Þjóðviljinn - 16.09.1981, Page 15
Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
fra
lesendum
Ef opnaður væri lækurinn undir Lækjargötu væri hægt aö gera kanal og skipuleggja gondóla-
feröir, segir í lesendabréfi. »
Það þarf mikinn stórhug
til merkilegra framkvæmda
Einn lesenda Þjóöviljans
hringdi inn á blaðið i gær, sagð-
ist vera gömul kona og búa í
vesturbænum. HUn hélt stutta
ræðu yfir blaðamanni i siman-
um og sagðist vildu koma
ákveðnum boðskap til Reykvík-
inga og annars ágætis fólk:
„Þegar ákveðið var að leggja
smáskika af Bernhöftstorfunni
undir útitafl og aðra menning-
arstarfsemi risu upp ihalds-
samar sdlir snauðar af imynd-
unarafli og öskruðu úr sér lung-
un um skemmdarverk. Þegar
verkinu var svo að fullu lokið á
afmælisdegi borgarinnar mátti
svo sjá margt af þessu sama
fóki spássera sig niður Banka-
stræti og glenna upp skjáinn i
forundran yfir þvi hvað allt
þetta rask og brask væri nú
bara ágætt.
Þessi reynsla minnir á svo
margt annað og oft er meira i
húfi. Margt þröngsýnis dót hef-
ur nU séð sig tilknúið til þess að
skilja ekki hugmyndina á bak
við byggingu brúar á Tjörninni.
Hversu gaman gæti það ekki
verið að rölta þar um á sunnu-
dagsmorgnum og gefa blessuð-
um öndunum brauðmylsnu.
Með sjálfri mér hefur lengi
bUið draumur um ennþá stór-
tækari framkvæmdir í mið-
borginni. Sá draumur er tengd-
ur gamalli mynd af Reykjavik.
Á þeirri mynd má sjá yfir Lækj-
argötuna endilanga og eftir
henni ganga nokkrir heldri
menn með pi'puhatta og keng-
bognar gamlar konur við vatns-
burð, og allt þetta fólk er þarna
á gangi við hliðina á læknum
sem gatan heitir eftir. Þá var
lækurinn opinn og i honum renn-
andi vatn.
Þá er komið að draumnum
minum. Ég legg til að lækurinn
verðiopnaður aftur milli Tjarn-
arinnar og Ut í sjó og bUinn til
einhvers konar kanall i anda
þeirra sem ég sá, þegar ég ferð-
aðist með manninum minum
sáluga til Kaupmannahafnar og
Feneyja. Og það væri kannski
ekkert þvi til fyrirstöðu að
skipuleggja gondólaferöir frá
höfninni og upp i Tjörn. Litil
börn og jafnvel stór gætu haft
fjarska gaman af þvi. Ég held
að komandi borgarstjórnir ættu
að taka þetta til athugunar og
minnast þess að það þarf stór-
hug til merkilegra fram-
kvæmda. Mennættuað minnast
Einars heitins Benediktssonar
og stórhugar hans jafnt i orði
sem æði.”
Gömul kona
iVesturbænum
Enn á
leið í
skóla
Jæja krakkar (ég vona
að þið kunnið öll nú þegar
að lesa), í gær birtum við
nokkrar teikningar sem
sýndu hvernig rétt er að
haga sér á leiðinni í skól-
ann. í dag höldum við
áfram að gefa ykkur holl
ráð og vonum að þið séuð
þæg og góð og farið eftir
þeim. Það eru alltof
margar hættur sem leyn-
ast í umferðinni til þess
að nokkurt ykkar megi
leyfa sér að þykjast vera
kaldur karl eða kerling og
skella skolleyrum við
umferðarreglunum.
h 4
Stansiö, bíðiö og lítiö vel
til beggja hliðaog hlust-
iö áöur en þiö gangið
yfir akbrautina.
Forðist hættur sem fylgja
ýmsum framkvæmdum.
Leikiö ykkur heldur á
leikvellinum, sparkvellin-
um eöa þar sem skólinn
(lögreglan) mælir meö.
Umferðarljós?
Þú mátt aöeins fara yfir á
grænu Ijósi.
isvagni (skólabíl) í skól-
ann skuluö þið alltaf bíöa
þangaö til bíllinn er far-
inn.
Forðist aö ganga út á
akbraut milli kyrrstæöra
bifreiöa. Ef þiö neyöist til
þess — sýniö þá sér-
staka varúö. Veljið ör-
uggari leiðina þótt hún
sé lengri.
— og þegar dimmir nota
allir í fjölskyldunni end-
urskinsmerki.
Barnahorniö
Miðvikudagur 16. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Nýjasta tækni og vísindi:
Elli, borgarlíf
og off jölgunar-
vandamálíð
örnólfur Thorlacius tjáði
Þjóðviljanum að i þætti hans
„Nýjasta tækni og visindi” i
sjónvarpinu á miðvikudags-
kvöld yrðu sýndar þrjár heim-
ildamyndir.
Sú fyrsta fjallar um öldrun
og þær efnabreytingar er
verða i lifandi frumu er
hún eldist. Komið verður
inn á líf manna i þeim héruð-
um heims þar sem óvenju hár
aldur ibúanna er rómaður, s.s.
i Kákasus-fjöllum. Hitt er svo
annað mál, sagði Ornólfur, að
margir eru þeirrar skoöunar,
að meintur hámarksaldur
langt fyrir ofan þaö sem
venjulegt kallast standi gjarn-
an i öfugu hlutfalli við vinnu-
brögð manntalsskrifstofunnar
i viðkomandi héruöum.
En hvað er elli? Þvi er ekki
auösvarað, sagði örnólfur.
Hver einasta lifvera hefur i
sér fólgið varnarkerfi. Ung lif-
vera heldur uppi heilbrigðu
jafnvægi en eftir þvi sem liður
á ævi hennar taka varnarkerf-
in að bila eitt af öðru og veilur
i heildarvörnunum taka að
safnast saman.
Eitt af fyrstu ellimerkjun-
um virðist vera, aö fólk hættir
að heyra háa tóna.
önnur myndin á dagskrá
fjallar um það hvernig borgir
hafa orðið til i sögu mannsins
á nýsteinöld, er samfélög
manna geröust æ margbrotn-
ari og verkskiptingin manna i
millum leyföi fjölmennara
sambýli. Þá er rakið hvernig
ýmislegt óhagræði, s.s. meng-
un, hávaði og glæpir hafa náð
smátt og smátt að skjóta hvað
dýpstum rótum i borgarsam-
félögunum og hvernig hugsan-
lega megi vinna bug á þeim
vanköntum i framtiðinni. Lýst
verður nýjum stefnum i borg-
arskipulagi og kynntar ýmsar
þær stefnur, er þekkjast i
þeim efnum.
Þriðja og siðasta myndin
fjallar um mannfjölgunina i
heiminum. Þar kemur fram,
að tölfræðingar álita, að við
jarðarbúar höfum náð þvi
marki aö verða 4000 miljónir
að tölu i janúar 1976. Um þær
mundir hafði þaö tekið mann-
kyniö ein átta ár að fjölga sér
um sem nemur ibúafjölda Ind-
lands. I þessari mynd eru við-
raöar hefðbundnar hugmyndir
fyrir þvi af hverju mannkyn-
inu fjölgi með þeim ógnar-
hraða sem raun ber vitni. Þar
er tint til, að hungursneyðir
séu miklu færri en áöur fyrr og
drepsóttir einnig og jafn vel þó
að strið séu sæmilega velút-
breidd og getnaðarvarnarpill-
ur i hverri krummaskuð þá
hefur ekki náðst neinn veru-
legur árangur i þvi að stemma
stigu við hraðri fjölgun fólks
einkum og sér i lagi i þriöja
heiminum.
ö Sjónvarp
O kl. 20.40
Þess vegna rikir almenn velferð á tslandi.
Botnfiskaflinn
með albesta
móti það sem
af er árinu
Ingólfur Arnarson sér aö
vanda um þáttinn „Sjávarút-
vegur og siglingar”. Að þessu
sinni mun hann einkum fjalla
um aflabrögðin fyrstu átta
mánuöi yfirstandandi árs og
greina frá aflanum á einstök-
um svæöum. t heild er nU þeg-
ar ljóst að aflabrögö þetta árið
eru með albesta móti einkum
hvað varðar botnfisk. A sama
tima i fyrra höfðu t.d. veiðst
343 þUs. lestir af þorski, en i ár
eru þærorðnar 372 þús. Þessar
tölur hljóta að gefa töluverða
hugmynd um stöðu mála þar
eð þorskaflinn er verðmætast-
ur þessara afurða.
Ingólfur mun einnig fjalla
nokkuð um yfirlitsskýrslur
siðasta árs frá Fiskifélagi ts-
lands. I þvi sambandi verður
greint frá fjiida sjómanna á
hinum ýmsu skipagerðum við
tsland, en þeim upplýsingum
leikur mörgum eflaust forvitni
á að kynnast.
Þá verður vikið að afla Ut-
lendinga á islenskum miðum á
siðasta ári.
Þar kemur i ljós eins og
mörgum er kunnugt, aö leyfi-
legur afli útlendinga á siðasta
ári var ákveöinn 24 þús. tonn
af botnfiski. Samkvæmt afla-
skýrslum var afli Utlendinga
s.L ár 24.339 þús. tonn en ýms-
ar sögur ganga um réttmæti
þeirrar tölfræði.