Þjóðviljinn - 05.06.1981, Side 3
Föstudagur 5. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Maíinánuður
í meðallagi
„Vorið kom i maí eins og vorin
komu forðum”, sagði Tómas,
endur fyrir löngu. En hvcrnig var
vorkomunni háttað nú? Kvaddi
það dyra i mai eða er það e.t.v.
einhversstaðar hér á hólmanum
ókomið enn? Hvað segir Adda
Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðing-
ur?
— Einkennið á máimánuði var
það, segir hún, — að fram um
miðjan mánuðinn var kalt um allt
land en úr þvi hlýnaði verulega
um sunnanvert landið, en með
ströndum fram norðanlands og
austan- hélst kuldatiðin allan
mánuðinn.
í Reykjavik var hitinn yfir
meðallagi flesta daga frá og með
13. mai en fyrstu 12 dagarnir voru
það kaldir að meðalhiti yfir allan
mánuðinn varð 0,3 stigum undir
meðallagi. Hlýjast varð hér þann
26. Þá komst hámarkshitinn i 16
stig, en kaldast varð aðfaranótt
þess 8. fjögurra stiga frost.
Sólskinsstundir voru 180, aðeins
færri en i meðalári og úrkoman
varð 47 mm., 11% umfram
meðallag. Það rigndi nefnilega
mjög mikið fyrstu dagana i
mánuðinum og munaði þar mest
um dagana 3.—4. mai.
A Akureyri var meðalhiti i
mánuðinum 4,8 stig, 1,5 stigum
kaldara en i meðalári. Þar komst
nú hitinn samt upp i 16 stig, þann
25. Úrkoma á Akureyri varð 12
mm. en það eru 4/5 af meðalúr-
komu þar.
Niðurstaðan verður þvi sú að
maimánuður er rétt i meðallagi
hvað áhrærir veðurfarið.
Börn og fóstrur af Laufásborg njóta góöa veðursins við Tjörnina. Ljósm.: Gel.
Margeir Danielsson, formaður hússtjórnar, Sólveig Alexandersdóttir,
sem leiðbeindi um postulinsgerðina og Reynir Ingibjartsson,
húsvörður. Til hliðar við þau má sjá nokkuð af þeim postulinsmunum,
sem til sýnis eru i Hamragörðum.
— Mynd: gel.
Postulínssýning
í Hamragörðum
Um þessar mundir á félags-
heimilið Hamragarðar 10 ára
afmæli. 1 tilefni af þvi hefur verið
efnt til sýningar á postulinsmun-
um, sem nemendur á
námskeiðum i postulinsmálun i
Hamragörðum og Postu-
linsstofunni hafa gert undir
leiðsögn Sólveigar Alexand-
ersdóttur. Mun þetta vera i fyrsta
skipti, sem slik sýning er haldin
hérlendis en þarna eru sýndir um
200 munir, mjög fjölbreytilegir að
gerð.
Postulinsmálun hefur náð
miklum vinsældum á siðustu
árum, sem tómstundastarf. Er
sýningin glöggur vitnisburður um
það hvað hægt er að gera á þessu
sviði listsköpunar.
1 byrjun 18. aldar hófst svo
framleiðsla á postulini i
Þýskalandi. Var það efnaverk-
fræðingurinn Bottger, sem hóf
framleiðslu á þvi harða og vand-
aða postulini, sem við þekkjum
nú. Hann kom á fót verksmiðju i
Dresden. Og til þess að varöveita
leyndarmálið um gerð
postulinsins, hafði hann i haldi
þá, sem að framleiðslunni unnu.
Er á leið öldina hófst svo fram-
leiðsla á postulini i Frakklandi og
Englandi.
Sýningin á postulinsmununum i
Hamragörðum verður opin
almenningi um hvitasunnuna,
sunnudag og mánudag 7.-8. júni,
kl. 15.00 til 22.00.
— mhg
Útifundur Sjálfsbjargar á Lækjartorgi
Atvíiuiumál fatlaðra
Fundurinn túlkaður á táknmáli
Sjálfsbjörg, landsam-
band fatlaðra efnir til úti-
fundar laugardaginn 13.
júní á Lækjartorgi. Þar
verður fjallað um atvinnu-
mál fatlaðra og má segja
að aukaþing Sjálfsbjargar
sem standa mun þennan
dag og næsta, verði um
stund flutt út á torg og
stræti.
Á fundinum verða flutt
ávörp, tónlist og leikarar
úr Alþýðuleikhúsinu frum-
flytja hluta leikritsins
,,Sterkari en Superman"
sem tekið verður til sýn-
ingar næsta haust, en það
fjallar um vandamál fatl-
aðra og ófatlaðra.
Alþýðusamband Islands hefur
heitið stuðningi sinum við úti-
fundinn, enda hefur ASl lagt
áherslu á málefni fatlaðra i ár og
gert samþykktir þar að lútandi.
Frá þvi að þing ASf var haldið sl.
haust hefur samstarfsnefnd verið
starfandi, sem hefur gengið frá
kröfugerð um réttindi fatlaðra.
Atvinnumál fatlaðra eru með
brýnustu hagsmunamálum
þeirra, enda hafa fatlaðir löngum
átt erfitt uppdráttar i atvinnulif-
inu. Margir þeirra hafa verið ut-
an stéttafélaga og þvi ekki notið
sjálfsagðra réttinda, eins og að-
ildar að lifeyrissjóðum svo dæmi
sé nefnt. Kjörorð það sem fatlaðir
setja á oddinn á þessu ári sem
helgað er málefnum þeirra, er
jafnrétti og það segir allt sem
segja þarf.
A útifundinum sem hefst kl.
13.30 flytja ávörp Björn Þórhalls-
son f.h. ASI, Hulda Steinsdóttir og
Sigursveinn D. Kristinsson, en
fundarstjóri verður Theodór A.
Jónsson form. Sjálfsbjargar.
Fyrir fundinn leikur lúðrasveit.
Það telst til nýmæla að allt sem
fram fer verður túlkað á táknmáli
og hefur slikt aldrei verið gert áð-
ur á útifundum, en á að koma
heyrnaskertum til góða. Þá má
benda fötluðum, á að útvega sér
aðstoðarfólk og kanna flutning til
og frá fundarstað i tima. Ferða-
þjónusta og aðstoð verður veitt i
tengslum við fundinn og eru allar
upplýsingar veittar hjá Sjálfs-
björgu.
— ká
Úr sýningu Alþýðuleikhússins á „Sterkari en Súperman” Sigfús Már
Pétursson og Björn...
Annars á gerð postulinsmuna
sér orðið ærið langa sögu,
upprunnin i Kina fyrir um 1200
árum. Fyrsti Evrópumaðurinn,
sem i kynni komst við þennan
listiðnað Kinverjanna var Marco
Polo, er hann sótti heim Fuki-
en-hérað i Kina i lok 13. aldar.
Lýsti hann þessum listiðnaði með
orðinu „porcelaine”, sem þýðir
Seashell eða perlumóðir. Er
Marco Polo hélt til Evrópu á ný
hafði hann með sér nokkuð af
postulini.
LOKAÐ A LAUGARDÖGUM
Kaupmannasamtök islands og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur beina þeim tilmælum til viðskiptavina
að gera innkaup sin tímanlega, þar sem verzlanir verða lokaðar á laugardögum frá 1. júní til 1. september.
Kaupmannasamtök islands,
Marargötu 2
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur,
Hagamel 4