Þjóðviljinn - 27.05.1981, Side 5
MiOvlkadagnr 27. mai, 1M1 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5
Kosið í
Hollandi:
Þingkosningar fóru fram i Hol-
andi i gær. Og það sem deilt hafði
verið um i fremur friðsamlegri
kosningabaráttu var annars-
vegar atvinnuleysið, hinsvegar
afstaðan til vigbúnaðar.
Fráfarandi stjórn hafði mjög
litinn meirihluta. Hún var sam-
steypustjórn CDA, kristilegs
hægriflokks, sem hafði 53 menn á
þingi og VVD (Þjóðarflokks
frelsis og lýðræðis) sem er hrein-
ræktaður ihaldsflokkur, og hafði
49 þingsæti.
Búist var við þvi að þessi sam-
steypa missti meirihluta á þingi.
Þar koma mjög við sögu deilur
um atómorku i Hollandi og stað-
Holland hefur þá sérstöðu, að þar eru sósialdemókratar stærstir fiokka — og um leið andvigir Natópólitik.
Atvinnuleysingjar eru 350 þús-
und, þriðjungur þeirra æskufólk.
Deilt um atvinniileysi
og kjarnorkuvígbúnað
setningu 48 meðaldrægra eld-
flauga i landinu. ihaldsflokkurinn
VVD er vi'gbúnaðaróskum Nató
fyllilega sammála, en kristilegi
flokkurinn, CDA, er klofinn i mál-
inu — tiu af þingmönnum hans
eru andvigir þvi að Hollendingar
staðsetji hluta af nýju eldflauga-
kerfi á sinu landi.
Stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn er Verkamanna-
flokkurinn, sem er sósialdemó-
Æskulýðsráð
Reykjavíkur:
Sumar-
námskeið
í Þrótt-
heimum
Æskulýðsráð hefur undanfarin
ár verið með sumarnámskeið fyr-
ir börn i félagsmiðstöðvunum I
Bústöðum og Fellahelli. i sumar
verður samskonar starfsemi i
fyrsta skiptið i Þróttheimum við
Sæviðarsund og sér Æskulýðsráð
einnig um það. Innritun stendur
nú yfir daglega frá kl. 1—5, en
fyrsta námskeiðið hefst 1. júni.
Hverju barni er heimilt að sækja
eins mörg námskeið og hver vill,
en gjald fyrir hverja viku er 120
kr. Samanlagður timi
námskeiðanna er 9 vikur. Börnin
þurfa að hafa með sér nesti að
heiman, en Æskulýðsráð sér þeim
fyrir drykkjarf öngum. 40 börn
komast á hvert námskeið og
verða 4 starfsmenn með þeim.
SkUli Björnsson, forstöðumaður
Þróttheima, sagði, að starfið yrði
mjög fjölbreytt og enginhætta áað
börnunum leiddist, jafnvel þótt
þau sæktu fleiri en eitt námskeið
á sumri. Sem dæmi nefndi hann
að kenndir væru og farið i ýmiss
konar Utileiki, fyrirtæki heimsótt
og allskyns söfn skoðuð, farið i
sund, fjörur gengnar og innan-
húss væri svo hægt að föndra og
fara i ýmsa leiki, ef svo bæri
undir. Siðan yrði reiðskólinn i
Saltvik væntanlega heimsóttur og
siglingaklúbburinn i Nauthólsvik,
en þá lægi einnig vel við að ganga
um öskjuhliðina.
Þetta árið eru þessi námskeið
ætluð börnum fæddum 1969—1974.
— A.
Hlaut styrk
frá Anglíu
Fyrr á þessu ári auglýsti Anglia
eftir umsóknum um styrk til
námsdvalar i Englandi úr Menn-
ingarsjóði félagsins og hlaut
styrkinn að þessu sinni Kristin
Þórarinsdóttir, nemandi i
hjúkrunarfræðum við Háskóla ís-
lands.
kratiskur flokkur. Hann hafði 53
þingsæti og vann drjúgan kosn-
ingasigur þegar siðast var efnt til
kosninga i Hollandi. Skoðana-
kannanir benda hinsvegar til
þess, að flokkurinn skreppi
nokkuð saman I þeim kosningum
sem nú fara fram — eins og hinir
tveir stóru borgaraflokkar. Þvi
hafði verið spáð, að flokkurinn
D66, Lýðræðissinnar 66, mundu
stórauka fylgi sitt. Sá flokkur
hafði átta þingsæti, en gert var
ráð fyrir þvi, að hann gæti jafnvel
fengið 24 nú.
Foringi þessa flokks, sem
gjarna er kenndur við miðju og
óánægju er Jan Terlouw, kjarn-
orkufræðingur og barnabóka-
höfundur. Mönnum vefst nokkuð
tunga um tönn þegar þessum
flokki er lýst, en gjarna vilja
menn finna hliðstæður milli hans
og „Græningja” — flokks um-
hverfisverndarmanna i
Vestur-Þýskalandi.
Þar að auki hafa róttækir,
PPR, og umbótasinnar, SGP,
þrjú þingsæti hvor og reiknast
FRÉTTASKÝRING
þeir vinstramegin i hollenskum
stjórnmálum. Kommúnistar hafa
tvö þingsæti, friðarsinnar
(klofningsflokkur frá sósialdemó-
krötum) eitt, og nokkrir aðrir
koma við sögu.
Að þvi er alþjóðamál varðar þá
hefur flokkur sósialdemókrata,
stærsti flokkur landsins, lýst yfir
andstöðu, ekki aðeins við nýjum
kjarnorkuvopnum til Hollands
heldur einnig við Nató. Foringi
flokksins, Joop den Uyl, fyrrum
forsætisráðherra, hefur hótað að
segja af sér, ef þessi stefna fær
að ráða, og þessvegna hafa
sósialdemokratar komið sér
saman um þá málamiðlun, að
vera áfram i Nató, en takmarka
sem allra mest hlutdeild landsins
i kjarnorkuvigbúnaði. Flokkurinn
D 66 er andvigur bæði kjarnorku-
vopnum og kjarnorkuvígbúnaði,
en getu sætt sig við „táknræna”
aðild að Nató.
A næstliðnum áratug var all-
mikið blómaskeið i Hollandi, og
sósialdemókratiskar stjórnir
notuðu tækifærið til að koma á
góðum launum og félagslegri
þjónustu sem fullkomnari var en i
flestum skyldum rikjum. Orku-
kreppan hefur hinsvegar leikið
Hollendinga mjög grátt, og viö-
brögð þeirrar stjórnar hægri- og
miðjumanna, sem nú situr, hafa
helst verið þau, að reyna að halda
launum niðri. Auk þess hefur
skapast mikið atvinnuleysis-
vandamál i Hollandi — 350
þúsundir ganga atvinnulausar i
þessu landi 14 miljóna ibúa, og
þeir gætu innan tiðar verið orðnir
hálf miljón. Þriðjungur atvinnu-
leysingja er ungt fólk, 25 ára og
yngra.
Sósialdemókratar gengu hins-
vegar til kosninga með „þenslu-
áætlun” sem virðist að nokkru
leyti skyld kosningastefnuskrá
þeirri sem tryggði Mitterrand
sigur i Frakklandi. Aætlun þessi
gerir m.a. ráð fyrir þeim auknum
rikisumsvifum sem skapi rösk-
lega 300 þúsund ný störf á næstu
fjórum árum. Þar er gert ráð
fyrir f járfestingum, virkari
miðlun þeirra atvinnutækifæra
sem nú eru fyrir hendi m.a. með
styttingu vinnutima — og svo
stöðvun launahækkana hjá tveim
efri fiokkum hollenskra laun-
þega. Hinsvegar er gert ráð fyrir
þvi, að þeir lægstlaunuðu, þeir i
„þriðja” flokki, geti nokkuð bætt
sinn hag. ábtóksaman.
Sextugur í dag
Jóhannes Jóhannesson
listmálari
Kæri Jóhannes
Þegar við kynntumst, hafðir
þú lagt að baki mikilsverða
áfanga á þroskabrautinni. Þú
hafðir lokið við gullsmiðanámið
og lagt stund á málaralist
heima, áður en þú hélst vestur
tilBandarikjanna 1945 til náms i
málaralist á Barnesstofnuninni
i Filadelfluriki. Það voru fleiri
efnilegir i þeirri námsför. Og
það er skemmst frá þvi að segja
að þið náðuð slikum árangri á 2-
3 árum, að augljóst má vera að
ekki haf ið þið haldið til námsins
vestra alveg vanbúnir að
heiman. A öldufaldi nýbylgj-
unnar sneruð þið aftur og það
var sannkölluð brimreið inn i
menningarhelgina hér heima
eins og mér fróðari menn hafa
marg rætt.
Septembersýningin 1947, sem
þú áttir hlut að, hristi svo dug-
lega upp i fslensku menningar-
lifi, að gamli myndheimurinn
hrundi og smátt og smátt eftir
þvi sem árin liðu varð til nýr
myndheimur. Þið abstrakt-
málarar voruð harðlinumenn,
sem gáfuð okkur áhorfendum
engin grið, þið hélduð okkur svo
stift til skimar, að við þóttumst
sjá ljós, stundum allöngu áður
en við sáum nokkra skimu i
raun og veru. Þegar ég leiði
hugann að þessu i tilefni dags-
ins, held ég að rétt sé að segja,
hvað mér sjálfum viðvikur, að
ég hafi verið i ósamfelldri til-
sögn um myndlist hjá æskuvini
minum Karli Kvaran á áratugn-
um 1940-1950 en eftir það hafir
þú tekið við mér að mestu og
haft mig siðan sem þakklátan
áhorfanda. Ég held að ég hafi
tekið hægum en stöðugum
framförum. En ég fæ kast af
sektarkennd, þegar ég hugsa til
þess, hve litið ég hef látið i stað-
inn fyrir alla þá myndlist, sem
ég hef notið fyrir þinn til-
verknað.
Þegar þið Alfheiður giftuð
ykkur og heimilsstofnun og
rekstur krafðist meiri tekna en
hægt var að hafa af málverka-
sölu, gerði gullsmiðakunnátta
þin sig gildandi. Um árabil fékk
sú iðja bróðurpartinn af vinnu-
degi þinum. Ég gat fylgst með
vinnuþinni að smeltilist, skart-
gripagerð og smiði stærri silfur-
muna nægilega lengi til að fá
áhuga fyrir list þessarar
greinar. Ég minnist þess að
margir innlendir og erlendir
viðskiptavinir höfðu upp á verk-,
stæðinu á Skólavörðustignum
þótt ekki væri það stórt eða
áberandi.
Fyrir nokkrum dögum vorum
við Erla stödd i Þjóðminjasafni
Kritar i Herakléion og sáum þar
marga fallega hluti. Þar á
meðal voru um 3000 ára gamlir
undurfagrir skartgripir.
Skyndilega ávarpar okkur
glæsileg eldri kona og spyr
hvort við séum islendingar.
Þetta var kona K.B. Hansens,
forseta danska þjóðþingsins,
sem afhentiokkur Flateyjarbók
hér um árið. Hún sagðist þekkja
Gylfa Þ. Gislason prófessor,
Selmu Jónsdóttur og Jóhannes
Jóhannesson. Hún sagðist eiga
tvö málverk eftir þig og skart-
gripi. Henni þótti leitt að heyra
að þú værir hættur i silfrinu.
Við hjónin erum þakklát fyrir
margar góðar stundir á heimili
ykkar Álfu. Þar hefur löngum
verið hægt að gleðjast yfir
miklu barnaláni ykkar og má
með sanni segja að heimilið hafi
verið okkur kær staður Hfs og
listar I aldarfjórðung.
Kæri Jóhannes, við sendum
þér, Alfheiöi og börnum ykkar
og allri fjölskyldunni hjartan-
legar afmælisóskir. Erla leggur
sérstaka áherslu á ósk um að þú
eigir litrika ævi framundan.
f
Þinn Óli