Þjóðviljinn - 23.09.1981, Síða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJÍNN
Skylda samfélags-
ins
Efling
jaðar-
byggða
Þaö er aö ýmsu aö hyggja
þegar móta skal stefnu i landbún-
aöarmálum, sem ætlast er til aö
gildi fyrir nokkra framtiö. Varö-
veisla byggöarinnar hlýtur aö
veröa þar gildur þáttur. I sumum
sveitum hefur fólki fækkaö svo á
undanförnum árum, aö þar má
ekki nær ganga svo aö þeim veröi
stætt, sem enn eru eftir. En eyöist
þessar sveitir mun ýmsum þétt-
býlisstööum út um landiö einnig
veröa hætt.
Varðveisla byggðarinnar
snertir þvi ekki þá eina, sem þar
búa. Hún er hagsmunamái
þjóðarheildarinnar. Þvi hlýtur
rikisvaldið að telja það skyldu
sina að treysta þær byggðir sem I
vök eiga að verjast.
Eðlilega kom þetta mál til um-
ræöu á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda. Og I framhaldi af
þeim umræðum samþ. fundurinn
svofellda ályktun:
Fundurinn beinir þvi til allra
þeirra aöila, sem vinna að mótun
landbúnaöarstefnunnar i næstu
framtið, aö aðgerðir séu ekki ein-
ungis við það miðaöar, að ná
stjórn á heildarframleiðslu bú-
vara heldur taki og mið af varö-
veislu núverandi byggðar og
skipulagi framtiðarbúsetu I land-
inu. Fundurinn bendir á þá bráðu
hættu, sem nú steðjar að ýmsum
byggðarlögum verði um frekari
grisjun byggðar aö ræöa.
Eðlilegast og hagkvæmast
hlýtur að vera aö I þessum
byggðarlögum sé haldiö uppi
þeim búrekstri er þarf til að full-
nægja þörfum nærliggjandi þétt-
býlisstaöa, auk þess sem ýmiss
konar aukabúgreinar geta oröið
hefðbundnum búskap til styrktar.
Fundurinn telur að það sé sam-
félagsleg skylda þjóðfélagsins
alls að veita fjárhagslegan stuðn-
ing til reksturs litilla en nauðsyn-
legra vinnslustööva svo sem
mjólkursamlaga, á þessum
svæöum. — Skorar fundurinn á
stjórnvöld aö hefjast þegar handa
um áætlunargerð I jaðar-
byggöum, er orðið geti traust
undirstaða alhliða aðgerða til að
festa byggö i sessi með nauðsyn-
legum umbótum á sviði sam-
gangna á sjó og landi, rafvæö-
ingar, heilbrigöisþjónustu og
annarrar opinberrar þjónustu, er
sjálfsögð þykir i dag.
— mhg
Húsvíkingur
á Mokka
Valdimar Einarsson frá Húsa-
vlk sýnir vatnslita- og kritar-
myndir á veitingastaðnum
Mokka um þessar mundir.
Valdimar stundaði nám i
Myndlistarskólanum I Reykjavlk
á árunum 1956—58 og nam enn-
fremur myndlist I Roosevelt High
School of Fine Art I Fresno I Kali-
forniu 1969. Sýning hans á Mokka
mun standa I þrjár vikur.
/
Afengisvamir
og æskan
Freeport klúbburinn gengst
fyrir almennum fundi i Kristals-
sal Hótel Loftleiða kl. 20.30
fimmtudagskvöldið nk. um
fundarefnið: „Afengisvarnir og
Æskan”.
Frummælendur verða: Arni
Einarsson, formaður Islenskra
ungtemplara og Hrafn Pálsson
sem lokið hefur meistaragráöu 1
félagsvisindum og ráðgjöf frá
Adelphi University I New York.
Að loknum framsöguerindum
verða frjálsar umræður og er
vonast til að um gagnleg skoð-
anaskipti geti oröiö að ræða.
Miövikudagur 23. september 1981
Viö lok fyrri dags keppninnar i Skagfjörösskála. t efri koju f.v.: Kjartan Ingason, Freyr Bjartmarz og Ragnar sonur hans, Ingvar Valdimarsson, t neðri Linda Björnsdóttir og Rannveig Andrésdóttir koma aö
koju Linda Björnsdóttir, Vigfús Pálsson, Þór Ægisson og Arnór Guöbjartsson. Alftavatni hressar og kátar.
UM VEGLEYSUR ÓBYGGÐANNA
S.l. helgi efndu Landssamband
hjálparsveita skáta og Skáta-
búöin sameiginlega til nýstár-
legrar keppni sem nefnd var
Fjallamaraþon.
Þessi maraþon-keppni fólst
ekki I hlaupi um slétta velli og
grónar göturheldur var farið um
vegleysur óbyggðanna. Keppni
þessi stóð yfir i tvo daga. A
laugardeginum var fariö á milli
Landmannalauga og Þórsmerk-
ur, en daginn eftir upp á Fimm-
vörðuháls.
Ollum hjálparsveitum, bæði
skáta og annarra var heimil þátt-
taka og skráðu 18 sveitir sig til
keppni frá Flugbjörgunarsveit-
inni, Slysavarnafélaginu og hin-
um ýmsu deildum Hjálparsveitar
skáta.
Sveitunum var gert aö uppfylla
ströng skilyrði um búnað og fæði,
enda reyndust sumir pokarnir
æriö þungir eöa 15—17 kg, en þeir
léttustu fóru reyndar niður I sex
kg., og sýnir mismunurinn ljós-
lega mikilvægi þess aö velja hent-
ugan búnaö til fjallaferða.
Sveitirnar voru ræstar kl. 6 að
morgni laugardags, áöur en bjart
var af degi og hurfu okkur sem
fylgdumst meö, fljótt upp i þoku
og slydduhriö Kaldaklofsfjalla. A
leiðinni voru þrjár mannaöar eft-
irlitsstöðvar, I Hrafntinnuskeri,
viö Alftavatn og Emstrur, auk
endastöðvarinnar I Þórsmörk.
Tvær sveitir höfðu þegar við
Hrafntinnusker tekiö áberandi
forystu, nr. 10 Helgi Benediktsson
og Arnór Guöbjartsson og nr. 19
Andrés Þór Bridde og Magnús
Dan. Bárðarson. Við Alftavatn,
þegar telja mátti gönguleið fyrri
dags hálfnaða, var röö fyrstu
manna óbreytt, en kvennasveitin
nr. 15, var komin I fjórða sæti.
Þess má geta aö 4 kvennasveitir
mættu til leiks. Þegar hér var
komið var auösætt að sumir höfðu
fariö fullgeist á stað, enda héldu
ekki allar sveitirnar áfram
áleiðis til skálans við
Syðri-Emstruá.
Svo farið sé fljótt yfir sögu og
mörgum atvikum sleppt, komu
fyrstu sveitirnar I mark hnifjafn-
ar eftir ellefu stunda göngu. Þetta
voru einmitt sveitir 10 og 19 og
sýndust ekki aðrar sveitir megn-
ugar að veita þeim keppni, enda
rúmum klukkutima á eftir. Sér-
staka athygli vakti aö enn var
sveit nr. 15, þær Anna Lára Frið-
riksdóttir og Vilborg Hannesdótt-
ir I fjórða sæti.
Sunnudagurinn rann upp regn-
blautur og sveitirnar sem nú voru
aðeins 9 eftir, voru ræstar af stað
kl. 10 f.h. og allar skiluöu sér i
mark sem var við Flugbjörg-
unarsveitar-skálann á Fimm-
vörðuhálsi, nema sveit nr. 10,
enda ekki i mannlegu valdi að
fara fjallveg þennan á öörum
fæti, en veruleg slæmska hafði
hlaupið I fót Arnórs Guðbjarts-
sonar kvöldiö áður.
Sveit nr. 10 sigraði þvi á
timanum 12 klst og 57 min, en I
ööru sæti lentu þeir Seltirn-
ingarnir Vigfús Pálsson og
Kjartan Ingason á 14.32, en aö
eins sex mln. á eftir þeim komu
stúlkurnar nr. 15 og höfðu heldur
betur bætt stöðu sina og afsönn-
uðu rækilega kenninguna um veik
kyn og sterk og reyndar lauk
helmingur kvennasveitanna
keppni, sem er mun betra hlutfall
heldur en hjá körlunum.
Að lokinni þessari einstæöu
keppni söfnuðust keppendur og
starfsfólk saman i Skógaskóla
þar sem verölaun voru veitt og
form. LSH Tryggvi Páll Friöriks-
son flutti stutta tölu og fjallaöi um
þá ‘lærdóma sem af þessari þraut
megi draga og hvatti menn til að
búa sig vel undir keppnina að ári,
enda ekki vanþörf á, þvi eins og
Tryggvi sagöi, mun vandfundin
erfiðari Iþróttakeppni á landi hér.
Að öllu þessu loknu var stigið upp
i hina glæsilegu farkosti hjálpar-
sveitanna og ekiö til byggöa.
Tryggvi Páll Friðriksson fylgist með I talstöö
Skátar búa sig til feröar I Lauga-skála.
I_________________________________________
Sigurvegarar: Anna
Báröarson.
Lára Friöriksdóttir, Vilborg Hannesdóttir, Andrés Þór Bridde og Magnús Dan
Kjartan Ingason og Vigfús Pálsson á fullri ferö
u
Miövikudagur 23. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Sent út á
nýrri tíðni
fyrir landa
erlendis
27. september nk. hefjast út-
sendingar á kvöldfréttum Rikis-
útvarpsins á nýrri tiöni þ.e. á
13.797 kilóriöum (eöa 21.74 metr-
um), frá kl. 18:30 til 20:00 dag
hvern.
Prófanir hafa sýnt aö sendingar
þessar heyrast vel I Danmörku,
Sviþjóð Luxemborg, Bretlandi,
Canada og Bandarikjunum.
Frá sama tima falla niður út-
sendingar á 12.175 kllóriöum.
Tilkynning um þetta hefur
veriö send til sendiráöa tslands,
islensku skipafélaganna og SINE,
en aðstandendur Islendinga er-
lendis eru hvattir til aö láta fréttir
um þessa breytingu berast til
vina og vandamanna þar, þvl
sendingar þessar heyrast mun
betur og viðar en hinar fyrri.
Sömuleiöis væri Rlkisútvarpið
þakklátt fyrir upplýsingar (skrif-
legar) um móttökuskilyröi.
Raunvísindadeild:
Erinda-
flokkur
um
um-
hverfis-
mál
I verkfræöi- og raunvisinda-
deild Háskóla lslands veröa á
næstu vikum flutt 10 erindi um
umhverfismál. Til þeirra er
stofnaö fyrir nemendur i deild-
inni, en aögangur er öllum frjáls,
eins þeim, sem ekki eru nem-
endur i Háskólanum. Gert er ráö
fyrir nokkrum umræöum á eftir
hverju erindi. Umsjón hefur
Einar B. Pálsson, prófessor, og
veitir hann upplýsingar.
Erindin veröa flutt á mánudög--
um kl. 17:15istofu 1581 húsi verk-
fræöi- og raunvísindadeildar,
Hjaröarhaga 2—6. Þau eru ráö-
gerö svo sem hér segir:
28. september: Vilhjálmur Lúð-
viksson, verkfræöingur, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarráös
rlkisins: Verkfræðilegar áætlanir
og valkostir.
5. október: Agnar Ingólfsson,
prófessor I vistfræði: Ýmis undir-
stöðuatriöi I vistfræði.
12. október: Unnsteinn Stefáns-
son, prófessor I haffræði: Sjórinn
sem umhverfi.
19. október: Jakob Jakobsson,
fiskifræðingur, Hafrannsóknar'-
stofnun: Auölindir sjávar og nýt-
ing þeirra.
26. október: Arnþór Garðars-
son, prófessor i liffræöi: Rann-
sóknir á röskun lífrikis.
2. nóvember: Jakob Björnsson,
verkfræðingur, orkumálastjóri:
Orkumál og umhverfi.
9. nóvember: Ingvi Þorsteins-
son MS, Rannsóknastofnun land-
búnaðarins: Eyðing gróðurs og
endurheimt landgæöa.
16. nóvember: Þorleifur
Einarsson, prófessor I jarðfræöi:
Jarðrask við mannvirkjagerð.
23. nóvember: Arni Reynisson,
fv. framkvæmdastjóri. Náttúru-
verndarráös: Umhverfismál i
framkvæmd.
30. nóvember: Einar B. Páls-
son, prófessor i byggingarverk-
fræði: Matsatriði, m.a. náttúru-
fegurö.
Ný plata frá Þey
Iður
tíl ióta
Hljómsveitin Þeyr hefur sent
frá sér nýja hljómplötu meö fjór-
um lögum. 1 frétt frá útgefendum
segir aö þessi plata sé timamóta-
verk ekki aöeins vegna tónlistar-
innar heidur einnig vegna tækn-
innar sem beitt er.
Forsaga málsins er sú að með-
an á upptökum hljómplötunnar
stóð var haldið hér þing S.F.W.C.,
Society For Weather Control, en
þetta félag hefur staðið fyrir
ýmsum merkilegum tilraunum á
undanförnum árum. Hér héldu
þeir meðal annars sýningu á
„Skýja-byssu” Wilhelm Reich, en
hún byggir á sérkennilegri notkun
á ,,orgónu”-orku, — en fyrir upp-
götvun sina á „orgónunni” hefur
Reich ýmist verið hafinn upp til
skýja eða bannfærður. A þinginu
var meðal annars kynnt hljóðræn
nýting á OR (orgone radiation) en
hún felur i sér hátiðni-upptökur á
aflsviði orgónutækja. Við spilun á
þessum upptökum var leitað til
hljómsveitarinnar ÞEYS, en þeir
hafa undir höndum sérhannað
tæki Guðlaugs Óttarssonar,
„Scriabin” sem vinnur algjörlegu
yfir sviði mannlegrar heyrnar.
ÞEYR hafa siðan fengið leyfi til
þess að nota þessar upptökur aö
vild — nokkuö sem getur komið
sér vel við útihljómleika eins og
dæmin sanna. Með aðstoð DBX-
tækjanna sem eru i eigu Hljóðrita
hefur ÞEY tekist að setja úrval
þessara hátiðnihljóöa á hljóm-
plötu sina IÐUR TIL FÓTA og fær
fólk þannig ókeypis „Veöur-
stjórnanda” i kaupbæti.
Það hefur vakið athygli aö þá
daga sem hljómplatan hefur
fengið sem mesta spilun i Ctvarp-
inu hefur veriö hér hálfgert hita-
beltisveður, en i dag þegar þetta
er skrifað (þriðjudag) hefur
hljómplatan enga spilun fengiö —
og sjá, þaö er úrhellisrigning!
Hljómsveitin ÞEYR telur vist aö
margir verði til þess að notfæra
sér þessa stórkostlegu nýjung
meðfram þvi að styrkja fagur-
fræðilega heilavirkni sina meö
þessari mjög svo áheyrilegu tón-
list.
Frá
Hafskip
um
Arnarflug
til Olíu.
félagsins
Magnús Gunnarsson, við-
skiptafræöingur, hefur verið ráð-
inn aöstoðarframkvæmdastjóri
viö Oliufélagið h.f., og tekur hann
við þessu starfi frá 1. febr. n.k.
Magnús er 35 ára, lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla Islands
1967 og prófi I viöskiptafræðum
frá Háskóla Islands 1971.
Hann hefur starfaö sem kenn-
ari I Verslunarskólanum, var um
tima skrifstofustjóri hjá Sölu-
sambandi Isl. fiskframleiðenda,
framkvæmdastjóri Hafskips h.f.
og framkvæmdastjóri Arnarflugs
h.f. frá stofnun þess 1976 til 1.
sept. s.l.