Þjóðviljinn - 23.05.1981, Síða 7

Þjóðviljinn - 23.05.1981, Síða 7
Helgin 23. — 24. mai 1981 ÞJóbVILJINN — SIDA 7 Fyrstu nútimaolympluleikarnir fóru fram iAþenu 1896 ogvarþá m.a. keppt I reiptogi. Þeir heföu betur haldiö þvi áfram.... GRIKKIR VILDU FÁ ÓLYMPÍU- LEIKANA UM ALLA FRAMTÍÐ í fyrra, eftir áskorun Carters Bandaríkjaforseta um að menn hundsuðu ólympíuleikana í AAoskvu, bar Karamanlis forsætis- ráðherra Grikklands fram þa hugmynd, að forðast mætti allskonar pólitískar uppákomur með Ólympiu- leikana með því að flytja þá fyrir fullt og allt til fornra heimkynna sinna í Grikklandi. Þessi hugmynd hlaut i fyrstu nokkuð góðar undirtektir, m.a. i öldungadeild bandariska t*ngs- ins. Evrópuþingið tók lika vel i þessa hugmynd og veitti meira að segja sem svarar hundrað miljónum króna til stuðnings þeirri hreyfingu sem vildi flytja Ólympíuleikana til hinna fornu heimkynna þeirra leika. Ekki í fyrsta sinn Það er reyndar ekki i fyrsta sinn að Grikkir viðra slika hug- mynd. Þegar ólympiuleikar voru aftur vaktir til lifsins árið 1896 vildi griska st jórnin og konungur Grikklands lita svo á, að leikirnir skyldu alltaf haldnir þar i landi, svo sem verið hafði til forna. En 'oaróninn fra,n ski Pierre de Coubertin, sem kom mjög við sögu hinnar ólympsku hreyfing- ar, var ekki á sama máli óg stóð að þeirri skipan mála sem siðar hefur haldist: meiriháttar borgir sækja um að fá að halda leikana og alþjóblega ólympiunefndin, IOC, afgreiöir umsóknirnar. Útreikningar IOC setti reyndar nefnd I mál- ið. Hún komst fljótlega að þeirri niðurstöðu, að ekki væri mögulegt að reisa nýja Olympiu i næstu grennd við hinn forna vettvang leikanna. Griska stjórnin hefði boðist til að gera Flokadalinn, sem er ekki langt frá Olympiu, að einskonar fririki ólympiuleik- anna. Menn settust við og reikn- uðu út framkvæmdarþarfir og kostnað við að koma upp iþrótta- mannvirkjum, hótelum, aðstöðu fyrir fréttamenn. Hér var um að ræða fjárfestingar upp á fjörtiu miljarða króna, og hefðu Grikkir einir varla ráðið við þau útlát. Auk þess þótti mönnum sýnt, að Grikkjum mundi ekki takast, að nýta Ólympiuþorpið og önnur mannvirki þann fjögurra ára tima sem liður á milli hverra leika. Grikkir létu krók koma á móti bragði og sóttu um að fá að halda ólympiuleikana i Aþenu árið 1988 — með það fyrir augum að reyna svo að halda þeim þar áfram. Það sem í móti mælir En sú viðleitni að forðast pólitiskar flækjur með þvi að negla leikana i eitt skipti fyrir öll niður á sama stað kemur ekki alltof vel heim og saman við að- stæbur i Grikklandi. Grikkland er i Natö, og þvi fer fjarri að allir séu hre.ssir með það. Grikkir eiga sér erfðaféndur i Tyrkjum, sem mundu fyrirfram afar illa settir að þurfa alltaf ab sækja á helstu iþróttahátið heims i svo fjand- samlegt umhverfi. Ekki má held- ur gleyma þvi, að það er ekki gef- ið að þolanlegt stjórnarfar haldist i Grikklandi: fáum hefði geðjast að þvi, að halda ólympiuleika undir verndarvæng fasiskrar her- foringjastjórnar fyrir fáum ár- um. Það er þvi ekki að undra þótt meirihluti fulltrúa i Alþjóölegu ólympiunefndinni hafi gefið þessa hugmynd upp á bátinn. I mesta lagi fá Grikkir að halda upp á hundrað ára afmæli Ólympiu- leika hinna nýju með þvi að fá leikana til Aþenu árið 1996. Hugmyndin um að leikarnir séu alltaf haldnir i sama landi er samt ekki með öllu dauð. Sviss- lendingar hafa huga á að sækja um að halda leikana árið 1992 — og reyna i leiðinni að festa þá við sitt hlutlausa land. Þeir segjast ekki verða i neinum vandræðum með að láta allt bera sig. — áb sumarhús eða einbýlishús í sumai? Húseiningaverksmiðjan SAMTAK HF á Selfossi framleiðir margar gerðir ein- býlishúsa úr völdum viðartegundum. Húsin eru 80—160 fermetrar. AUÐFLYTJANLEGT HVERT Á LAND SEM ER. Höfum einnig hafið framleiðslu á mjög vönduðum sumarhúsum með band- sagaðri standandi klæðningu, loft og veggir eru klædd grenipanel. Gerið verðsamanburð áður en kaupin eru gerð. Sýrríngarhús á staðnum. Kvöld- og helgarsími 99-1779 SÍMi: 99-2333 AUSTURVEGI 38 800 SELFOSSI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.