Þjóðviljinn - 30.06.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 30.06.1981, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 30. júní 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 íþróttir 0 íþróttir g1 ibróttir Of stór en sanngjarn sigur Skagamanna gegn FH Skagamenn komnir á „skotskóna” Þá loksins Skagamönnum tókst aö skora mark eftir langt hlé, þá urðu þau hvorki færri en fjögur I verðskuiduöum, en jafnframt of stórum, sigri yfir FH-inguin á Kapiakrikavellinum sl. laugardag. Þrátt fyrir súld og rigningu á köflum og rennblautan og hálan grasvöllinn, sýndu bæði liðin oft á tiðum léttan og skemmtilegan leik.Byrjuninvar fjörleg hjá báð- um liöum og boðaði hraðan sókn- arleik. FH-ingar voru nærri þvi að skora þegar Sigurður Halldórsson notaði hendurnar til að stöðva hnitmiðaðan stungubolta til ólafs Danivalss. og fékk að sjá gula spjaldið að launum. Óvist er um framhaldið hefði ólafi tekist að skora,en i stað þess skoraði Arni Sveinsson langþráð mark fyrir Skagamenn eftir góða sendingu frá Kristjáni Olgeirssyni. 7 min- útum siðar, á 29. min., fengu Skagamenn dæmda vitaspyrnu eftir að Hreggviður markvörður FH hafði fellt Kristján inni teign- um. Eftir þritekna vitaspyrnu dæmdi annars lélegur dómari leiksins Þóroddur Hjaltalin loks- ins gilt mark og Skagamenn komnir með góða forystu. Nýtt og sprækt lið FH var ekki á þeim buxunum að gefast upp og skap- aði sér oft hættuleg tækifæri og á 40. min. varði Bjarni Sigurðsson glæsilega fast skot frá Inga Birni. Af öðrum ólöstuðum átti Bjarni stórleik i liði IA. Ahorfendur áttu von á að leik- urinn færi nú að jafnast en Sig- urður Lárusson gerði þær vonir að engu þegar hann skoraði glæsilegt mark rétt fyrir leikhlé. 3-0 fyrir 1A. FH-ingar mættu ákveðnir til siðari hálfleiks og gerðu harða hrið að marki 1A, en ávallt var Bjarni á réttum stað á réttum tima. Hvað sem FH-ingar reyndu þá vildi boltinn ekki inn, ekki nema i þeirra eigiö mark, en um miðjan siðari hálfleik aðstoðaði Gunnar Bjarnason lA-menn dyggilega við að bæta 4. markinu við þegar hann gaf háa sendingu fyrir eigið mark og Kristján Olgeirsson þakkaði pent fyrir með góðum skalla 4-0. Skagamenn voru nú gjörsam- lega búnir að brjóta FH-liðið nið- ur og höfðu öll tök á leiknum sem eftir var. Þessi sigur Skagamanna var i það stærsta.en sanngjarn engu aö siður. Bjarni markvörður sá við öllum marktilraunum FH-inga og i raun gerði það Ut um leikinn, þvi Skagamenn skoruðu Ur nánast öllum þeim markfærum sem þeir fengu. Bestu menn IA voru Bjarni markvörður og þeir Sigurður og Kristján voru sivinnandi i sókn- inni. FH-liðið barðist lengi vel af miklum krafti, en það vantaði neistann sem var svo greinilegur i siðustu leikjum liðsins. — lg. Dýrmæt stlg til UBK Breiöabliksmenn halda enn á- fram sigurgöngu sinni i 1. deild- inni, þeir hafa enn ekki tapað leik. A sunnudaginp lögðu þeir IBV að velli i Vestmannaeyjum, 2-1 i fjörlegum og góðum leik. Eftir hressilega byrjun tóku heimamenn forystuna meö glæsi- legu marki Ómars Jóhannssonar á 15. min. Hann fékk góða sendingu frá Viðari Eliassyni og þrumuskot hans hafnaði alveg Ut viö stöng Blikamarksins, algjör- lega óverjandi fyrir Guðmund, 1-0. Breiðabliksstrákarnir gáfust ekki upp við mótlætið og eftir rösklega 10 min. höfðu þeir jafnað. Knötturinn barst inn I teig Eyjamanna til Helga Helgasonar, sem var óvaldaður. Helgi lagði boltann vel fyrir sig og skoraði með hintmiðuðu skoti, 1-1. Afram hélt fjörið, en mörkin létu á sér standa. Stórglæsilegt mark ómars Jóhannssonar fyrir IBV gegn Breiðabliki dugði Eyjamönnum skammt þvi Blikarnir sigruðu i leiknum 2-1 Á 56. min fékk Helgi Bentsson stungusendingu inn fyrir vörn IBV, lék áfram og lyfti knettinum snyrtilega yfir Pál og i mark, 2-0. Laglega gert hjá Helga og hans fyrsta mark á íslandsmótinu i ár. Eftir þvi sem á leiö leikinn uröu Eyjamenn sókndjarfari, en þeim tókst illa að skapa sér almennileg marktækifæri og töpuðu þvi báð- um stigunum. Omar átti framúrskarandi góöan leik á miöjunni i liði IBV og eins var Þórður sterkur I vörn- inni. Þá var Valþór sterkur að venju. Ólafur Björnsson lék mjög vel hjá UBK, stöövaði ófáar sóknar- lotur Vestmannaeyinganna. Helgi og Jón voru ógnandi i fram- linunni. S/IngH Bjarni markvörður Sigurðsson átti hreint frábæran Ieik með 1A gegn FH siðastliðinn laugardag. Hann lagði grunninn að stórsigri Akurnesinganna, 4-0. /*v . staöan ^mm^mmmmmmammmmmmmrnd Staðan i 1. deildinni að aflokn- um leikjum helgarinnar er þessi: Vikingur.........9 7 1 1 14-5 15 Breiöablik.......9 4 5 0 11-4 13 Valur...... .....9432 19-8 11 Akranes..........9 3 4 2 8-5 10 Fram ............9 2 5 2 7-9 9 IBV..............8 3 2 3 10-9 8 KA...............7 2 1 4 7-8 5 KR...............9 1 3 5 5-12 5 FH...............9 2 1 6 10-19 5 Þór .............8 1 3 4 4-15 5 Tiunda umferðin hefst nk. laug- ardag. Stangarstökkvarinn úr KR, Sig- urður T. Sigurðsson, setti Is- landsmet i 4x100 m boðhlaupi ásamt félögum sinum. 2 glæslleg Islandsmet Tvö göð tslandsmet voru sett á frjálsiþróttamóti I Vestur- Þýskalandium helgina, en meö- al þátttakenda voru margir úr liöi Islands sem keppti á EM I Luxemburg. Sigriöur Kjartans- dóttir, KA, hljóp 400 m á 55.12 sek, sem er tæpum 0.2 sek betri tími en gamla metið Ingunnar Einarsdóttur. Þá hljóp sveit KR (Siguröur T. Sigurðsson, Oddur Sigurðs- son, Jón Oddsson og Hjörtur Glslason) 4x100 m boöhlaup á 42.29 sek. Gamla metið, frá 1949, var I eiffli IR-inga, 42.8 sek. — IngH Toppbaráttan í 2. deild á milli Reynis og ÍBK Keppnin i 2. deild fótboltans er nú mjög jöfn og spennandi, en á toppnum eru 2 Suðurnesjalið, ÍBK og Reynir. Um helgina voru 4 leikir i 2. deiid og skuium við lita stuttlega á gang þeirra. Reynir sigrar Reynir sigraði Hauka I Sand- gerði 1-0 og var sá sigur i minnsta lagi. Eina mark leiksins skoraði Ómar Björnsson um miðjan seinni hálfleikinn. Markvöröur Hauka, Guðmundur Hreiðarsson, varði eins og berserkur allan leik- inn. Jafntefli í Neskaupstað Á Neskaupstað léku heima- menn gegn Skallagrimi frá Borgarnesi og þar varö marka- laust jafntefli, 0-0. Þrátt fyrir nokkurn sóknarþunga Þróttar- anna máttu þeir sætta sig við að gestirnir færu á brott meö annaö stigið. Öruggur sigur Gylfa Gylfi Kristinsson, GS, varð ör- uggur sigurvegari I eldri flokki pilta á Unglingameistaramótinu I golfi, sem fram fór I Grafarholti um helgina siöustu. Hann lék 72 holurnar á 310 höggum. 1 öðru sæti varö Magnús Jónsson, GS,á 319 höggum og þriðji var enn einn Suðurnesjamaðurinn, Sigurður Sigurðsson, á 321 höggi. I yngri flokknum varð Karl Ó. Jónsson, GR, hlutskarpastur, lék á 320 höggum. Annar varð Arnar M. Ólafsson, GK á 331 höggi og þriöji Kristján Ó. Hjálmarsson á 336 höggum. I þessum ílokki geröist það sjaldgæfa atvik að einum kylfingnum, Guðmundi Arasyni, var visað Ur keppni þeg- ar hann var með örugga forystu. Hann sló upphafshögg fyrir aftan teig. I stúlknaflokki sigraði Steinunn Sæmundsdóttir, GR með nokkr- um yfirburðum, lék á 328 högg- um. Sólveig Þorsteinsdóttir, GR varð önnur á 335 höggum og i þriðja sæti varð Þórdis Geirsdótt- ir, GK. — IngH ÍBI á sigurbraut Hörkuviðureign varö á milli IBl og Fylkis á Isafirði. Isfiröingarn- ir tóku forystuna með marki Jóns Björnssonar, en Loftur Ólafsson jafnaði fyrir Fylki áöur en blásiö var til leikhlés, 1-1. Heimamenn höfðu siðan undirtökin i seinni hálfleik og bættu við tveimur mörkum, Haraldur Leifsson og Jóhann Torfason Ur vitaspyrnu, 3-1. Völsungur náði jafntefli Völsungi frá Húsavik tókst að ná jafntefli gegn Reykja- vikur-Þrótti á Laugardalsvell- inum á laugardaginn, 0-0. Þróttararnir sóttu mun meira lengstum, en tókst ekki aö nýta yfirburðina til marka. Staöan i 2. deild er þannig: Keflavik..........7 5 1 1 14:5 11 Reynir............7 4 3 0 8:2 11 Isafjörður........7 421 12:7 10 Þróttur,R.........7 3 3 1 7:2 9 Völsungur.........7 322 11:8 8 Skallagrimur....7 2 2 3 5:6 6 Fylkir............7 2 2 3 6:9 6 Þróttur, N........7 1 2 4 6:9 4 Haukar............7 1 2 4 4:13 4 Selfoss...........7 016 1:13 0 Eitt og annað Hemmi Gunn á fleygiferð Það vakti athygli áhorfenda á leik Vals og Þórs siðastliðinn laugardag að I peysu no. 9 i Valsliðinu lék útvarpsmaðurinn góðkunni, Hermann Gunnars- son. Einn áhangenda Vals benti á, að þegar Hemmi byrjaði að leika i meistaraflokki hafi yngsti meðlimur Valsliðsins nú, Jón Gunnar Bergs, ekki veriö kominn i heiminn!! Hörkukeppni Mjög spennandi keppni er nú i öllum riölum 3. deildar knatt- spyrnunnar. Um helgina urðu þessi úrslit helst: A-riðill: Léttir-Þór ............2-2 IR-UMFN ...............0-6 Leiknir-Stjarnan.......3-3 B-riðiil: HV-Reynir, He..........4-0 Vikingur-Snæfell.......0-0 D-riðill- USAH-Leiftur...........0-6 Tindastóll-Reynir......3-0 E-riðill: Arroðinn-DagsbrUn......4-0 HSÞ,B-Magni ...........4-1 F-riðiiI: Einherji-UMFB..........7-2 Huginn-Höttur..........3-0 G-riðill: Austri-Sindri..........3-0 Hrafnkell-Leiknir......2-1 • Lárus hefur skorað mest Vikingurinn Lárus Guð- mundsson er efstur á listanum yfir helstu markaskorarana i 1. deildinni, hefur sent knöttinn 8 sinnum i mark andstæðinganna i 9 leikjum. I öðru sæti er Þorsteinn Sig- urðsson, Val,með 7 mörk. Fjög- ur mörk hafa skorað Kári Þor- leifsson, IBV, Guðmundur Torfason, Fram og Sigurjón Kristjánsson, Breiðabliki. • Þórdis hjó nærri nietinu Þórdis Gisladóttir, IR, var nærri þvi að setja nýtt tslands- met i hástökki á móti i Dort- mund i Vestur-Þýskalandi á laugardaginn. Hún stökk hæst 1.84 m, en átt góbar tilraunir við nýtt met, 1.86 m. A sama móti hljóp AgUst As- geirsson, 1R, 1500 m á 3:52.3 min. Þórdis Gisladóttir, 1R

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.