Þjóðviljinn - 23.05.1981, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 23.05.1981, Blaðsíða 12
12 SíÐA — PJÓÐVrLJlNN Hfefgin 23. — 24. mai 1981 sunnudaaspistill Nr. 272 Stafimir mynda islensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lárétt eða lóð- rétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og .á það að vera næg hjálp, þvi að með þvi eru gefnir stafir i allmörgum orð- um. Það eru þvi eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern i sinn reit eftir þvi sem tölurnar segja til um. 'Einnig er rétt að taka fram, að i þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið i stað á og öfugt. Setjið rétta stafi i reitinn hér til hliðar. Þeir mynda þá örnefni inni á hálendi Islands. Sendið þetta nafn sem lausn á kross- gátunni til Þjóðviljans, Siðu- múla 6, Reykjavik, merkt. ,,Krossgáta nr. 272”. Skilafrest- ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. Verðlaun fyrir krossgátu 268 hlaut Glóey Finnsdóttir Alfhóls- veg 115, 200 Kópavogi. Verðlaunin eru bókin Steinariki. Lausnarorðið er DJÚPAVIK Verðlaunin Krossgátuverðlaunin eru óvenjulega vegleg að þessu sinni. Þau eru end- urminningar séra Magn- úsar Bl. Jónssonar í tveimur bindum: Bernska og námsár og Presturog bóndi. Ljóðhús gáfu út á síðasta ári. 22 21 7- 12 5 29 /9 3 Söngskglinn / Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist í SÖNGSKÓLANUM í REYKIAVÍK næsta vetur er til 1. júni n.k. Umsóknar- eyðublöð liggja frammi i Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar og á skrifstofu Söngskólans að Hverfisgötu 45, simi 21942 og 27366—daglega frá kl. 10—12 og kl. 14—17 þar sem nánari upplýsingar eru einnig veittar. Eldri nemendum er bent á, að þeir þurfa fyrir sama tima að endurnýja umsóknir sinar. Skólastjóri 2^2} Húsnæði óskast Hjón með 1 barn óska eftir að taka á leigu ibúð i Reykjavik. Algjörri reglusemi og góðri umgengni heitið. Upplýsingar i sima 81114. Skólast j órastarf Starf skólastjóra við Samvinnuskólann að Bifröst er laust til umsóknar. Háskólapróf nauðsynlegt. Einnig eru eftirtalin störf laus til um- sóknar við sama skóla: Starf félagsmálakennara og starf kennara i almennum verslunargreinum. Einnig kennarastarf i stærðfræði og islensku (1/2 starf). Störfin veitast frá og með 1. september n.k. Upplýsingar gefur skólastjóri—en um- sóknum sé skilað til Kjartans P. Kjartans- sonar, formanns skólanefndar Samvinnu- skólans, Sambandshúsinu, Reykjavik, fyrir mailok 1981. Skólanefnd Samvinnuskólans. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi skrifar: Er bókin á undanhaldi . Ég las það fyrir nokkru, já ve! að merkja í Svarthöfðagrein, að bókin væri á hröðu undanhaldi fyrirspölum og alls kynns hljóm- plötutækjum. Þetta er makalaus svartsýni höfundar sem átt hefur og á vel- gengni að fagna. Hvað mega þeir þá segja sem minna mega sin, en þar á undirritaður ekki við sjálfan sig þvi bækur hans hafa selst vel þrátt fyrir að ekki hefur verið hrópað húrra fyrir þeim með auglýsingum i fjölmiðlum. Þær hafa einnig fengið þokkalega gagnrýni ritdómara og ekki siður lesenda sjálfra. Nei, Svart- höfði minn góður bókin er fremur i framsókn en á undan- haldi. Það er bábilja og hjátrú að spýta þvi i landslýð i viðlesnu blaði og ekki til þess fallið að auka trú fólksins á bókinni. Ég ætla ekki að fara að gera undanfarnar greinar þinar sem margir hafa vægast sagt verið mjög illvigar og áróöurskenndar, og misvitrar af vitrum höfundi að vera, að umtalsefni. Þú hefur fengið þinn dóm fyrir þær. En bókin lifir og mun lifa góðu lifi. Menn munu nærast af góðum skáldskap eins og fóstur i móður- kviði gegnum naflastreng. Maðurinn mun halda áfram að miðla afkomendum sinum af þekkingu sinni og lifsreynslu eins og frummaðurinn sem risti rúnir á slipaða steinfleti og veggi hella sinna. Þannig mun þróunin halda áfram kynslóð eftir kynslóð með nýrri og meiri tækni, en tæknin mun ekki stökkva bókinni á flótta. Hún mun standast raun örtölv- ubyltingar. Hún mun lifa. Annað er skammsýni, vol. Við sem erum að rita bækur verðum að vera bjartsýnir. Fyrst þegar undir- ritaður fór að senda blööum og timaritum sögur og ljóð fékk hann þær jafnóðum i hausinn aftur með viðvörunum um að mörg ljón yrðu á vegi hans þyrnumstráðum. Það varð ekki til þess að auka trú hans á sjálfan sig. Oft hraus honum hugur, en hann gafst ekki og gefst ekki upp. En nóg um það. Ramakvein útgefenda aö ára- mótum afstöðnum er aldeilis ekki ný bóla. Enginn er búmaður nema hann barmisér. Þeir mættu þó spara sér svolitið auglýsinga- gjammið í sjón- og útvarpi, sem kom hárum fátækra bókaunn- enda til að risa á höfðum. Það er ekki að sjá að þeir séu á kúpunni sem' geta fleygt 500 miljónum gamalla króna i langar og ég vil segja frekjulegar og sið- lausar sjónvarpsauglýsingar. Þeirgætu einnig sparað sér erlent reyfararusl, sem i mörgum til- fellum yfirgnæfir islenskan skáldskap og gengur eins og heitar lummur i hinn unga les- anda því miður. Þarna held ég að hætta sé fyrir hendi. Við henni verður að sporna með ein- hverjum hætti. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi Hjúkrunarfræðingar Reykjavíkurdeild Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 25. mai ’81 kl. 20.00 stundvislega að Hótel Sögu Átthagasal. Fundarefni: Kjaramál. Mætum öll! Stjórnin. ERINDI um ibúðabyggingar og skipulag íbúða- hverfa i V-Þýskaiandi Mánudaginn 25. mai kl. 20.30 flytur Hermann Boockhoff, arkitekt, Hannover erindi i Lögbergi H.í. stofu 101. Aðgangur er öllum heimill. Þýska bókasafnið Arkitektafélag íslands. Orkustofnun Orkustofnun óskar að ráða efnaverk- fræðing eða efnafræðing til rannsóknar- starfa á jarðhitadeild Orkustofnunar. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Orkustofnunar, Grensásvegi 9, Reykjavik, fyrir 1. júni n.k. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar i sima 83600. Orkustofnun

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.