Þjóðviljinn - 02.04.1981, Page 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. april, 1981.
Hjörleifur Guttormsson orku- og iðnaður-
ráðherra um Fljótsdals- og Blönduvirkjun:
Við umræðu um frumvarf
Sjálfstæðismanna um byggingu
þriggja nýrra raforkuvera fyrii
nokkru flutti Hjörleifur Gutt
ormsson iðnaðar- og orkuráð
herra ræðu og veröa hér á eftir
birtir kaflar henni. t byrjun ræddi
Hjörleifur það traust sem rikis-
stjórn væri sýnt með frumvarp-
inu og sagði m.a.:
Traust til rikisstjórnar
„Ég er út af fyrir sig ekki að
gagnrýna það, sem hér er sett á
blað um þessi efni, að það sé veitt
heimild fyrir virkjunum, sem
mjög hafa verið um talaðar og
það sé lagt i vald rikisstjórnar að
ákveða frekar um framkvæmdir.
I þessu frumvarpi felst raunar
verulegt traust til rikisstjórnar i
sambandi við meðferð mála, þar
sem henni er ætlað á grundvelli
þessara heimilda að taka ákvarð-
nir um frekari framvindu mála
og henni er veitt heimild til þess
að ábyrgjast fyrir hönd rikissjóðs
nauðsynlegar fjárveitingar i þvi
skyni.
Ekkert um fram-
kæmdaröð
En vegna orða, sem féllu hjá
frummælanda (Þorvaldi Garðari
Kristjánssyni) undir lok hans
ræðu, þar sem hann nefndi, að
dregist hafi úr hömlu að ákveða
næstu virkjunarframkvæmdir, þá
vil ég vekja athygli á, að þetta
frumvarp.sem hér liggur fyrir,
bætir ekki mjög ákvarðandi þar
um. Frumvarpið veitir heimildir
og það rúmar heimildir til mikilla
framkvæmda i þessun efnum, en
það tekur ekkert af um það i
hvað næst skuli ráðist og það er
þó það sem mestu umtali hefur
valdið i sambandi við orkumál á
þessum vetri og þar hefur fram
komið að sitt sýnist hverjum,
hvernig standa skuli að fram-
kvæmdum og hvar hafist skuli
handa. f þessu sambandi vil ég
leyfa mér aö vekja athygli á 4. gr.
frumvarpsins en þar segir:
„Undirbúningi að byggingu
orkuveranna svo og framkvæmd-
unum sjálfum skal hraðað svo
sem kostur er”, ég endurtek,
„svo sem kostur er”. Siðan segir:
„Ekki er kveðið á um röðun fram
kvæmda, enda mega þær ekki
hefjast nema fyrir liggi nákvæm
ar áætlanir um orkuverin, skil-
yrðum samkvæmt 1. gr. hafi ver-
ið fullnægt og tryggt hafi verið
nægilegt fjármagn til fram-
kvæmdanna”.
Hér er i raun visað til þess sem
er mergur málsins i sambandi
við þessi efni, þ.e. að i stórfram-
kvæmdir er ekki unnt að ráðast,
pingsjá
ekki svo að vel fari a.m.k., nema
nauðsynlegum undirbúningi sé
lokið og fyrir liggi nákvæmar
áætlanir, svo notað sé orðalag
frumvarpsins, um viðkomandi
mannvirki og fullnægt hafi verið
skilyrðum og m.a. hafi verið
gengiö frá samningum varðandi
réttindi og annað það, er aö slikri
mannvirkjagerð lýtur. Min hugs-
un i sambandi við undirbúning
ákvarðana i þessum efnum, sem
ég hef oft og mörgum sinnum
greint frá opinberlega hér á
Alþingi og i fjölmiðlum á þessum
vetri, hefur verið sú, að það væri
eðlilegt, að hægt væri að greina
Alþingi sem gleggst frá þvi
hvernig stöðu undirbúnings væri
háttað og helst að það væri búið
að skera úr um sem flest vafaat-
riði sem varða það að unnt sé inn-
an ekki Iangs tima að ráðast i við-
komandi framkvæmdir, þannig
að menn séu ekki að taka hér af-
stöðu til stórmála á mjög óljósum
forsendum.”.
Standa jafnfætis tækni-
lega séð
Þá vék Hjörleifur að undirbún-
ingi I sambandi við Fljótsdals-
virkjun og sagði m.a.:
„Fyrir rúmu ári var það mat
rannsóknaraðila sem unnið hafði
að málum þar eystra, að það
vantaði um 2 ár til að nauðsyn-
legum undirbúningsframkvæmd-
um væri lokið eða að þessi virkj-
unarkostur væri kominn jafnfætis
virkjun á Norðurlandi vestra,
tæknilega séð. Nú gerðist það hins
vegar á liðnu ári, að það tókst i
senn að afla fjármagns og nýta
mjög vel mikið fjármagn, hátt i
miljarð gamalla króna til vett-
vangsrannsókna i tengslum við
þessa stóru virkjun á Austur-
landi.
Og það tókst þannig
að jafna metin i sambandi við
tækniíegan undirbúning þessarar
virkjunar, sem i fyrravetur var
talið að þyrfti við þær kringum-
stæöur, sem menn gengu þá út
frá, um tvö ár til þess að jafna.
Forræði orkufreks
iðnaðar verði i okkar
höndum
Ég tel það ekki skynsamlegt né
réttmætt sem . fram kemur i
frumvarpi Sjálfstæðismanna, að
gera það aö skilyrði varðandi
ákvörðun um Fljótsdalsvirkjun,
að þegar sé búið að semja um sölu
á tilteknu magni af orku frá virkj-
X
Hjörleifur Guttormsson orku- 0(
iðnaðarráðherra.
uninni til orkufreks iðnaðar. Ég
tel ekki þörf á þvi að slikt skilyrði
sé sett, en með þvi vil ég engan
veginn segja, að ég telji óeðlilegt,
að hluta af orkuframleiðslu
þessarar virkjunar sé varið til at-
vinnuuppbyggingar, til orkufreks
iðnaðar með eðlilegum hætti og
með þeim hætti, sem stjórarsátt-
málinn gerir ráð fyrir i sambandi
við slika atvinnuuppbyggingu,þ.e.
að allt forræði þar sé i höndum
Islendinga. Þar verði um að ræða
fyrirtæki sem við tslendingar höf-
um fullt vald á.
Hagstæð virkjun
Það er hins vegar ekki nauð-
synlegt né réttmætt að gera ráð
fyrir þvi, að i mannvirki, er þarf
jafnlangan undirbúningstima og
byggingartima og þessi virkjun,
þá sé það nauðsynlegt skilyrði að
það sé búið að selja orkuna til
kaupenda, til fyrirtækis sem nýtti
hluta af þeirri orku. Og hvers
vegna ekki? Vegna þess að þessi
virkjun er einhver sú allra hag-
stæðasta i landinu, til orkufram-
leiðslu fyrir almennan markað.
Einingarverð frá þessari virkjun
i Fljótsdal er ámóta og gert hefur
verið ráð fyrir frá Blönduvirkjun
fyrir almennan markað og þetta
þýðir lægsta einingarverð, sem
fáanlegt er frá virkjun i landinu.”
Siðar i ræðu sinni sagði Hjör-
leifur um undirbúning
framkvæmda:
„Ég vil fullyrða það hér, að það
hafa engar tafir orðið á ákvörð-
unum eða framkvæmdum i þágu
virkjunarmála vegna þess að
ekki hafi verið veittar heimildir
nú þegar fyrir slikum fram-
kvæmdum. Eða hafa alþingis-
menn gert ráð fyrir þvi og verið
reiðubúnir til þess að bæta mörg-
um miljörðum gamalla króna of-
an á fjárfestingar- og lánsfjár-
áætlun þessa árs svo dæmi sé tek-
ið, til þess að herða þar á? Ég hef
ekki orðið var við þann vilja og á
það held ég jafnt við um stjórn og
stjórnarandstöðu. Ég hef hins
vegar orðið var við, að það hefur
verið fyrirstaöa að veita það fjár-
magn til orkuframkvæmda i
landinu, sem margir teldu æski-
legt út frá ýmsum sjónarmiðum,
m.a. til þess að lækka oliureikn-
inginn og spara gjaldeyri og
halda þar hraðar fram heldur
en gert hefur yerið, þrátt fyrir þá
stórauknu áherslu sem lögð hefur
verið á þetta á siðustu árum og
sérstaklega i fyrra og nú á þessu
ári.”
Stóriðja ekki nauðsynleg
forsenda
Þá ræddi Hjörleifur nokkuð um
markaðshliðina og sagði:
„Viö höfum ekki hagstæðari
kosti til orkuöflunar aö mati sér-
fróöustu manna heldur en ein-
mitt þá sem hér eru taldir, a.m.k.
þegar um er að ræða Fljótsdals-
virkjun og Blönduvirkjun, jafnvel
þóvið séum eingöngu að virkja
fyrir almennan markað i landinu.
Þess vegna tel ég ekki skynsam-
legt að vera að tengja heimildir
fyrir þessar virkjanir við ákvörð-
un um stórnotanda eöa sölu til
orkufreks iðnaðar, þó að slikt
gæti komið til greina, ef öllum
undirbúningi þar að lútandi væri
lokið, þannig að menn teldu sig
geta gert slikt dæmi upp með við-
unandi hætti.
Það er þvi engin nauð-
ung, að við þurfum að ráðast
i stóriðju eða orkufrekan iðnað i
landinu vegna þess að við erum
að virkja það sem við köllum vera
stórt. Við erum þá einfaldlega
lengur að nýta þessar hagkvæmu
virkjanir ef við ekki tengjum þær
við atvinnuuppbyggingu.
Ég er þeirrar skoðunar, að i
þessum orkulindum eigum við
góðan bakhjarl fyrir atvinnuupp-
byggingu i okkar landi á næstu
árum og áratugum, ef rétt er að
málum staðið. En við þurfum að
standa þannig að þeirri stvinnu-
uppbyggingu, að hún verði okkur
ekki að fótarkefli efnahagslega
eða hvað varðar sjálfstæði þjóð-
arinnar og þar er hið efnahags-
lega sjálfstæði, eins og við
væntanlega erum allir sammála
um, undirstaða fyrir hinu
pólitiska sjálfstæði. Og það er
mitt mat og mins flokks, að þess-
ar forsendur séu ekki tryggðar,
nema við Islendingar höfum for-
ræði yfir þessum atvinnurekstri
sem öðrum i landinu. Og þvi vilj-
um við ekki fara hraðar i þessum
efnum en svo, að Islendingar hafi
þarna tök á málum og geti ráðið
ferðinni. Og þarna kann menn að
greina á og hefur reyndar komið
fram ljóslega, að meiningar eru
deildar.
Verðlagning orkunnar
Varðandi orkunýtinguna, nýt-
ingu þessarar auðlindar til upp-
byggingar atvinnulifs á íslandi,þá
vaknar sú spurning hvaða stefnu
við höfum til verðlagningar á ork-
unni. Það mál, verðlagning á
orku til stórnotenda á íslandi, er
sannanlega nokkuð sem við þurf-
um að hafa mótaða stefnu um,
ekki sist ef við ætlum að eiga þar
einhver samskipti við erlenda að-
ila, sem ég útiloka ekki að skyn-
samlegt geti verið i einhverjum
mæli i vissum tilvikum. Og þar
vara ég afar sterklega við þeirri
hugsun, að við eigum að henda
okkur til sunds með þvi að fara að
virkja og virkja i þessum og hin-
um landshlutanum, jafnvel sam-
timis. Ég vara við þeim hugsun-
arhætti, að auglýsa eftir kaup-
endum út um heiminn, að auglýsa
með þeim hætti, sem stundum
hefur heyrst i máli manna, sem
hratt hafa viljað fara i þessum
efnum, að hér sé að hafa orku
sem kosti sáralitið sé nánast að
hafa fyrir spottpris.
Við þurfum að gæta þess, að við
erum hér að tala um hina miklu
fjárfestingu i þessum virkjunum
og við höfum ekki það upp úr þvi
sem við þurfum að hafa og eigum
að geta haft, nema við séum orðn-
ir sæmilega sameinaðir um það
Islendingar og islensk stjórnvöld,
hvað við viljum hafa fyrir þessa
auðlind. Hvar ætlum við að setja
mörkin? Við verðum að gæta þess
að standa ekki þannig að málum
að sitja uppi með svo og svo mikiö
af virkjaðri orku og vera i
vandræðum með fjárfestinguna
og fjárfestingarkostnaðinn og
nánast vilja ganga að hverju sem
er i sambandi við orkusöluna.
Orkustefna til langs
tima i undirbúningi
A vegum rikisstjórnarinnar er
nú starfandi nefnd sem vinnur að
þvi að marka fyrir hennar hönd
orkustefnu til næstu ára og ára-
tuga og ég vænti þess að útlinur af
þeirri stefnu liggi, fyrir með vor-
dögum, þannig að stjórnarand-
staðan geti einnig sagt sitt álit á
þeirri stefnumörkun, áður en hún
kemur til frekari meðferðar hjá
þinginu á komandi vetri. Og þá á
ég við alla þá þætti, sem eðlilegt
er að dregnir séu inn i sambandi
við stefnumörkun i orkumálum til
langs tlma, einnig að þvi er snert-
ir orkuverð, verðlagningu á orku
til atvinnurekstrar og stór-
notenda i landinu.”
Hjörleifur gat þess jafnframt
aö hann myndi leggja fram á yfir-
standandi þingi framkvæmda-
áætlun um raforkuöflun og raf-
orkuflutning og jafnframt frum-
varp um heimildir til virkjunar-
framkvæmda.
Þjóðdansa-
sýning
i Háskólabiói laugardaginn 4. april kl. 14.
Á efnisskrá eru dansar frá ýmsum
löndum.
Miðasala i bióinu frá kl. 16. Þar eru einnig
afhentir miðar til styrktarfélaga á sama
tima.
Þjóðdansafélag
Reykjavikur
Tollvörugeymslan h/f
Aðalfundur Tollvörugeymslunnar h.f.
verður haldinn fimmtudaginn 30. april
1981, kl. 17.00 á Hótel Heklu Rauðarárstig
18, 105 Reykjavik.
Dagskrá samkvæmt samþykktum
félagsins.
Stjórnin
UTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i lagningu 5. áfanga dreifikerfis á Kefla-
vikurflugvelli.
í 5. áfanga eru 0 20 — 0 250 mm viðar
einangraðar stálpipur i plastkápu. Allt
kerfið er tvöfalt og er lengd skurða alls um
7,8 km.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja Brekkustig 36
Njarðvik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Álftamýri 9 Reykjavik gegn 1000,- kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja miðvikudaginn 22. april
1981 kl. 14.00.
„Góður bakhjarl fyrir
uppbyggingu atvinnulífs”