Þjóðviljinn - 23.05.1981, Side 3
Helgin 23. — 24. maí 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
✓
Ur skúffunni hennar ömmu
Nú er orðið býsna langt siðan ég fór siðast i skúffuna hennar ömmu
en ég var þóekki fyrr búinn að opna hana en ég rakst á þetta kort og
aftan á það voru skrifuð nokkur ástarorð og svo stóð: Mikið vildi ég
óska hcitt að viðværum i þeirra sporum nú. O, jæja. Þetta var sum-
arið sem afi fór á sild, nefnilega 1934, og þetta hefur hann sent
ömmu greyinu suður frá Siglufirði. Þau voru nú búin að vera gift
býsna lengi þarna og búin að hlaða niður börnum svo að eitthvað
hefur verið eftir af brennheitri ástinni.
Þjóðardrykkur Islendinga
A öndverðri öld þessari, að ég
ei tali um áöur fyrri, vissi al-
menningur ekki hvaö kaffi var;
sumir hverjir lfktu drykk þess-
um við sviöasoð, aörir, ef þeir
eignuöust kaffibaunir, reyndu
að hafa þær til grautargerðar,
en er það mistókst, fengu þeir
sér tilsögn að brenna þær, og
suðu siðan i vatni, létu þeir sér
þá ekki nægja, sumir hverjir, að
drekka seyðið, heldur supu
korginn lika.
Nú er varla sá kotbær til
vestra, að ei gangi kaffi svo að
kalla jöfnum höndum með mat-
arnautn, sumstaðar tvisvar, ef ei
þrisvar, á dag, og ettir þvi
sterkt. Allviða er svo langt kom-
ið kaffidrykkju, að vegfarendur
eða sjófarendur þykja ósvinnir,
biði þeir ekki eftir kaffi, hvernig
sem stendur á sjó eöa veðri.
Bóndi getur vart til verka sagt,
fyrr en hann hefur hresst sig á
drykk þessum, og verkamaður-
inn þvi siöur til vinnu gengið,
fyrr en búið er að hýrga hann á
kaffibollanum.
Þetta er ei sagt af þvi, að ég
Viti ei háttu þjóðanna, að að þvi
skapi hafa þær orðiö sællifari,
sem þeim hefur aukist menntun
og megun, en hafisællifið náð að
hnekkja atburðum þeirra og
dugnaði, hefur það jafnframt
steypt velferð þeirra.
Velmegunarstofninn er hjá
oss æriö litill ennþá og hentar
þvi allra sist að leggjast i bilifi;
annað er, aö hafa kaffið til
hressingar sér, en að venja sig á
það I ógegnd, og drekka það svo
sterkt, að það geti orðið heilsu-
spillir manna.
Verslunarmenn taka til þess,
hversu mikið kaffi þeir þurfi ár-
lega að bæta við til aöflutnings
hingað, og þó þrýtur það einna
fyrst i verslunum þeirra, allt
eins og sætindin sem þvi eru
samfara; þeir halda að hvergi
muni um norður og vesturheim,
neytt vera svo mikils af kaffi,
sem á Islandi af jafn fáu fólki.
Ég get vart fengið af mér að
segja frá þvi, sem ég hefi heyrt
að flutt væri af kaffi til verslun-
arstaða syðra og vestra, þar
sem ég veit ekki aö telja þvi til
neina kosti, er samsvari eyöslu
þess og útörmun.
Hins vegar get ég ei dulist að
vekja máls á þessu, ef þaö gæti
gefið hugvekju til nokkurs hófs i
nautninni, og útlendir verslun-
armenn hættu i min eyru að
skopast að löndum minum, svo
sem þeim, sem ætluðu að kæfa
sig i óhófinu á þessum drykk og i
efnaeyðslunni, er keyptu kaffið,
hver léttingsblendingur sem
þaö væri, og með hvaða verði er
verslunarmönnum þóknaðist á
það að setja.
Sé þaö satt sem mér er sagt,
aö á Vesturlandi megi gera ráð
fyrir að eytt sé I kaffi og sætind-
um minnst upp á 25000 dali ár-
lega, og að það sé hér frá 8. til
10. parts af kaupstaðarvöru
fjórðungsmanna, er fyrir það
gangi, þá held ég væri ráöiö
snjaliara að kippa máli úr, og
láta sér lynda meö tevatn, seytt
af islenskum jurtum, sem
margar eru hollar og góðar,
t.a.m. fjallagrös, rjúpnalauf,
bráðberg, augnfró, o.m.fl., enda
þótt að þetta kosti nokkra fyrir-
höfn, mjólk og sætindi og áhöld,
sem allt þarf, hvort sem er, til
kaffidrykkjunnar viö og við; þvi
ekki er það ætlan min, aö landar
minir, sem litiö hafa til hress-
ingar sér á landi hér, leggi al-
gjörlega af kaffinautnina, held-
ur gæti hófs I henni, svo hún
veröi þeim ei til efnatjóns og
óhollustu. ,
Úr tlmaritinu Gesti Vestfirð-
ingi, sem gefið var út i Flatey á
Breiðafiröi, á árunum
1847—1855.
Auglýsinga- og áskriftarsími
81333 DWovmm
SJAFNARMÁL
Konum er það metnaðarmál
að æra karlmennina og þó eink-
um þá sem þær vita skynsam-
asta. Enginn karlmaður getur
verið öruggur gegn þessari
hættu ef honum veröur litiö á
kvenmann.
Marivaux
Aöeins vitræn ást varir eilif-
lega.
Spinosa
Ekkert er ömurlegra en kuln-
uð ást sem hefur lagt til hinsta
svefns i innstu hugarfylgsnum
okkar. — Finni ég bál ástarinn-
ar fara dvinandi i sál minni beiti
ég öllum ráðum til þess að
glæða það og blása að logunum.
Eugénie de Guérin
Engan missi harmar maður
jafn sárt — og jafn skamma
stund sem missi ástmeyjar.
Vauvenargues
Ótryggð i hjónabandi sprettur
af forvitniskenndri löngun til
þess að vita með hvaða hætti
aðrir elska.
Plutark
Konan hefur ekki minni
samúð með neinum en þeim
sem þjást hennar vegna.
Chabanon
Astin er harðstjóri sem eng-
um gefur griö.
Corneille
Sá unaöur fyrirfinnst ekki
sem bætt getur þjáningar ástar-
innar.
Saint Evremont
Kona fellir sjaldnast ástarhug
til manns vegna raunverulegra
eiginleika hans. Þeir eiginleik-
ar, sem hann virðist vera gædd-
ur, ráða þar oftast mestu — eða
öllu heldur þeir eiginleikar sem
hún imyndar sér að hann sé
gæddur.
Champfort
Maður sem á ótrúa eiginkonu
ætti aö hugga sig við það að
hann er eigandi aðalsjóösins
eftir sem áöur og aö hinir geta
aðeins notfært sér renturnar.
Sophie Arnauld
Konan er miklu fegurri ef hún
skrökvar en þegar hún segir
satt. Þegar hún ber fram ósann-
indi birtir yfir öllum svip henn-
ar og augu hennar blika geislum
frá innri glóð. Og aldrei verður
hún yndislegri en ef hún svo I
þokkabót leggur hönd sina á öxl
manns og segir: — Ástin min,
þessu var alls ekki þannig farið.
George Moore
Þegar forhertur piparsveinn
hrósar happi yfir þvi aö hann sé
orðinn öruggur gegn öllum ást-
arfreistingum sökum tæmandi
þekkingar sinnar á kvenþjóö-
inni á hann það mest á hættu að
verða leikskoppur draumbliðr-
ar sextán ára meyjar.
Walter Pulitzer
Mestu hnossa lifsins er að
leita innan einnar og sömu
faðmsbreiddar.
Frankfort Moore
Frönskum konum finnst yfir-
leitt fátt um ungan mann nema
þeim takist aö gera hann aö
teprulegum bjálfa. Annars get-
ur hann ekki daðrað við
hégómagirnd þeirra.
Stendahl
Hér er lítið
sýnishorn af
okkar íága
vöruverði:
verð
Stór/úða í stykkjum kg-verð kr. 22,00
Hva/kjöt í sneiðum kg-verð kr. 24,00
Sö/tuð rúllupylsa kg-verð kr. 26,50
Franskar kartöflur (islenskar)
2ja kg pokar kr. 32,00
Paprikusalat (Bá/garia) kr. 9,80
Krakus jarðaber 1/2 dósir kr. 11,25
Ananasbitar 1/1 dósir kr. 10,30
Snapp kornf/ögur 500 gr kr. 12,30
Kellogg's kornflögur 500 gr kr. 15,35
Trix ávaxtakú/ur 226 gr kr. 12,60
Kaliforniurúsinur Champion 250 gr kr. 8,05
Grænar baunir 1/2 dósir kr. 6,05
Brasi/ist instant kaffi 200 gr kr. 58,30
Cocomalt Otker 400 gr kr. 15,55
Cacó 480 gr kr. 21,30
Royal-lyftiduft 450 gr. kr. 10,55
C 11 þvottaefni 10 kg kr. 98.00
Dixon þvottaefni 4,5 kg /<r 86,85
WC pappir 8 rúllur i pakkningu kr. 23,30
Eldhúsrúllur 2 stk. i pakkningu kr. 9,80
Matvörudeild: Opiö föstudaga kl 9-22
Opiö laugardaga kl. 9-12
VÖRUKYNNINGAK ALLA FÖSTUDAGA KL. Í4-20
Allur aðrar
deildir eru opnar
til kl. 19 á föstudögum
og kl. 9-12 á
laugardögum
Jli
Jón Loftsson hf.
A A A A A A
-IdU.ljj
ju< iujj j;;
JuuQini1
—nn
Hringbraut 121 Simi 10600