Þjóðviljinn - 10.06.1981, Blaðsíða 15
>4 Hringið í síma 81333 kl. 9—5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
frá lesendum
Umhverfið sem ,,lifði af”
A undanförnum vikum og
mánuðum hafa ýms dagblöð,
þ.á.m. Þjóðviljinn veriö iöin við
að birta frásagnir af mörgu þvi
sem er að gerast i elstu hverfum
Reykjavikurborgar s.s. Torf-
unni svokölluðu, Grjótaþorpi
ofl. stöðum.
Vissulega er slikur frétta-
flutningur ágætur, umræða um
athyglisverða og sögulega hluti,
verndun minja osfrv.
Það hefur hinsvegar komið
mér dálitið á óvart, að i öllum
þessum skrifum um „hverfi” i
Reykjavikurborg, hefi ég hvergi
séð stafkrók um það hverfi i
Reykjavik sem e.t.v. á sér ekki
ómerkari sögu en sum þessara
gömlu hverfa, þótt eldri séu.
Sagan er nefnilega alltaf aö ger-
ast.
Hér á ég viö hverfið, sem
komist var svo aö orði um á fjöl-
mennum fundi ibúa hverfisins,
sl vor, að þetta væri „hverfið
sem lifði af”, sem sagt, hverfið
sem ráðamönnum Reykjavik-
urborgar i undanfarna áratugi,
tókst ekki að drepa. Þetta er
hverfið sem Þjóðviljanum virð-
ist ekki hafa þótt taka að minn-
ast á einu sinni, þótt það, ásamt
öðrum hverfum, afsprengjum
striösáranna, fátæktar og hús-
næðisvandræða svo sem Her-
skálakamp, Selby og Balbo
osfrv. hafi hýst fjölda alþýöu-
fólks á erfiðum árum.
Þetta er hverfið sem nú er óð-
um að taka á sig nýjan svip,
nýjar byggingar risa á hverju
ári og eldri byggingar eru lag-
færöar, eftir þvi sem aðstæður
leyfa. Garðar eru lagfærðir, tré
gróðursett, grasblettir ræktað-
ir. Þrátt fyrir það njóta ibúar
þessa hverfis minni þjónustu en
aðrir ibúar Reykjavikur og gild-
ir þar jafnt um alla hluti, gatna-
gerð, simalagnir, raflagnir
omfl.
Engu er likara en aö fulltrúar
þeirra flokka allra er fara með
borgarmál, hafi sameinast um
þá skoðun að þetta sé ekki okkar
fólk, viö þurfum ekkert fyrir
það að gera.
E.t.v. er hér um að ræöa arf
frá valdsmönnum fyrri ára þeg-
ar barnafjölskyldum var neitað
um rafmagn i hús sin árum
saman. Og hitaveitu skyldi það
ekki fá þótt sá múr yröi siðar
brotinn fyrir atfylgi góöra
manna. Þetta er ljót saga,
geymd en ekki gleymd.
Með tilkomu nýs borgar-
stjórnarmeirihluta fyrir þrem-
ur árum vöknuöu nýjar vonir.
En þrátt fyrir þá breytingu hef-
ur allt gengið grátlega seint.
Enn hefur ekki komið svo
mikið sem ein lúka af malbiki á
göturnar innan hverfisins, hvað
þá gangstéttarhella.
A góðviðriörisdögum þyrlast
moldrykið yfir þá sem hætta sér
út fyrir dyr og ef einhver leyfir
sér að kvarta og biðja um úr-
bætur viröast valdamenn jafnan
eiga i sinu pokahorni, nóg af
sviknum loforöum og á þau ein
eru þeir ósparir viö ibúana.
Hjól valdakerfisins snúast
Það er athyglisvert, þegar
ihaldið er alltaf að boða þetta
frelsi sitt i viðskiptalifinu, að sjá
hvernig það frelsi sem rikir i
þeim efnum er misnotað. Ég hef
nú aldrei verið sjóveikur en þaö
liggur við að ég gubbi yfir þess-
um þvættingi þeirra um frelsi i
verðlagsmálum. Hér eru nokk-
ur dæmi um hvernig frelsið
virkar.
I vor var undirritaöur staddur
úti á Ægissiðu þar sem grá-
sleppukarlarnir leggja upp.
Meö mér var gamall skipsfélagi
og meðan við stöldruðum við,
hafði Bjössi ekki við að bera
rauðmagann upp úr bátnum.
Þetta var gegnglært og hálfgerð
kóð allt saman en þaö stoppaði
samt ekki i vagninum. Þarna
mátti sjá fræga menn og fina
auk almennings sem keypti góð-
gætið og hvaö ætli það hafi svo
sennilega með sama hraða og
áður og i sömu átt þósvo eigi að
heita að nýir menn hafi tekiö við
stjórnartaumunum i Borgar-
stjórn. Gömlu, skemmdu jaxl-
arnir halda áfram að skemmast
þangaö til þeir verða dregnir úr,
eða detta burt sjálfkrafa.
Ég hefi átt heima i þessu
hverfi frá 1. mars 1949 og má þvi
glöggt vita um hvað ég er að
tala.
Að lokum ætla ég að segja
ykkur nafn þessa hverfis, sem
neitaði allri uppgjöf. Hverfisins
þar sem ibúarnir eru staðráðnir
i þvi að krefjast réttar sins af
Borgarsamfélaginu, og hafa
stofnaö samtök sin á milli og
kosið sér stjórn til aö berjast
fyrir sinum málstaö.
Það heitir Blesugróf.
Óskar Þórðarson
frá Haga,
Blesugróf 8. Rvk.
kostað. ATTA til' TIU NÝ-
KRCNUR STYKKIÐ!
Þessa dagana eru svartfugls-
og svartbakseggin aö koma á
markað og ég þekki karla sem
fara árlega noröur og vestur á
land og koma með miljónaviröi
til baka. Einn var að senda farm
i bæinn nú nýlega til að selja hjá
Tómasi og Jóni i Nóatúni og
hvað skyldi svo stykkið kosta
þar? SJO KRÓNUR STYKKIÐ!
Þetta er nú frelsið og afleið-
ingar þess. Ætli ekki væri nær
að koma upp verðlagseftirliti á
þessa frjálsu viðskiptahætti
heldur en að breiða ósómann út
eins og ihaldiö boðar? Það er
ekki aðeins i þessum hlunnind-
um sem frelsiö þeirra ræður
rikjum heldur einnig á mörgum
öörum sviöum þar sem sömu
sögu er að segja.
Gvendur á Eyrinni
Svartfuglseggið
á 7 nýkrónur!
Hj8l/3Se|i„
Barnahornid
Það er skaði að myndin
hennar Helgu Soffíu skuii
ekki vera prentuð í lit.
Hún er nefnilega máluð
hinum skrautlegustu lit-
um, veggir fagurgulir og
fjólublátt þak. Grasið og grænt og trjástofninn
trjálaufið er vitaskuld brúnn.
Miðvikudagur 10. júnf 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Sumarvaka
A Sumarvöku útvarpsins i
kvöld kl. 20.00 kennir margra
grasa. Tryggvi Tryggvason og
félagar syngja nokkur lög við
undirleik Þórarins Guö-
mundssonar. Hjalti Jóhannes-
son les annan hluta frásögu
Jóhanns Hjaltasonar af
Tröllatunguklerkum fyrr á tiö.
Þá les Valdimar Lárusson
kvæði eftir Jakob Thoraren-
sen og loks les Þórunn Elfa
Magnúsdóttir minnismola um
pólska gyðinginn Elias.
Útvarp
W KL, 20.00
Forsætisnefnd júgóslavneska kommúnistaflokksins á
valdatima Títós. Titó er sá i miðið.
Júgóslavía eftir Tító
í kvöld kl. 22.10 sýnir sjón-
varpið stutta fréttamynd um
gang mála i Júgóslaviu eftir
fráfall Titós. Þýðandi og þulur
er Þórhallur Guttormsson. Að
sögn hans er i myndinni lögð
áhersla á aö litlar breytingar
hafi orðiö i landinu með nýjum
leiðtogum. Þeir hafi sömu
stefnu og Titó hafði bæöi i inn-
anrikis- og utanrikismálum. I
utanrikismálum sé siglt á
milli skers og báru sem fyrr,
Júgóslavar velji sér banda-
menn að eigin geðþótta og
skipi sér i flokk hlutlausra
þjóöa. Þá kemur og fram að
þeir eiga nokkra samstöðu
með Rúmenum sem hafa los-
að sig undan valdi Sovétrikj-
anna og ekki er búist við aö
neinir þeirra sem nú eiga sæti
i forsætisn-efnd muni reyna að
ná alræöisvaldi i landinu. Enn
er þess að geta aö verðbólga
hrjáir Júgóslava eins og fleiri
og að afkoma almennings .
helst ekki i hendur við hag-
vöxt.
ö Sjónvarp
O kl. 22.10
Ungur Nigerfumaður
Keisari sjávarins
Það er ekki á hverjum degi
að flutt séu ritverk eftir
Afrikumenn i islenska rikisút-
varpinu. Þaö gerist þó i kvöld
kl. 22.35 en þá les Jón Þ. Þór
fyrri hluta þýöingar sinnar á
smásögunni „Keisari sjávar-
ins” eftir Nigeriumanninn Obi
B. Egbuna. Siöari hlútinn
verður fluttur á föstudags-
kvöld kl. 21.30.
Höfundur sögunnar er ungur
maður sem skrifar bæði smá-
sögur og skáldsögur. Hann
hefur dvalist bæði i Banda-
rikjunum og Bretlandi en þar
var hann blaðamaður um
tima. Einnig hefur hann veitt
forstöðu rithöfundastofu i
heimalandi sinu. Að sögn Jóns
Þ. Þór mun uppistaöa sögunn-
ar vera gömul þjóðsaga sem
höfundur færir i búning ævin-
týrs.
Útvarp
KL, 22.35