Þjóðviljinn - 30.06.1981, Qupperneq 1
mOBvnnNN
Þriðjudagur 30. júni—144. tbl. —46. árg.
Kaupmannasamtökin loka yerslunum:
V erslanastríð
Svo viröist sem Kaupmanna-
samtökin ætii aö gera gangskör
aö þvi aö allar almennar verslan-
irhafilokaö á laugardögum. Milli
20 og 30 verslunum var lokaö meö
lögregluvaldi á laugardagsmorg-
uninn og eins bannaöi lögregian
Miklar breytingar á
landrismu við Kröflu
afgreiöslufólki aö vinna í verslun-
um á Seltjarnarnesi. Eigendur
þar máttu hins vegar afgreiöa
sjálfir.
Bæöi Kaupmannasamtökin og
Verslunarmannafélag Reykja-
vikur viröast vera einhuga i máli
þessu, en Kaupmannasamtökin
telja þá kaupmenn sem hafa opiö
á laugardögum, hafa gerst brot-
legirviö reglugeröir um opnunar-
tima verslana i Reykjavik.
Svo sem kunnugt er, er leyfilegt
aö hafa opiö fram eftir kvöldum á
fimmtudögum. Þaö telja sumir
kaupmenn fyrst og fremst koma
stórmörkuöum til góöa, en neyt-
endur vilji ekkert siöur hafa opiö
á laugardögum.
— hs
Mælitækin
ná ekki yfir
umbrotasvæðið
— „Breytingar á lyftingum á
svæöinu hafa veriö þaö miklar á
siöustu mánuöum, aö viö getum
ekki lengur notaö halla stöövar-
hússins viö Kröflu sem mæliein-
ingu á landris i miöri öskju, held-
ur er land aö risa einhvers staöar
annars staöar, en hvar það er vit-
um viö ekki, þar sem viö náum
ekki aö fylgjast meö nema meö
þvi takmarkaða svæöi sem mæli-
tæki okkar ná yfir”, sagöi Svein-
björn Björnsson eölisfræöingur i
gær, en hann er nú staddur á
skjálftavaktinni viö Mývatn.
Hreppsnefnd Skútustaðahrepps
hefur óskað eftir þvi við yfirvöld
aö tryggö verði vakt á umbrota-
svæöinu fyrir norðan, og að rann-
sóknarstofnunum verði gert kleift
að koma fyrir þeim tækjum sem
nauðsynlegt er til að hægt verði
að fylgjast með öllum hræringum
á svæðinu, en núverandi staðsetn-
ing mælitækja sé orðin úrelt.
Sveinbjörn Björnsson sagði að
nauðsynlegt væri að setja upp
fleiri hallamælipunkta, þvi fyrri
uppskriftir að Kröflueldum ættu
sér enga samsvörun i þeim óróa
sem nú á sér stað, og visinda-
menn væru óneitanlega mun verr
i stakk búnir þegar þeir hefðu
ekki yfirlit yfir allt það svæði sem
óróa gætir á.
Krafla hefur gengið eins og
klukka hingað til og menn getað
gengið að flestum hlutum sem
visum, en það gildir greinilega
ekki lengur. Nú er mjög há land-
staða hér á svæðinu, en þrátt fyrir
mikinn halla á stöðvarhúsinu við
Kröflu þá hefur ekki verið fyrri
samsvörun við landris i miðri
Oskju. Annað hvort er þvi landris
mest á einhverjum öðrum stað
hér á svæðinu sem við vitum ekki
um þar sem allar mælanlegar
upplýsingar vantar, eða þá mjög
j;runnt er orðið niður á kviku. ;
Hér er mikil lyfting i gangi,
sprungur halda áfram að gliðna
og við höfum i raun verið aö biða
eftir umbrotum frá þvi i april.
Sveinbjörn sagði einnig varð-
andi yfirlýsingu hreppsnefndar
Skútustaðahrepps, að menn yrðu
að spyrja sig hvort þeir teldu um-
brotin við Kröflu það hættuleg, að
þeir vildu veita fé til að hægt væri
að fylgjast með gangi hluta, eða
hvort hættan væri það litil að rétt-
ara væri að veita fjármagninu
frekar til annarra hluta. Orku-
stofnun og Raunvisindastofnun
sem ásamt Norrænu eldfjalla-
rannsóknarstöðinni hafa séð um
og kostaö gæsluvakt við Mývatn,
teldu sig ekki geta veitt af eigin
rekstrarfjármagni til kaupa og
flutnings á nýjum tækjum og is-
lenskir aðilar gætu ekki gert til-
kall til rekstrarfjár Norrænu eld-
fjallarannsóknarstöðvarinnar
sem væru bundin fjárframlögum
Noröurlandanna, og þvi stæöi i
raun á fjárveitingavaldinu, ef
koma ætti þessum málum i það
horf sem heimamenn hafa nú
óskað eftir.
—lg
Plötur voru negldar fyrir dyr og glugga á Grjótagötu 9 sl. föstudag, en
munu ckki haida næturgestunum úti, spá nágrannarnir. —Ljósm.
Friöþjófur
„Býður upp á inn-
brot og óþrifnað”
IbUar Grjótaþorps eru orönir
langþreyttir á allskyns ónæöi og
óþrifnaöi sem stafar af ásókn úti-
gangsfólks og annarra um nætur i
mannlausa húsiö Grjótagötu 9.
Uppur sauö i siðustu viku er þar
kom upp eldur, en hverfið er sem
kunnugt er aö mestu eingöngu
byggt timburhúsuin.
Félagasamtökin Vernd höfðu
áður umráð yfir húsinu og eftir að
þau hættu notkun þess hafa
margir rennt til þess hýru auga,
ma. hefur Utideildin sóttum að fá
þar aðstöðu og margir húsnæðis-
lausir einstaklingar, þám. ungt
fólk, sem gjarna vill leggja i að
laga þaö til á eigin kostnað.
Borgin á hUsið og hefur verið
borið við miklum kostnaði við að
gera það upp, svo og hinu, aö ekki
sé enn bUið að samþykkja skipu-
lag Grjótaþorpsins og þvi ekki
leggjandi I neinn kostnað að sinni.
— Hlýtur þó að vera spurning fyr-
ir borgaryfirvöld hvort ekki sé
enn kostnaðarsamara að þurfa si-
fellt að vera aö setja i rUður eða
krossvið fyrir glugga að ótöldu
þvi sem skemmt er innanhUss
meðan hUsið er mannlaust, sagði
einn GrjótaþorpsibUanna, Laufey
Jakobsdóttir i viðtalivið Þjóðvilj-
ann.
Framhald á bls. 13
Friörik ólafsson, sem fremst á myndinni teflir viö Óttar F. Hauksson, bætti enn einni rósinni i
hnappagatiö, þegar hann varö Hraöskákmeistari Noröur-heimsskautsbaugsins. Þaö mót var haldiö
undir berum himni á baugnum aöfaranótt laugardag s.l., i tengslum viö Helgarmótiö i Grimsey.
Nánar er fjallaö um þaö á bls. 14.
Aöalfundi ISAL var frestað
Einn maður fer
með öll atkvæðin!
Skýrsla bresku endurskoðendanna vœntanleg í nœsta
mánuðiy segir Ingi
A baksiðu Morgunblaösins á
sunnudaginn var, er frá þvi
greint, aö fulltrúar Alusuisse i
stjóm ISALhafi ákveöiö aö fresta
aöalfundi tslenska álfélagsins
h.f., en fundurinn hófst i Reykja-
vík á föstudag.
Morgunblaöið hefur það eftir
ónafngreindum heimildarmönn-
um aö ástæðan fyrir þessari
ákvörðun álherranna hafi
verið sú, að þeir hafi ekki viljað
sleppa Inga R. Helgasyni, sem
veriðhefur annar tveggja fulltrúa
íslenska ríkisins i stjórn ISAL, Ur
stjórninni fyrr en lokið væri þeirri
rannsókn er hófst I vetur á verð-
lagningu Alusuisse á sUráli til
ISAL.
Skýrsla breska endurskoðunar-
fyrirtækisins Coopers & Lybrand
er væntanleg i næsta mánuði.
— 1 tilefni þessara skrifa
Morgunblaösins snerum viö okk-
ur til Inga R. Helgasonar og
spurðum hvað hann vildi um þau
segja.
— Þetta er hjákátleg frétt i
Morgunblaðinu, sagði Ingi, og þó
enn hjákátlegra, ef þettaer virki-
lega haft eftir forráðamönnum
Alusuisse. Ef þeir telja sig standa
vel f sUrálsmálinu svokallaða, ef
þeir telja sig ekki hafa krkfið
ISAL um yfirverö á súráli, þá ætti
R. Helgason
Paul MOUer frá Alusuisse. A
aöalfundi íslenska álfélagsins h.f.
fer hann einn meö öll atkvæöin.
Enginn annar hefur þar at-
kvæöisrétt.
álikt að koma i ljós, hvort sem ég
er i stjórn ISAL eða ekki.
— En þú hafðir beöist undan að
sitja áfram í stjórninni, ekki satt?
— Það er rétt, aö ég hafði óskað
eftir þvi við iðnaöarráðherra aö
s hann leysti mig undan starfs-
skyldum í stjórn ISAL, þar sem
ég tel þær ekki samræmast nýju
starfi minu sem forstjóri Bruna-
bótafélags tslands. Iðnaðarráð-
herra hafði að sjálfsögðu fallist á
þessa beiðni mina, og fyrir aðal-
fund ISAL gengið formlega frá
skipun Ragnars Arnasonar,
lektors, I stjórnina i minn stað.
Ragnar vinnur nú að doktorsrit-
gerð um auðlindahagfræði,
og ég tel mjög vel séð fyrir þessu
sæti með skipun hans.
En i þessum efnum er vert að
hafa í huga, aö á aðalfundi ISAL
er aðeins einnhluthafi, og aðeins
einn maður sem fer með at-
kvæöisrétt allra hlutabréfanna.
Aörir hafa þar ekki atkvæði. Við
stjórnarmenn sem höfum setið
aðalfundina höfum þar engan at-
kvæðisrétt. Paul MQller fór á
þessum fundi með atkvæðisrétt
Alusuisse og það var hann sem
frestaði aöalfundinum, áður en
kom að skipun nýrrar stjórnar.
Hann ræður þessu og þarf engan
að spyrja, en hinu ræöur hann
ekki hverja Islensk stjórnvöld
skipa sem fulltrúa sina i stjórn
ISAL. Ég mun eftir atvikum sit ja
i stjóm félagsins fram að fram-
lagningu skýrslunnar frá Coopers
& Lybrand, sem væntanleg er I
júlimánuði. Umræður um sUráls-
máliö læt ég biða þar til sU
skýrsla liggur fyrir.