Þjóðviljinn - 13.05.1981, Page 12

Þjóðviljinn - 13.05.1981, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. mái 1981 Samtök Psoriasis- og exemsjúklinga Aðalfundur SPOEX 1981 verður haldinn fimmtudaginn 14. mai nk. i Domus Medica kl 20.30 Venjuleg aðalfundarstörf. Fjölmennið og takið með ykkur nýja félaga. Stjórnin T Verkfræðingar — tæknifræðingar Hafnarf jarðarbær óskar að ráða tæknimenn á skrifstofu bæjarverkfræðings til lengri eða skemmri tíma. Verkefnin eru annarsvegar hönnun,einkum vegna gatna og lagna, hinsvegar umsjón og eftirlit með framkvæmdum af ýmsu tagi,ennfremur mælingar. Nánari upplýsingar veitir bæjarverkfræðingur Strandgötu 6 og tekur hann jafnframt við um- sóknum. Aðalfundur Félagsmenn Útgáfufélags Þjóðviljans eru minntir á aðalfund félagsins fimmtu- daginn 14. mai sem boðaður var með bréfi ásamt dagskrá fundarins. Reikningar félagsins og Þjóðviljans fyrir áriö 1980 liggja frammi á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 3. Fundurinn hefst stundvis- lega kl. 20.00 i risinu að Grettisgötu 3. Stjórnin VORHAPPDRÆTTI Alþýðubandalagsins í Reykjavík Vinningsnúmerin birt eftir 4 daga Stefnt er að því að birta vinningsnúmer í vorhapp- drætti Alþýðubandalagsins í Reykjavík í Þjóðvilj- anum 16. mai. Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík skorar á alla þá sem enn haf a ekki gert skil að gera það f yrir helgi. Hægt er að greiða heimsenda miða í næsta banka- útibúi eða á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 3. Alþýðubandalagið í Reykjavfk Kristófer Svavarsson skrifar: Reimleikar í flokknum I. Fáir eru þeir sósialistar hérlendir sem ekki hafa fylgst af alúð og áhuga með framvindu mála f Póllandi, stofnun alvöru verkalýðsfélaga með alvöru verkamönnum og alvöru leiðtog- um sem berjast fyrir alvöru sösialisma, alvöru málfrelsi og alvöru velmegun. Einnig eru þeir fimbulfambar fáir i sömu hreyf- ingu sem loka augunum fyrir raunverulegri rás atburða i Afganistan, sprengju-örlæti „Rauða” hersins i dauðadansi alþýðu þess lands er litið feimnis- mál sovéskra. En hvursu margir af ýta sonum vinstrisins skyldu draga af þessu ályktanir sem segja má að slái i takt við heilbrigða skynsemi? Og hvursu margir ilr þeim hópi skyldu nú skoða slikar ályktanir i ljósi sdsialfsks siðferðis, sliks sem við höfum jú öll i rikum mæli á tak- teinum félagarnir, eða hvað? Einn af forystumönnum Alþýðubandalagsins, þess flokks sem samkvæmt eigin skilgrein- ingu (og einnig minni þvi ég er félagi I honum) er: „... sósialisk- ur stjórnmálaflokkur, byggður á lýðræði og þingræði” og sem „... fordæmir einræði og kúgun, hvar sem er i heiminum, og styður eindregið baráttu manna hvar- vetna fyrir friði, lýðræði og réttlátu þjóðskipulagi.” a), ritar ýtarlega og fyrir margra hluta sakir ákaflega athyglisverða grein i' Þjóðviljann þann 11. 2. siðastliðinn, I hverri hann veltir fyrir sér ýmsum þáttum sem órjúfanlega eru i samhengi við þau tvö alþjóöamál sem ég drap á I upphafi. Hann igrundar nefni- lega stöðu Alþýðubandalagsins gagnvart hugmyndakerfi valds- mannanna i Kreml, bæði fyrr, siðar og nú, og tengir hana at- burðum á nýafstöönum lands- fundi flokksins. Þegar grein þessi er athuguðu nánar rennur skjótt upp fyrir góðfúsum lesanda að hérer dálitið feimnismál til umræðu og að þrátt fýrir þau orö höfundar að samtiðaratburði i veröld stjórnmálanna skuli nálgast með „hispurslausri umfjöllun” gerir hann sig sekan, að minu mati, um ofnotkun rósamáls. Það er ekki fyrr en i lokakafla greinarinnar að hann lætur skriða til skarar gegn hinni raunverulegu meinsemd: Tilraunum Sovéska sendiráðsins og „vina” þess til að ná aukinni fóstfestu innan raða Alþýðubandalagsins. II. Flestir áhangendur hérlendrar hreyfingar sósialista telja „Sovétvináttu” uppdagað nátt- tröll fortiðarinnar og þvi ekki á dagskrá i lifandi stjórnmálaum- ræðu samtimans. Vissulega er það rétt að Alþýðubandalagið hefur engin formleg taigsl við harðstjórana i austri og einnig má meö sanni benda á skelegga afstöðu tekna af Þjóðviljanum gegn innrásunum i Tékkóslóvakiu 1968 og I Afganistan 1979. Jafn framt og á stuðning sama miðils við þróunina i átt til sósialisma i Póllandi. En þó flokkurinn hafi engin skipulagsleg tengsl við Kremlargauka og ritstjórar mál- gagns hans taki þann rétta pól i hæðina að sósialisk afstaða skipti' sósialista meira máli en dekur við andsósialista i grimubúningi („...marxisminn „lifir” ekki sem valdaafsökun — en hitt er rétt, að með valdboði og ritskoðun er hægt að nota hvaða kenningu sem er sem réttlætingu á valdi, á óbreyttu ástandi” — AB.) þá er aðalatriði málsins eftir: Hefur Alþýðubandalagið, sjálf- ur flokkurinn, gert upp reikn- ingana við hugmyndafræði og heimssýn sovéska „kommúnista- flokksins” að engu, einhverju eða öllu leyti? Og þá á ég við hvort málin hafi verið rædd „hispurs- laust” og af heiðarleika á vettvangi stofnana hans, i málgagni hans (af hinum almenna félaga) og á til þess boð- uöum fundum á vegum hans? Þvi miður veröur svarið viö þessu að vera blákalt nei! Kristófer Svavarsson Allar götur frá þvi flokkurinn rauf samskiptin við austurblokk- ina hefur mál þetta verið slikt viðkvæmnis- og feimnismál að þvi hefur einatt verið skotið undir stól, alltaf og alls staðar. Hvi? — Jú það eru einfaldlega of margir innan raða flokks og hreyfingar sem meður einum eða öðrum hætti sýna gerskum vinarhót, ekki má flisast úr flokksa. Eitt skýrasta dæmið um þessu- marki-brennt laumuspil er mál sem upp kom á landsfundi Alþýðubandalagsins árið 1977, þegar lögð var fram tiilaga um að á ný skyldi hafið upp merki „bræðralags” og „bræðrahugar” með „bræðrunum” i „bræðra- t flokkunum.” Þá verandi verð- andi/ núverandi varaformaður Alþýöubandalagsins og ritstjóri Þjóðviljans hótaði snimmhendis að segja af sér öllum ábyrgöar- og trúnaöarstörfum á vegum flokksins ef af samþykkt tilhög- unar yrði og hef ég satt að segja, aldrei getað láð honum þau viðbrögð! En hvað skeður? Maður gengur undir manns hönd viðað fá tillögumann til að draga i land, hætta við flutning tillög- unnar, hörfa. Málinu var sumsé einfaldlega eytti stað þess að láta nú sverfa til stáls og bera „sovétkommúnismann” ofurliði i atkvæðagreiðslu, með hvurri marka hefði mátt upphaf loka- uppgjörs við þennan draug, sem alltof lengi hefur leikið lausum hala. III. NU kann einhver að segja sem svo að kröftum flokks vors sé betur varið við önnur og „nærtækari” verkefni á vettvangi jafnt innanrikis- sem utanrikis- mála. Eltingarleikurinn við og uppræting fáeinna Sovétstráka sé flas engum til fagnaðar nema Mogganum litla þeirra Geirs og Gunnars. í sjálfu sér er það rétt að verkefni eru óþrjótandi fyrir sósialista, mörg mál er brýn og i þeim málaflokki sem oft er kenndur við alþjóðahyggju/utan- rikisstefnu hvilir margur bagginn á herðum okkar, alltof veikum herðum okkar. NATO og hyski þess innlent renna þessa dagana hverri stoðinni á fætur annarri undirannars „trygga og trausta” veru bandariska herliðsins hér, múmian með sporana vill kross- ferð gegn kommúnisma og íslenskir lagsbræður hennar heimta auðvitað soldið blóðbragð i munninn lika, endilega að vera með. E1 Salvador, Nicaragua svo og þar næst Kúba máske? Eða bara Víetnam á nýjan leik? Alla- vega skal þeim tekið blóð „kommunum”. Það er kalt úti i heimi um þess- ar mundir, orð Arnórs: „Björt verður sól að svartri”,eiga sér veruleika nú fremur en óft áður. Við vitum að fyrstu fórnarlömb hins nýja hernaðarleiks banda- riskra heimsvaldasinna verða börn fátæks og réttlitils fólks i löndum latnesku Ameriku. Við islenskir jafnt sem allra landa sósialistar verðum og munum standa með þessu fólki i baráttu þess, vitna með þvi gegn viðbjóðnum, með sannleikanum, fyrir li'finu. Allir sem einn. En væri hann ekki dálitið falskur, eilitið hjáróma, i minnsta falli soldið skritinn, sá tónn vand- lætingar sem við sendum slátrurum rómanskrar alþýðu ef böðlar austurevrópskra verka- manna og afganskra bænda fengju að baða sig i volgri þögn- inni? Ugglaust svara flestir minna ágætu félaga I flokki Islenskar alþýðu þvi játandi. En var t.a.m. afstaða Alþýðubanda- lagsins til innrásarinnar i Afganistan fjandsamleg henni eða velviljuð, eða var kannski bara engin afstaða tekin? Einmitt! Engin afstaða var tekin, öldungis engin. 1 stjórnmála- ályktun flokksráðsfundar, samþykktri þann 24.2 1980, gefur eftirfarandi á að lita i kaflanum „Utanrikis- og sjálfstæðismál”: „Baráttan um auðlindirnar harðnar, ákvörðun Atlantshafs- bandalagsinsum aukinnvigbúnað magnar tortryggni i alþjóðamál- um og innrás Sovétrikjanna i Afganistan skapar hættu á bvi að kalda striöið brjótist út á ný.” b. Punktur, búið. Engin afstaða tek- in til sjálfs atburðarins, aðeins bent á óþægilegar afleiðingar hans fyrir hið alþjóðlega and- rúmsloft stjórnmálanna, nú yrði bröndum brugðið og diplómatar hausstýfðir. Hvers vegna var svo vægt til orða tekið? Er kvalalogi napalms minna sár i Afganistan en i Vietnam? Syrgja menn ekki fallna ástvini þar rétt sem ann- arsstaðar? I framtiðinni mega Kremlverjar ekki sleppa svo vel af fundum flokksins! Það er ekki rétt sem segir i stefnuskrá Abl. að Sovétrikin séu „siður en svo algild fyrirmynd” c). Sovétrikin eru verkalýðsf jandsamlegt harðst jórnarriki ofbeldis og skipulagðra lyga! Ogslikt riki er aldrei nokkur fyrirmynd sósialista. IV. Fyrr minntist ég á grein eftir forystumann úr flokki okkar allaballa, mann sem af eigin raun þekkir hið „ljúfa lif” austurevrópskrar „paradisar” en hafnar þeim dýrðarinnar dásemdum. Ég hnýtti litilsháttar I viðkomandi fyrir að tala máske um ofundirrós. En hann talar þó. Aðalatriðið er og hlýtur að vera að menn taki afstöðu, leiki ekki tveim skjöldum einsog ýmsir telja sig verða að gjöra. Tittnefndur greinarhöfundur tdc- ur afstöðu með alþjóðahyggju verkalýðsstéttarinnar, hann „fordæmir einræði og kúgun, hvar sem er i heiminum, og styður eindregið baráttu manna hvarvetna fyrir friði, lýðræði og réttlátu þjóöskipulagi.” Ég drap jafnframt á að hann hefði fjallaö um Sovétvináttu innan raöa Al- þýðubandalagsins i ljósi nýaf- staðins landsfundar flokksins. Það er nefnilega eðlilegt að mönnum verði starsýnt á atvik eitt sem jiar átti sér staö: Kjör manna til trúnaðarstarfa fyrirflokksa stendurfyrir dyrum. Ljóst er að varaformaður hans gefurkostá sér til áframhaldandi setu. Þennan mann þekkjum við aftur frá landsfundi 1977 er hann stóð i deilum við „bróður”. Fundarstjóri óskar eftir tillögum um menn til trúnaðarstarfa. Margir stinga upp á mörgum. I miðju annrikinu sést hvar gamal- kunnur „bróðir” ris á fætur , gengur upp að háborði og afhendir fundarstjóra miða. Skömmu siðar er sá boðskapur látinn dynja á lýönum að „bróðir” gefi kost á sér i embætti varaformanns. Hefnd? Eða liðs- könnun „bræðrareglunnar”? Ekki er gott um það að spá en þegar atkvæði hafa verið talin sést glöggt að sumt flas er til fagnaðar fyrir suma. Þegar reglubræður hittast og gratulera hvor öðrum með 17% atkvæða er lukkan allsráðandi viða. Kannski voru það ekki allt sovésk atkvæði, kannski. En eitt er vist, 83% landsfundarfulltrúa vörpuðu Brésnef á dyr. a) Stefnuskrá Abl. bls. 125. b) Stjórnmálaályktun flokksráðs- fundar Abl. 1980 . Þingtiðindi bls. 24. c) Stefnuskráin bls. 34.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.