Þjóðviljinn - 02.04.1981, Page 5
Fimmtudagur 2. aprii, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Aí breskum st jórnmálum:
Nýr Sósialdemókrataflokkur í Bretlandi hefur að
sjálfsögðu orðið Verkamannaflokknum áhyggjuefni/
þaðan koma þeir sem f lokkinn stofna. En það vekur ekki
síður athygli/ að þessi nýi miðjuflokkur mun ekkert síð-
ur, ef mark er á skoðanakönnunum takandi, taka fylgi
sitt frá ihaldsflokknum, sem mjög hriktir nú í vegna
vaxandi óvinsælda leiftursóknarstefnu Margaret
Thatcher.
Einn ihaldsþingmaður hefur
þegar hlaupið yfir i Sósialdemó-
krataflokkinn, og Steel, formaður
Frjálslynda flokksins, hefur skýrt
frá þvi, að ýmsir ihaldsþingmenn
hafi barið að dyrum hjá sér. Þá
má og minna á það, að allt að 34
þingmenn Ihaldsflokksins brugð-
ust stjórninni i vissum atkvæða-
greiðslum um fjárlög, einkum
reyndist erfitt að berja þá til
hlýðni þegar ákvæði um hækkun
bensins var á dagskrá.
Margaret Thatcher berst um
hart og reynir að slá niður óróa i
flokknum með aðferðum sem eru
hinum nýja krataflokki. Sá
samanburður gengur milli
manna, að enginn forsætisráð-
herra hafi i svipuðum mæli og
Margaret Thatcher sameinað
bresku þjóðina allt frá dögum
Churchills á striðsárunum —
nema sá er þó munur á að þjóðin
hafi sameinast um Churchill en
gegn Margaret!
Kvödd með
tárum?
Að öllu þessu samanlögðu halda
þeir sem til þekkja, að thalds-
flokkurinn fari að hugsa sér upp
Mótmælendur fvrir utan forsætisráðherrabústaðinn. Hún er cins og Churchill — hefur sameinað þjóð-
ina. En barasta gegn sér....
Ókyrrð í íhaldsflokknum
og krataflokkurinn nýi
furðu opinskáar ef tekið er tillit til
þess, að i' thaldsflokknum berjast
menn ekki fyrir opnum tjöldum i
sama mæli og i Verkamanna-
flokknum hefur tiðkast.
Það er hinsvegar ekki gott að
vita hve lengi henni tekst það.
Það er ekki nóg með að verka-
lýðsfélögin séu henni fjandsam-
leg, það hafa þau alltaf verið og
enginn bjóst við öðru. En nú eru
forystumenn iðnaðarins einnig
orðnir uppgefnir á henni, og jafn-
vel farnir að senda milt augnaráð
aðferð til að koma Margaret
Thatcher úr sessi foringja. Það sé
fjarlægur möguleiki en raunveru-
legur — og það verði gert með list
og vél: Margaret verði þakkað
með tárfellingum, nýr leiðtogi
verði hylltur og reynt að láta alla
halda heim i þeirri sælu trú, að
þeir sitji i flokki samhengis og
hefða, ekki flokki byltinga og
stjórnleysis eins og aumingjarnir
til vinstri.
Meðan þessu fer fram er hinn
nýi krataflokkur að koma sér fyr-
ir i því miöjurúmi i breskum
stjórnmálum sem hefur staðið
autt um tíma. Helga sér áhrifa-
svæði eins og sýnt er i sjónvarps-
myndum um lifnaðarhætti fugla.
Skoðanakannanir hafa bent til
aö miðjurúmið sé mjög breitt.
Þær gefa upp, að hinn nýi miðju-
flokkur gæti i kosningum orðið
stærstur flokka, fengið jafnvel
töluvert yfir 30% atkvæða og skil-
ið gömlu stóru flokkana tvo,
Verkamannaflokkinn og thalds-
flokkinn eftir með rösk 20% at-
kvæða hvorn flokk.
Ekki mun þó allt sem sýnist i
þessum efnum. Flokkurinn er nú
að byggja sig upp með mjög ný-
tiskulegri auglýsingatækni, með
einföldum inngönguskilmálum
(þú sendir girógreiðslu til næstu
flokksdeildar og ert þar með i
flokknum) og fleiri tölvugaldrar
eru með i spilinu. En þessar að-
ferðir segja og þá sögu, að nýjum
flokki mun reynast erfitt að koma
sér upp þvi' þéttriðna flokksdeild-
aneti, sem gömlu flokkarnir lifa
m.a. á — enda þótt virkum með-
limum þeirra hafi farið fækkandi
á sjónvarpsöld.
Kostur og
ókostur
1 annan stað er sagt sem svo, að
thaldsflokkurinn og Verka-
mannaflokkurinn geti alltaf reitt
sig á nokkuð traust virki, sem
þeir eiga i stéttarhagsmunum, i
rótgrónum viðhorfum til gildandi
verðmæta eða til launavinnu og
auðmagns. Þessar rætur á hinn
nýi krataflokkur sér ekki, og þótt
það sé i bili hans styrkleiki þá
getur sú staða fyrr en varir snúist
upp i veikleika. Flokkurinn skir-
skotar i bili til nýjungagimi, til
hinna rótlausu, til fórnarlamba
ýmissa breytinga — sem vita
kannski hvað þeim er helst i nöp
við, en þeim mun færra um það,
hvert þeir helst vildu halda við
núverandi aðstæður.
AB.
Ný ísöld hefst
eftir 4000 ár
Visindamenn sem
hafa gert nýjar tilraun-
ir, byggðar á stjarn-
fræðilegum forsendum,
til að útskýra breytingar
á veðurfari á jörðunni,
telja að nú fari að stytt-
ast það hlýindaskeið
sem nú rikir á jörðunni
og ný isöld komi, sem
Fyrsta erlenda
fréttatengda
bókin komin út
„Gislar i 444 daga" heitir
bók, sem nú er aö koma á
markaðinn hér á iandi. Hún
fjallar um lengstu gislingu er
um getur, gislamálið i Iran,
sem allur heimurinn fylgdist
með i rúmlega eitt ár og
leystist farsællega i janúar-
mánuði siðastliðnum.
Gislabókin er jafnframt
fyrsta fréttatengda bókin um
heimsviðburð, sem kemur út
i islenskri útgáfu örskömmu
eftir upphafsútkomu erlend-
is.
Bókin er rúmlega tvö
hundruð siður að stærð og er
henni skipt i 20 efniskaíla, en
i bókarauka eru upplýsingar
um hvern og einn gislanna
fimmtiu og tveggja, um „53.
gislinn” og einnig er þar birt
efni samkomulagsins sem
tókst um lausn gisladeilunn-
ar fyrir milligöngu Alsir-
manna. I bókinni eru um 170
myndir, sem tengjast gisla-
málinu og koma langflestar
nú i fyrsta sinn fyrir almenn-
ingssjónir hér á landi.
geti staðið i 114 þúsund
ár.
Nútimamenn hafa að
sönnu ekkert að óttast
vegna þess að isöldin á
ekki að byrja af alvöru
fyrr en eftir um 4000 ár.
Kenning þessi mætir vaxandi
stuðningi hjá visindamönnum.
Aðalinntak hennar er að breyt-
ingar á ferli jarðar kringum sólu
valdi þvi að jöklar vaxi eða
skreppi saman.
Hún skýrir það einnig með
stjarnfræðilegum rökum hvernig
stendur á þeim stuttu en afdrifa-
riku hlýindaskeiðum sem hafa
rofið isaldir siðustu ármiljónirnar
sem jörðin hefur til verið.
Aðeins fjögur slik skeið hafa
orðið á undanförnum 350 þúsund
árum og hvert þeirra hefur varað
um 10 þúsund ár. Menningin átti
upphaf sitt snemma á siðasta og
yfirstandandi hlýindaskeiði, sem
hófst fyrir um það bil 9000 árum.
Sá hópur bandariskra og belg-
iskra visindamanna sem hér um
ræðir segir, að nú lifum við á kæl-
ingarskeiði, sem hófst fyrir um
það bil 6000 árum, þegar hlýindin
höfðu verið hvað mest. Næsta is-
öld mun ná hámarki eftir um það
bil 4000 ár.
Eftir það er að búast við all-
miklum kulda lengi vel, en getur
þó verið að isinn hörfi eitthvað
norðureftir. Þegar isaldir hafa
verið i hámarki hefur jökull lagst
yfir allt að þriðjung þurrlendis.
Fræðimenn þessir eru ekki
bjartsýnir á að nýtt hlýindaskeið
geti hafist i alvöru fyrr en eftir
114 þúsundir ára.
1 þessari kenningu er ekki tekið
tillit til þess að mennirnir hafa sin
áhrif á loftslagið á jörðunni,
meðal annars með koltvisýringi
sem þeir dæla út í andrúmsloftið
með því að brenna viði og kolum.
Glæný
breiðskífa
Lögin úr
Punktinum
komin á
plötu
Höfundur
tónlistar:
Valgeir
Guðjónsson
Þeir sem
voru með:
Asgeir Öskarsson,
Egill ölafsson,
F. Bachmann,
Hanna Steina
Hjálmtýsdóttir,
Jónas R. Jónsson,
Mike Pollock,
Reynir Sigurðsson,
Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Sigurbjörn Einarsson,
Sigurður Rúnar Jónsson,
Tómas Einarsson,
Tómas Tómasson,
Valgeir Guðjónsson,
Valva Gísladóttir,
Þorkell Jóelsson,
Vilhjálmur Guðjónsson,
Þórður Arnason.
Útgáfa og dreifing:
SVART Á HVÍTU
Vesturgötu 3, R. sími 13339