Þjóðviljinn - 16.09.1981, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 16.09.1981, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. september 1981 Fréttaskýring í tilefni þess, að rúmt ár er liðið frá stofnun frjálsu verkalýðs- samtakanna Samstöðu, Solidarnosc, í Póllandi Lech Walesa i Gdansk 15. ágúst 1981: „Viö gefum ekki eftir þumlung af þvi sem hefur áunn- ist”. Kania flokksleiðtogi ásamt Jaruzelski forsætisráöherra á fundi miöstjdrnar pólska Kommúnistaflokks- ins i siöasta mánuöi. Póllandí Stökkið stóra í í hvert skipti sem allt virðist ætla að sigla i strand hjá Pólverjum óttast menn, að björninn gleypi þá. En fram til þessa hafa þeir komið sterkari úr hverri raun. K.S. Karol blaðamaður franska timaritsins Le Nouvel Observateur skýrir hér að neðan hvað liggur til grundvallar styrks Samstöðu. Frá „hungurgöngunni” i Lodz i byrjun ágústmánaöar. Nú er liöiö rúmt ár siöan átök hófust i Póllandi milli verkalýðs- stéttarinnar og forustusveitar Kommúnistaflokksins. Þau likt- ust engu, sem á undan haföi gengiö, þvi verkfallsmenn fóru ekki aðeins fram á bætta efnalega afkomu heldur einkum og sér i lagi fram á réttinn til þess aö stofna sitt eigiö verkalýðsfélag, frjálst og óháö flokksapparatinu. Svo virtist sem þungamiðja valdsins og allt þjóöfélagskerfið, grundvallað á alræöi eins stjórnmálaflokks, riöaöi til fails og tvistraöist i valddreifingu ef gengiö yrði aö kröfum verkfalls- manna. Eftir aö hafa sett markiö þetta hátt og i krafti tökunnar á skipasmíöastöövunum i Gdansk þann 14. ágúst undir stjóm Lech Walesa og í Sczechin þann 19. ágústuröu pólskir verkamenn út- verðir fyrstu friösamlegu bylt- ingarinnar i Austur-Evrópu. 1 dag þegar rúmt ár er liðið frá þessum atburöum viröist vælu- tónninn um „pólska harm- leikinn” i flennufyrirsögnum vestrænna dagblaöa frá þessum tima lítt skiljanlegur. En hitt er rétt, aö allt fram til þeirra tima var eins og ágústmánuður i Austrinu byggi gjarnan yfir vof- veiflegum atburöum. Það var i ágúst 1961, aö fyrstu merkin sáust um „skammarmúrinn” i Berlin. Sjö árum siöar, um miðjan ágúst, upprættu sovéskir skriödrekar „voriö i Prag”. Þvi var þaö ekki svo auövelt aö sjá fyrir, aö þess- um pólska ágústmánuöi lyki meö sigri skynseminnar. Lest í tvennu lagi A þeim tveimur vikum ágúst- mánaðar fyrir ári siöan er öllu réðu um framhaldiö var reyndar ekki laust viö aö Ihugaöar heföu veriö heföbundnar kúgunaraö- feröir, bæöi i höfuðstöövum Kommúnistaflokksins i Póllandi i Varsjá og f nánasta umhverfi Leonid Bresjnev i Moskvu. Ein- hvern tima munu sagnfræöingar draga fram I dagsljósiö þaö ráöa- brugg sem gert var og hlaut nafnið „Kvöldstundin”. Þar var gert ráö fyrir töku skipasmiöa- stöðvanna i Gdansk meö hjálp herskipa og þyrla. Aö visu var sú ráðagerð aldrei framkvæmd, en svo sannanlega var hún á prjón- unum. Siöar upplýsti Stanislas Kania, hinn nýi aöalritari pólska kommúnistaflokksins, aö samn- ingarnir sem leiddu til stofnunar Samstööu heföu aldrei veriö mögulegir ef meirihluti forystu- manna flokksins heföu ekki veriö hliöhollir samningaleiöinni. Þaö segir sig sjálft. En þessir forystu- menn-kusu ekki samningaleiöina fyrren svo til allur iönaöur lands- ins var lamaöur og þjóöin öll bjóst sjálfkrafa til þess aö leggja niöur störf. Það var undan þunga þess- arar baráttubylgju sem barst um landið sem fyrsta sjálfstæöa verkalýðsfélagiö i allri sögu sovét-blökkarinnar varö til i Pól- landi. Það er athyglisvert, að Pólverj- ar bregða oft fyrir sig járn- brautarlikingu þá er málin eru rædd. Fyrir samningana i Gdansk, segja þeir, liktist efna- hagslif okkar mest ofhlaðinni járnbrautarlest á fleygiferö i átt- ina að hengifluginu. Allt stjórn- málakerfiö var eins og lest meö hjálparlausum, hundeltum far- þegum sem voru ofurseldir vilja óhæfra stjórnherra i dráttar- vagninum. En meö tilkomu Sam- stööu eru pólsku farþegarnir ekki lengur óvirkir: þeir skipuleggja sig i vögnunum, gefa út fréttablöö og kjósa lýöræöislega sina eigin fulltrúa. Þeim leyfist samt sem áöur ekki aö leggja hönd á dráttarvagninn. Lega landsins fyrir austan tjald kemur i veg fyrir þaö og strax i Gdansk féilust þeir á aö beina ekki spjótum sinum að skipulagningu æösta valdsins i samfélaginu. Ef viö höldum okkur viö járn- brautariikinguna, þá er lestin ennþá, nú ári siðar, I tvennu lagi. Forystuliö Kommúnistaflokks Póllands hefur ráöist i umtals- veröa endurskipulagningu i dráttarvagninum. Spilltustu lestarstjórarnir hafa verið reknir og sjálfstýring aukin. En stjórn- herrum er enn ekki ljóst hvert stýra skal lestinni og þeir eru auk þess ekki lengur einir i ráðum. Vandinn er m.a. sá, aö sam- skiptin við allan farþegafjöldann, sem er tiu sinnum fjölmennari en þeir er gista dráttarvagninn, eru enn mjög frumstæö og allar til- raunir til tengsla rekast á rót- gróna tortryggni Pólverja I garö allra lestarstjóranna. Nú viröist Stanislas Kania hafa aukist sjálfstraust eftir þing Kommúnistaflokksins i siöasta mánuöi og þvi hefur hann ákveöiö aö taka bæri i taumana. Þess vegna ræöa menn nú á Vestur- löndum um harönandi viöbrögö og óttast aö reynt veröi aö koma á „eölilegu” ástandi i Póllandi. Rétt eins og aö pólsk-sovésk yfir- lýsing soðin saman á Krimskaga (sem Amerlkanar álita reyndar áhrifalitla) eða samþykkt miö- stjórnar Pólska kommúnista- flokksins heföu I fólgin ómót- stæðilegt afl sovésku skriðdrek- anna, sem lögöu undir sig Tékkó- slóvakiu á sinum tima. Þegar nýjungar verða í mannkynssögunni Ég er þeirrar skoöunar, aö aftur veröi „eölilegu” ástandi ekki komiö á i Póllandi og að Kommúnistaflokkurinn hafi endanlega glataö alræöisvaldi sinu þar i landi. Félagar i Sam- stööu eru um tiu miljónir og þeir hafa gert allar verksmiöjur landsins aö virkjum sinum. Þvilik hreyfing veröur ekki upprætt af hvers konar tilraunum valdhaf- anna til þess að ná frumkvæðinu aftur i sinar hendur. Það þýöir samt ekki, aö þjóöin muni fram- vegis sigla lygnan sjó né það, aö verstu kreppurnar séu þegar aö baki. Pólska lestin stendur nú svo til hreyfingarlaus i efnahagsfeni. Til þess að byrja meö ber flokki Stanislas Kania skylda til þess að koma henni aftur af staö. Til þess hefur hann fyllstu ástæöu til þess aö leita hjálpar á báöa bóga, til Sovétrikjanna, til Frakklands og til Vestur-Þýskalands (og jafnvel tii Islands), en honum skjátlaöist hrapalega ef hann héldi, að i nýju skjóli geti hann reytt af Samstöðu þó ekki væri þaö nema þau minnstu þeirra réttinda, sem henni áunnust I ágúst 1980. Ef aö forystuliðiö brýnir raustina um of, gæti svo fariö, aö i stað þess aö skelfa farþegana æsti það þá til uppreisnar sem leitt gæti hinar alverstu hörmungar yfir þjóöina. Hvað Samstööu varöar, þá er hún i raun riki i rikinu, sem fær engum af áformum sinum til Ieiöar komiö nema með þvi aö semja viö eöa hafa áhrif á hiö lög- bundna rikisapparat. 1 þvi skyni voru gerö drög aö stefnuskrá fyrir fyrsta landsþing Samstööu, sem stóö yfir nú fyrir skemmstu. Þar er gert ráö fyrir, aö þróun efnahagslifsins i landinu mótist af sjálfstjórnarstofnunum. Þó þaö hljómi þversagnarkennt, felst hlutverk Samstööu einnig i þvi, aö gera pólsku farþegunum ljósa nauösyn þolinmæðinnar, fá þá til þess að hætta götumótmælum og skipuleggja starfiö innan sam- takanna á laugardögum. Agnes Heller, ungverskur heimspekingur, sem vinnur i Ast- raliu, hélt þvl fram fyrir nokkrum mánuðum siöan, aö hreyfing slik sem Samstaða, borin uppi af miljónum verkamanna, gæti ekki haldiö út til langframa aö vera I kompanii meö flokki eins og Kommúnistaflokki Póllands, sem hvorki réttlætir sig meö lýöræöis- legum kosningum né vilja guös. I mannkynssögunni telur hún að engin dæmi séu um varanlegt jafnvægi milli tveggja jafn ójafnra krafta. Svo má vera. En ef mannkynssaga fyndi ekki annaö slagiö upp á nýjungum væri hún eilif hringrás endur- tekninga. Siðan fyrir ári siöan vinnur hún að nýjungum i Pól- landi. Og ég held, aö hægt sé að treysta verkalýö þess lands til þess aö halda áfram á þeirri braut, sem hann hefur kosiö sér sjálfur. ÞýttúrNouvelObs. —hst

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.