Þjóðviljinn - 19.06.1981, Síða 3

Þjóðviljinn - 19.06.1981, Síða 3
- - Föstudágur 19.' júnl 1981 ÞJÖtíVILJINN'^'&ÍÐA 3 F riöar gangan Steindór Steindórsson Lúóvik Kristjánsson Heiðursdoktorar Sautjánda júní voru tveir kunn- ir fræðimenn sæmdir heiðurs- doktorsnafnbót við Háskóla ts- lands, þeir Steindór Steindórsson frá Hlöðum og Lúðvík Kristjáns- son. Steindór Steindórsson var um árabil kennari við Menntaskólann á Akureyri og siðar skólameist- ari. Þrátt fyrir það hefur hann unnið umtalsverö afrek á fræða- sviði sinu, grasafræði. Jafnhliöa hefur hann svo þýtt fjölda rita sagnfræðilegs efnis. Luðvik Kristjánsson hefur löngum verið titlaður sagnfræð- ingur, þótt hann hafi ekki Há- skólamenntun á þvi sviði. Hann hefur m.a. skrifaö nokkrar bækur um lif og störf Jóns Sigurðssonar. 1 haust kom svo út fyrsta bindið i flokknum Islenskir sjávarhættir sem dómbærum mönnum ber saman um að sé meiriháttar af- rek i islenskri sagnfræði og þjóð: háttafræði. _j Velheppnuð hátíðarhöld ,,Það var allt annar blær yfir dansleikjunum um kvöldiö en oft hefur verið á siðustu árum. Bæði var skipulag á staðnum allt til fyrirmyndar, og við þurftum litið sem ekkert að hafa afskipti af fólki, en glöggir menn telja aö yfir 5000 unglingar og einnig mið- aldra fólk innan um, hafi verið i Höllinni þegar mest var”, sagöi Páll Eiriksson aðstoðaryfirlög- regluþjónn sem stjórnaði lög- gæslu á dansleiknum. 1 sama streng tók Þorsteinn Eggertsson formaður þjóðhá- tiðarnefndar. ,,Hátiðahöldin tók- ust mjög vel að minu mati, og ég vileinkum þakka það lipurri lög- gæslu og skynsamlegri fram- komu hljómsveita sem eiga hrós skilið,” sagði Þorsteinn. Gifurlegt fjölmenni tók þátt i útihátiðahöldunum i miðbæ Reykjavikur, auk þess voru hverfaskemmtanir i Arbæjar- og Breiðholtshverfum. Þrátt fyrir hálfkuldalegt veður, stóð fólk lengi við á hátiðarsvæö- unum, enda fjölbreytt dagskrá i boði. Mikið af unglingum úr ná- grannabyggðalögum Reykja- vikur, af Suðurlandi og frá Suður- nesjum komu á dansleikinn i Laugardalshöll, sem stóð til kl. 1 eftir miðnætti. Að sögn lögreglunnar var fólk fljótt að tinast heim að loknum dansleiknum og litið um mann- safnað i miðbænum um nóttina. Sömu sögu er að segja alls staðar af að landinu. Hátiöahöld- in fóru vel fram og allir virtust skemmta sér hið besta. ,,I raun fóru landsmenn það vel með dag- inn að útvarpið sá ekki ástæðu til að minnast á það i fréttum i gær, ólikt fréttum fyrri ára um óspekt- ir, drykkjuskap og skemmdar- verk”, eins og einn lögregluþjón- inn orðaði það. -Ig- Undir- búningur í fullum gangi Undirbúningur undir sumar- ferð Alþýðubandalagsins inn i Þórsmörk er i fullum gangi. Kristján Valdimarsson starfs- maður ABR heldur traustum höndum i alla spotta og vinnur að skráningu og skipulagningu ásamt feröanefnd og fararstjóra. Hann sagði i gær að þegar hefðu 100 manns skráð sig, og yrði þaö að teljast stór hópur þegar þess væri gætt að cnn er vika til stefnu. Hann vildi þó hvetja fólk til að skrá sig sem fyrst þvi að það auö- veldaði allan undirbúning. Lagt veröur af stað i ferðina kl. 8.00 annan laugardag og staldrað viö i örfáar minútur á Hellu og Hvolsvelli til að sinna ýmsum náttúrulegum þörfum. Fyrsti viö- <4Kt komustaðurinn þaðan i frá verður svo sá frægi Gunnarshólmi þar sem Jón Böðvarsson mun lýsa staðháttum og væntanlega verður ljóð Jónasar rifjaö upp fyrir við- stöddum. Eftir það verður numið staðar i við Stakkholtsgjá og hún skoöuð. Siðan mun Jón Böðvars- son spjálla við feröalangana áður en farið verður yfir Krossá og segja þeim frá Þórsmörk, sögu staðarins og náttúrufari. Þrjár gönguferöir verða skipu- lagðar i Mörkinni á laugardag og ein meiriháttar ganga á sunnu- daginn og veröa þær kynntar sið- ar. Rútur fara til baka til Reykja- vikurkl. 17 á laugardeginum fyrir þá sem aöeins hafa tök á aö vera einn dag i ferðinni. —j- 20. JÚNÍ FRÁ KEFLAVÍK TIL REYKJAVÍKUR Ólafur Ragnar Grímsson: Samstaða með friðar- hreyfingum í Evrópu Gangan núna er bæði fram- hald af áratuga baráttu okkar gegn hernum og staðfesting á samstöðu okkar með hinum við- tæku friðarhrey fingum sem komið hafa fram i fjölmörgum löndum Evrópu siðustu mánuði. Þessi nýja friðarhrcyfing er mynduð til að berjast gcgn við- tækum áformum Bandarikj- anna um kjarnorkuvopn i Evr- ópu. Herstööin á Islandi hefur á undanförnum áratugum smátt og smátt tengst kjarnorku- vopnakerfi Bandarikjanna á N-Atlantshafi, i gegnum SOSUS-kerfið i hafdjúpunum, Loran-C stöðvar, radarkerfin og staðsetningu Orion og Phantom flugvéla. Þegar rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar heimilaði hingaðkomu AWACS flugvél- anna var eitt slikt spor stigið, þvi samkvæmt áliti hernaðar- sérfræöinga eru AWACS vélarn- ar einnig ætlaðar til að stjórna árásum. Herstöðin hér er nú orðin bæði liður i kjarnorku- vopnakerfi Bandarikjanna i N-Atlantshafi og vettvangur til að hefja og stjórna árás. Slikt sýnir að eöli herstöðvarinnar hér er allt annað en stuönings- menn NATO hafa haldið fram. Það er þvi rökrétt að um leið og friðarhreyfingar úti i Evrópu hefja aðgerðir til að krefjast kjarnorkuvopnalausrar Evrópu frá Póllandi til Portúgal, þá göngum við frá herstöðinni i Keflavik og undirstrikum þar með baráttu okkar hér og sam- stöðu með evrópskum friðar- hreyfingum. _ Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi: V erkalýðshreyimgin standi vörð um frið Ég tel að verkalýðshreyfingin sé það afl sem best getur staðiö vörð um frið i heiminum. Það er verkafólk sem framleiðir vopn- in sem siðan eru notuð gegn verkafólki annarra landa. Ég er einmitt nýkomin af ráðstefnu erlendis þarsem fjallað var um verkalýðshreyfingar og friðinn. Þar fékkst sú niðurstaða að þeir sem vinna við hergagnafram- leiðslu verði að beita sér og breyta framleiðslunni til nyt- samara horfs. Hér á landi getum við best stuðlað að friði með þvi að vera utan hernaðarbandalaga og losa okkur við herinn. Ég vil hvetja allt verkafólk til þátttöku i friðargöngunni á morgun og sýna i verki að við viljum berjast gegn vigbúnaöarkapp- hlaupinu og kjarnorkuvopnum. Svava Jakobsdóttir, rithöfundur: í okkur heyra Svava Jakobsdóttir rit- höfundur hafði þctta að segja i tilefni friðargöngunnar 1981: Við höfum fengið það staðfest að við eigum samleið með fólki i Evrópu sem berst gegn kjarn- orkuvopnum. Það sem við höf- um gert i okkar herstöðvarbar- attu er ekki bara þjóðernislegt, heldurhöfum við sýnt fram á að það er verið að gera okkur að skotmarki. Allir þættir bar- áttunnar halda gildi sinu, en nú er málið að veröa svo alvarlegt að smáþjóð eins og við getur ekki hallaðsér á annað eyrað og sofið vært. Við veröum að finna leiðir til að ná sambandi við aðrar þjóðir sem likt er komið á fyrir. Ég lit á það sem jákvæða byrjun ef við getum orðið sam- stiga um að láta óskir okkar um frið og kjarnorkuvopnalaus lönd i ljós. Það er mikilvægara en allt annað að koma á samstarfi og þvi verður að halda áfram. Viö verðum að láta i okkur heyra með þvi móti styðjum viö best hvert annað. Erling Ólafsson, form. SHA: Þarf fjöldabaráttu A skrifstofu Ilcrstöðvaand- stæöinga náöuni við tali af Er- ling, Ólafssyni á lokaspretti undirbúnings friöargöngunnar. Erling sagöist vilja leggja á- herslu á að þeir sem eiga eftir að láta skrá sig i gönguna geri það strax, þvi þaö auöveldar þeim sem vinna viö undir- búninginn aö ganga endanlega frá rútuferöunum suöur aö Kefla vikurflugvelli. Erling sagðist einnig vilja minna á að þessar aðgerðir hér, tengjast friðaraögerðum úti i Evrópu þar sem mjög breið þverpólitisk samstaöa hefur náöst um baráttuna gegn vig- búnaðarkapphlaupinu og fram- leiðslu kjarnorkuvopna. Um leið og við tökum undir þær kröfur leggjum við einnig áherslu á þá baráttu sem hér helur veriö háð alltfrá lokum siðari heimsstyrj- aldarinnar, gegn herstöðvum og hernaðarbandalögum. „Viö stöndum frammi fyrir þvi, að við drögumst æ meir inn i vigbúnaðarkapphlaupið og gegn þvi þarf viötaæka fjölda- baráttu. Við þurfum aö sýna i verki með göngunni á morgun að slik barátta sé til staðar. Ég vil hvetja fólk til aö láta okkur hér á skrifstofu Herstöðvaand- stæðinga heyra frá sér, þó að þaö komi ekki inn i gönguna fyrr en i Hafnarfirði. Hér er enn íull þörf á meiri starfskröftum og að lokum vil ég hvetja þá sem ekki sjá sér fært að koma i gönguna til að mæta á útifundinn á Lækjartorgi. Þar flytur ávarp Berit As frá Noregi, hún tengir okkar aðgerðir göngunni sem hefst daginn eftir úti i Evrópu”, sagði Erling. —Irn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.