Þjóðviljinn - 16.09.1981, Síða 10
10 StDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. september 1981
Aöalfundur Stéttarsambands
bænda ræddi aö sjálfsögöu þau
úrræöi, (kvótakerfi og fóður-
bætisskatt) sem beitt hefur verið
aö undanförnu til takmörkunar á
búvöruframleiöslunni. Alyktaði
fundurinn aö áfram skyldi haldið
þeirri stefnu i stjórnun fram-
leiðslunnar, sem með þessum að-
gerðum hefur verið mörkuð, en
bendir á eftirfarandi:
1. Fundurinn leggur áherslu á
að reynt verði, eftir þvi, sem unnt
reynist að undanskilja minnstu
búin kvótakskerðingu svo og þau
bú, sem sannanlega hafa af ein-
hverjum ástæðum orðið fyrir
efnahagslegum áföllum. Tekið
verði tillit til annarra tekna
bænda við ákvarðanir skv. þess-
ari málsgrein.
2. Þar sem bændur hafa með
framleiðslutakmörkunum reynt
að leysa offramleiðsluvanda
landbúnaðarins gerir fundurinn
þá kröfu til ríkisstjórnar og Al-
þingis að það leggi fram á fjár-
lögum nægilegt fjármagn til þess
að þvi marki verði náð, að hvergi
þurfi að skerða samningsbundið
búvöruverð meira en 20% innan
búmarks. Til rökstuðnings þess
bendir fundurinn á að landbúnað-
urinn leggur ullar- og skinna-
iðnaðinum til undirstöðuhráefni.
3. Þá leggur fundurinn áherslu
á að sem fyrst liggi fyrir niður-
stöður könnunar á þvi hvert þjóð-
hagslegt gildi landbúnaðarins svo
og ullar- og skinnaiðnaðarins er.
4. Reynt verði
4. Kjarnfóðurgjaldi verði beitt
til að draga úr framleiðslu þegar
þurfa þykir eða til stjórnunar
framleiðslu i vissum bú-
greinum. — Jafnframt komi til
greina að endurgreiða gjaldið
svæðisbundið vegna harðinda, lé-
legs heyfengs og annarra sam-
bærilegra ástæðna.eða ef hætta
virðist vera á þvi að framleiðsla i
einstökum búgreinum dragist
meira saman en æskilegt má telj-
asl miðað við þörf markaðsins.
5. Fundurinn litur svo á að eðli-
legt sé að kjarnfóðurgjaldið verði
lagt á sem ákveðin krónutala á
magn. —mhg
Samningar um
siðkastið verið i viðræðum við
Breta og Lúxemborgara um
samning um gagnkvæma sjúkra-
hjálp fyrir ferðamenn, sem dvelj-
ast um stundasakir i hinu land-
inu.
Samningar eru svo langt
komnir, að búast má við að hægt
verði að ganga frá samkomulagi
við Breta seinna i haust og við
Lúxemborgara snemma á næsta
ári.
fslendingar hafa fram til þessa
aðeins haft gagnkvæma al-
mannatryggingasamninga við
Norðurlöndin, og hafa nýlega gert
sérsamning við Bandarikin um
lifey risgreiðslur.
Ilörður Askelsson, orgelleikari
hefur verið ráðinn organisti við
Hallgrimskirkju i Reykjavik. i
marsmánuöi s.l. lauk Ilörður
æðsta prófi i kirkjutónlist við
Tónlistarháskóla Rinarlanda með
mjög góðum árangri, en Hörður
hefur stundað nám þar frá 1976 og
starfar nú sem kantor við
Neanderkirkju I Dússeldorf.
Hörður Áskelsson er Akureyr-
ingur, sonur Sigurbjargar Hlöð-
versdóttur og Áskels Jónssonar
söngstjóra. Hann stundaöi tón-
listarnám á Akureyri, lauk einnig
stúdentsprófi þaðan og tón-
kennaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavik 1976. Þá lauk
Hörður B-prófi i orgelleik 1976 frá
sama skóla og var kennari hans
þar Marteinn Hunger Friðriks-
son. Hörður var organisti við Fri-
kirkjuna i Hafnarfirði á árunum
1973—1976.
Nýr organisti í
Hallgrimskirkju
sjúkrahjálp
íslensk stjórnvöld hafa upp á
Minnstu
búunum
verði
hlíft
Framkvæmd nýju húsnæðislaganna:
Miklll áhugi víða um land
Um þessar mundir er Húsnæðisstofnun rikisins
að halda fundi viðsvegar um land með sveitar-
stjórnarmönnum og stjórnarmönnum i verka-
mannabústaðanefndum um framkvæmd nýju
húsnæðislaganna. Að sögn Ólafs Jónssonar for-
manns stjórnar Húsnæðisstofnunar hefur hvar-
vetna komið fram mikill áhugi á byggingu félags-
legra ibúða og leiguhúsnæðis á vegum sveitar-
félaga. Viða eru sveitarfélög og verkamannabú-
staðanefndir komnar vel á stað og búnar að
ákveða verkefni næsta árs. Þjóðviljinn hafði
samband við menn á nokkrum stöðum og fara
viðtölin hér á eftir.
Lög um verkamannabústaði:
Mikil breyting
til batnaðar
,,Þaö er min skoðun að hin
nýju lög um verkamannabú-
staði sé mikil breyting til batn-
aðar frá þvi sem áöur var”,
sagði F.inar Karlsson formaöur
stjórnar verkamannabústaða i
Stykkishólmi i samtali við biað-
ið I gær.
Við erum búnir að sækja um
lán fyrir 8 ibúðum á næsta ári,
þannig að ef allt fer samkvæmt
áætlun, þá munum við byggja
Einar Karlsson: Búnir að sækja
uin lán fyrir átta ibúöum.
þessar ibúðir og leysa þannig
ákveðin húsnæðisvandamál.
Húsnæðisekla er mikil og fjár-
magnskostnaður á almennum
markaði mörgum ofviða. Á al-
menna markaðinum eru fbúðir
afhentar á ýmsum bygginga-
stigum og þegar reynsla er
komin á verkamannabústaða-
kerfið mætti athuga, hvort ekki
mætti afhenda ibúðir þessar
þannig.
Það er alveg ástæðulaust að
hræðast það að bygging verka-
mannabústaða hafi áhrif á hinn
svokallaða frjálsa markað.
Ég tel þessi nýju lög mikinn
ávinning fyrir launafólk enda
hefur það barist fyrir þessu eins
öðru sem bætt hefur hag þess,
sagði Einar Karlsson að lokum.
—Svkr.
Akranes:
Byrjum
næsta
sumar
„Það er ákveðinn áhugi hér
fyrir því að hefja byggingu
verkam annabústaða þegar á
næsta ári," sagði Ársæll Valdi-
marsson, st jornarmaður verka-
mannabústaða á Akranesi I við-
tali við blaðið.
Skipun I stjórn verkamanna-
bústaða hér dróst einhverra
hluta vegna á ianginn svo aö
máiið er ekki komið lengra en
það, að við settum könnun i
gang i sumar um áhuga á þess-
um byggingum. Ekki er enn bú-
ið að vinna Ur þessari könnun en
greinilegter að áhugiog þörf er
fyrir hendi. Akranesbær hefur
verið að byggja leigusöluíbúðir,
en nokkurrar tregðu hefur gætt I
sölu á þeim. Kjörin hafa reynst
nokkuð erfið sumum.
Við höfum sótt um að fá að
byggja 16 -18 ibúðir á næsta ári
Bygging verkamannabústaða:
Borgnesingar
áhugasamir
Ársæll Valdimarsson: Höfum
sött um að fá að byggja 16 til 18
ibúðir á næsta ári.
og eru menn sammála um að
þetta nýja kerfi sé mikil fram-
för og ávinningur fyrir launa-
fóik.
Þá hefur stjórn verkamanna-
bústaða keypt og selt aftur 4 - 5
gamla verkamannabústaði.”
— Svkr.
„Við erum búnir að halda sjö
fundi i hinni nýju stjórn verka-
mannabústaða i Borgarnesi,”
sagði Baldur Jónsson, formaður
stjórnarinnar i samtali við
Þjóöviljann.
,,I sumar keyptum við fjóra
eldri verkamannabústaði og er-
um búnir að selja þá aftur. Þá
erum við nú i samningaviðræð-
um við byggingafyrirtæki hér i
Borgarnesi um kaup á þremur
ibúðum i blokk, sem verið er að
byggja. A næsta ári ætlum við
okkur að byggja til viðbótar 4-6
ibúðir.
Við gerðum könnun nú i sum-
ar, eins og skylt er, og kom þar i
ljós, að eftirspurnin er mikil eft-
ir verkamannabústöðum, eink-
um meðal einstæðra foreldra
hér. Ég vil þó bæta þvi við, að
kannanir sem gerðar eru i þeim
tilgangi að finna hina raunveru-
lega þörf, segja ekki alla sögu.
Vöntun á húsnæði er eflaust
meiri en þær segja til um, þar
sem ekki gefa sig allir fram i
fyrstu könnun.
Ég tel mikilvægt að ibúða-
byggingum, sem þessum sé
haldið áfram jafnt og þétt,
ísafjörður:
Aðeins leigusöluíbúðir
Þjóðviljinn hafði samband við
þá Aage Steinsson og Jón Bald-
vin Hannesson á isafirði og
spurðist fyrir um framkvæmdir
á vegum stjórnar verkamanna-
bústaða þar. Jón Baldvin sagði
að ekki væri farið að ræða neitt
um, hvort skyldi farið út i bygg-
ingar samkvæmt nýju lögunum.
Bærinn hefði verið með yfir
30 leigusöluíbúðir i byggingu og
myndu þær sfðustu verða af-
hentar á næsta ári. Aður en þær
framkvæmdir hófust var gerð
könnun á þörfinni, og reyndist
hún vera greinileg. Hinu bæri
D
Aage Steinsson: Allt komiö
undir vilja og aðstæðum á
hverjum stað.
svo ekki að leyna að tregðu heföi
gætt i sölu þessara ibúða og fólk
hefði hreinlega hætti við kaupin.
Kjörin á þeim væru oft lakari en
á almennum markaði. Hitt væri
þó ljóst að sinu viti, að verka-
mannabústaðakerfið væri það,
sem hentaði betur en leigusölu-
kerfið gamla. Aage Steinsson
sagði að verð á leigusöluibúö
um þar vestra væri hærra en
staðalverð verkamannabú-
staða. Staðalverðin gætu eflaust
orðið sveitarfélögum i dreifbýl-
inu erfið, þar sem oft þyrfti að
kaupa iðnaðarmenn til vinnu
langt að. Þvi gætu sveitarfélög
lent i þvi að þurfa að greiða mis-
mun staðalverðs og raunveru-
legs byggingakostnaðar. Hann
sagði þó álit flestra að verka-
mannabústaðakerfið væri mikil
framför i húsnæðismálum, en
allt væri komið undir vilja og
aðstæðum á hverjum stað.
— Svkr.
Baldur Jónsson: Eftirspurn er
mikil eftir verkamannabústöð-
um, einkum meðal einstæðra
foreldra hér.
þannig að ekki sé byggt i slump-
um, þegar húsnæðiseklan er
orðin mikil.
Með nýju lögunum um verka-
mannabústaðakerfið var vald
verkalýðshreyfingarinnar aukið
frá þvi sem áður var, og ég tel
engan vafa leika á þvi, að þetta
nýja kerfi eigi eftir að skila góð-
um árangri fyrir launþega,”
sagði Baldur að lokum.
— Svkr