Þjóðviljinn - 02.04.1981, Qupperneq 1
i gær
UOWIUINN
Fimmtudagur 2. april 1981—77. tblæ46. árg.
Gjaldið fyrir 20 miljón dollara framlag í flugstöðina:
■
| Barnalög samþykkt
■
IFrumvarptilbarnalagavarsamþ. sem lög frá alþingi í gær.
Frumvarpið hefur fimm sinnum áður veriö lagt fram á alþingi,
• cn ekki náð fyrr fram að ganga.
It meðförum alþingis i vetur tók frumvarpið nokkrum breyt-
ingum.
Eftirfarandi kaflaheiti gefa nokkra hugmynd um efni lag-
• anna:
IFaðerni skilgetins barns. Faðerni óskilgetinna barna. Fram-
færsla barna. Greiðsla framfærslueyris og innheimtuúrræði.
Lögsaga islenskra dómstóla um faðerni barna. Foreldraskyldur,
■ forsjá barna og umgengnisréttur. Mál til faðernis barna. — þ
I
J
Sprengjugeymsla, jarðstöð
og AWACS-
heimild?
Haustið 1977 samþykkti Einar Ágústsson þáver-
andi utanrikisráðherra að sprengjugeymsla og
jarðstöð íyrir gerfihnetti yrðu settar á fram-
kvæmdaáætlun Bandarikjahers á íslandi. Hörður
Helgason ráðuneytisstjóri i utanrikisráðuneytinu
hefur staðfest þetta.
Vorið? Áreiðanlega á leiðinni! — Ljósm. Ella.
Kjúklingar í Straumsvík
Fl úormengunin langt
yfir hættumörkunum
Sprengjugeymslan hefur þegar
verið byggð og jarðstöðin er i
byggingu. Athygli vekur að
samkvæmt skýrslu Benedikts
Gröndals þáverandi utanrikis-
ráðherra frá þvi i október 1979
kom sú hugmynd upp i þessari
sömu ferð Einars Agústssonar til
Bandarikjanna, að hugsanlega
gæti orðið um beint framlag
Bandarikjamanna til flugstöðv-
arinnar ef hún yrði reist i tvenn-
um tilgangi. Aður höfðu
Bandarikjamenn þverneitaö ósk-
um rikisstjórnar Geirs Hall-
grimssonar i þessa veru.
Verkfall
stundakennara:
Stúdentar
ísamúðar-
verkfall?
Verkfali slundakennara i
lláskóla islands hófst I gær-
morgun og lagðist kennsla
víða niður. Stundakennarar
inna af hendi um helming
þeirrar kennslu sem fram
fer innan skólans og eru þeir
um 5(io taisins.
Kröfur stundakennara
beinast einkum að endur-
skoðun á kjarasamningi
þeirra og þeim aðstæðum
sem stundakennarar búa við
innan skólans, en fæstir hafa
nokkra vinnuaðstöðu innan
veggja hans.
Mjög stór hluti stunda-
kennara við H.t. kennir
aðeins fáar stundir, en um 50
munu kenna 5 fyrirlestra á
viku eða meira, og margir
þeirra hafa kennsluna sem
aðalatvinnu.
1 gær féll kennsla niður i
mörgum greinum. Islensku-
og bókmenntafræðinemar
höfðu áður safnþykkt aö
mæta ekki og sýna'á þann
hátt stuðning sinn við
málstað stundakennara og
Félag nemenda i heimspeki-
deild samþykkti á fundi
siðdegis i gær að hefja þegar
i stað samúöarverkfall.
—ká
Sjá baksiðu
Gat heimild
1 mars 1978 hóst endurnýjun á
orrustuþotum hersins á Keflavik-
urflugvelli og 23. september kom
hingaö i fyrsta sinn AWACS-fljúg-
andi stjórnstöð i atómstriði.
Hörður Helgason ráðuneytis-
stjóri utanrikisráöuneytisins
hefur staðfest að ákvöröun um
komu AWACS-vélanna hafi verið
tekin „einum til tveimur"
mánuðum áður en sú fyrsta lenti
hér. Það hefur þvi væntanlega
verið eitt af siðustu embættis-
verkum Einars Ágústssonar áður
en hann lét af embætti að gefa
heimild til þess að AWACS-vél-
arnar hefðu hér aðstöðu.
Siðari rikisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar var formlega sett á
laggirnar 1. september 1978.
Athyglisvert er i þessu sambandi
að þaö var i mai 1978 sem banda-
riski sendiherrann i Reykjavik og
Einar Ágústsson höfðu meö sér
nótuskipti, þar sem m.a. kom
fram loforð frá Bandarikjastjórn
um að setja fé i flugstöðina.
Það er ljóst að frá hausti 1977 til
hausts 1978 eru teknar afdrifa-
rikar ákvarðanir og veittar þýö-
ingarmiklar heimildir, sem tákn-
uðu aukin umsvif Bandarikja-
hers og vaxandi hernaðargildi
herstöðvarinnar sem meöal
annars fólst i þvi að tengja hana
enn frekar árásarkerfi banda-
riskaflotans á Norður-Atlants-
hafi.
Lofað framlagi
Þegar dagsetningar i þessu
sambandi eru skoðaðar fer ekki
hjá þvi að oft hafi verið ályktað af
minna tilefni, aö Bandarikja-
menn hafi i þessu tilfelli viijað
smyrja hjól ákvöröunartökunnar
á tslandi með loforði um milljóna
dollara framlag til ílugstöðvar-
innar.
Það var svo i júli 1979 sem
embættismenn lslands og
Bandarikjamanna undirrituðu
minnisblað þar sem Bandarikja-
menn skuldbinda sig tú þess að
„greiða ekki meira en 20
milljónir dollara", enda höfðu þá
veriö gefnar allar þær heimildir
til aukinna umsvifa, sem þeir
æsktu þá. Ekki verður séð að
Benedikt Gröndal utanrikisráð-
herra hafi i sinni tiö veitt heimild-
ir fyrir meiriháttar framkvæmd-
um eöa umsvifaaukningu, nema
hvað liklegt er að hann hafi veitt
heimild til endurnýjunar á
Orion-vélunum, en sveit meö nýj-
ustu gerð þeirra véla kom hingað
fyrst i febrúar 1979. —ekh.
Sjá 4. síðu í
Þaö liggur Ijóst fyrir að
kjúklingar frá hænsnabú-
inu sem var við Straums-
vík fyrir nokkrum árunv
drápust úr flúormengun.
Þessar upplýsingar komu
fram í erindi prófessor
Lennarts Krook frá Corn-
ellháskólanum í Banda-
ríkjunurrt sem hann flutti
á vegum Liffræðistofnun-
ar H.i. í gær.
! Prófessor Krook er hingað
| kominn til að bera vitni i máli
j kjúklingabóndans frá Straums-
vik, sem hann á i við Alverið.
Bóndinn sendi kjúklinga til Corn-
ellháskóla til rannsóknar og
niðurstöðurnar sýna að magnið af
flúorsamböndum sem fundust i
beinum kjúklinganna eru langt
yfir hættumörkum.
Krook hóf fyrirlestur sinn á þvi
aö sýna flúormengun á landsvæð-
um Cornwall Island i New York
riki i Bandarikjunum. Þar kom
fram flúoreitrun i nautpeningi.
Krook sýndi myndir af tönnum i
ungum kálfum (3 ára) sem bæði
voru rotnar og étnar. Flúorsam-
bönd hafa mikil áhrif á myndun
beinanna og i kálfunum mynduð-
ust beinin ekki eins og þau áttu að
gera, vefurinn næstur tönnunum
var dauður og sömu einkenni
komu fram i öðrum beinum.
Kálfarnir voru allt að þriggja
til fjögurra ára þegar rannsóknir
voru gerðar á þeim, en kjúkling-
arnir voru aðeins 12 vikna. Samt
kom fram miklu meira magn af
flúor i beinum þeirra eða 1050—
1900 hlutar af miljón, i beinaösku,
en hættumörkin eru talin á bilinu
250—300! Það er þó ekki magnið
sem skiptir mestu, heldur hvaða
efnasambönd það eru sem safn-
ast fyrir i likama dýranna.
t Bandarfkjunum er vandamál-
ið þess eðlis að eitrunin berst frá
kúnni tíl kálfsins, en hér var um
það að ræða að kjúklingarnir urðu
fyrir mengun, að öllum likindum
loftmengun frá Alverinu.
A fyrirlestrinum var mættur
Svisslendingur frá Aluswiss sem
beindi nokkrum fyrirspurnum til
prófessorsins um það hvort þessi
eitrun i fuglunum gæti ekki átt sér
aðrar orsakir. Krook svaraöi þvi
til að einkennin i beinunum og
efnasamböndin i beinaöskunni
sýndu öll flúoreitrun. Þá var hann
spurður hvort hugsanlegt væri að
flúor hefði borist i fuglana gegn-
um fóðriö, en hann kvað þaö há-
mark sem hugsanlega gæti borist
i dýrin á þann hátt vera langt
undir þeim mörkum, sem fram
komu.
Niðurstöðurnar benda til þess
eins og áður segir að flúormeng-
unin hafi verið langt yfir hættu-
mörkum þegar kjúklingarnir
drápust, hvernig skyldi henni
vera háttað nú? —ká
Prófessor Krook: Kjúklingarnir dóu úr flúormengun. Ljósm: Ella.