Þjóðviljinn - 13.05.1981, Side 15
MÍðvikudagur Í3.‘mal 1981 ÞJÓÐVILJÍNN — SIÐA 15
frá
Hringið í síma 81333 kl. 9—5 alla
virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
HAVAÐI
Hvar
eru hinir ungu
íhaldsfuglar,
sem hæst gala
um friðhelgi einkalífsins/
þegar
ærandi hávaði
vitfirrtra bjölluhringinga
Hallgrimskirkju
þrengir sér
inn á
heimilin? Hanna Hallgríms
Finnst ykkur
þetta hægt?
Mig langaði aðeins til að bæta
við frétt sem birtist i Þjóðvilj-
anum sl. föstudag um Mynd-
segulbandstæki i blokkum.
Ég bý i 10 hæða blokk þar sem
video-byltingin svokallaða hefur
haldið innreið sina. Þar er ekki
nóg með að klámmyndir, stór-
slysa og hryllingsmyndir eru
sýndar á næturnar, heldur eru
þær endursýndar hérna á
laugardagseftirmiðdögum á,
milli kl. 2 og 3. Þannig að viö
sem erum þessu andvig og kær-
um okkur ekki um að sjá þessar
kvikmyndir hvað þá börnin
okkar fáum ekkert að gert.
Þvi þótt þú viljir ekki vera
með i video-kldbbnum þá er
þetta tengt inn á sameiginlegan
sjónvarpskabal hUssins og þú
færö þetta inn i þitt sjónvarp
hvort sem þú vilt eða ekki.
Friðhelgi heimilisins er engin
og ef foreldrarnir þurfa að
skreppa eitthvaö að degi til þá
verða þeir að gjöra svo vel að
koma börnunum sinum fyrir þvi
þeim er ekki óhætt inni i ibúð á
meðan á þessum sýningum
stendur.
Við sem erum þessu andvig
fáum ekkert aö gert; finnst
ykkur þetta hægt?
Ibúi i 10 hæða blokk.
Hlutdrægni morgunpóstsins
7. mai sl. voru 30 ár liðin frá
þvi að bandariskt hernámslið,
svokallað „varnarlið” kom til
íslands, samkvæmt vafasamri
samþykkt isl. ráðamanna. Það
væri þvi liklegt að sómakærum
íslendingum, ættjarðarvinum
með nokkurt þjóðarstolt væri
minning þessa atburðar nokkuð
tregablandin, svo ekki sé nú
meira sagt. Erlend herseta i
frjálsu og fullvalda riki i 30 ár
(ef það getur þá talist lengur)
hefur furðulega sterk áhrif til
þess að heilbrigður þjóðarmetn-
aður slævist eða jafnvel hverfi
algerlega. Þettakom best i ljós
þegar maður hlustaði á
„morgunpóst” útvarpsins i
morgun 7. mai. Umsjónarmenn
hans töldu fara best á þvi að á
þessu 30 ára afmæli bandariskr-
ar hergöngu á islenska grund,
að fá bandariskan yfirmann af
vellinum til þess að bera vitni
um hversu vel hefði tekist að
aflahersetunni vinsælda og vin-
samlegra samskipta meðal
landsmanna og þessu til áherslu
var islenskur embættismaður,
sem hefur það að atvinnu að
sinna meðalgönguum ýmis mál
milli hers og þjóðar, fenginn til
að vitna um ágæti þessara sam-
skipta.
Það hefur vist ekki hvarflað
að þessum morgunpóstmönn-
um, að þessi viðbrögð þeirra á
afmælisdeginum gætu sært til-
finningar þeirra Islendinga,
sem enn vilja eiga sitt land
hreint og óspillt af erlendum
vighreiðrum, sina islensku
menningu óspillta af þvi her-
námshugarfari, sem þeir,
máske óviljandi, opinberuðu
fyrir alþjóð á þessum morgni.
Þeir hafa örugglega ekki hugs-
að svo langt.
Um morgunpóstinn er það
annars að segja, að honum hef-
ur hrakað gifurlega i vetur,
meira hefur borið á hlutdrægni
og einhliða áróðursbrögðum nú
en árin á undan, meira fiskað
eftirað draga upp og gera mikið
úr deilumálum, næstum
persönulegs eðlis, — og stund-
um hafa þeir minnt óhugnan-
lega mikið á púkann á fjósabit-
anum, sem dafnaði best og lifði
glaðast þegar fjósamaðurinn
var i vondu skapi og bölvaði öllu
og ragnaði.
Það er spurning hvort útvarp-
ið gæti ekki sparað þennan út-
gjaldalið og notaö það sem til
sparaðist til að bæta þætti fyrir
börnin. EMA
Skrýtlur
Magga: Hundurinn minn
er týndur
Vilfrfður: Auglýstu eftir
honum í dagblöðunum
AAagga: Það þýðir ekkert
hann kann ekki að lesa.
Röddin í símanum: Hún
Sigga er veik og kemst
ekki í skólann í dag.
Kennarinn: Við hvern
tala ég?
Röddin í símanum:
Mömmu mína.
Eiturslöngurnar Har-
aldur og Þórður voru að
tala saman.
Þórður: Erum við eins
eitraðar og fólk segir?
Haraldur: Ég veit það
ekki af hverju spyrðu?
Þórður: Ég beit í mér
tunguna til blóðs.
Alltaf eru kallarnir í Prúðuleikurunum jafn f úlir og
neikvæðir, hvernig væri að þið lífguðu svolítið upp á
þá og lituðuð þá í öllum regnbogans litum? Góða
skemmtun.
Já,krakkar,veriðdugleg að senda okkur efni um allt
sem ykkur dettur í hug; ég er viss um að þið kunnið öll
að teikna,og svo væri líka sniðugt ef þið skrif uðuð okk-
ur sögur.
Barnahornið
Varúð á vinnustað
Sjónvarpið mun á næstunni
sýna nokkrar stuttar, breskar
fræðslumyndir um siysavarn-
ir og hollustuhætti á vinnu-
stöðum.
Fyrsta myndin fjallar um
hávaöa og verndun heyrnar-
innar. Þýðandi er Bogi Amar
Finnbogason. Þessir þættir
munu örugglega vera meira i
takt við raunveruleik margra
heldur en þættirnir um Dallas-
Sjónvarp
kl. 22.30
liðið sem sýnd verður á undan
i sjónvarpinu. Það fólk þarf
varla aö hafa nokkrar aðrar
áhyggjur en þær hvort þaö sé
smartara að fara á Bensanum
i leikhús eða Kadilljáknum.
Nýjasta tækni og Vísindi
I þættinum nýjasta tækni og
visindi i kvöld veröa sýndar 4
myndir. Fyrst verður sýnd
mynd um rannsóknir sem
gerðar hafa verið á hljóðum
sem dýr gefa frá sér i sjónum
t.d. hvalir, og fleiri dýr sem
dveljast eitthvað að ráði
neðansjávar. Onnur myndin
fjallarum kjarnorkuver og þá
sérstaklega það mikla vanda-
mál hvaö eigi að gera viö úr-
ganginn. Sýnd verður stutt
mynd um vindhlifar á
bifreiðar sem eru sérstaklega
gerðar til þess að draga úr
loftmótstöðu og þá um leið
bensi'neyðslu. Ætli fljótvirk-
asti sparnaðurinn væri ekki
bara sá að fækka einkabilum
og fjölga strætó?
Að siðustu verða kynntar
Qg, Sjónvarp
*|kl. 20.45
ýmsar tækninýjungar sem
verið er aö taka i notkun i Ind-
landi. Þetta a- frumstæð tækni
sem þó kemur til með að
betrumbæta þá tækni sem
þorpin höfðu fyrir. Reynslan
hefur sýnt sig að það kemur
þróunarlöndunum oft miklu
betur að fara hægt i að inn-
leiða tæknina, gefa fólki og
landi tima til þess að aðlagast
i staðinn fyrir að demba yfir
það allri 20. aldar tækninni I
heilu lagi.
Umsjónarmaður þáttarins
er Sigurður H. Ricter.
Sigurinn
Kl. 22.35 átti að vera um-
ræðuþáttur I útvarpssal i um-
sjá Ernu Indriðadóttur sem
bar heitið „Þurfa konur að
njóta forréttinda?”. Þar sem
þessi þáttur fellur niður af
óviðráðanlegum orsökum
verður endurtekið viðtal sem
Valgeir Sigurðsson átti við
Sigurð Sigurðsson fyrrum
vannst
|S% Útvarp
kl. 22.35
landlækni, um baráttuna við
berklaveiki. Þessi þáttur
nefnist „Sigurinn vannst” og
var áður útvarpað 24. april 79.