Þjóðviljinn - 27.05.1981, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 27. mai, 1981
Skúli Alexandersson um vegaáœtlun:
Hlutur Vesturlands
51 nýr
ríkisborgari
of lítill
1 umræðum sem fram fóru á Al-
þingi i siöustu viku um vega-
áætlunina flutti Skdli Alexanders-
son (AB) ræðu um vegamál
Vesturlands og fer hluti af ræöu
hans hér á eftir:
Samþykkt vegadætlunar er sú
afgreiðsla hér á Alþingi, sem
jafnan er beðið eftir af hvað
mestri eftirvæntingu út um
byggðir landsins, hvernig ráða-
mönnum hér i rikisstj. og á Al-
þingi hefur tekist til við að
skammta og ráðstafa fé i hina
ýmsu vegi vitt og breitt um
landið. Mikilvægi samgangnanna
er mjög mikið og góðar sam-
göngur eru grundvöllur þess, að
hægt sé að halda uppi byggð úti
um landsbyggðina. Það riður þvi
á miklu, að bæði sé veitt miklu fé
til uppbyggingar vega og þvi fé,
sem til ráðstöfunar er, sé ráð-
stafað á sem bestan og réttlát-
astan máta.
Vitanlega er takmarkað fjár-
magn til þessara framkvæmda
svo og til flestra annarra hiuta
vegna fámennis okkar, sem
byggjum þetta land. Við höfum
ekki bolmagn til að gera stóra og
marga hluti i einu og það er alltaf
nokkur vandi að meta það, hvaða
verkefni skuli tekin og látin hafa
forgang. Það hefur sjálfsagt verið
unnið að undirbúningi þeirrar
vegaáætlunar sem hér er til um-
ræðu á svipaöan hátt og gert
hefurverið á undanförnum árum,
Það er i fyrsta skipti, sem ég kem
til starfa sem þingmaður Vestur-
lands að þvi að skipta fjármagni
eða samþykkja eða hafna til-
lögum Vegamálaskrifstofunnar
um það, hvernig þvi fjármagni
skuli skipt, sem til kjördæmisins
er áætlað.
Við þingmenn Vesturlands höf-
um rætt þessi mál ásamt ágætum
starfsmönnum Vegamálaskrif-
stofunnar á þrem fundum og
komist að sameiginlegri niður-
stöðu hvernig þvi fé skuli skipt,
sem ætlað er til Vesturlands. Mér
fannst það fé, sem veitt er til
vegamála, ekki aðeins til Vestur-
lands heldur i heildina tekið, vera
alit of litið. Ég varð fyrir mjög
miklum vonbrigðum þegar ég sá
hvað það var litið sem átti að gera
á áætlunartimabilinu á Vestur-
landi. Vitaskuld er þetta i sama
hlutfalli i öðrum kjördæmum
landsins.
Ot litiö t jármagn—hætta
á samdrætti byggðar
Ef ekki verður gert stórt átak
með aukinni fjárveitingu til vega-
gerðar i landinu, þá blasir það
við, aðbyggð dregst saman meira
og minna út um landið. Ef ekki
verða gerðir stórir áfangar i
vegagerð i dreifbýlinu, þá kemur
enn betur i ljós sá mismunur, sem
á sér stað milli landshluta. Ég sé
ekki betur en af þeirri stefnu
verður haldið sem nú er haldin að
byggja upp fyrst og fremst vegi út
frá umferðarsjónarmiði og þar af
leiðandi verður vegalagning um
aðalþéttbýlissvæði landsins látin
ganga fyrir, svo og hluti hring-
vegarins eðá góður vegur t.d. um
Mýrar og sunnanvert Snæfeils-
nes, um norðanvert Snæfellsnes,
um meginhluta Vestfjarða, um
meginhluta Austfjarða verði ekki
komin á þessum áratug og varla
þeim næsta. Sá vegur, sem nú er
verið að leggja og hefur verið
lagður hér um Reykjanes og
Suðurland verður þá liklegast
orðinn ónýtur. Að þessum tima
liðnum þarf aö fara að endur-
byggja kjarnavegina hér um
Suðurland og Reykjanes og hluta
hringvegarins þannig að sá timi
kemur aldrei eftir þeim hraða,
sem uppbyggingin er nú, að al-
mennilegur vegur verði byggöur
upp fyrir utan þennan aðalum-
ferðarkjarna.
Skiili Alexandersson.
Hlutur
Vesturlands
Einhver segir kannske, að ég sé
að draga upp dökka mynd af
ástandinu, en við hverju má búast
miðað við þá vegaáætlun, sem
fram er lögð hér á Alþingi nú?
Gagnvart Vesturlandi er sú áætl-
un i fáum orðum þannig fyrir
yfirstandandi ár sem ég skal nú
lýsa.
Til þjóðbrauta á Vesturlandi,
sem eru um 863 km, er áætlaðar 3
millj. kr. og til 450 km stofnbrauta
eru áætlaðar 11 millj. kr. til
undirbyggingar og uppbyggingar
vegarins. Drjúgur hluti þessa fjár
fer til þess að undirbyggja vegina
frá þéttbýlisstöðunum á Akranesi
Þingsjá
og Stykkishólmi að aðalvegi.
Uppbygging þessara vega er ekki
betri en það nú, að allmikið fé
þarf til þess að gera þessa vegi
þannig að þeir hafi það mikið
burðarþol sem ætlast er til þegar
sett er bundið slitlag á veg.
Framlag til bundins slitlags til
Vesturlands eru 3.4 millj. kr. Það
fer að mestu leyti i Akrnnesveg-
inn eða 2.9 milj. Afgangurinn,
hálf millj., fer i að setja bundið
slitlag á veginn um Búðardal.
Astandið er sem sagt það vont á
Vesturlandi nú á árinu 1981, að
það er ekki búið aö undirbyggja
og setja bundið slitlag á þessa
umferðarmiklu vegi sem tengja
þessa þéttbýlisstaði, Akranes og
Stykkishólm, við aðalveg. Ef litið
er tii framtiðarverkefna samkv.
áætluninni er myndin þannig, að
sáralitið fé er ætlað til fram-
kvæmda á veginum frá Borgar-
nesi vestur um Snæfeilsnes á
áætlunartimabilinu. Sama er að
segja um Snæfellsnesveg, þ.e.
veginn á norðanverðu Snæfells-
nesi. Á norðanverðu Snæfellsnesi
eru ibúar um 4 þúsund. Það er eitt
þéttbýlasta svæöi landsins. Samt
er ekki áætlað, að á þessum vegi
milli byggðannn- á Snæfellsnesi
verði gert neitt stórátak á ár-
unum 1981—1983. Þess ber þó að
geta að á Snæfellsnesvegi þ.e.
norðanverðu Snæfellsnesi, verður
framkvæmt á þessu ári fyrir eina
millj. kr. við Svelgsá, sem er
samkv. vegaáætlun og fyrir eina
millj. kr. við Grundarfjörð, en
það er fjármagn sem Fram-
kvæmdastofnun ráðstafar til
þessara framkvæmda. Á árunum
1982—1983 er aðeins um hálfa
millj. kr. að ræða til fram-
kvæmda á þessum vegi. Ég hef
áður nefnt, að aðeins eru ætlaðar
3 millj. kr. til þjóðbrauta á
Vesturlandi. Þeirri upphæð
verður vitaskuld ekki viða skipt,
enda kemur það i ljós, að svæðið
allt norðan Skarðsheiðar eða
Borgarfjarðarsýsla norðan
Skarðsheiðar og Mýrasýsla — á
þvi svæði er aðeins ein smáfram-
kvæmd. — Það er um Siðumúla.
Menn gera sér grein fyrir þvi,
hvaðhér er um geysiviðáttumikið
svæði að ræða og nauðsynlega
vegi. Það eykur ekki bjartsýni,
þegar til þessa svæðis alls er ekki
varið stærri upphæð en þetta.
Framkvæmdafénu til þjóð-
brauta er ráðstafað i ýmsa nauð-
synlega vegi. Þessi fjárhæð, 3
millj. kr., skapar hvergi mögu-
leika til að gera verulegar fram-
kvæmdir. Sömu söguna má segja
um aðra þætti vegauppbygg-
ingarinnar á Vesturlandi, ef
undan er skilin Borgarfjarðar-
brú. Þar er hvergi um að ræða
verulegar framkvæmdir né fyrir-
heit um þær.
Aðstöðumunur mikill
Kostnaður við rekstur bila á
malarvegi er mun meiri heldur
en ökutækis, sem notað er á vegi
með bundnu slitlagi. Þetta er
kostnaðarauki fyrir þá sem búa
við það að þurfa að aka um hol-
ótta malarvegi. Þetta er aðstöðu-
munur, sem úr þarf að bæta.
Þegar það raðast upp, að við sem
búum úti á landsbyggðinni, við
búum við dýrara rafmagn, við
búum við dýrari sima, við búum
við mikið dýrari samgönguað-
stöðu þá gefur það auga leið, að
menn velta þvi fyrir sér, hvort
það sé ekki nauðsynlegt til þess
að jafna þessar aðstæður, að at-
vinnufyrirtæki úti á landsbggð-
inni verði að borga hærra kaup.
Fólkið úti á landsbyggðinni, sem
verður að borga hærra fyrir raf-
magn, meiri peninga fyrir sim-
ann sinn og mun meiri kostnað
við bilinn, hlýtur að verða að fá
það bætt með einhverjum hætti og
þessi spursmái hljóta að verða til
umræðu meira á komandi árum,
hvernig þessi aðstöðumunur
verði jafnaður. Ég tel þvi, að það
sé mjög nauðsynlegt til þess að
þarna komi ekki upp siaukinn
mismunur, að gerð verði stórátök
i öflun þessum þáttum ogþáfyrst
og fremst þeim þætti sem hér er
rætt um, vegagerðinni. Það
verður ekki undan þvi komist að
bæta aðstöðu fólksins úti á lands-
byggðinni i sambandi við sam-
göngukostnað og létta reksturs-
kostnað með þvi móti, að sem
mestur hiuti veganna um aðal-
byggðasvæðin verði byggður upp
og bundinn slitlagi.
Þurfum að endurbyggja
meginhluta vegakerfis-
ins
Það hefur verið mikið talað um
það, að aliar vegalengdir hafi
styst með bættu samgöngukerfi
og enn eigum við eftir að stytta
þessar vegalengdir að mun með
þvi að endurbyggja meginhluta
þessa vegakerfis, sem þegar er
fyrir i landinu. Við höfum á
undanförnum árum lagt fram
mikið fjármagn i það að nýta
heita vatnið okkar og nota það til
upphitunar á stórum svæðum i
landinu. Það er kannski frekar
hending en að það skuli vera
þannig, að þarsem tekist hefur að
fá heitt vatn til þess að hita upp
húsnæði fólks, að það skuli vera
aðallega á þeim svæðum þar sem
komið er sæmilegt vegakerfi og
jafnframt er það lika á þeim
svæðum, þar sem raforkan er
ódýrust. Hin svokölluðu köldu
svæði þar sem ekki er fyrir hendi
heitt vatn til þess að leysa vanda-
málin i sambandi við upphitun
húsa eru einnig þau svæöi, þar
sem lélegastir vegir eru. Þarna
er einn þáttur enn, sem ýtir undir ,
það, að gert sé stórátak i vega-
málum án þess að ég fari frekar
að ræða um þetta hér. Ég geri þó
ráð fyrir þvi að jafnframt þvi sem
vegaframkvæmdir á landsbyggð-
inni jafni aðstöðuna milli byggða,
þá sé ekki neinn vafi á þvi að
vegagerðin sé eins arðsöm og
hitaveitulagnirnar okkar eru og
eru þær þó flestar mjög arðsöm
fyrirtæki.
Alþingi hefur samþykkt að
veita eftirtöldum einstakiingum
islenskan rikisborgararétt:
l.Ayse Selcan, barn i Reykjavik,
f. i Tyrklandi 30. mars 1980. 2.
Bareuther, Gudrun, húsmóðir i
Reykjavik, f. i V-Þýskalandi 28.
september 1936. Boysen, Astrid,
barn i Reykjavik, f. i Reykjavik 8.
febr. 1969. 4. Bronwyn Kolbrún
Kjartansdóttir, barn i Vest-
mannaeyjum, f. á lslandi 6. febr-
úar 1980. 5. Butt, David John, bif-
vélavirki á Akranesi, f. i Eng-
landi 15. október 1947. 6. Castros,
Julie Victoria, barn i Reykjavik,
f. I U.S.A. 24. mars 1975. 7. Clarke,
Michael John, tónlistarkennari á
Akureyri, f. i Englandi 6. ágúst
1949. 8. Clifford, Helene Arndis,
verkakona i Vestmannaeyjum, f.
á íslandi 18. október 1963. 9. Dan-
heim, Margrét Dalhoff, húsmóðir
i Reykjavik, f. i Reykjavik 13.
mars 1938. 10. Depuydt,
Hervé-Maurice Alexandre
Claude, kennari I Reykjavik, f. i
Frakklandi 13. október 1957. Fær
réttinn 18. nóv. 1981. 11. Diano,
Christina Kristensen, barn i
Keflavik, f. í Keflavik 8. febrúar
1979. 12. Diano, Theodora Krist-
ensen, barn i Keflavik, f. á Spáni
10. júli 1973. 13. Driscoll, Kári,
barn á Egilsstöðum, f. á Islandi 6.
april 1980. 14. Duffield, Mark Pet-
er, nemandi á Neskaupstað, f. i
Englandi 28. nóvember 1963. 15.
Enos, Mary Ann, starfsstúlka á
Seitjarnarnesi, f. i Bandaríkjun-
um 3. desember 1962. 16. Enos,
James Páll, nemi i Reykjavik, f.
12. desember 1964 i Bandarikjun-
um. 17. Garner, Margret Anne,
kennari i Reykjavík, f. i Englandi
19. janúar 1942. 18. Gehrig, Ursula
Friedel Else, húsmóðir i Hafnar-
firði, f. i Þýskalandi 4. febrúar
1941. 19. Guðmundsson, Sóibjart-
ur Thorbergsson, véigæslumaður
á Akranesi, f. i Færeyjum 20.
ágúst 1950. 20. Guðrún Dóra Ingv-
arsdóttir, barn i Reykjavik, f. i
Libanon 29. janúar 1980. 21. Han-
sen, Kari Lund, sjúkraliði i
Reykjavik, f. i Noregi 14. mars
1935. 22. Helgi Sigurður Karlsson,
barn i Reykjavik, f. i Libanon 25.
april 1980. 23. Hintze, Hanne, hús-
móðir i Mosfellssveit, f. i Dan-
mörku 4. ágúst 1937. 24. Inaba,
Takako, kerfisfræðingur i
Reykjavik, f. i Japan 1. júni 1946.
25. Jouhki, Ritva Leena, húsmóð-
ir i Reykjavík, f. i Finnlandi 14.
júni 1946. 26. Kunz, Keneva Ann,
kennari i Hafnarfirði, f. i Kanada
28. júni 1953. 27. Kiinstlich, Cathe-
rine Dory Anne, menntaskóla-
kennari i Reykjavik, f. i Frakk-
landi 16. ágúst 1937. 28. Leplar,
Cynthia Carrie, húsmóðir i
Reykjavik, f. i Reykjavik 5. sept-
ember 1953. 29. Lilleskog, Anny
Petra, húsmóðir á Svalbarðs-
strönd, f. i Noregi 10. júli 1944. 30.
Lockhart, Peter James, verslun-
armaður á Seltjarnarnesi, f. i
Englandi 5. mai 1918. 31. Maz-
manian, Robert, verkamaður i
Reykjavik, f. i Libanon 6. april
1959. Fær réttinn 8. desember
1981. 32. Melk, Robert, kennari i
Reykjavik, f. i U.S.A. 25. ágúst
1948. 33. Midjord, Fribjörg, hús-
móðir i Breiðdal, f. i Færeyjum
18. júni 1943. 34. Ohl, Elisabeth.
Margarethe, auglýsingateiknari i
Reykjavik,f. iÞýskalandi 15. mai
1932. 35. Olsen, Henry Svenning
Winther, sjómaður i Stykkis-
hólmi, f. i Færeýjum 3. nóvember
1940. 36. Perkins, Wayne Dexter,
tölvustjóri i Garðakaupstað, f. i
Bandarikjunum 24. janúar 1952.
37. Platek, Elvira, húsmóðir i
Njarðvik, f. i Astralíu 18. mars
1954. 38. Pretlove, Brenda Dar-
lene, húsmóðir i Garðabæ, f. i
Englandi 15. janúar 1952. 39.
Raschofer, Alois, kjötiðnaðar-
maður i Reykjavik, f. í Austur-
riki 10. desember 1936. 40. Ras-
mussen, Anna Ingeborg, barn á
Akureyri, f. á íslandi 21. janúar
1974. 41. Ridgwell, Peter John
Colin, kennari i Reykjavik, f. i
Englandi 18. nóvember 1942. 42.
Ryan, Thomas William, verka-
maður i Hafnarfirði, f. i Banda-
rikjunum 22. janúar 1960. 43.
Sokolov, Nikolaj Alexandrovits,
sameindaliffræðingur i Reykja-
vik, f. I Sovétrikjunum 22. april
1946. Fær réttinn 8. nóv. 1981. 44.
Spencer, Carl John, skrifstofu-
stjóri i Reykjavik, f. i Kanada 13.
október 1943. 45. Szebesta, Karol
Zdzislaw, sjómaður i Reykjavik,
f. i Póllandi 21. ágúst 1947. Fær
réttinn 28. des. 1981. 46. Sönder-
holm, Inger, nemi i Reykjavik, f. i
Reykjavik 6. mars 1962. 47. Thor-
steinsson, Ásbjörg, húsmóðir i
Reykjavik, f. i Færeyjum 13. nóv-
ember 1937. 48. Villalobos, Ric-
ardo Eloy, tækniteiknari i
Reykjavik, f. i Perú 27. október
1945. 49. Wright, Linda, húsmóðir
i Reykjavik, f. á íslandi 26. mars
1955. 50. Zawadzki, Ryszard Jan-
usz, verkamaður i Vestmanna-
eyjum, f. i Póllandi 2. nóv. 1950.
51. Þórunn Guðmundsdóttir, barn
i Reykjavik, f. i Kolumbiu 1.
ágúst 1974.