Þjóðviljinn - 16.09.1981, Síða 2

Þjóðviljinn - 16.09.1981, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN KÆRLEIKSHEIMILIÐ viðtalið „Ég er eins og salthneta á bragðið" Örtölvur til Iðnskólans Iðnskólinn i Reykjavik mun nú i vetur veita flestum iðnnémum kennslu i tölvufræðum, auk þess sem nemendur i rafeindavirkjun fá kennslu i viðgerðum á örtölvum. Hefur Hljómtækjaverslun Karna- bæjar stuölað að þessari þróun með gjöf til skólans á þremur SHARP örtölvum og kann skólinn bestu þakkir fyrir gjöfina. Margur er vandinn myndatúlkuninni Friðrik Sophusson var að skrifa grein eina ferðina enn i Vfsi um skelfiieg völd Alþýðu- bandalagsins, sem stafi af aum- ingjaskap samstarfsaðila þess. „Það er ekki nóg að dýrðin sé hjá samstarfsaðilanum ef mátt- urinner allur hjá Alþýðubanda- laginu” segir Frikki. Svo hafði hann þessa mynd með, uppliming, eins og menn geta séð. Fjórir Alþýðubanda- lagsforingjar með herstöð og bandariska herflugvél i baksýn. Hvað skyldi nú svona mynd þýða, séð úr djúpum félagssál- fræðinnar? Þýðir hún að þeir Hjörleifur, Ólafur, Sigurjón og Svavar séu þeir frekjuhundar, að þeir skyggi á sjáifan bandariska flugherinn? Erþetta aðdróttun um að þeir hafi (i þeirri sömu frekju sem veldur Friðriki hugarvili) söls- að undir sig jafnvel einhvern bakhjarl í bandariskum víg- búnaði? Eru þetta dylgjur um að her- inn sé eiginlegt sameiningar- tákn Aliaballans? Eða— og það hljómar likiega ef við skoðum hvernig skarpar linur flugvélarinnar skera loftið yfir þeim rauðu foringjum — er þetta kannski tjáning á þeirri ósögðu von greinarinnar, að þótt mættinum og dýrðinni sé i fljótu bragði skipt á þann ókristilega máta sem fyrr segir, þá sé nú mátturinn samt þar suður á velli, þar sem appirötin eru og bomburnar? Ef á þarf að halda... Rætt við Vernharð Linnet formann Djassvakningar Djassinn setur svip á bæinn Það hefur áreiðanlega ekki farið fram hjá þeim sem gista höfuðborgina ýmist að staðaldri eða endrum og sinnum, að borg- in státar af hressilegu djasslifi. Oft I viku bregða djassleikarar fyrir sig betri fætinum og blása, þenja strengi eða hamra á svartar nótur og hvítar, fólki til mikils unaðar. Djassáhuga- menn hafa með sér samtök sem kunnugt er, Djassvakningu, en formaður þeirra er Vernharður Linnet, einn alharðasti djassist- inn, mundi sennilega vera talinn númer tvö i þeirra röðum, á eft- ir Jóni Múla. — Hvað er að frétta af Djass- vakningu Vernharöur? Það er allt á fullu við að und- irbúa vetrarstarfið. Þaö verður haldinn aðalfundur á næstunni og við erum þessa dagana farnir aö reka klúbb i Félagsstofnun stúdenta ásamt SATT. — Hver verður ykkar hlutur I þeim rekstri. Við tökum virkan þátt i rekstrinum, en rokkararnir áttu fyrsta leikinn. Þeir voru orðnir ansi þyrstir, enda hafa þeir varla fengið tækifæri til að koma fram frá þvi að Borgin lokaði á þá. Þeir verða með tón- leika út þennan mánuð, en i október kemst djassinn á dag- skrá. — Verðureitthvað um erlenda gesti i vetur? Já, Missisippi Delta Blues Band kemur i byrjun október og heldur tvenna tónleika. Það er held ég i fyrsta sinn sem ekta blúsband kemur til landsins. Þá erað nefna að vinur okkar Niels Henning (örsted Pedersen) kemur að likindum um miðjan október, það eina sem gæti raskað þvi er það hvort hann fær einhverja spilara með sér. Hann verður i Bergen ásamt Philippe Caterine i október og það gæti verið að þeir kumpán- ar kæmu báðir. — Hvað um aöstöðu ykkar I Djass vakningu til tónleika- halds. Aðstaðan hefur gjörbreyst með þvi að fá klúbbinn, nú gef- ast möguleikar á að fá erlenda einleikara til aö koma og spila með islenskum djassleikurum. — Plötuútgáfa, eitthvað hafið þið sinnt henni? Jú, platan með tónleikum Bob Magnússon á Sögu er nú i press- un og kemur væntanlega á markað i október. Þá er verið að vinna að tveggja platna albúmi um Gunnar Ormslev og það er með ólikindum hvað hefur fund- ist af góðu efni með honum. Við höfum fengið upptökur frá Moskvu, Kaupmannahöfn, og héðan að heiman sem þarf að vinna úr, þær ná allt aftur til 1949. Þarna verður á ferðinni sjálf 4jasssaga Islands. — Finnst þér áhuginn á djass- tónlist stöðugt aukast? Hann hefur vaxið mikið frá þvi sem áður var, en það er spurning hversu djúpstæður hann er. Það er harður kjarni sem vinnur að framgangi djass- ins, en auðvitað er nauðsynlegt að fólk komi að hlusta ef hægt á að vera að halda hér uppi djass- tónleikum. Þú hefur fleiri járn i eldin- um en tónlistina, útgáfustarf- semi Lystræningjans er á þín- um snærum, hvað er að frétta af þeim vigstöðvum? Allt gott. Lystræninginn næsti kemur út i október, tónlistar- timaritið hefur gengið vel og hefti tvö er væntanlegt um næstu mánaðarmót. Eins er um Lostafulla lystræningjann hann hefur gengið út. — Hvað um bækur? Við gefum út tvær bækur nú i haust. Annars vegar er á ferð- inni þriðja og siöasta bindið um þau Klás og LenU, Naflabæk- urnar svokölluðu eftir Hans Hansen og hins vegar ætlum við að gefa út smásögur Vitu And- ersen, bókina Haltu kjafti og vertu sæt, i þýðingu Kristjáns Jónssonar. Við gáfum á sinum tima út ljóðabók eftir Vitu sem vakti að vonum nokkra at- hygli. —ká Óviðjafnanlegt Á dögunum lásum við viðtal i Morgunblaðinu þar sem Tómas Árnason viðskiptaráðherra fer nokkrum vel völdum lotningar- orðum um SIS, sem ber höfuð og herðar yfir aðra aðila i landinu eins og kunnugt er. Þá varð til þessi visa: Smjörfjall mikið naga mýs mjólkurlitrans hækkar pris iönaðurinn úti frýs — ekkert jafnast á við SIS. Skaði Litli og stóri. Ljósm. —gel. Sá stærsti og sá minnsti í dýrasafninu í íslenska dýrasafninu við Skólavörðustíg hefur nýlega verið komið fyrir tveimur uppstoppuðum hest- um. Eru þetta stærsti og minnsti hestur á íslandi og er talsverður stærðarmunur á þeim eins og sjá má á myndinni sem gel Ijósmyndari tók þar fyrir skemmstu. Hátt gengi á dollarnum er af- leitt fyrir iðnaðinn og lágt gengi á sænsku krónunni enn verra. Af hverju segja menn þá að án sé illt gengi nema HEIMAN hafi? < Q Q O — Röndótta bindiö mitt! Hvern fjárann er það •!•- .aögerahér? íj-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.