Þjóðviljinn - 16.09.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 16.09.1981, Side 7
Miðvikudagur 16. september 1981 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 7 fylling. Fláar fyllingarinnar grjótvarðir. Milli malarfvllingar og grjótvarnar er lagður ofinn dúkur til að hindra útskolun malar i sjógangi. Grjótvörn nær upp fyrir akbraut til að draga sem mest úr áhrifum sjávar á umferð og vegyfirborð. Akbraut er malbikuð og breidd hennar 7 m. Utan við akbraut eru malar- axlir 2.0 m að breidd Við brúar- enda eru byggðir bogadregnir garðar hornrétt út frá vegfyll- ingu. Er lögun þeirra og stærð með þeim hætti, aö þeir leiði vatnið inn i brúaropið með sem minnstum straumköstum og jöfn- ustum hraða. Uppbygging garö- anna er með sama hætti og veg- fyllingar. Byggðir voru eða styrktir. vegarkaflar beggja megin fjarðar og lagt á þá bundið slitlag. eru þeir kaflar alls 12 km. langir. Kostnaöur og fram- kvæmdir Kostnaður við þessar fram- kvæmdir, þegar þeim er að fullu lokið, er áætlaður 155 milj. kr. á verðlagi i ágúst 1981. Sem fyrr segir hófust fram- kvæmdir i júni 1975. Fram- kvæmdahraði og áfangaskipti réðust af aðstæðum á staðnum og þvi fjármagni, sem til umráða var á hverjum tima. Arið 1975 var einkum unnið að þvi að koma upp aðstöðu og smiöi hjálpartækja. Stöplar brúar voru byggðir 1976 og 1977 en yfirbygging 1978 og 1979. Vegfylling sunnan brúar var að mestu gerð 1978 en garðar og vegfylling norðan brúar 1980. Var vegurinn opnaður til umferðar þá um sumarið. I ár hefur svo endanlega verið gengið frá veg- fyllingu og lagt bundið slitlag á veginn. Nokkrir verkþættir hafa verið faldir verktökum með útboöi eða samningi. Að öðru leyti hefur Vegagerð rikisins annast fram- kvæmdir sem og hönnun mann- virkja. — mhg Ráðstefna Alþýðu- bandalagsins um orku- og iðnaðar- mál i Verkalýðs- húsinu á Hellu um næstuhelgi, 19. og 20. september Hvað er framundan í orku- og iðnaðarmálum? Borgarfjarðarbrúin — Ljósm: Ari Umræðuefni: Stefnumótun i orku- og iðnaðarmálum. Vaxtarmöguleikar I almenn- um iðnaði. Kjör og aðbúnaður i iðnaði. Nýting auðlinda og iðnþróun. Rekstrarform i iðnaði. Samfélagsleg áhrif iðnaðar. Iðnþróun og byggðastefna. Tilhögun: Káðstefnan stendur báða dagana og hefst kl. 10 á laugardag. Framsögur verða allar á laugardag. Iiópumræður og almennar umræður aðallega á sunnu- dag. Bilferð frá Umfcrðamiðstöð kl. 8 á laugardagsmorgun. Gisting og fæði á staðnum. Þátttökugjald 100 kr. Alþýðubandalags- fólk. Látið skrá ykkur til þátttöku strax. Grettisgötu 3. Sfmi: 17500 Kostnaður 155 miljónir kr. á verðlagi í ágúst 1981 Siðastliðinn sunnudag var brúin yfir Borgarf jörð formlega opnuð til um- ferðar. Veðrið var svo blitt sem best mátti verða og mannfjöldi mikill saman- komínn á brúnni Snæbjörn Jónasson, vegamála- stjóri, sté fyrstur i stól og ,,af- henti” brúna samgönguráðherra, Steingrimi Hermannssyni, sem þakkaði Vegagerðinni það afrek, sem hún hefði innt af hendi með gerð þessa mikla og vandaða mannvirkis. Það sýndi að Vega- gerðin hefði alla burði til að tak- ast á við hin vandasömustu verk- efni. Halldór E. Sigurðsson fyrr- um alþingismaður og ráðherra, átti hugmyndina að þessu mann- virki og honum er það öllum öðr- um fremur að þakka að i það var ráðist. Halldór E. Sigurðsson kvað ástæðu til þess að fagna þvi, að lokið væri nú þessum þætti i islenskum samgöngumálum, sem væri langstærsta framkvæmd sinnar tegundar á tslandi. Rakti nokkuð sögu málsins og ástæð- urnar fyrir þvi, að i brúarbygg- inguna var ráðist, Málinu var fyrst hreyft á Alþingi 1958, (af Halldóri E. Sigurðssyni — innsk. blm.) en nú fyrst, 23 árum seinna, er brúin formlega tekin i notkun. Þetta er að visu oröin löng bið en bið er réttlætanleg ef ekki er misst sjónar á takmarkinu. Fyrirlestur í Norræna húsinu Alþjóðlegu endurhæfinga- samtökln Öryrkjabandalag islands hefur fengið hingað til lands Norman Acton aðalframkvæmdastjóra Alþjóðlegu endurhæfingarsam- takanna. i kvöld miðvikudags- kvöld, kl. 20.30 flytur hann fyrir- lestur i Norræna húsinu um skipulag og starfssvið endurhæf- ingasamtakanna og einnig mun hann svara fyrirspurnum. Þá mun Acton ganga á fund for- seta íslands á fimmtudag og af- henda stefnuyfirlýsingu samtak- anna i málefnum fatlaðra fyrir 9. áratuginn. Deilur stóðu lengi um þet.ta nann- virki og þvi ma. haldið fram, að það tæki til sin alltof mikinn hluta af vegafénu. Það kann að vera álitamál en á það má benda, að þegar Hvitárbrúin var byggð 1928 þá rann til hennar 1/6 af þvi fé sem ætlað var til vega- og brúa- framkvæmda á þvi ári. Sá ráð- herra, sem slikar ákvarðanir tæki nú, mundi fljótlega fá að taka pokann sinn. En þó að deilt hafi verið um brúna þá er spá min sú, sagði Halldór að hér muni þykja eiga við orð Daviðs skálds Stef- ánssonar. „Er starfinu var lokið og leyst hin mikla þraut, fannst lýðum öllum sjálfsagt að þarna væri braut”. Hér er mörgum mikið að þakka, sagði Halldór. Nöfn verða þó ekki nefnd utan þeirra, sem gegnt hafa starfi vegamálastjóra á þessu timabili, Sigurðar heitins Jóhannssonar og Snæbjarnar Jónassonar, Helga yfirverkfræð- ings Hallgrimssonar og Jónasar Gislasonar, brúasmiðs. Siðan klippti Halldór E. Sig- urðsson á fánalitan silkiborða, sem strengdur var yfir brúna og opnaði hana þar með formlega til umferöar. Er lokið var þessari athöfn var ekið til Hótel Borgarness, þar sem fram fór vegleg veisla og mikil ræðuhöld undir stjórn Rún- ars Guðjónssonar sýslumanns. Forsaga A vegaáætlun 1969 til 1972 var veitt fé til rannsókna á framtiðar- legu Vesturlandsvegar um Borgarfjörð. Ýmsar leiðir voru kannaðar en niðurstöður urðu þær að hagkvæmast yrði að leggja veg yfir fjörðinn frá Sel- eyri að Borgarnesi. Sú leið var að visu dýrust i stofnkostnaði en fól i sér mesta styttingu akstursleiða. Þannig styttust leiðin til Borgar- ness um 28 km. og til Norðurlands um 7 km. Byrjunarframkvæmdir við brúna hófust svo i júnimánuði 1975. Staðhættir í Borgarfirði Innri hluti Borgarfjarðar allt út undir Borgarnes er mjög grunnur. Breiddin er viðast yfir 2 km en um 1.8 km. við Seleyri. Dýpi við veglinuna er 2—5,5 m við hálffallinn sjó en mikill munur flóðs og fjöru á meðalstórstreymi 3,8 m. Þetta veldur miklu rennsli og straumhraða út og inn fjörð- inn. Á hverju stórstraumsfalli renna 80 milj. rúmm. af vatni gegnum veglfnu og verður rennslið mest 6000 m3 sek., svipað og i Skeiðarárhlaupum. Mesti hraði áður en mannvirkjagerð hófst mældist 1,6 m/sek. en eftir að henni lauk 3,4 m/sek. Umhverfisþættir voru athug- aðir, svo sem áhrif brúarinnar á flóð, laxgengd, landnytjar, fram- burð ánna og breytingar á botni. Um þessi mál var þegar i upphafi haft náið samráö við heimamenn og alla þá, sem hagsmuna áttu að gæta. Mannvirki Brú er yfir dýpsta ál fjaröarins, 520 m. löng. Höf eru 13,40 m. hvert. I hverju hafi eru 4 bitar og vegur hver þeirra 65 tonn. Þeir voru forsteyptir uppi á Seleyri og svo fluttir út á stöpiana, sem eru steyptir og hvila á 15 m. löngum timburstraurum, sem reknir eru i botn fjarðarins. Brúargólf er steypt,akbraut hennar tvöföld og breidd hennar milli brika 9.0 m. Vegurerað meginhluta til malar- Fra msögumenn: Þórir Hjörleifur Svavar Bragi Skúli „Fannst lýðum öllum sjálf- sagt að þama væri braut”

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.