Þjóðviljinn - 23.05.1981, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.05.1981, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJÍNN Héigin 23. — 24. mai 1981 „Eg vildi tala minna og spila meira” upp byrjaði ég með annarri hljómsveit, Maria Motpol, sem spilaði reggae músik. Viö komum nokkrum sinnum fram og þar á meðal á negradiskóteki sem heitir Shaft. Þar voru einhverjir sem spurðu okkur af hverju við spihiðum ekki diskó-músik og það er mjög erfitt að svara svona spurningu. Pianóleikarinn fór samt aö hugleiða af hverju við spiluðum ekkidiskó og endaði það með þvi að hann fór aö spila diskó og hljómsveitin leystist upp. Ég fór að vinna ýmis störf, var i póstinum og hitt og þetta, en mig langaði til að drifa i hlutunum og gera eitthvað af viti. bess vegna fór ég inni hljóðfæraverslun þar sem oft er auglýst eftir hljóöfæra- leikurum. Og þar hangir ein aug- lýsing þar sem boðið er starf i „teater-grúppu” sem heitir Svea Strange. Það vantaði trommu- leikara i fullt starf og möguleikar voru á aö nota leikræna hæfileika umsækjandans í sýningunum. Ég hringdi, fór i „test” sem ég stóðst og eftir miklar samræöur — þvi þetta var nákvæmt fólk sem ræddimikið um hlutina, einum of mikið fannst mér — var ég ráðinn. Þau voru að fara að semja og æfa nýtt stykki sem þau kölluðu rokk teater. Þetta var alveg nýtt orð fyrir mér. Það áttu allir að hafa jafnt til málanna að leggja, en það var frekar erfitt fyrir mig aö taka þátt i þeim hþita, þvi ég vissi ekkert um þessi mál og talaðiekki góöa sænsku á þessum tima. Ég hafði ekki hugmynd um hvemig byggja ætti senu eða þau vandamál sem þvi fylgdu og ég var þvi mest litið i þvi að semja verkið. Þau byggðu á vissum boðskap og gerist verkið i argentinskri verksmiðju sem framleiðir galla- buxnajakka. Framleiðandinn stelur af fólkinu sem vinnur við framleiðsluna og svo eru jakk- arnir seldir i Sviþjóð. Ung stúlka verður uppvis að þjófnaði á jakka i tískuverslun i Sviþjóð og er þvi vandamálið heimfært til Svi- þjóðar. Boðskapur Boðskapur verksins er mjög mikilvægur og þess vegna þurf að prófa allt nákvæmlega svo hann kæmist til skila. Þaö gat tekið heila viku aö prófa tvo trommutakta. Það var „diskúter að” hvort spila ættitvöbassalög á trommurnar eða bara eitt, þetta var tekið upp, hlustaö og diskú terað. Þau komu með sinar til- lögur og ég kom með minar. Þetta var allt gert til þess að koma þessum ákveðna boöskap til fólksins. Hver hreyfing var mikilvæg. Verkið var miðað við fólk á framhaldsskólastiginu. Við ferðuðumst með verkið i 1 1/2 ár og spiluðum mest i skólum og i unglingaklúbbum svona eins og Fellahellir er. Það er allt fullt af svona félagsmiðstöðvum út um alla Sviþjóð. Viö vorum með mjög einfalt sviö, sem var sett upp á hverjum stað fyrir sig. A bakvið mig var leiktjald, og einu sinni þegar við vorum að sýna, gleymdi ég mér og hallaði mér aftur á bak aö tjaldinu. Þetta var litið svið, svo að ég datt aftur fyrir mig og niður af sviöinu. Ég varö svo reiður að ég rauk upp á svið aftur og spark- aði i trommurnar. Auðvitað varð allt brjálað eftir á og máliö diskúterað heillengi. Einn Ur hópnum hafði starfað með öðrum leikhópi sem heitir Fria Teatern. Þau gerðu plötu með tónlist úr nokkrum leikritum sem þau hafa flutt i gegnum árin. Fria Teatern fékk okkur til að aðstoða við gerð plötunnar, sem heitir „Bruket skal leva”. Ég er mjög óánægöur með flutninginn á trommunum og hljóminn, en það var ekkert spáö i það, þvi að efnið og boðskapurinn var það eina, sem þurfti að koma almennilega fram að þeirra mati. Tónlistin á plötunni er úr ýmsum áttum, rokk, djass, marsar og blönduð tónlist. Einnig tókum við þátt I gerð anti-kjarnorku-prógrams, sem við spiluöum á festivölúm fyrir siöustu kosningar. — „Atomkraft — Nej Tak”. Ég hitti Elsie, saxó- fónleikarann, sem var með mér i SpelvSrk 80 sl. vetur og var hún þá að starfa meö hljómsveitinni KoKo YoYo Band. Trommarinn þeirra hafði flutt útá land og það var hringt i mig og ég beöinn að koma og djamma. Það varð ekkert úr djammi, heldur var ég látinn læra lögin á æfingu, og svo fór ég að spila með þeim. Ég spilaði allan veturinn með þeim, var jafnframt á sifelldum ferða- lögum með Svea Str3nge útum allt. Ég var búinn að starfa með leikhópnum i 1 1/2 ár og spila sama stykkið allan timann. Eftir þennan tima fann ég að þetta var ekki fólk, sem ég vildi starfa með til frambúöar. Ég vildi tala minna og spila meira. Ég hafði ekki neitt persónulegt samband við fólkið i Svea, þvi þetta er allt öðruvisi fólk en ég, einfaldlega vegna þess að ég kem úr allt annarri átt. í KoKo YoYo er vin- átta mikil og það skiptir miklu. Það besta við Sviþjóö að minu áliti var að ég hitti þetta fólk. Lögreglan beitir valdi En þaö voru viss vandamál. Ég var samningsbundinn hjá Svea StrSnge og þurfti aö sinna minu starfi, en þau I KoKo YoYo þurftu að biða meðan ég var að spila með Svea. Þess vegna ákvað ég aðsegja upp starfinu i teatern um áramótin og spila eingöngu með KoKo YoYo Band.” KoKo YoYoBand varð til þégar nokkrir tóniistarmenn ákváðu aö stofna hljómsveitog koma fram á Söder Festivalinu, sem árlega er haldið i Söder hverfinu I Stokk- hólmi (Söder hverfiö er byggt fólki úr öllum stéttum, sem er mjög meðvitað og framtakssamt á ýmsan hátt). Festival þetta hófst i kjölfar mikilla mótmæla gegn niðurrifi gamalla húsa i Stokkhólmi. 1 þessum húsum varð til óperan Mulvaden og ferð- aðist óperan um öll Norðurlöndin og endaði I Söder þar sem Festi- valið er siðan haldið. „Fólk hafði „okuperað” eða tekiö þessi hUs á sitt vald. Þetta fólk hafði bUið i þessum Malvad- en hUsum, en þegar átti að rifa hUsin neitaði það aö flytja út. HUsnæðismál Stokkhólms eru á þá leið að þau hús, sem eru gömul og illa farin og eru aðeins með köldu vatni og skortir önnur nútimaleg gæði, eru rifin. Svenska Bostader, sem eiga þessi hús, gátu ekki tekið háa leigu fyrir ibúðirnar og ætluöu þeir þvi að byggja ný hús svo þeir gætu hækkað leiguna. t Mulvaden haföi myndast góður hópur fólks, sem var með mikla starfsemi i gangi. Það sýndi leikrit, hélt tónleika, seldi mat og fleira i þeim dúr. Krakkarnir i KoKo YoYo kynnt- ust i þessum húsum. Lögreglulið Stokkhólms fylkti liði og reið að húsunum á hestum og sveiflaði kylfum. Lögreglan girti húsin af svo að fólk, sem safnast haföi saman i nálægum götum, gat ekkert aðhafst. Siðan réðst lögreglan inni húsin og var fólkið dregiö út með valdi. Þetta eru mestu mótmæli gegn fégráð- ugum valdhöfum landsins sem ekki hugsa um tilfinningar fólks. Þetta fólk vildi gera upp húsin sin sjálft, i stað þess að láta rifa þau og byggja nýtisku hús i staðinn. Húsin voru rifin daginn eftir aö fólkinu var hent út og byggð ný i staðinn. KoKo YoYo kom fram á Söder Festivalinu og tókst vel til. Eftir að ég kom i hljómsveit- ina æfðum við 2—3 i viku og er tónlistin mjög opin, en þó mest i þvi formi að spila melódiur með sólóum á milli. Þetta er allt frum- samið efni. Einn úr hópnum kemur með hugmynd og segir hvernig hann vill hafa lagið, siðan koma allir með sinar hug- myndir og svo prófum við okkur áfram. Tónlistin er i djassstil með blönduðum áhrifum, austur- lenskum, latin og nokkurskonar þjóðlagablær með rokkivafi.” Allir grétu saman KoKo YoYo band er skipaö 7 mönnum, tveimur gitarleikurum, bassaleikara og trommara, sem allir eru karlkyns, en saxófón- leikarinn, flautuleikarinn og ásláttarleikarinn eru allir kven- kyns. Sá áttundi, hljómborös- leikari, er nýlega hættur i hljóm- sveitinni. Við upptöku hjá Diabolus in Musica. Steingrimur, Tómas Einarsson og tæknimaður „Samstarfiö hefur veriö mjög gottnema hvað ágreiningur kom upp á milli okkar og pianóleik- arans og endaði málið með sprengingu. Agreiningurinn var þess eðlis að pianóistinn var óánægður með vissa hluti i tón- listinni. Hann vildi breyta hlutum, sem allir voru ánægðir meö. Honum fannst að ekki væri hlustað á skoðanir hans, sem var ekki rétt. A einni æfingunni varð hann allvondur og rauk i burt. Hann gerði sér litiö fyrir og kýldi bassaleikarann beint á kjaftinn og rauk svo Ut. Málin v.oru rædd og þaö var ákveöið aö ekki væri hægt að starfa með manni, sem kýldi vini sina. Þegar við spiluöum með honum i siðasta sinn, gerðist svoldið skrýtið. Við vorum að spila á argentinsku stuðningsballi og vorum að spila mjög liflega tón- list. Mikið f jör var i fólkinu. Elsie veröur litið á pianistann og hann situr og spilar þetta hressa lag og grætur. Elsie byrjaði að gráta lika og svo hver af öðrum og við héldum áfram að spila lagið með tárin I augunum. Eftir lagið tókum við okkur hlé og grétum saman baksviðs, þetta var mjög sérstæð reynsla. Við erum þvi án pianista núna og þaö hvarf mikiö þegar hann hættiog tónlistin varð frekar tóm, en við höfum reynt aö vera án pianista og notaö gitarleikarana tvo til að skapa „ryþma” - fyllingu. islandsáhugi Það er mikill áhugi hjá okkur að koma með hljómsveitina til þessarar litlu eyjusem svo mikiö hefur verið rætt um. Það vilja allir vita meira um landið. Einn okkar hélt að forseti Islands héti Asgeir, þegar ég kynntist þeim, en hann veit nafn nýja forsetans núna. Ég vonast til þess að geta komið með þessa hljómsveit til tslands, sérstaklega þar sem við spilum tónlistsem ég held að eigi erindi tillslendinga og ég hef ekki spilað mikið hér heima.” Kaffið er búið i bollunum og fluga farin að sækja i sykurinn á botni eins þeirra, svo að við látum viðtalinu lokið og röltum úti f jörið á Austurvelli þetta föstudags- kvöld. Skömmu siðar greip útþráin hug Steingrims og hann steig um borð I eitt hinna hraðskreiðu skipa islenska flugflotans og hélt i austurveg likt og landar hans forðum. I Kaupmannahöfn tældu tónlistarárarnir i Diaboius in Musica Steingrim til að leika með sér inná plötuna Lifið i litum. Eftir skamma dvöl hans i Sviþjóö leystist siðan hljómsveitin KoKo YoYo Band upp vegna tónlistar- ágreinings og nú iðkar pilturinn nám I Tabla trommuleik og hyggst jafnvel leggja leið sina vestur til Bandarikjanna til frekara náms og enn eru kjuð- arnir og pokinn til reiðu. —jg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.