úr
þjóðskrá) grein fyrir skyldum
sinum. Dómurinn mun þvi næst
ganga afsiðis, ráða ráðum sinum
og að lokum fella upp dóm i heyr-
anda hljóði.
Aðalfundur Lifs og Lands
verður haldinn á morgun fimmtu-
daginn 26. febrúar i stofu 101 i
Lögbergi, húsi Lagadeildar Há-
skóla tslands, klukkan 20:30.
A fundinum verða venjuleg
aöalfundastörf. Veröa kosnir
tveir stjórnarmenn. Tillögur
stjórnar um breytingar á félags-
lögum verða bornar undir at-
kvæði. Þá veröur kosiö i nefndir
og fjármál og önnur málefni
félagsins rædd.
Þær tillögur um lagabreytingar
sem fjallað verður um á þessum
aðalfundi fela I sér að komiö yröi
á fót sérstöku trúnaðarmanna-
ráði i þvi skyni að skapa tengsl
viö landsbyggðina.
Loðnuverðið
er komið
Akveöið hefur verið nýtt lág-
tnarksverð á ioönu og loðnu-
hrognum frá 1. janúar til loka
vetrarloðnuvertiðar 1981 og varð
samkomulag um það i Verðlags-
ráði.
Verðið er sem hér segir:
Fersk loðna til frystingar, hvert
kg: kr. 1.40
Fersk loðna til beitu og fryst-
ingar sem beita og fersk loðna til
skepnufóðurs, hvert kg: kr. 0.60
Loðnuhrogn til frystingar,
hvert kg: kr. 3.00
Afhendingarskilmálar eru
óbreyttir frá þvi, sem veriö hefur.
Nýlistasafnið
Gjörnmgavika
Gjörningavika stendur nú yfir I
Nýlistasafninu viö Vatnsstig,
einsog sagt hefur verið frá hér I
blaðitiu. Vikan hefur nú verið
framlengd til laugardags og hafa
fleiri gjörningamenn bæst i hóp-
inn.
Dagskráin fram til 'augardags
veröur svoisem hér segir:
t kvöld • Kristin Ragnars-
dóttir, Finnbogi Pétursson og
LarsEmil. Fimmtudag: Sigurjón
Sigurðsson (Sjón), Rúri og Helgi
Friðjónsson. Föstudag: Elias
Daviðsson, Eggert Einarsson og
Asta Rikharðsdóttir. Laugardag:
Arni Ingólfsson og Tryggvi Han-
sen.
Gjörningarnir hefjast kl. 20.00
öll kvöldin. — ih
Vel við hæfi
Við hér á Þjóðviljanum
erum mjög ánægðir með
það hve mikill áhrifamátt-
ur blaðsins er. I gær skýrir
Morgunblaðið frá því að
blaðamaður þess hafi
ásamt Lúðvík Jósepssyni,
fyrrum ráðherra og for-
manni Alþýðubandalags-
ins, farið og heimsótt Véla-
verkstæði J. Hinrikssonar
og þar hafi Lúðvík lýst því
yfir að ,,þetta væri fínasta
hús”.
Það sem blaðamaður Mbl.
segir ekki frá er, að i tvo daga
áður en hann og Lúðvik komu i
WjW«0. lýt
}. UUttHttM
heimsókn, var unnið að þvi að son, hreinsa það allt og snurfusa.
lagfæra húsnæðið hjá J. Hinriks- Og það var einmitt það sem
greinin hér i Þjóðviljanum á dög-
unum átti að leiða af sér, aö
aðbúnaður starfsmanna á verk-
stæðinu væri bættur. Og það hefur
gerst.
Þvi var það vel við hæfi að
bjóða Lúövik Jósepssyni að skoöa
þær lagfæringar sem Þjóö viljinn
knúði fram, hver annar var betur
sæmdur af þvi að sjá þær
fyrstur? Eins var þaö vel viö hæfi
að bjóða blaðamanni frá Mbl. aö
fylgjast með ef það mætti verða
til þess að það ágæta blað tæki við
sér i þessum efnum og lærði
nokkuð af Þjóðviljanum. - S.dór.
„Þetta er fínasta hús“
LútU'ik Jé s-
SSftf JSJSSJTST hcimmkn n
ÍS.-CTSrStfS vHacerkstœdi
■' •'*'*"* “ J. Ifínriktt-