Þjóðviljinn - 24.09.1981, Blaðsíða 1
múDvunNN
Fimmtudagur 24. september 1981 —212. tbl. 46. árg.
Vandi Raufarhafnarbúa leystur?
4 miljónir kr.
og erlent lán
Aðgerðir gegn
útflutnings-
örðugleikum
Bætt
gengis-
tap fyrsta
skrefið
Eins og oft hefur komið fram
hér á siðum Þjóðviljans hafa þau
iðnfyrirtæki islensk, sem flytja út
framleiðsiu sina á Evrópu-
markaði, átt við mikia rekstrar-
örðugleika að striða vegna þró-
unar gengis Bandarikjadollars
það sem af er árinu.
Nú hefur rikisstjórnin beitt sér
fyrir aðgerðum til þess að bæta
hag þessa iönaðar og hér i blaðinu
mátti i gær lesa, að bankastjórn
Seðlabankans hefur ákveðið að
bæta framleiðendum, sem tekið
hafa afurðalán i dollurum en selt
afurðir sinar i Evrópumyntum,
gengistap af afurðalánunum.
Tapið verður bætt vegna fram-
leiðslu frá siðustu áramótum til
ágústloka.
í samtali við Þjóðviljann i gær
sagði Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra, að unnið væri
að tæknilegum atriðum varðandi
þessar endurgreiðslur, sem
næmu milli 30—32 miljónum og
myndu skiptast milli hundruða
útflytjenda. Hjörleifur minnti á,
að málið væri til komið vegna
þess, að afurðalánin voru yfirleitt
miðuð við dollarann, en að héðan
i frá yrðu þau miðuð við þann
gjaldmiðil, sem viðskiptin tengd-
ust, hvort sem það væru franskir
frankar, þýsk mörk eða aðrir
gjaldmiðlar.
Hjörleifur var spurður, hvort
vænta mætti frekari aðgerða til.
þess aö létta undir með iönfyr-
irtækjum, sem flytja út á Evrópu-
markaði. Ráðherra sagði ýmis
mál vera i athugun. Endurskoðun
stendur yfir á útflutningslánum,
samkeppnislánum og útflutnings-
tryggingum. Einnig er nú von á
áfanganiðurstöðum starfsskil-
yrðanefndar varðandi opinber
gjöld, sem framleiðendum er
skylt að greiða, lánsfjármögnun
og fleira. Jöfnun starfsskilyrða
hinna ýmsu iðngreina er veiga-
mikið verkefni, sagði ráöherra.'
Þess má að lokum geta, að unn-
ið er , á vegum Seðlabankans aö
skipulagi gengisjöfnunarsjóðs og
gengistrygginga.
Jafntefli!
Ósamkomulag um
k j aramálaály k tun
| Svart
já hvítu
• Þannig leit Stjórnarráðshúsið út
Ium miðjan dag i gær i þann
mund sem hreinsun þess hófst. t
gærmorgun tók Helgi Hóseas-
son smiður sig til og skvetti
I' tjöru á húsið. Var hann hand-
tekinn og yfirheyrður. Atburð-
urinn og útlit hússins vöktu
mikla athygli vegfarenda, en
J furðu vel gekk að hreinsa tjör-
I una af. — Ljósm.: eik.
Formannaráðstefnu BSRB framhaldið í dag
um að ráöstefnan hefði ekki um-
boð til að setja fram svo ákveðnar
kröfur, heldur ætti hún einungis
að móta stefnuna. Kröfurnar ætti
að móta I félögunum og> i samn-
inganefnd.
Málinu var vlsað til 9 manna
kjaramálanefndar sem skilaði
áliti siðari hluta dags i gær.
í tillögu nefndarinnar að álykt-
un um kjaramál var aöeins að
finna almennt oröalag um kjara-
kröfur BSRB en þær ekki skýrt
mótaðar likt og i tillögu þeirra
Kristjáns og Haraldar.
Miklar umræður urðu um þessa.
ályktun og fannst mörgum hún
óljós, og vanta'I hana skýrari
kröfugerð.
Akveðið var að visa ályktuninni
ásamt framkomnum breytinga-
tillögum aftur til 9 manna nefnd-
arinnar, og formannaráðstefn-
unni yröi framhaldið i dag.
Þá hefur einnig verið boöaður i
dag fundur i samninganefnd
BSRB, þar sem tekin verður
ákvörðun um að segja upp gild-
andi samningum.
Kristján Thorlacius vildi ekkert
láta hafa eftir sér i gærkvöldi, um
kjarakröfur BSRB, en ljóst var á
fundinum i gær, að fullt sam-
komulag er um að kjarakröfur
verði miðaöar við aö ná aftur
sama kaupmætti og var I nóv.
1S}77. Menn greinir hins vegar á
um hvort frumkvæðið að kjara-
kröfunum eigi að koma frá for-
mannaráöstefnunni, og eins
hvernig kröfugerðin éigi að lita út
i smáatriðum.
-«g-
Formannaráðstefnu BSRB sem
átti að ljúka I gær, verður fram-
haldið i dag, þar sem ekki náðist
samkomulag á fundum i gær, um
afgreiðslu á kjaramálaályktun
ráðstefnunnar.
Eins og skýrt var frá I Þjóðvilj-
anum I gær, lögðu þeir Kristján
Thorlacius formaður BSRB og
Haraldur Steinþórsson fram-
kvæmdastjóri fram I upphafi ráð-
stefnunnar á þriðjudag, drög að
ályktun um kjaramál, þar sem
m.a. var lagt til að launastigi
BSRB veröi byggður upp með
sömu krónutölu á milli allra
launaflokka miöaö við septem-
berlaun kr. 285. Ofan á þessa
flokkahækkun kæmi siðan 10%
grunnkaupshækkun, eða samtals
26% hækkun á alla miðflokka
launastigans.
A fundum formannaráðstefn-
unnar I gær, komu fram raddir
Islendingar unnu það umtals-
verða afrek aö gera jafntefli viö
Tékkóslóvakiu i landsleik i
knattspyrnu á Laugardalsvell-
inum i gærkvöldi. Hér hefur
Pétur Ormslev skorað fyrsta
mark leiksins og fagnar að von-
um innilega. Sjá bls. 11
Allt bendir til að
Jökull hf. á Raufarhöfn
fái 4 miljón kr. lán til
þess að bæta rekstrar-
stöðu fyrirtækisins. Þá
er rætt um að fyrirtækið
taki erlent lán til þess að
lagfæra lausafjárstöðu
sína.
Rikisstjórnin, Framkvæmda-
stofnun og Landsbankinn hafa að
undanförnu unniði sameiningu að
lausn vanda fyrirtækisins. Fara
menn norður til viðræðna við
stjómendur Jökuls hf. varðandi
þessa fyrirgreiðslu og um fram-
tiðarstjórnun fyrirtækisins.
Sem kunnugt er hefur vinna
legið þar niðri um hálfs mánaðar
skeið, en i' ágúst unnu þar yfir 100
manns. Þær konur, sem unnu við
snyrtingu og pökkun hafa nú enga
atvinnu, en allur þorri karlmanna
hefur vinnu.
—
Stórgóð loðnuveiði
útifyrir
Vestfjörðum
16 skip
fengu
11000
lestir
,,Þetta eru með bestu
dögum i sögu íslenskra
loðnuveiða. Þegar loks
varð skaplegt veður á
miðunum úti fyrir Vest-
fjöijðumi fyrrakvöld, þá
fylltu öll loðnuskipin sig
á örskömmum tima.
Það voru 16 skip sem
fengu um 11 þús. lestir
þetta kvöld”, sagði
Andrés Finnbogason hjá
loðnunefnd i samtali við
Þjóðviljann.
1 gær tilkynntu 3 skip um 2000
lestir, og f jölmörg skip voru þá á
leið á miöin, en ekkert lát viröist
á veiðinni. Veiðisvæðið er i djúp-
kantinum meðfram Halanum.
Flest skipin lönduöu af la sinum
á Siglufirði I gær, en aflahæsta
skipiö, Sigurður sem var með
fullfermi 1400 lestir, landaði i
Vestmannaeyjum.
Tvö skip sem voru aö veiðum
viö Jan Mayen eru lögð af stað á
miðin úti fyrir Vestfjörðum, auk
þess sem fjölmörg loðnuskip eru
að teggja af stað til veiða, i fyrsta
sinn á þessari vertið.
,,Það gekk ágætlega að taka við
þessum mikla afla, en það hefði
sjálfsagt orðið erfitt, ef öll 50
loðnuskipin hefðu verið á miöun-
um og lent i þessari mokveiði”,
sagði Andrés. „Loðnan er búin að
vera þarna nokkurn tima, sjó-
menn vissu af henm, en veðrið
hefur hamlað veiðum þar til nú,
eftir að þetta svæöi var opnað”.
Loðnan fékkst i fyrradag
og gær, er mjög góð og feit. tJr
einum skipsfarminum mældist
allt að 20% feit loðna, sem er
mjög gott á þessum tima árs.
-Ig-